Dagur - 03.11.1987, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 3. nóvember 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉSPÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),.
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585 hs. 41529),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (Iþróttir),
STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Þjóðarsátt
í deiglunni
Það sem helst einkenndi Landsþing Verka-
mannasambands íslands, sem haldið var á
Akureyri um helgina, var mikil eining og
samstaða um flest þau mál sem þar voru til
umfjöllunar. Áður en þingið hófst hafði því
verið spáð að sundrung og illdeilur innan
VMSÍ gætu leitt til þess að sambandið klofn-
aði. Ástæða er til að fagna því hversu
skynsamlega þingfulltrúar brugðust við þess-
um hrakspám. Enginn ágreiningur varð um
kjaramálaályktun þingsins né heldur er for-
ysta VMSÍ var kosin. Ýmsar breytingar á
innra skipulagi VMSÍ voru einnig samþykktar
ágreiningslaust. Þetta sýnir best hversu
staðráðnir þingfulltrúar voru í að slá skjald-
borg um Verkamannasambandið til að verja
það áföllum.
Kj aramálaályktun Verkamannas ambands -
þingsins er allrar athygli verð. Þar eru hvorki
nefndar tölur um lágmarkslaun né heldur eru
tímamörk samninga sett. Þvert á móti er aðal-
áherslan lögð á óviðunandi kjör fiskvinnslu-
fólks og annarra láglaunahópa svo og óþol-
andi misgengi launa í þjóðfélaginu. Þing
Verkamannasambands íslands telur að meg-
inmarkmiðið í næstu samningum verði að
leiðrétta þennan ójöfnuð og hækka laun
áðurnefndra hópa fyrst og fremst. Þingið ger-
ir þá kröfu til vinnuveitenda að þeir setjist nú
þegar að samningaborðinu og hefji viðræður í
fullri alvöru með þau markmið að leiðarljósi.
Það virðist því ljóst að forystumenn VMSÍ
eru tilbúnir til að reyna að ná eins konar þjóð-
arsátt í komandi kjarasamningum, eða sams
konar kjarasamningum og gerðir voru í des-
ember 1986. Það liggur einnig fyrir að ríkis-
stjórnin er tilbúin til viðræðna við verkalýðs-
hreyfinguna um slíka þjóðarsátt. Nú þegar
hefur ríkisstjórnin sýnt vilja sinn í verki með
því að fresta gildistöku svonefnds matar-
skatts til áramóta. Vinnuveitendasambandið
hlýtur einnig að vera fylgjandi því að reyna
þessa leið.
Skynsamlegar samþykktir 13. þings Verka-
mannasambands íslands gera það að verkum
að þjóðarsátt í komandi kjarasamningum er
hugsanleg. Hins vegar er naumur tími til
stefnu og hlutaðeigandi aðilar verða að hefj-
ast handa þegar í stað ef árangur á að nást.
Til mikils er að vinna, því væntanlega mun
koma til allsherjarátaka á vinnumarkaði ef
viðræður um þjóðarsátt fara út um þúfur. BB.
Akureyri:
Loks hillir undir
sambýli fyrir geðsjúka
Varla er hægt að neita mönn
um um vinnu þótt þeir hafí leg-
ið hryggbrotnir á sjúkrahúsi.
Þeir hafa ekkert til saka unnið.
En hafa þeir eitthvað til saka
unnið sem hafa dvalist á
sjúkrahúsi vegna geðrænna
vandamála? Vitanlega ekki.
Þetta eru fordómar sem þarf
að eyða og það er illt til þess að
hugsa ef fólki er neitað um
atvinnu á þessum eftirspurnar-
tímum vegna þess að það er
„stimplað“ geðveikt.
Veikt fólk þarfnast oft endur-
hæfingar áður en það getur farið
út í atvinnulífið á nýjan leik.
Gildir þá einu hvort veikindin
eru líkamleg eða andleg. Á
Akureyri fá fatlaðir endurhæf-
ingu á Bjargi og þroskaheftir fá
starfsþjálfun á Iðjulundi.
