Dagur - 08.10.1987, Síða 8
8 - DAGUR - 8. október 1987
Verkstjórnarfræðslan
á Akureyri
Námskeið haustið 1987.
Verkstjórnarfræðslan er 180 stunda grunnnám fyrir
verkstjóra, stjórnendur og aöra sem starfa meö og
þurfa aö segja fólki fyrir verkum, standast áætlanir,
hagræöa rekstri, koma á breytingum og bæta mannleg
samskipti og samstarf á vinnustað.
Stjórnun I.
I. hluti. Samstarf og samvinna.
12. -13. október.
Farið er m.a. yfir hvað er stjórnun og hvert er hlutverk verkstjóra,
skipulag samstarfs og samvinnu, stjórnun vinnuhópa og hegðun ein-
staklinga í vinnuhópum, setningu markmiða og framleiðnimælingar
með hliðsjón af markmiðum, „Mínútustjórnun" og hvernig er best að
hrósa og ávíta.
II. hluti. Stjórnunaraðferðir og starfshvatning.
28.-29. október.
Farið er m.a. yfir helstu kenningar í stjórnun og stjórnunarstíla, hvað
hvetur menn til vinnu og hvernig góð verkfyrirmæli eiga að vera.
Ákvarðanatökur og miðlun upplýsinga, valdframsal og ábyrgð
starfsmanna.
Vinnuumhverfismál.
I. hluti. Öryggismál.
21 .-22. október.
Farið er m.a. yfir öryggismál ábyrgð stjórnenda á öryggismálum, við-
hald öryggismála og hvernig á að tryggja gott húshald, kostnað slysa
og hvað vinnst með bættu öryggi.
II. hluti. Bruna og slysavarnir.
15.-16. desember.
Farið er m.a. yfir bruna og slysavarnir, eðli elds og brunaflokka, reyk-
sprengingar og reyklosun, slökkviefni og tæki, eldvarnir og bruna-
æfingar. Hvað ber að gera þegar slys ber að höndum, tilkynninga-
skyldu verkstjóra um slys, sjúkrakassann og æfingar í fyrstu hjálp,
blástursaðferð og hjartahnoð.
Verkskipulagning.
I. hluti. Verkáætlanir.
26. -27. október.
Farið er m.a. yfir undirstöður í áætlanagerð og verkskipulagningu,
CPM-framkvæmdaáætlun, Gantt-áætlun, áætlun á mannafla og
aðföngum, ráðandi framkvæmdaþátt og að finna lokatíma fram-
kvæmda, og undirstöðuatriði tímastjórnunar fyrir verkstjóra.
II. hluti. Project forrit og verkáætlanir.
6. -7. nóvember.
Farið er m.a. yfir undirstöðu verkskipulagningar með aðstoð PC
tölvu, kynning á tölvuforritinu Project og með aðstoð þess gerð verk-
skipulaging fyrir nokkur verk, mannaflaþörf, aðföng og kostnaður við
verkin áætlaður.
III. hluti. Multiplan-forrit og greiðsluáætlanir.
27. -28. nóvember.
Farið er m.a. yfir undirstöður áætlanagerðar með aðstoð PC tölvu.
Kennt verður að nota töflureikniforritið Multiplan, gerð greiðsluáætl-
ana, upplýsingar úr ársreikningum og helstu kennitölur til að fylgjast
með rekstrinum.
Stjórnun II.
1. hluti. Verktilsögn og vinnutækni.
19.-20. nóvember.
Farið er m.a. yfir skipulagða verktilsögn, móttöku nýliða og
starfsmannafræðslu, þjálfunarskrá og verkþjálfagreiningu, vinnuvist-
fræði og líkamsbeytingu við vinnu. Hvernig má á skemmstum tíma fá
vel hæfan og virkan starfsmann til samstarfs.
II. hluti. Stjórnun breytinga.
2. -3. desember.
Farið er m.a. yfir stjórnun breytinga og hvernig er best að vinna breyt-
ingu fylgi, starfsmannaviðtöl og hvernig megi taka á hegðunarvanda-
málum og virkja starfsmenn til lausnar á þeim.
III. hluti. Verkefnastjórnun.
7. -8. desember.
Farið er m.a. yfir undirstöður verkefnastjórnunar, hvað sé verkefni og
skipulag verkefnastjórnunar, hlutverk verkefnastjóra, myndun
verkefnahópa, vöruþróunarverkefni, breyting á vinnustað og
viðhaldsefni.
VI. hluti. Vöruþróun.
23.-24. nóvember.
Farið verður m.a. yfir helstu þætti vöruþróunar, hlutverk verkstjóra í
vöruþróunarstarfinu, gundvöll vöruþróunar, hugmyndaleit og mat
hugmynda, þróun frumgerðar og markaðssetningu.
