Dagur - 03.11.1987, Page 8
8 - DAGUR - 3. nóvember 1987
Jómfrúræða Valgerðar Sverrisdóttur alþingismanns:
„Málefni umhverfisvemdar em
ekki fagurfræðilegt hjal um óþarfa“
Hæstvirtur forseti.
Hér er lögð fram af þingmönn-
um fimm flokka þingsályktunar-
tillaga um einnota umbúðir.
Málefni umhverfisverndar eru
illu heilli vandamál, sem flestar
þjóðir eiga við að stríða og telja
höfuðnauðsyn að leysa. Pau eru
ekki fagurfræðilegt hjal um
óþarfa heldur nauðsynjamál sem
sérhverri menntaðri þjóð ber
skylda til að taka á.
Við segjum gjarnan á hátíðar-
stundum að við viljum að kom-
andi kynslóðir erfi landið í ekki
síðra ástandi, og helst betra, en
þær kynslóðir sem það byggja nú.
Til þess að svo geti orðið duga
ekki orðin tóm, heldur þarf að
eiga sér stað hugarfarsbreyting
hjá hinum almenna borgara, skil-
virkara eftirlit af hálfu sveitar-
stjórna og síðast en ekki síst lög-
gjöf frá hinu háa Alþingi þar sem
hana skortir.
Notkun einnota umbúða er á
margan hátt þægileg og um margt
jákvæð í nútíma þjóðfélagi, en
vandamálin eru a.m.k. tvíþætt.
í fyrsta lagi þau náttúruspjöll
sem af þeim hljótast úti í náttúr-
unni og hvar sem er þar sem þeim
er hent frá sér og í öðru lagi erf-
iðleikarnir við að koma sumum
af þessum varningi endanlega
fyrir kattarnef.
Hér er ekki um neitt nýtt mál
að ræða, en það hefur aldrei ver-
ið brýnna en nú, þar sem notkun
einnota umbúða hefur farið stór-
lega vaxandi með tilkomu pökk-
unarvéla fyrir öl og gosdrykki í
áldósir hér á landi. í greinargerð
Hollustuvemdar ríkisins, Náttúru-
vemdarráðs og Landvemdar kem-
ur fram að ekki sé ólíklegt að
árleg sala á gosdrykkjum verði
um 30 milljónir áldósa, sem svar-
ar til hátt í 400 tonna af áli.
Það er því Ijóst að einn
ófögnuður hefur bæst við önnur
spillingaröfl í íslensku umhverfi.
Við búum í fallegu landi stór-
brotinnar náttúrufegurðar.
íslendingar ferðast í vaxandi
mæli innanlands hvort sem er í
byggð eða óbyggðum. Því miður
hefur íslenskum uppalendum og
skólakerfi ekki tekist að innræta
þá sjálfsögðu skoðun í huga sér-
hvers einstaklings að fara um
landið af skilningi og virðingu.
Hver hefur ekki gengið fram á
umbúðir, hvaða nafni sem þær
kunna að nefnast, á fögrum
sumardegi í borg eða bæ, sveit
eða óbyggð, og verið eins og
stunginn í augun?
Valgerður Sverrisdóttir.
Á leið minni frá bílaplani
Alþingis yfir á skrifstofu, sem er
um 50 m löng leið, sá ég einn
morguninn 25 tómar áldósir með
því að horfa sæmilega í kringum
mig.
I 13. gr. laga um náttúruvernd
nr. 47 frá 1971 stendur með leyfi
forseta:
„Á víðavangi er bannað að
fleygja frá sér eða skilja eftir rusl,
sem er til hættu eða óprýði, svo
og að bera rusl eða sorp í sjó, í
fjörur eða á sjávarbakka, í ár eða
á árbakka, í læki eða á lækjar-
bakka. Skylt skal að ganga frá
áningarstað og tjaldstæði, er
menn hafa tekið sér úti í náttúr-
unni, þannig að ekkert sé eftir
skilið sem lýti umhverfið.
Bannaö er að safna rusli í
hauga á almannafæri eða við al-
faraleiðir. Skylt er að ganga svo
frá sorphaugum, að hvorki fjúki
úr þeim né fljóti. Hreinsa má rusl
á kostnað þess, er sannur er að
broti á þessu fyrirmæli." (Tilvitn-
un lýkur.)
Þetta eru góð lög en því miður
vantar nokkuð á að eftir þeim sé
farið.
