Dagur - 03.11.1987, Blaðsíða 3
, Skagafjörður:
Arekstur á
Kotárbrú
Laust eftir hádegið á laugardag
rákust tveir bílar saman á Kot-
árbrú í Norðurárdal. Skall
annar bfliinn á brúarhandrið-
inu og var mesta mildi að hann
hafnaði ekki úti í ánni.
Fólkið í bílunum slapp vel úr
þessu óhappi. Þó þurfti að flytja
konu úr öðrum bílnum á sjúkra-
hús, en meiðsli hennar voru ekki
teljandi og fékk hún að fara
heim á sunnudag. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem slys verður á
þessum stað og eru aðstæður
þarna sagðar bjóða hættunni
heim. -þá
Fargjöld
strætisvagna
hækkuð
Á fundi stjórnar Strætisvagna
Akureyrar sem haldinn var
þann 22. október sl. var meðal
annars rætt um hækkun far-
gjalda strætisvagnanna.
Akveðið var að fargjöld
skyldu hækkuð frá 1. nóvem-
ber.
Samkvæmt ákvörðun stjórnar-
innar hækka fargjöld fyrir full-
orðna í 35 kr. Einstök fargjöld
fyrir börn eru 10 kr. eftir hækk-
unina en 20 miða kort fyrir börn
kostar 130 kr. Kort fyrir fullorðna
kostar eftir hækkun 550 kr. en
kort fyrir aldraða kostar 275 kr.
JÓH
„Er'ann að bresta á?“ - „Nei, þetta er bara einhver ljósmyndari.“ Mynd: ÁP
Ólafsfjörður:
Mikil ásókn í íbúðir hjá
Byggingarsjóði vetkamanna
- fjórum íbúðum úthlutað á árinu
Yerulegur húsnæðisskortur
hefur verið í Ólafsfirði líkt og
víðast annars staðar á landinu.
Þannig hafa umsóknir um
húsnæði hjá Byggingarsjóði
verkamanna verið mun fleiri
en hægt hefur verið að anna.
Hefur því fólk þurft að bíða
lengi eftir íbúðum og sést jafn-
vel ekki enn fyrir endann á
þeirri bið.
Snemma í vor óskaði stjórn
verkamannabústaða í Ólafsfirði
eftir því við bæjarstjórn að leyfi
verði veitt fyrir kaupum eða
byggingu á þremur íbúðum á
árinu 1987. Meirihluti bæjar-
stjórnar hafnaði beiðni um þrjár
íbúðir en lagði fram tillögu um
tvær íbúðir en á þessum tíma
lágu fyrir umsóknir frá þremur
aðil.um hjá stjórn byggingarsjóðs-
ins.
Yfirstjórn Byggingarsjóðs
Nánast ekkert atvinnuleysi
hefur verið á Húsavík og ná-
grenni í sumar en eftir að slát-
urtíð lauk hefur fólk aðeins
verið að tínast inn á atvinnu-
leysisskrá hjá Verkalýðsfélagi
Húsavíkur.
Nú eru 7 manns skráðir
atvinnulausir á Húsavík, 15 í
Mývatnssveit, 3 í Aðaldal, 2 í
Bárðardal og 1 í Reykjahreppi.
Enginn hefur þó verið samfellt á
verkamanna óskaði eftir að
keyptar yrðu tvær notaðar íbúðír
í framhaldi af þessu þar sem þörf
fyrir íbúðir var orðin mikil. Eftir
því sem á sumarið leið fjölgaði
umsækjendum um íbúðir hjá
Byggingarsjóði verkamanna og
þá ákvað bæjarstjórn að heimila
kaup eða byggingu á tveimur
íbúðum til viðSótar á þessu ári
enda komi hlutur bæjarins ekki
til útborgunar fyrr en á næsta ári.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
bæjarstjómar Ólafsfjarðar urðu
nokkrar umræður um þessi mál
þar sem Ármann Þórðarson,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks
flutti tillögu um að fundur bæjar-
stjórnar skoraði á stjórn verka-
mannabústaða í Ólafsfirði að
auglýsa strax eftir þeim tveim
íbúðum sem bæjarstjórn hafði
samþykkt á fundi sínum þann 1.
október s.l. Þessari tillögu var
vísað frá í bæjarstjórn en eftir
skrá allan mánuðinn og er hér um
að ræða lausráðið fólk og fólk
sem er að leita sér að annarri
vinnu.
Atvinnuástand er því þokka-
lega gott í Suður-Þingeyjarsýslu
þótt erfitt sé að sjá fyrir hvernig
ástandið verður í vetur. Einna
verst er atvinnuástand í Mývatns-
sveit, þar virðist skorta fleiri
atvinnutækifæri og sérstaklega
fyrir konur. IM
fundinn auglýsti stjórn verka-
mannabústaða eftir íbúðum og
rennur tilboðsfrestur út þann 5.
nóvember n.k.
