Dagur - 03.11.1987, Blaðsíða 1
Skyrtur - Buxur
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Akureyri:
77 ökuníðingar
„Á tímabilinu 1. september til
27. október voru 77 ökumenn
teknir fyrir of hraðan akstur af
lögreglunni á Akureyri en 52 á
sama tíma í fyrra. Aukningin
er 25 ökumenn sem er umtals-
vert,“ sagði Árni Magnússon,
lögregluvarðstjóri á Akureyri.
„Það er erfitt að átta sig á því
hverju er um að kenna,“ sagði
Árni. „Umferð bifreiða hefur
auðvitað aukist með stærri bíla-
flota og að einhverju leyti má
rekja þetta til þeirrar ástæðu. t>á
hlýtur þessi munur á milli ára
einnig að liggja í auknu eftirliti
lögreglunnar og hraðamælingum.
Þá kemur veðrið og færðin inn í
myndina því í þessum mánuði
voru ekki teknir fleiri en í októ-
ber í fyrra. Menn aka auðvitað
varla yfir hámarkshraða innan-
bæjar í fljúgandi hálku.“
Áð sögn Árna kemur það fyrir
að lögreglan sviptir bílstjóra öku-;
skírteininu á staðnum til bráða-
birgða, yfirleitt er fulltrúi bæjar-
fógeta kvaddur til. Mesti öku-
hraði sem mælst hefur innanbæj-
ar í þessum mánuði er 111 km/
klst. Sá ökumaður var sviptur
ökuréttindum í 2 mánuði. Hæsti
mældur ökuhraði utanbæjar var
125 km/klst. á Hörgárbraut.
EHB
4. áfangi VMA:
Þolinmæði skóla-
nefndar þratin
- vegna seinagangs verktaka
Á fundi skólanefndar Yerk-
menntaskólans á Akureyri 26.
október skýrði Magnús Garð-
arsson fulltrúi nefndarinnar frá
því að ýmsum verkþáttum við
4. áfanga skólans væri enn
ólokið þrátt fyrir að verktak-
inn, Aðalgeir Finnsson hf.,
hafi átt að skila verkinu full-
kláruðu 1. júlí.
í byrjun ágúst fór fram forút-
tekt á verkinu og var verktaka
sendur listi um þau verk sem þá
Verkmenntaskólinn á Akureyri.
var ólokið. Verktaka var á ný
sendur listi í september um
ólokna verkþætti og í október-
byrjun var ítrekað að hann lyki
verkinu fyrir 19. október. En allt
kom fyrir ekki og enn er ekki
hægt að tala um að verkinu hafi
verið skilað.
„betta eru ýmis smávægileg
verk hér og þar og það er kannski
einmitt það sem menn eru að
verða þreyttir á, því í heild er
verkið vel unnið,“ sagði Magnús
í samtali við Dag en á fundinum
átaldi nefndin seinaganginn og
fól Magnúsi að leita samninga við
aðra aðila um að ljúka verkinu.
Magnús sagðist reikna með að
leita samninga við annan aðila á
næstunni. Reikningur frá þeim
aðila verður dreginn frá svoköll-
uðu geymslugjaldi en það er 5%
af hverjum reikningi sem verk-
taki leggur fram, og hugsað til að
mæta svona tilfellum. „Það kem-
ur að því að maður fær sig full-
saddan,“ sagði Magnús að lok-
um. ET
Eitt af fjorum samliggjandi fiskvcrkunarhúsum KEA í Grímscy brann til kaldra kola í fyrrinótt.
meira en mörg orð um hamfarir eldsins.
Þessi mynd segir
Mynd: Ál»
Grímsey:
Fiskverkunarhús
brann til kaldra kola
- eldsupptökin talin vera í rafmagnstöflu
Um klukkan átta á sunnudags-
kvöldið varð bruna vart í einu
af fjórum samliggjandi flsk-
verkunarhúsum KEA í Gríms-
ey. Húsið er steinsteypt með
timburlofti alls 160-200 fer-
metrar. Tækjakostur til
slökkvistarfa er af skornum
skammti í Grímsey enda brann
húsið til kaldra kola en hins
vegar tókst að koma í veg fyrir
að eldurinn bærist í önnur hús.
