Dagur - 21.09.1987, Síða 1
70. árgangur Akureyri, mánudagur 21. september 1987 178. tölublað I
AUt fyrir
I F
ft HAFNARSTRÆTI 92 . 602 AKUREYRI. SlMI 96-26708 . BOX 397
Bæjarráð vill byggja hús fyrir aldraða við Víðilund:
Ánægður að það er
komin hreyfing á málið
- segir Sigurður Jóhannesson
Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum sl.
fimmtudag að leggja til við
bæjarstjórn, sem kemur saman
til fundar á mórgun, að fela
framkvæmdanefnd íbúðabygg-
inga fyrir aldraða að hefja sem
fyrst framkvæmdir við grunn
húss við Víðilund og Ijúka við
gerð plötu. Hér er um að ræða
fjölbýlishús með 30 íbúðum.
íbúðirnir verða flestar í einka-
eign, en Akureyrarbær mun
byggja og reka þjónustumið-
stöð fyrir íbúana auk þess sem
bærinn getur keypt a.m.k.
10% íbúðanna.
Framkvæmdanefndinni var jafn-
framt falið að kynna öldruðum
Akureyringum væntanlegt hús og
að þeim gæfist kostur á að kaupa
Kartöflurækt:
Geymslupláss bænda á þrotum
Nú stefnir í að kartöfluupp-
skera verði meiri en nokkru
sinni áður. Kartöflubændur á
Eyjafjarðarsvæðinu Ijúka senn
upptöku en tíðarfarið síðustu
daga hefur sett nokkurt strik í
reikninginn. Garðar eru orðn-
ir nokkuð blautir en með
batnandi veðri ætti að takast
að Ijúka upptöku.
Ólafur Vagnsson, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarð-
ar sagði í samtali við blaðið að
árið 1984 hefði uppskera hjá ey-
firskum kartöflubændum náð
hámarki en þá komu um 6000
tonn upp úr görðunum.
„Mér finnst ekki ótrúlegt að
uppskeran nú í ár verði 7-8000
tonn sem er mesta uppskera sem
um getur hér á Eyjafjarðarsvæð-
inu. Það mun hafa verið sett nið-
ur í minna flatarmál hér á svæð-
inu í ár en ég held að fullyrða
megi að uppskeran verði mun
meiri þrátt fyrir það,“ sagði Ólaf-
ur.
Dæmi eru til að uppskera sé
tuttuguföld miðað við það sem
sett er niður og verður það að
teljast nánast einsdæmi því í
meðalári er talið að uppskera sé
tólfföld. Heildarmagn af kartöfl-
um verður því mikið og sagði
Ólafur að margir bændur væru í
vandræðum með geymslupláss og
ljóst væri að hjá sumum þeirra
væri ekki til geymslupláss nema
til skamms tíma.
Útlit er fyrir að reynt verði að
selja kartöflur úr landi í haust
þ.e. umframframleiðsluna en
ekki er ljóst hve hátt verð fæst
fyrir kartöflurnar né heldur hvort
hægt verður að stöðva innflutn-
ing á kartöflum eins og kartöflu-
bændur hafa óskað eftir. JÓH
sér íbúð í því. Sömuleiðis á
nefndin að vinna að stofnun
félags þeirra sem ákveða að
kaupa íbúðir í húsinu. Félags-
skapur íbúðaeigenda mun annast
framkvæmdir við gerð hússins frá
grunnplötu. Búist er við að sú
kvöð hvíli á íbúðunum að íbúar
þeirra verði komnir á sjötugs-
aldur.
Samkvæmt heimildum Dags
hefur bæjarráð tekið sér nokkuð
lengri tíma til að afgreiða þetta
mál en eðlilegt getur talist. Ráðið
hefur t.d. frestað afgreiðslu á
fundargerðum framkvæmda-
nefndar þar til nú að fulltrúar
bæjarráðs tóku af skarið og
afgreiddu málið til bæjarstjórnar.
„Ég er afar ánægður með að
það skuli vera komin hreyfing á
málið. Eftir að bæjarstjórn hefur
samþykkt bókun bæjarráðs sé ég
ekki neitt sem getur komið í veg
fyrir að byggingaframkvæmdir
hefjist innan tíðar,“ sagði Sigurð-
ur Jóhannesson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins í bæjarráði í
samtali við Dag.
A laugardaginn var haldin uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Leifturs í
Olafsflrði. Þar var kjörinn besti leikmaður liðsins á nýliðnu keppnistímabili
og hlaut Þorvaldur Jónsson þann titil í ár. Hann hampar hér verðlaunum sín-
um en við hlið hans stendur Hafsteinn Jakobsson sem kom næst Þorvaldi að
Stigum. Mynd: JÓH
Vatnsbólið við Raufarhöfn:
Hreppurinn sniðgengur til-
mæli heilbrigðisfulltrúa
Raufarhafnarhreppur hefur
ekki oröið við tilmælum heil-
brigöisfulltrúa á Húsavík um
að gengið verði frá vatnsbóli
staðarins sem er í Presthóla-
hreppi en heilbrigðisfulltrúi fór
fram á það í bréfi í nóvember á
sl. ári. Vatnsbólið er opið og
skepnum fært að því þar sem
engin girðing er í kring. Ekkert
hefur verið gert í þessum mál-
um í sumar og hefur heilbrigð-
isfulltrúi nú ítrekað tilmæli sín.
