Dagur - 21.09.1987, Qupperneq 9
8 - DAGUR - 21. september 1987
Knatt-
spymu-
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. dcild
ensku knattspyrnunnar á laug-
ardag urðu þessi:
1. dcild:
Arsenal-Wimbledon 3:0
Charlton-Luton 1:0
Chelsea-Norwich 1:0
Coventry-Nottingham For. 0:3
Derby-ShefTield Wed. 2:2
Everton-Manchester Utd. 2:1
Newcastle-Liverpool 1:4
Oxford-Q.P.R. 2:0
Watford-Portsmouth 0:0
West Ham.-Tottenham 0:1
2. deild:
Birmingham-Shrewsbury 0:0
Bradford-Blackburn 2:1
Huddersficld-Aston Villa 0:1
Hull City-Oldham 1:0
Ipswich-Swindon 3:2
Leicester-Plymouth 4:0
Manchester City-Stoke City 3:0
Middlesbrough-Leeds Utd. 2:0
Reading-Crystal Palace 2:3
Sheffield Utd.-Millwall 1:2
W.B.A.-Bournemouth 3:0
Staðan
1. i leild
Q.P.R. 8 6-1-1 12: 4 19
Tottenhuni 8 5-2-1 12: 5 17
Liverpool 6 5-1-0 16: 5 16
Chelscu 8 5-0-3 15:11 15
Nottm.Forest 8 4-2-2 13: 9 14
Man.United 8 3-4-1 13: 7 13
Everton 8 3-3-2 9: 5 12
Wimbledon 8 3-3-2 10: 9 12
Arsenal 7 3-2-2 11: 5 11
Coventry 7 3-1-3 8:11 10
Derby 6 2-3-1 6: 5 9
I.uton 8 2-2-410:12 8
Oxford 7 2-2-3 10:14 8
Watford 7 2-2-3 5: 7 8
Southampton 7 1-4-210:11 7
Norwich 7 2-1-4 6: 8 7
Portsmouth 81-4-3 7:17 7
West Ham 71-3-3 7:10 6
Newcastle 7 1-2-4 6:13 5
Charlton 71-1-5 7:14 4
Sheff.Wed. 8 0-3-5 7:17 3
Staðan
2. t leild
C.Palace 9 5-3-1 24:12 18
Hull 9 4-5-0 13:8 17
Bradford 7 5-1-1 11:5 16
Barnsley 8 4-2-3 9:8 14
Birmingham 8 4-2-2 9:10 14
Millwall 7 4-1-2 12:9 13
Middlesbrough 8 4-1-3 11:8 13
Swindon 8 4-1-3 10:10 13
Ipswich 8 3-3-2 9:6 12
Plymouth 8 3-2-3 13:12 11
Blackburn 9 3-2-4 11:13 11
Bornemouth 8 3-1-4 9:11 10
Leeds 9 2-4-3 3:6 10
Man.City 6 2-3-1 8:5 9
Aston Villa 8 2-3-3 6:7 9
W.B.A 8 2-2-4 11:14 8
Oldliam 8 2-2-4 7:12 8
Stoke 8 2-2-4 5:12 8
Shrewsbury 8 1-5-2 3:4 8
Reading 6 2-1-3 5:7 7
Leicester 7 2-0-5 7:8 6
ShelT.United 8 1-2-5 6:10 5
Huddersfield 7 0-4-3 7:14 4
______________íþróttic__________________________
Enska knattspyrnan:
Risaslagur á Goodison Park
- QPR tapaði sínum fyrsta leik
Þaö var sannkallaður risaslagur sem
fram fór á rennblautum velli Everton.
Goodison Park á laugardag þar sem
mættust Englandsmeistarar Everton
og hið stjörnum prýdda lið Manchest-
er Utd. Gífurleg barátta var í leiknum
sem var vel leikinn af báðum iiðum og
dómarinn hafði í nógu að snúast, bók-
aði sjö leikmenn.
Heimaliðið hafði undirtökin í fyrri
hálfleik og náði þá forystu með marki
Wayne Clarke á 36. mín. Trevor Stev-
en átti þá fyrirgjöf fyrir mark Utd..
hinn 19 ára garnli markvörður Man-
chesterliðsins sló boltann frá, en
Clarke náði að skalla knöttinn til
baka, í stöng og inn. Gary Walsh var
heldur óöruggur í marki Utd. í leikn-
um og liðið er nú á höttunum eftir öðr-
um markverði. Rétt fyrir leikhlé var
Brian McClair nærri því að jafna, en
mistókst í góðu færi.