Vinnuhagræðing.
I. hluti. Undirstaða vinnuhagræðingar.
13. -14. nóvember.
Farið er m.a. yfir undirstöður vinnuhagræðingar á vinnustöðum og
helstu hjálpartæki við hagræðingu og mat á árangri, tímamælingar
og hringrásarathuganir, undirbúning og framkvæmd vinnurann-
sókna.
II. hluti. Tíðniathuganir og bónus.
11.-12. desember.
Farið er m.a. yfir tíðnirannsóknir og hvernig má meta afköst hópa,
verkstæðisskipulag og hagræðingu vinnustaða og afkastahvetjandi
launakerfi.
Hvert námskeið er tveir dagar frá kl. 9-17 og kostar 7.400
kr. Innifalin eru öll námsgögn og kaffi.
Námskeiðin verða haldin í húsnæði Flugbjörgunarsveitar
Akureyrar, Galtalæk.
Skráið þátttöku strax hjá Árna Birni Árnasyni verk stjórafélagi
Akureyrar og nágrennis, vinnusími 96-27300, heimasími
21249 eða skrifstofu Verkstjórafélags Akureyrar og nágrenn-
is milli kl. 14 og 17, sími 25446 eða hjá Verkstjórnarfræðsl-
unni í síma 91-687000.
Allt á fullu i umfelguninni. Starfsmenn á þönum um verkstæðið og á meðan streyma viðskiptavinirnir inn og út.
Erill á dekkjaverkstæðum:
E luir m g
ir 701 >Ull bíla m < lái 90 aigreioa einum degi“
- segir Sveinn Bjarman, verkstjóri á dekkjaverkstæði Höldurs
Veturinn heilsaði bæjarbúum
heldur hressilega hér á dögun-
um. Er fólk vaknaði upp á
þriðjudagsmorguninn var hér
komið snjóföl og frost og enn
hríðaði. Ökumönnum var
veðurbreyting þessi til lítillar
ánægju enda kalla snjórinn og
hálkan á snjó- og nagladekk.
Við brugðum okkur af þessu
tilefni á eitt af dekkjaverk-
stæðum bæjarins en segja má
að nú sé aðal „uppskerutími“
þeirra.
Er okkur bar að garði á
dekkjaverkstæði Höldurs við
Tryggvabraut fór ekki á milli
mála að mikið var um að vera.
Bílar stóðu í röðum fyrir utan
verkstæðið og biðu eftir af-
greiðslu. Er inn var komið mátti
sjá starfsmenn á þönum með ný
og notuð dekk, sumardekkin
fuku af felgunum og nagladekkin
voru von bráðar komin á felgurn-
ar. Sveinn Bjarman, verkstjóri á
dekkjaverkstæðinu fékkst þó til
að sjá af andartaki til að spjalla
við okkur.
- Kannski þarf ekki einu sinni
að spyrja að þessu, en er mikið
að gera?
„Já, ég held að segja megi að
það sé brjálað að gera. Hér er
búin að vera nær stanslaus
afgreiðsla í allan dag og komast
Sveinn Bjarman, verkstjóri.
færri að en vilja,“ segir Sveinn.
- Hvað stendur þessi töm yfir
í langan tíma á haustin?
„Núna á ég von á að törnin
standi yfir lengur en venjulega
vegna þess að við höfum tekið
okkur saman þessir sem erum í
þessu í bænum og lokum verk-
stæðunum kl. 7 á kvöldin. Áður
fyrr var maður stundum að vinna
til miðnættis en sem betur fer er
sú tíð liðin og við ætlum bara að
vinna eins og menn í haust. Ég
gæti trúað að um færi að hægjast
aftur eftir 2-3 vikur.“
- Finnst þér fólk taka því vel
þó ekki sé hægt að afgreiða það í
einum hvelli?
„Já, ég finn fyrir þessu núna.
Þetta hefur ekki aldeilis verið
alltaf þannig en ég held fólk sé að
verða skilningsríkara núna.“
- Hvað ertu búinn að afgreiða
marga bíla í dag?
„Blessaður vertu, það veit ég
ekki. Sennilega eru þeir í kring-
um 70 og enn eftir 2 tímar af
deginum.“
- Og hvað eru mörg dekk
seld?
„Ætli ég giski ekki á að þau séu
orðin um 200 í dag,“ segir Sveinn
og hefst nú handa við að umfelga
eitt dekkið til viðbótar.
Já, greinilega er með öllu
spauglaust að fást við þennan
starfa á dögum sem þessum.
JÓH
Starfsmaður sviptir sumarhjólbarðanum af felgunni. Myndir: jóh