Tjón af völdum brunans er tal-
ið nema allt að 10 milljónum
KEA og samstarfsfyrirtæki:
Stofna dreifingarfyrirtæki
á höfuðborgarsvæðinu
- framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn og húsnæði er í sigtinu
Fyrirtæki í eigu Kaupfélags
Eyfirðinga og samstaifsfyrir-
tækja þess, vinna nú að því að
koma á fót fyrirtæki sem sjá
mun um dreifingu á fram-
Ieiðsluvörum þeirra á höfuð-
borgarsvæðinu. Að sögn Vals
Arnþórssonar kaupfélags-
stjóra hafa þessir aðilar fest
augastað á um það bil 800 fer-
metra húsnæði sem fyrst um
sinn mun verða leigt fyrir
starfsemina.
Fyrirtækin sem um ræðir eru
meðal annars Kjötiðnaðarstöð
KEA, Mjólkursamlag KEA,
Kaffibrennsla Akureyrar, Efna-
gerðin Flóra, Smjörlíkisgerð
KEA og Kjörland hf. Hið nýja
fyrirtæki mun dreifa öllum þeim
vörum sem fyrirtæki þessi selja á
höfuðborgarsvæðinu, nema þeim
sem þegar hafa verið gerðir
samningar um en það á til dæmis
við um hluta af vörum Mjólkur-
samlagsins sem Osta og smjörsal-
an dreifir.
Fram til þessa hefur dreifing á
vörum fyrirtækjanna verið með
ýmsum hætti. Stór hluti hennar
hefur farið fram í gegnum svo
kallaðan Sjafnarlager í Garðabæ
sem Sjöfn mun reka eftir sem
áður. Annar hluti hefur farið í
gegnum heildsala á svæðinu og
loks hafa vörur verið fluttur beint
í verslanir, af fyrirtækjunum
sjálfum.
Valur sagði að með þessu væri
ætlunin að bæta þjónustuna og
auka hagkvæmni dreifingarinnar
og sagðist vonast til að hið nýja
fyrirtæki gæti tekið til starfa á
þessu ári.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvernig rekstrarfyrirkomulag
hins nýja fyrirtækis verður, hvort
um verður að ræða hlutafélag eða
sameignarfélag. Framkvæmda-
stjóri þess hefur verið ráðinn
Stefán Ómar Jónsson fyrrverandi
bæjarstjóri á Selfossi. ET
króna og eyðilagðist allt sem
inni var.
Brunans varð fyrst vart í risi
hússins um klukkan átta. Aðeins
fáum mínútum áður höfðu menn
verið við vinnu í húsinu en urðu
ekki varir við neitt. Sjó var dælt á
eldinn en lítið réðist við hann. Til
að verja þau hús sem vindur stóð
á var brugðið á það ráð að rjúfa
hluta af þaki hússins með vél-
skóflu og brjóta niður vegg og
tókst þannig að forða frekara
tjóni.
Talsvert var af vélum í húsinu
þar á meðal ísframleiðsluvél
frystihússins og ný tölvuvog af
vandaðri gerð. Auk vélanna
eyðilögðust í brunanum um 10
tonn af saltfiski sem nýlega hafði
verið metinn. Um var að ræða
allan þorsk sem verkaður hafði
verið í salt. Þá skemmdist tals-
vert niagn af umbúðum, net og
búnaður hjálparsveitarinnar á
staðnum.
Rannsókn á upptökum brun-
ans hófst um hádegið í gær og stóð
mestan hluta dagsins. Að sögn
Hannesar Guðmundssonar verk-
stjóra hallast menn helst að því
að kviknað hafi í út frá rafmagns-
töflu.
„Það verður erfitt að vinna í
vetur ef mikið berst á land því þó
að húsið hafi ekki verið merkilegt
þá var það gott til síns brúks,"
sagði Hannes. ET