Wayne Clarke afgreiddi Man. Utd.
Snemma í síðari hálfleik bætti
Wayne Clarke við öðru marki fyrir
Everton. Hann sýndi þá mikið harð-
fylgi, umkringdur varnarmönnum
Utd. tókst honum að krafla sig í gegn
og skora. Varla höfðu heintamenn
hætt að fagna markinu þegar Norman
Whiteside hafði lagað stöðuna fyrir
Man. Utd. eftir hornspyrnu Gordons
Strachan. Mikil spenna það sem eftir
var leiksins, en leikmönnum Everton
tókst að halda fengnum hlut, þrátt fyr-
ir að Alex Ferguson skipti báðum
varamönnum sínum, þeim Peter
Davenport og Bill Garton inn á um
miðjan síðari hálfleik í stað Strachan
og Greame Hogg.
Miðvallarleikmenn Everton höfðu
undirtökin á miðjunni og sigur liðsins
sanngjarn, örugglega mikill léttir fyrir
framkvæmdastjórann Colin Harvey
eftir fremur slaka byrjun liðsins í
haust.
Oxford snaraði út £ 500.000 í vik-
unni þegar liðið keypti þá Richard Hill
og David Bardsley frá Watford og
árangurinn lét ekjfi á sér standa. Peir
léku báðir stórt hlutverk í sigri Oxford
gegn efsta liðí 1. deildar Q.P.R. sem
tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu
2:0.
Það var Hill sem skoraði strax á 15.
mín. fyrir Oxford eftir sendingu frá
Bardsley, skallaði inn sitt fyrsta mark
fyrir liðið. Hann var nærri því að bæta
við öðru skallamarki stuttu síðar, en
lagði síðan upp síðara mark Oxford
rétt fyrir leikhlé sem Ray Houghton
skoraði með góðu skoti. Það er þó
ekki víst að Houghton, besti leikmað-
ur Oxford verði lengi í þeim herbúð-
um því talið er að félagið muni fjár-
magna kaupin á Hill og Bardsley með
því að selja hann. Leikmenn Q-P.R.
höfðu undirtökin í síðari hálfleiknum,
en tókst ekki að skora, voru þó
óheppnir þegar Dean Coney átti skot í
stöng.
Tottenham sigraði West Ham á
Upton Park í fyrsta sinn á 14 árum í
hörkuleik þar sem 5 leikmenn voru
bókaðir.
Eina mark leiksins kom 6 mín. fyrir
lok fyrri hálfleiks. Eftir hornspyrnu
barst boltinn út í teiginn þar sem mið-
vörðurinn Chris Fairclough tók við
honum og sendi hann í netið hjá West
Ham með þvílíku þrumuskoti að
markvörðurinn sá hann ekki fyrr en
mark var staðreynd. Ardiles átti enn
einn stórleikinn fyrir Tottenham og
ungur nýliði. Paul Moran sem lék í
stað Chris Waddle sem var meiddur
lék einnig mjög vel.
West Ham sótti nokkuð í síðari
hálfleik og þeir Tony Cottee og Frank
McAvennie voru hættulegir, en vörn
Tottenham varðist af hörku og tókst
að halda út..
Don Howe og Bobby Gould sem nú
eru við stjórnvölinn hjá Wimbledon
komu með lið sitt í heimsókn til
Arsenal þar sem þeir voru báðir í
vinnu áður. Howe sem framkvæmda-
stjóri og Gould sem leikmaður. Eftir
aðeins 2 mín. hafði Arsenal tekiö for-
ystu, brotið var á Perry Groves og
Mike Thomas skoraði úr vítinu. Á 20.
mín. bætti Alan Smith við öðru marki
Arsenal með skalla eftir undirbúning
Kenny Sansom og rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks skoraði Andy Thorn sjálfs-
mark þegar hann blandaði sér í
meinlaust skot David Rocastle.