í bréfi heilbrigðisfulltrúa sem
dagsett er 10.09. sl. segir m.a. um
ástandið við vatnsbólið: „Bakkar
vatnsbólsins eru mengaðir kinda-
saur og rannsóknir hafa sýnt
saurmengun í vatninu. Slíkt get-
Siglufjörður:
Siglunesvegurinn inn
á skipulag bæjaríns
Á fundi bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar í síðustu viku var sam-
þykkt að færa fyrirhugaða
vegagerð Stefáns Einarssonar
bónda á Siglunesi inn á skipu-
lag bæjarins. Atkvæði féllu 5 á
móti 4. Allir 3 bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins ásamt öðr-
um alþýðubandalagsmannin-
um og framsóknarmanninum
greiddu atkvæði með en krat-
arnir 3 og hinn allaballinn voru
á móti.
Þessi samþykkt þýðir útvíkkun
aðalskipulags Siglufjarðarbæjar
frá því sem nú er og mun það eft-
ir breytinguna ná austur t'yrir
fjörðinn og alla leið út á Siglunes.
Búist er við að það taki málið
nokkra mánuði að fara eftir lög-
skipuðum farvegi.
„Þetta er áfangasigur í málinu
fyrir mig, þó að búast megi við að
málið eigi eftir að tefjast eitthvað
enn. Ég held að það sé borin von
að eitthvað verði hægt að vinna
að vegagerðinni í haust eða
vetur, eins og ég hafði gert mér
,vonir um, en þetta verður að vera
orðið klárt fyrir næsta vor. Það er
ekki hægt að búast við að menn
geti látið dýr tæki standa verk-
efnalaus endalaust," sagði Stefán
bóndi og vitavörður á Siglunesi.
En Stefán festi fyrir nokkrum
mánuðum kaup á 45 tonna jarð-
ýtu sem hann hyggst nota við
vegagerðinna. -þá
ur haft alvarlegar afleiðingar fyrir
heilsu neytenda og til vatns sem
er notað í matvælaiðnaði eru
gerðar sömu kröfur og til neyslu-
vatns.“ Þess er farið á leit við
hreppinn að vatnsbólinu verði
lokað svo yfirborðsvatn geti ekki
komist í neysluvatnið svo og að
girt verði í kringum vatnsbólið
skv. þar að lútandi reglugerðunt.
Auk Raufarhafnarhrepps hafa
þrjú býli í Presthólahreppi afnot
af vatninu. „Okkur er auðvitað
ekki sama um þetta. Hér er
alvarlegt mál á ferðinni og það
alvarlegasta er að hreppurinn
skuli ekki enn hafa farið að til-
mælum heilbrigðiseftirlits og
bjóði þannig hættunni heim,“
sagði einn landeigenda í samtali
við Dag.
„Mengun hefur mælst í vatns-
bólinu þó ekki hafi síðustu mæl-
ingar sýnt slíkt. Þarna er kinda-
saur í kring sem á greiða leið í
vatnsbólið nteð yfirborðsvatni
auk þess sem fuglar geta sest á
vatnsbólið og dritað í vatnið og
það sjá allir að slíkt er alvarlegt
mál. Það er rétt að ég sendi bréf
til Raufarhafnarhrepps í fyrra
varðandi þetta mál en ég hef lítil
viðbrögð fengið við því og þess
vegna verður að ítreka kröfu um
. að gengið verði frá vatnsbólinu
fyrir veturinn," sagði Alfreð
Schiöth heilbrigðisfulltrúi á
Húsavík.
Tekið skal fram að ekki náðist
í sveitarstjóra á Raufarhöfn
vegna þessa. JÓH
Siglufjörður:
Tvö embætti
lögð niður
Bæjarstjórn Siglufjarðar sam-
þykkti á fundi sínum í síðustu
viku ákveðnar skipulagsbreyt-
ingar á bæjarskrifstofunni sem
munu koma til framkvæmda
um næstu áramót.
Við þessar breytingar verða
störf aðalbókara og íþróttafull-
trúa lögð niður. Verkefni sem
aðalbókari hafði með höndum
munu skiptast á milli bæjarritara
og annarra starfsmanna bæjar-
skrifstofunnar og þá munu verk-
efni sem bæjarritari hafði áður
færast yfir á bæjarstjóra. Stöðu
íþróttafulltrúa mun verða breytt í
félagsmálastjóra sem áformað er
að hafi með höndum íþrótta- og
æskulýðsmál, öldrunarmál og
önnur mál sem tengjast félags-
málum á vegum bæjarins. -þá