Dagur - 02.09.1987, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 2. september 1987
_Frá Fjórðungsþingi Norðlendinga_________
Lýsir ánægju með
störf RUVAK
- segir m.a. í menningarmálaályktun þingsins
JþróttiL
Vinningshafar á Svalamótinu í golfi. Mynd: KK
Svalamótið í golfi:
Þórleifur og
Eggert sigruðu
í tillögu stjórnar fjóröungs-
sambandsins um menningar-
mál sem fyrir þinginu iá kom
m.a. fram hörö gagnrýni á
forráðamenn Ríkisútvarpsins
fyrir að hafa ekki komið á
útsendingum til alls Norður-
lands frá Ríkisútvarpinu á
Akureyri auk þess sem sagt var
að dagskrárgerð og fréttaöflun
svæðisútvarpsins sé einhliða
fjarstýrt frá Ríkisútvarpinu í
Reykjavík. Sigríður Stefáns-
dóttir, þingfulltrúi frá Akur-
eyri, gagnrýndi stjórn sam-
bandsins harðlega fyrir að hafa
slík orð um svæðisútvarpið og
taldi hún að allir gætu verið
sammála um að þar væri dæmi
um starfsemi sem hefði verið
flutt út á Iand frá Reykjavík.
Á fund menningarmálanefndar
mættu fulltrúar frá Háskólanum
á Akureyri, Menningarsamtök-
um Norðurlands (MENOR) og
einnig útvarpsstjóri, Markús Örn
Antonsson. Málin voru rædd og
endursamin tillaga að ályktun
þingsins um menningarmál. Til-
laga sú er menningamálanefnd
lagði fyrir þingið og var sam-
hljóða samþykkt var svohljóð-
andi:
Um háskólakennslu
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Dalvík 26.-27. ágúst
1987 fagnar þeim áfanga í
menntamálum landsbyggðarinn-
ar, að hafin verður á þessu ári
regluleg háskólakennsla á Akur-
eyri. Þingið lýsir ánægju sinni
með að skólinn verði sjálfstæð
stofnun.
Þingið skorar á Alþingi að
leggja metnað í uppbyggingu
hans og tryggja fjárveitingar, svo
hann þróist eðlilega og fjöl-
breytni í námi aukist. Þá ber
brýna nauðsyn til þess að koma
upp íbúðarhúsnæði fyrir stúd-
enta.
Um fjölmiðlun
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Dalvík 26.-27. ágúst
1987 lýsir fyrir ánægju sinni með
störf deildar Ríkisútvarpsins á
Akureyri og bendir á hana sem
gott dæmi um að hægt er að flytja
störf út um land sem áður var
sinnt í Reykjavík.
Þessa starfsemi þarf enn að
auka m.a. með meiri fréttaöflun
á landsbyggðinni og betra dreifi-
kerfi.
Fjórðungsþingið leggur áherslu
á að lögþoðnir tekjustofnar
útvarpsins til uppbyggingar dreifi-
kerfis verði ekki skertir af
alþingi.
Þingið bendir á að með til-
komu „ljósleiðara“ gjörbreytast
öll skilyrði til sendingar sjón-
varps og hljóðvarps. Þingið skor-
ar á yfirstjórn Ríkisútvarpsins að
koma sem allrar fyrst á útsend-
ingu til alls Norðurlands frá
Svæðisútvarpinu á Akureyri.
Einnig bendir þingið á þá
möguleika sem ný tækni í fjöl-
miðlun gefur til fjarkennslu.
Fjórðungsþingið bendir á að
hafin er samkeppni um efnisval
og hylli notenda og hvetur sveit-
arfélög og aðra aðila á Norður-
landi til að halda vöku sinni varð-
andi uppbyggingu hljóðvarps- og
sjónvarpsstöðva á Norðurlandi.
Um Menningarsamtök
Norðlendinga MENOR
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Dalvík 26.-27. ágúst
1987 telur að samtök eins og
Menningarsamtök Norðlendinga
hafi vaxandi hlutverki að gegna.
Þingið skorar á sveitarfélög á
Norðurlandi, menntamálaráðu-
neytið og fjárveitingavald að
styrkja Menningarsamtök Norð-
lendinga með framlögum til að
koma á reglulegum menningar-
hátíðum á Norðurlandi og stuðla
að áframhaldandi rekstri samtak-
anna.
Um skólamál
Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Dalvík 26.-27. ágúst
1987 lýsir stuðningi við þá skóla-
stefnu sem fylgt hefur verið á
Norðurlandi og miðast við að
framfylgja gildandi grunnskóla-
lögum.
Þingið leggur ríka áherslu á að
þegar verði fullnægt þörf fyrir
stuðnings- og sérkennslu eins og
lög gera ráð fyrir.
Einnig bendir þingið á nauðsyn
þess að ríkisvaldið standi við
skuldbindingar sínar varðandi
uppbyggingu skólahúsnæðis og
að eðlileg uppbygging skóla eigi
sér stað á Norðurlandi.
Þingið telur að frumvarp til
grunnskólalaga sem liggur fyrir
alþingi leiði ekki til úrbóta í
skólamáluin. Þingið vísar til
umsagna fræðsluráða hér á
Norðurlandi um efnisleg atriði
málsins, og leggur því til að frum-
varpið verði dregið til baka.