Arsenal hafði mikla yfirburði í leikn-
um án þess að bæta við mörkum, en
varnarmönnum liðsins hefði ekki veitt
af radar til að fylgjast með hinum
löngu og háu spörkum sem Wimble-
don er frægt fyrir, því lágskýjað var
þegar leikurinn fór fram. Þeir Howe
og Gould sem brosmildir höfðu komið
um aðaldyrnar á Highbury laumuðust
hljóðlega út bakdyramegin í leikslok.
Derby hafði algera yfirburði yfir
Sheff. Wed. í fyrri hálfleik og tveggja
marka forystu. Skallamörk frá John
Gregory og bakverðinum Michael
Forsyth. Það virtist aðeins formsatriði
hjá þeim að Ijúka leiknum.
En Sheffield sneri við blaðinu í síð-
ari hálfleik, Gary Megson skallaði í
mark eftir aðeins 4 mín. og þegar Mel
Sterland jafnaði úr víti sem hann fisk-
aði sjálfur hafði liðið öll völd á vel'in-
um og aðeins stórleikur miðvarðarins
Mark Wright sem nýlega var keyptur
frá Southampton fyrir £ 700.000 kom í
veg fyrir sigur Sheffield sem nú er í
neðsta sæti 1. deildar.
Kerry Dixon skoraði sigurmark
Chelsea eftir aðeins 4 mín. í heimaleik
liðsins gegn Norwich, en hann kom nú
Newcastle 1
Newcastle og Liverpool léku sinn leik
á sunnudag þar sem honum var sjón-
varpað beint á Englandi.
Og Liverpool lék við hvern sinn
fingur í leiknum og sigraði örugglega
með fjórum mörkum gegn einu.
John Barnes átti frábæran leik í liði
Liverpool þótt honum tækist ekki að
skora og það var eftir sendingu frá
honum sem Steve Nicol skoraði fyrsta
markið snemma í leiknum. John Ald-
ridge bætti við öðru rnarki fyrir
leikhlé, en þetta var áttundi leikurinn
sem hann byrjar inn á hjá liðinu og í
þeim öllum hefur hann skorað mark.
Síðari hálfleikurinn var nýhafinn þeg-
ar Nicol skoraði sit annað mark, eftir
sendingu frá Peter Beardsley, dýrasta
leikmanni á Englandi, en hann var
einmitt keyptur frá Newcastle í sumar
fyrir £ 1,9 milljónir. Neil McDonald
minnkaði muninn með marki úr víta-
spyrnu eftir að brotið var á besta
manni Newcastle, Brasilíumanninum
Mirandinha, sen er langt á undan sam-
herjum sínum í hugsun og getu, en fær
ekki þær sendingar sem hann þarf.
Liverpool slakaði ekkert á tökum
sínum á leiknum og fyrir leikslok bætti
Nicol við fjórða marki liðs síns og sínu
þriðja í leiknum.
Með þessum sigri er Liverpool kom-
ið í þriðja sæti deildarinnar með 16
aftur inn í liðið eftir lélegt gengi hans
í fyrstu leikjunum.
Bikarmeistarar Coventry fengu
skell á heimavelli gegn Nottingham i
For. Terry Wilson lék sinn fyrsta leik i
fyrir Forest og náði forystu fyrir lið sitt
í fyrri hálfleik. í þeim síðari bættu
Franz Carr og Stuart Pearce (víti) við |
mörkum fyrir Nottingham liðið.
Charlton vann sinn fyrsta sigur !■
deildinni með marki Garth Crooks 5 ,
mín. fyrir leikhlé, og það dugði gegn
Luton. Charlton sem í vikunni keypti
landsliðsmiðherja Wales, Andy Jones
frá Port Vale lyfti sér þar með af botni
1. deildar.
Garth Crooks tryggði Charlton sinn
fyrsta sigur í 1. deild.
Watford og Portsmouth skildu jöfn
án þess að skora í daufum og tilþrifa-
litlum leik í Watford.
í 2. deild hefur Bradford tekið for-
ystu, en Crystal Palace fylgir fast á
eftir, bæði liðin sigruðu á laugardag.
Hull City hefur ekki tapað leik, en
stóru liðin í deildinni virðast vera að
ná fótfestu.
Imre Varadi skoraði öll þrjú mörk
Man. City gegn Stoke og Steve Hunt
skoraði sigurmark Aston Villa gegn
Huddersfield, en Middlesborough
eyðilagði daginn fyrir markverði
Leeds Utd,. Mervyn Day sem lék sinn
500. deildarleik með því að sigra með
tveim mörkum gegn engu.