Að sögn Brynjólfs Ingvarsson-
ar geðlæknis vantar endurhæf-
ingu fyrir geðsjúklinga. Á bráða- ■
geðdeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins eru aðeins 10 pláss og sjúkl-
ingarnir „rúlla“ oft í gegn án þess
að fá alla þá meðferð sem æski-
legust væri. Brynjólfur sagði að
draumur hans og annarra væri að
koma á endurhæfingardeild fyrir
geðsjúka innan spítalans.
„Eg hef líka barist fyrir því,
allt frá árinu 1973, að komið
verði á fót sambýli fyrir geðsjúka
til að þjálfa þá í því að standa á
eigin fótum. Sá draumur er loks-
ins í sjónmáli núna því heilbrigð-
isráðuneytið hefur úthlutað Geð-
verndarfélagi Akureyrar einni og
hálfri milljón króna i gegnum
framkvæmdasjóð fatlaðra til að
fjárfesta í húsnæði fyrir sambýli,“
sagði Brynjólfur.
Hann sagði að búið væri að
sækja um tvær stöður við sambýl-
ið en á þessari stundu vissi enginn
hvort það kæmist í gegnum
fjármálaráðuneytið á síðustu
sparnaðartímum. „En þótt málið
komist ekki í gegn í einni lotu þá
verður bara haldið áfram á næsta
ári. Þetta er stórmál og margir
munu varpa öndinni léttar þegar
sambýlið kemst í gagnið, jafnvel
þó að það verði kannski ekki
nema fyrir 4-6 einstaklinga,“
sagði Brynjólfur að lokum. SS
Óveðrið 8.-10. október:
Úrbætur á Norðurlandi
eystra kosta 19 milljónir
- sótt um 18,8 milljóna aukafjárveitingu
fyrir hafnasjóð sem er tómur
Hafnamálastofnun hefur sent
frá sér skýrslu um tjón sem
varð á Norðurlandi eystra af
völdum óveðurs sem geisaði
dagana 8.-10. október síðast-
liðinn. Matsmenn stofnunar-
innar hafa metið skemmdir
þær sem urðu á fjórum stöðum
á Norðausturlandi og er talið
að kostnaður við úrbætur og
betrumbætur sé rúmlega 19
milljónir króna, þar af 16 millj-
ónir við aðkallandi úrbætur.
í skýrslunni er veðrinu lýst
þannig að dagana 8. og 9. októ-
ber hafi veðurhæðin mælst allt að
9 vindstig, mikil kvika og þungur
sjór hafi verið í djúpi og foráttu-
Námskeið í loðdýrarækt
Dagana 6.-9. nóvember verður
haldið eins dags námskeið í
mati á pelsgæðum minka.
Þann 6. nóvember verður - í
samvinnu við Búnaðarfélag
íslands - námskeið fyrir ráðu-
nauta og aðra sem starfa við
flokkun á mink og dagana 7.-9.
gefst síðan starfandi bændum
kostur á slíku námskeiði ásamt
nemendum og þeim starfs-
mönnum skólans er sinna loð-
dýrarækt. Leiðbeinendur
verða tveir vanir danskir flokk-
unarmenn.
Þar sem pels minka er aimennt
ekki orðinn fullþroskaður á þess-
um tíma, voru hátt á annað
hundrað minkar af skólabúinu
settir í myrkvun til að flýta fyrir
pelsmyndun þeirra. Gefst þátt-
takendum því kostur á að hand-
leika dýr með fullþroskaðan pels.
Einnig verður boðið upp á
námskeið í förgun og fláningu á
mink og verkun minka- og refa-
skinna. í fréttatilkynningu frá
Bændaskólanum á Hólum segir
að ekki þurfi að orðlengja mikil-
vægi þess að bændur læri strax í
upphafi rétt vinnubrögð við þessi
störf.
brim á annesjum vestur frá Horni
að Langanesi.