Fjórðungsþingið bendir á þá
staðreynd að færri hefja fram-
haldsnám úti á landsbyggðinni en
á höfuðborgarsvæðinu eða ann-
ars staðar þar sem framhalds-
menntun er nálæg. Með skírskot-
un til þessa leggur þingið ríka
áherslu á sérstakar aðgerðir tij,að
jafna aðstöðu íbúa landsbyggðarr
innnar til að sækja framhalds-
nám.
Með tilliti til þessa er skorað á
menntamálaráðherra að svo-
nefndir dreifbýlisstyrkir verði
miðaðir við að gera öllum
nemendur fært að sækja fram-
haldsnám í önnur byggðarlög.
Fjórðungsþingið bendir á
nauðsyn þess að efla námsfram-
boð á framhaldsskólastigi sem
tekur mið af þörfum frumat-
vinnugreina landsbyggðarinnar.
Svalamótið, opið unglingamót
í golfi fór fram að Jaðri um
helgina. Leiknar voru 36 holur
með og án forgjafar. Keppend-
ur sem voru 16 ára og yngri
voru alls 26 talsins. Eggert
Eggertsson GA nýkrýndur
Norðurlandsmeistari, sigraði
mjög örugglega í keppni án
forgjafar en Þórleifur Karlsson
GA í keppni með forgjöf.
Öldungamót UNÞ í frjálsum
íþróttum var haldið í Lundi,
samfara héráðsmótinu fyrr í
sumar. Keppt var í karla- og
kvennaflokki og var keppt í
fjórum greinum í hvorum
flokki. UMF. Öxfírðinga varð
stigahæst félaga en stigahæst
einstaklinga urðu þau Erla
Óskarsdóttir og Páll Þormar.
Úrslit í mótinu urðu þessi:
Karlar
100 m hlaup: sek.
1. Páll Þormar, Au. 14,2
2. Haraldur Jónsson, Au. 14,7
Langstökk: metrar
1. Ólafur Helgason, Au. 4,86
2. Páll Þormar, Au. 4,81
3. Halldór Gunnarsson, Öx. 4,68
Kúluvarp: nictrar
1. Karl S. Björnsson, Öx. 9,96
2. Páll Þormar, Au. 8,26
3. Haraldur Jónsson, Au. 7,77
Kringlukast: metrar
1. Karl S. Björnsson, Öx. 29,95
2. Páll Þormar, Au. 25,49
3. Brynjar Halldórsson, Öx. 22,44
Það var fyrirtækið Sól hf. sem
gaf verðlaunin í mótið. Þrír efstu
menn í keppni með og án forgjaf-
ar urðu þessir:
Án forgjafar:
1. Eggert Eggertsson GA 152
2. Þórleifur Karlsson GA 162
3. Haukur Óskarsson GA 165
Með forgjöf:
1. Þórleifur Karlsson GA 128
2. Eggert Eggertsson GA 132
3. Ingvar Þór Ólafsson GR 137
100 m lilaup: sek.
1. Sigríöur R. Guðmundsdóttir, Sn. 16,4
2. Erla Óskarsdóttir, Öx. 17,0
3. Hólmfríður Halldórsdóttir, Sn. 17,5
Langstökk: metrar
1. Sigríður R. Guðmundsdóttir, Sn. 3,70
2. Hólmfríður Halldórsdóttir, Sn. 3,18
3. Erla Óskarsdóttir, Öx. 2,92
Kúluvarp: metrar
1. Erla Óskarsdóttir, Öx. 8,80
2. Una Elíasdóttir, Au. 6,84
3. Hólmfríður Halldórsdóttir, Sn. 6.48
Kringlukast: metrar
1. Erla Óskarsdóttir, Öx. 19,33
2. Björg Dagbjartsdóttir, Öx. 16,31
3. Hólmfríður Halldórsdóttir, Sn. 14,90
Stigahæstu konur: stig
1. Erla Óskarsdóttir, Öx. 15
2. Sigríður R. Guðmundsdóttir, Sn. 10
3. Hólmfrlður Halldórsdóttir, Sn. 9
Stigahæstu karlar: stig
1. Páll Þormar, Au. 14
2. Karl S. Björnsson, Öx. 10
3. Haraldur Jónsson, Au. 7
Stig félaga: stig
1. Umf. Öxfirðinga 32
2. Umf. Austri, Raufarhöfn 29
3. Umf. Snörtur, Presthólahreppi 20
Púlvika!!
5 daga púlvika hefst 7. sept.-ll. sept.
í jazzleikfinii og Aerobic.
5 daga púl!! pú!!! púl!!
Kennarar:
Alice Jóhanns. og Ásta Sigurðard.
Innritun frá kl. 17-19 í síma 24979.
Vetrarnámskeið hefjast 21. sept.
Innritun er hafin í alla flokka.
J *
Ppmsstumoí
Tryggvabraut 22
Akureyri
Walkc
Sími 24979
Öldungamót UNÞ í frjálsum íþróttum:
Erla og Páll
stigahæst
Konur