- Liverpool 4
Steve Nicol með þrennu fyrir Liverpool í
gær.
stig, en í síðustu viku vann liöiö Charl-
ton 3:2 í einum þriggja heimaleikja
liðsins sem frestað var í upphafi leik-
tímabilsins og nú er Livcrpool eina
taplausa liðið í 1. deild.
Þrátt fyrir að enn sé of snemmt að
spá liðinu Englandsmeistaratitli, cr
þegar ljóst að erfitt verður að stöðva
liðið ef það heldur áfram að leika eins
vel og undanfarið.
ÞLA
Sunnudagur:
21. september 1987 - DAGUR - 9
I
Ur lcik KA og KR í æfíngamótinu. KA-maðurinn Friðjón Jónsson er hér á leið í gegnum vörn KR-inga og svipur
hans gefur til kynna að hann sé ekki ánægður með viðtökur þeirra. Mynti: ri>b
KA-menn taplausir
- í æfingamóti í handknattleik sem haldið var á Akureyri um helgina
Um helgina fór fram æfinga-
mót í handknattleik á Akur-
eyri. Til stóð að fjögur lið
tækju þátt í mótinu þ.e. Þór,
KA, KR og HK en þegar til
kom mættu HK-menh ékki til
Ieiks og því kepptu aðeins þrjú
lið. Mótið hófst því ekki á
föstudagskvöld eins gert hafði
verið ráð fyrir en í stað þess
spiluðu KR og Þór einn leik
utan móts á föstudagskvöld og
lauk þeim leik með sigri KR,
sextán mörkum gegn fjórtán.
KA-Þór
Akureyrarliðin KA og Þór hófu
leikinn á laugardaginn. KA-
menn náðu fljótlega yfirhöndinni
í leiknum en Þórsarar frískuðust
nokkuð undir lok hálfleiksins og
skoruðu tvö seinustu mörkin og
bættu stöðuna þannig að í hálf-
leik var staðan 11:8 fyrir KA.
Þórsarar bættu einu marki við
strax í upphafi seinni hálfleiks en
eftir það kom góður kafli hjá
KA-mönnum og staðan var að
stuttum tíma liðnum orðin 19:9.
Þórsarar tóku sig þá saman í and-
litinu og löguðu stöðuna aðeins,
komust í 20:14 en þá slökuðu
þeir aftur á og KA nýtti sér þetta
og lokastaðan varð 26:16 fyrir
KA.
Markahæstu menn hjá KA
voru Jakob Jónsson sem skoraði
8 mörk og Pétur Bjarnason sem
skoraði 7 mörk. Markahæsti
maður Þórs var Sigurpáll Árni
Aðalsteinsson sem skoraði 7
mörk.
KA-KR
Strax að loknum leik Þórs og KA
léku KR og KA. KA-menn virt-
ust vera orðnir þreyttir eftir fyrri
leikinn og KR-ingar tóku strax
fjögurra marka forskot. Að 11
•mínútum liðnum var staðan orð-
in 2:5 fyrir KR og KA minnkaði
enn forskotið. KR-ingar bættu
síðan stöðu sína um miöjan hálf-
leikinn og komust í 4:9 en sein-
ustu 4 mörk hálfleiksins voru
KA-manna og staðan var því 8:9
í hálfleik.
Síðari hálfleikur var í anda
þess fyrri, KR-ingar höfðu yfir-
höndina en KA-menn sóttu í sig
veðrið og leiknum lauk með jafn-
tefli 20 mörkum gegn 20.
Markahæsti maður KR var
Konráð Ólafsson sem skoraði 6
mörk. Markahæsti maður KA
var Friðjón Jónsson sem skoraði
8 mörk.
Þór-KR
Síðasti leikur í fyrri umferð móts-
ins var leikur Þórs og KR. Þórs-
arar voru nú frískari aðilinn
framan og náðu forskoti á
þreytulega KR-inga. Staðan var í
hálfleik 16 mörk gegn 12 fyrir
KR.