„Hér er fólk, sem vildi kaupa
nýja íbúð, búið að bíða eftir svari
frá stjórn verkamannabústaða
síðan í vor og ekki enn fengið
svar. Ég taldi að með því að
kaupa tvær fokheldar ibúðir af
verktaka hér í bænum mætti
leysa þetta vandamál og þar með
fengi þetta fólk svar við sínum
umsóknum. í stað þess voru
keyptar tvær notaðar íbúðir sem
þetta umrædda fólk vill ekki og
þar með verður það enn að bíða
eftir að fá nýja íbúð,“ sagði
Ármann Þórðarson er blaðið
ræddi við hann.
Blaðið spurði Gísla Friðfinns-
son, formann stjórnar verka-
mannabústaða í Ólafsfirði hvort
ekki hafi komið til greina að
kaupa nýjar íbúðir þar sem fyrir
lágu tilboð frá heimamönnum um
nýjar íbúðir svo og umsóknir
kaupenda um kaup á nýjum
íbúðum.
„Það kom ekki til. Það var
ákveðið í vor að kaupa frekar
notaðar íbúðir þar sem slíkt var
hagstæðara fyrir fólkið sem fór í
þær.“
- En lágu ekki fyrir umsóknir
á þessum tíma frá fólki sem ósk-
aði eftir nýjum íbúðum?
„Jú, það má kannski segja það.
Eins og menn vita þá er þetta
þörf samkvæmt könnun en það er
yfirstjórnarinnar sjálfrar að taka
ákvarðanir um hvað gert er,“
sagði Gísli Friðfinnsson. JÓH
Suður-Þingeyjarsýsla:
Gott atvinnuástand
rn m r\ r •« -», ^p .
3. nóvember 1987 -
Ólafsfjörður:
Aldraðir fá bækur
sendar heim
í Ólafsfírði hefur það nýmæli
verið tekið upp að öldruðum
er gefínn kostur á að fá bækur
úr bókasafni staðarins keyrðar
heim. Bókavörður hefur hing-
að til gert þetta upp á eigin
spýtur en á fundi menningar-
málanefndar Ólafsfjarðar fyrr í
haust var ákveðið að bjóða
öldruðum upp á þessa þjón-
ustu í vetur.
„Það er eitthvað um aldrað
fólk sem á erfitt með að ná sér í
lestrarefni, sérstaklega ef færð er
vond. Með þessu er komið til
móts við þetta fólk og hér er án
efa um að ræða mjög kærkomna
þjónustu fyrir marga ellilífeyris-
þega,“ sagði Valtýr Sigurbjarnar-
son, bæjarstjóri í Ólafsfirði.
Hálf staða bókavarðar er við
safnið en safnið er nú í húsnæði
því sem áður var hótel. Bóka-
safnið flutti í þetta húsnæði fyrir
um 5 árum en lítið hefur verið
gert fyrir safnið síðan þá.
„Bæði liúsinu og safninu þarf
að taka verulegt tak og gera þetta
að alvöru safni. Þarna er margt
góðra bóka sem út af fyrir sig eru
ekki í neinni vanhirðu heldur
þarf að skrá bækur, skipuleggja
safnið betur og gera það aðgengi-
legra,“ sagði Valtýr. JÓH
Rjúpnaveiðimenn
Hubertus rjúpnaskotin margeftirspurðu nýkomin,
ásamt mörgum öðrum gerðum.
Eigum úrval af byssupokum og skotabeltum.
Einnig neyðarskot í haglabyssur
og neyðarpennasett.
Opið laugardaga 9-12.
Eyfjörð
vtsa
KjatteyrarBötu 4 • simi 22275
?$>
á ný SIEMENS-heimilistæki. Þau
eru:
•Falleg og sparneytin.
•Þægileg ínotkun.
• Búin fullkomnustu tækni.
•Þaulreynd vestur-þýsk gæðavara.
HF.
Reynishúsinu ■ Furuvöllum 1 ■ 600Akureyri ■ Sími27788
ÍSIÆNSKRÁ-
fÍVPDABA-
Nuddstofan Höfðahlíð 1
Akureyri • Sími 96-25610
Höfum opið frá kl. 9-20 alla virka daga.
Lokað laugardaga og sunnudaga.
Örfáir tímar lausir
fyrri hluta dagsins.
Bjóðum upp á:
★ Rafmagnsnudd (frábært tæki).
★ Líkamsnudd.
★ Svæðanudd.
★ Slökunarnudd.
★ Sturtu- og gufubað.
★ Heitt á könnunni allan daginn.
Nuddstofan Höfðahlíð 1
Akureyri • Sími 96-25610