Skemmdir urðu mestar mið-
svæðis á Norðurlandi, á Ólafs-
firði, Hauganesi, Dalvík og Siglu-
firði en einnig í Bolungarvík.
Mest varð tjónið á Ólafsfirði.
Norðurgarðurinn er aðalbrim-
brjótur hafnarinnar og riðlaðist
kápa hans á 70 metra kafla. í
skýrslunni segir að ef annað álíka
áhlaup verði þá sé mikil hætta á
stórtjóni. í vesturgarðinn eru
komin tvö 25 metra löng skörð og
eitt 50 metra langt og er útskolun
úr garðinum veruleg segir í
skýrslunni.
Aðkallandi úrbætur á görðun-
um kosta 9,8 milljónir en einnig
er viðgerð á svokallaðri staura-
kistu nauðsynleg og kostar hún
3,1 milljón.
Á Siglufirði kostar viðgerð á
tengigarði 1,1 milljón, viðgerð á
grjótvöm Dalvíkurhafnar kostar
800 þúsund og á Hauganesi kost-
ar aðkallandi viðgerð á grjótgarði
og þekju um 2 milljónir en einnig
er talið nauðsynlegt að verja
athafnasvæði með grjótgarði og
bygging hans kosti um 2,4 millj-
ónir.
Hafnasjóður sem hefur meðal
annars það hlutverk að bæta tjón
af þessu tagi er tómur. Samgöngu-
ráðuneytið hefur sótt um 18,8
milljóna aukafjárveitingu til að
kosta úrbætur á Norðurlandi og í
Bolungarvík. ET
• Hugmynda-
banki
Mötuneyti Menntaskólans á
Akureyri er eitt af bestu ef
ekki bara besta mötuneyti
landsins enda ræður þar ríkj-
um Sigmundur nokkur Ein-
arsson matreiðslusnillíngur
og spekúlant. En lengi getur
gott bestnað eins og maður-
inn sagði og til þess að bæta
þjónustu mötuneytisins enn,
lét Sigmundur fyrir nokkru
setja upp kassa í borðsal
mötuneytis, ekki ósvipaðan
póstkössum. Á kassanum
stendur „Póstur til bryta,
hugmyndabanki“ og í hann
geta gestir mötuneytisins
komið skilaboðum sem reynt
er að koma til móts við.
# Póstur tiL.
í sumar var eins og undanfar-
in sumur rekið Eddu-hótel í
heimavist Menntaskólans og
þá voru eldhúsið og borðsal-
urinn vitaskuld notuð fyrir
gesti hóteisins sem margir
hverjir voru erlendir. Eitthvað
virðast þessir gestir hafa
misskilið áletrun kassans því
þegar Sigmundur opnaði
kasann fyrir nokkrum vikum
til að sjá hvað nemendur
vildu að betur færi í rekstrin-
um var í kassanum mikill
bunki af póstkortum til Jesp-
er Karlesen í Odense, Sing
Ling Ming í Peking og fleiri
góðra manna sem sennilega
eru orðnir langþreyttir á að
bíða eftir fréttum af vinum og
vandamönnum á ferðalagi
um ísland í sumar. Kortunum
var snarlega komið í þartil-
gerða póstkassa á vegum
Pósts og síma.
# Hvað á
koppurinn
að heita
Talsverðar vangaveltur hafa
verið uppi um það hvað hinn
„nýi“ togari Utgerðarfélags
Akureyringa, Dagstjarnan
verður látinn heita þann tíma
sem hann þjónar félaginu.
Flestir hallast að því að skip-
inu verði fengið nafnið Sól-
bakur en hjá starfsfólki ÚA
mun skipið ganga undir nafn-
inu Silfurbakur. Af hverju? Jú
eins og komið hefur fram í
fréttum telja Suðurnesja-
menn að með kaupunum hafi
Akureyringar fengið 600
tonna þorskkvóta á silfurfati.
Aðrir vilja vísa til lélegs ásig-
komulags skipsins og þess
hvernig það er í laginu og
kalla það Kroppinbak.