KR-ingar ætluðu ekki að gefa
sinn hlut í síðari hálfleiknum og
bættu-stöðu sína með þá Stefán
Kristjánsson og Konráð Jónsson
fremsta í flokki. Þeir félagar léku
vörn Þórs og markvörð oft grátt
og leiknum lauk með jafntefli 24
mörk gegn 24. Óheppnir þar,
Þórsarar.
Markahæstu menn Þórsara
voru Ólafur Hilmarsson og Jó-
hann Samúelsson, skoruðu 5
mörk hvor. Markahæstur KR-
inga var Stefán Kristjánsson sem
skoraði 7 mörk.
Þór-KA
í gær var leikin síðari umferð
mótsins og enn hófu Akureyrar-
liðin leik. KA-menn höfðu yfir-
höndina strax í fyrri hálfleik og
höfðu yfir 9 mörk gegn 6 í hálf-
leik. Þegar staðan var 9:13
snemma í seinni hálfleik varð
vendipunktur í leiknum og KA
bætti við hverju markinu af öðru.
Þannig var staðan orðin 19:10 að
stuttum tíma liðnum. Þórsarar
gátu haldið þessum mun til leiks-
loka og lokastaðan var 24:14 fyrir
KA.
Markahæsti maður hjá Þór var
Baldvin Heiðarsson sem skoraði
4 mörk en þeir Eggert Tryggva-
son og Friðjón Jónsson skoruðu
mest KA-manna, 5 mörk.
KR-Þór
Þórsarar léku síðasta leik sinn
gegn KR-ingum. KR-ingar náðu
fljótlega yfirhöndinni í leiknum
og í hálfleik var staðan 12 mörk
gegn 7, KR í hag. Síðari hálfleik-
ur var í þessum anda, KR-ingar
bættu heldur í og lokastaðan varð
29:13.
Markahæsti maður Þórs var
Gunnar Gunnarsson sem skoraði
4 mörk en Konráð Ólafsson var
örugglega markahæstur KR-inga,
skoraði hvorki fleiri né færri en
10 mörk.
KR-KA
í síðasta leiknum áttust síðan við
KA og KR. KA menn náðu for-
ystunni strax í upphafi og héldu
henni til hálfleiks, leiddu þá með
10 mörkum gegn 8. Þeir mættu
síðan ákveðnir til síðari hálfleiks
og juku forskot sitt. Lokatölurn-
ar urðu 23:14, KA í hag og liðið
stóð þar með uppi taplaust eftir
mótið.
Markahæstir leikmanna KA
voru Pétur Bjarnason og Guð-
mundur Guðmundsson, skoruðu
4 mörk hvor. Til gamans má geta
þess að Brynjar Kvaran skoraði
einn mark úr víti en þá höfðu
leikmenn KA hver á fætur öðrum
misnotað vítaköst.
Mönnum bar santan um að
þetta hefði ekki verið rismikið
mót. Fasta leikmenn vantaði í öll
liðin og auk þess spara þau hugs-
anlega sín bestu kerfi til seinni
tíma. Leikmenn ættu þó að njóta
góðs af móti sem þessu, stutt var
á milli leikja og mótið keyrt á
nokkrum hraða. KA-menn komu
taplausir út úr þessu móti en
fyrirfram voru þeir taldir sterkir.
KR hefur einnig þokkalegt lið,
léttleikandi en engar framúrskar-
andi skyttur. Markvörð hafa þeir
hins vegar ágætan þar sem er
Gísli Felix Bjarnason og eiga
vafalaust eftir að njóta þess.
Þórsliðið var ekki nógu sannfær-
andi í mótinu. Markvörslu er
ábótavant og liðið í heild vantar
meiri skólun. Þess ber þó að gæta
að þeir léku nú án fastamanns í
liðinu, Sigurðar Pálssonar. JÓH
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Pro/am mót að Jaðri:
Gísli og Guðbjöm sigmðu
Sigurvegarar í pro/am niótinu í golfi þeir Gísli Jónsson og Guðbjörn Garö-
arsson. Mynd: RÞB
Um helgina fóru fram tvö golf-
mót a«T Jaðri á vegum Golf-
klúbbs Akureyrar. Á laugar-
daginn fór fram svokallaður
fjórleikur þar sem leika tveir
og tveir saman. Leiknar voru
18 holur.
Leikið var með fullri forgjöf og
voru keppendur alls 26. Urslitin
urðu sem hér segir:
1. Rósa Pálsdóttir og Bjarni Jón-
asson, 62 högg.