Með leyfi forseta langar mig að
vitna aftur í lög um náttúruvernd
frá 1971 en þar segir í 15. gr.:
„Hafi byggingar, skip í fjöru,
bifreiðar eða áhöld eða mann-
virki, þar á meðal girðingar, ver-
ið skilin eftir í hirðuleysi og
grotni þar niður, svo að telja
verði til lýta eða spjalla á nátt-
úru, er eiganda skylt að fjarlægja
það. Fari jörð í eyði er landeig-
anda skylt að ganga svo frá jarð-
arhúsum, girðingum, brunnum
og öðrum mannvirkjum að ekki
valdi hættu fyrir fólk og skepnur
né valdi náttúruspjöllum eða sé
til lýta.
Sveitarstjórn skal annast fram-
Blómabúðin Laufás
auglýsir
Afmælisafsláttur í Sunnuhlíð.
Vegna 5 ára afmælis verslunarinnar
veitum við 20% afslátt af
öllum vörum verslunarinnar í 4 daga.
Hefst miðvikudaginn 4. nóvember
lýkur laugardaginn 7. nóvember.
Notið ykkur
þetta einstaka tækifæri.
Verið velkomin.
Blómabúðin Laufás
Sunnuhlíð.
Bifreiðaeigendur -
Bifreiðastjórar
Þokuluktir.
Viftureimar.
Þurrkublöð.
Öryggisbelti.
Barnastólar.
Öryggisbelti fyrir börn.
Startkaplar.
Hleðslustöðvar.
Sætaáklæði.
Og margt fleira.
Véladeild
Óseyri 2 - Símar 21400 og 22997.
Dags.:
SVARSEÐILL
Beiðni um millifærslu
áskriftargjalds
□ Er áskrifandi
□ Nýr áskrifandi
Undirritaður óskar þess að
áskriftargjald Dags verði
framvegis skuldfært mánaðarlega
á greiðslukort mitt.
Kortnr.:
Gildir út:
Nafnnr.
Strandgötu 31 • Sími 96-24222
ÁSKRIFANDI:
HEIMILI:.........
PÓSTNR.- STAÐUR:
SÍMI:....:.......
UNDIRSKRIFT.
kvæmdir þær, sem nauðsynlegar
eru samkvæmt fyrirmælum
þessum, á kostnað þess, er skylt
var að annast þær, en hefur látið
það ógert.“ (Tilvitnun lýkur.)
Það er mikil ábyrgð því sam-
fara að eiga land, hvort heldur
það er Ióð í þéttbýli eða jörð í
sveit.
Sú siðferðislega skylda hlýtur
að hvíla á eigandanum, að hann
gangi þannig um landið og haldi
við mannvirkjum, að ekki verði
til ama fyrir þá sem um landið
fara.
Á síðustu árum hefur orðið
veruleg framför víða til sveita í
umgengni á bóndabýlum. Á það
bæði við um ytra útlit útihúsa og
frágang á hvers konar brotajárni.
En því miður má enn sjá
bílhræ og úreltar landbúnaðar-
vélar á áberandi stöðum, jafnvel
uppi á hæstu hæðum.
I þessu sambandi er rétt að
hafa í huga, að það er gífurlega
mikil vinna sem felst í því að
snyrta og prýða og halda í horf-
inu á einu bóndabýli. Það er ekki
ólíklegt að þar sé um a.m.k. hálft
starf að ræða yfir sumarmánuð-
ina ef standa á myndarlega að
verki.
Á nýafstöðu Náttúruverndar-
þingi voru vandamál vegna sorp-
eyðingar og förgunar á brotajárni
og öðrum málmum nokkuð til
umræðu.
Þar kom fram í máli manna, að
endurvinnsla væri æskilegasta
leiðin og raunar sú eina sem auð-
velt væri að sætta sig við frá sjón-
arhóli umhverfisverndar.
Sú leið sem farin hefur verið í
nokkrum mæli, það er að urða
þetta rusl, á sér ýmsa vankanta.
T.d. hefur tilhneigingin verið sú,
að grafa ekki nægilega djúpt, og
hafa þá herlegheitin minnt á sig
áður en mörg ár hafa liðið.
Hæstvirtur forseti.
Ég vil að lokum endurtaka það
sem ég sagði í upphafi: Málefni
umhverfisverndar eru ekki fagur-
fræðilegt hjal um óþarfa heldur
nauðsynjamál í sérhverju hugs-
andi þjóðfélagi.
Lokaæfing.
Höf: Svava Jakobsdóttir
5. sýning föstudag
6. nóv. ki. 20.30.
6. sýning iaugardag
7. nóv. kl. 20.30.
Sala aðgangskorta
er í fullum gangi.
Miðasala f leikhúsinu frá 2-6.
Símsvari allan sólarhringinn
í síma 96-24073.
Kaupið ykkur
aðgangskort,
þá sparið þið ykkur
eina sýningu.
Jf Æ MIÐASALA
mwB 96-24073
iQKFélAG AKUR6YRAR