2. Björn Axelsson og Guðmund-
ur Lárusson, 66 högg.
3. Þórhallur Pálsson og Einar
Guðnason, 67 högg.
í gær fór síðan fram svokallað
pro/am mót sem á ylhýra málinu
útleggst sem vanur/óvanur mót.
Fyrirkomulagið cr þannig að van-
ur kylfingur og óvanur leika sam-
an meö einn bolta. í þessu móti
voru leiknar 18 holur og hófst
mótið kl. 9 í gærmorgun. Úrslitin
urðu þessi:
1. Gísli Jónsson og Guðbjörn
Garðarsson, 61 högg.
2. Friðjón Bjarnason og Auður
Aðalsteinsdóttir, 68 högg.
3. Pétur Hr. Sigurðsson og Ólaf-
ur Stefánsson, 69 högg.
Einnig var leikið í þessari
keppni með fullri forgjöf og voru
keppendur 44 talsins. Veður til
golfiðkunar var nokkuð gott um
helgina þrátt fyrir éljaganginn
fyrir helgi. JÓH
Þorvaldur Jónsson tekur við bikarnum úr hendi Kristjáns Davíðssonar.
Mynd: JÓH
Leiftur burstaöi Þórsara
- í minningarleik um Óskar Gunnarsson
Á laugardaginn fór fram á mal-
arvelli Þórs minningarleikur
um Óskar Gunnarsson, fyrrum
félaga í Þór. Þessi leikur er
árlegur og velur Þór sér and-
stæðinga. Að þessu sinni var
njliðunum í 1. deild, Leiftri frá
Olafsfirði boðið til leiks.
Bæði lið léku án nokkurra
fastamanna og notuðu varamenn
sína. Flestir fastamanna í Leift-
ursliðinu léku þó með en greini-
legt var að liðin léku þennan leik
meira af ánægjunni en kappinu.
Þórsarar virkuðu frekar óöruggir
á mölinni enda lítið spilað við
þessar aðstæður í sumar.
Leiftursmenn, sennilega enn í
skýjunum yfir árangri sumarsins,
höfðu greinilega áhuga á að
sanna sig í þessum leik og það var
í fyrri hálfleik sem þeir skoruðu
fyrsta markið. Steinar Ingimund-
arson var þá á hægri kanti til
Óskar þjálfar áfram
Stjórn knattspyrnudeildar
Leifturs í Ólafsfirði hefur
ákveðið að endurráða Óskar
Ingimundarson þjálfara 1.
deildar knattspyrnuliðs Leift-
urs fyrir næsta keppnistímabil.
Óskar hefur þjálfað liðið í tvö
sumur, tók við liðinu er það var í
þriðju deild og hefur á ótrúlega
stuttum tíma tekist að koma
liðinu upp í 1. deild. Ekki er
að efa að Leiftursmönnum verður
áfram styrkur að Óskari, hann
hefur sýnt hæfileika sína sem
þjálfari auk þess að vera drjúgur
markaskorari fyrir liðið en hann
var einmitt markahæstur leik-
manna á nýliðnu keppnistíma-
bili, skoraði 14 mörk. JÓH
móts við markteig og gaf fyrir en
einhverra hluta vegna slapp bolt-
inn framhjá markverði Þórs og í
markið.
Annað mark Leifturs kom síð-
an stuttu seinna og enn var Stein-
ar á ferðinni. Boltinn barst fyrir
Þórsmarkið og hvorki hausum
Leiftursmanna né höndum mark-
varöar Þórs tókts að koma við
boltann og boltinn fór því fyrir
fætur Steinars sem afgreiddi hann
í opið markið.
Síðari hálfleikur var heldur
tíðindalítill og eins og einhver
áhorfandinn sagði, gott dæmi um
malarknattspyrnu. Engu að síður
létu Leiftursmenn ekki staðar
numið og bættu við þriðja mark-
inu. Friðgeir Sigurðsson fékk
boltann á markteig hægra megin
og afgreiddi hann í hornið fjær.
Þar með lauk þessum leik og
minningarbikarinn verður
geymdur í Ólafsfirði næsta árið.
Leiftur setti þar með punktinn
yfir i-ið á glæsilegu keppnistíma-
bili. JÓH