Dagur - 03.11.1987, Síða 9
3. nóvember 1987 - DAGUR - 9
íþróttir
Körfubolti 4. flokkur:
USAH sigraöi í
öllum sínum leikjum
- og færðist úr C-riðli upp í B-riðil
USAH sigraði í öllum sínum
leikjum í fjölliöamóti 4. flokks
á Islandsmótinu í körfubolta
um helgina. Leikirnir í c-riðli
fóru fram á Akureyri en auk
USAH kepptu Þór, ÍR b og
UMFL en lið Skallagríms í
Borgarnesi mætti ekki til leiks.
USAH og Laugdælir mættust í
fyrsta leik og er óhætt að segja að
það hafi verið leikur kattarins að
músinni. Húnvetningar sigruðu
78:19 eftir að hafa leitt 37:7 í
hálfleik.
Næst léku Þór og b lið ÍR.
Þórsarar voru seinir í gang og
voru undir í hálfleik 17:21. I síð-
ari hálfleik settu þeir hins á fulla
ferð og þegar flautað var til leiks-
loka höfðu þeir snúið leiknum sér
í hag og skorað 52 stig á móti 27
stigum ÍR-inga.
Þriðji leikurinn var viðureign
USAH og ÍR b. Enn voru það
Húnvetningarnir sem sigruðu, að
þessu sinni 64:48 eftir að hafa
leitt 30:19 í hálfleik.
Þá var komið að viðureign ÍR
b og Laugdæla. ÍR-ingar voru
sterkari í annars jöfnum leik og
sigruðu 63:56, eftir að hafa verið
yfir í hálfleik 27:26.
Þá var komið að leik USAH og
Þórs og er óhætt að tala um að
það hafi verið úrslitaleikur riðils-
ins. Þórsarar komust þó lítt áleið-
is í leiknum gegn sterku liði
USAH. Húnvetningar sigruðu
mjög örugglega 68:32 eftir að
hafa haft yfir 32:14 £ hálfleik.
Með sigrinum tryggði USAH sér
sigur í riðlinum og leikur því í b-
riðli í næsta fjölliðamóti sem
Blak:
Staðan
1. deild karla
Úrslit leikja í 1. deild karla
blaki um helgina urðu þessi:
Fram-Þróttur N 3:1
Víkingur-Þróttur R 1:3
KA-ÍS 0:3
HK-Þróttur N 3:0
Staðan í deildinni er þessi:
IS 3 3-0 9:1 6
Þróttur R 2 2-0 6:1 4
HK 3 2-1 6:3 4
Víkingur 2 1-1 4:4 2
KA 2 1-1 3:3 2
Fram 3 1-2 5:7 2
HSK 1 0-1 0:3 0
Þróttur N 3 0-3 1:9 0
1. deild kvenna
Úrslit leikja í 1. deild kvenna í
blaki um helgina urðu þessi:
KA-ÍS 0:3
HK-Þróttur R 0:3
UBK-Þróttur N 3:0
Staðan í deildinni er þessi:
UBK 3 3-0 9:1 6
ÍS 2 2-0 6:0 4
Víkingur 11-0 3:1 2
Þróttur R 3 1-2 5:6 2
Þróttur N 2 1-1 3:5 2
KA 2 0-2 2:6 0
HK 3 0-3 0:9 0
fram fer í Reykjavík í lok mán-
aðarins.
Síðasti leikurinn í riðlinum var
viðureign Þórs og Laugdæla.
Eins og í leiknum gegn ÍR voru
Þórsarar nokkuð seinir í gang.
Þeir höfðu þó yfir í hálfleik 27:22
en í síðari hálfleik tóku þeir öll
völd og sigruðu örugglega 66:36.
Húnvetningar hafa á að skipa
mjög öflugu liði í 4. flokki og
eiga örugglega eftir að láta mikið
að sér kveða í vetur. Bergþór
Öttósson var langatkvæðamestur
í liðinu en hann skoraði 95 af
þeim 210 stigum sem liðið skor-
aði í leikjunum þremur. Hjörtur
Eiríksson skoraði 44 stig og
Ómar Baldursson 30.
Þórsarar urðu að gera sér ann-
að sætið að góðu. Helgi Jóhannes-
son var besti leikmaður liðsins og
skoraði alls 75 stig í mótinu. Jón
Torfi Halldórsson skoraði 22 stig
og Högni Friðriksson 16.
Lokastaðan varð þessi:
USAH 3 3-0 210: 99 6
Þór 2 2-1 150:121 4
ÍR 3 1-2 138:172 2
UMFL 3 0-3 101:217 0
Bergþór Ottósson sýndi snilldar-
takta með USAH um helgina og
skoraöi 95 af 210 stigum liðsins.
Mynd: Rt>B
Handbolti:
Landsleikir á Akur-
eyri og Húsavík
- Það verður nóg að gera hjá íslenska landsliðinu fram að áramótum
Um miðjan nóvember verður
gert hlé á keppni í 1. deild
Islandsmótsins í handknattleik
en þá verður mótið hálfnað. Er
það gert vegna æfinga og leikja
íslenska landsliðsins sem
undirbýr sig af krafti fyrir
Ólympíuleikana á næsta ári.
Liðið kemur saman um miðjan
mánuðinn og þann 19. nóvem-
ber leika ísland og Pólland
landsleik í LaugardalshöII.
Daginn eftir hefst síðan fjög-
urra liða mót landsliða íslands,
Póllands, ísrael og Portúgal og
fer það fram á Akureyri og Húsa-
vík. Mótið hefst föstudaginn 20.
nóvember en þá fara fram tveir
leikir í Höllinni á Akureyri. Dag-
inn eftir halda öll liðin yfir til
Húsavíkur þar sem önnur umferð
mótsins fer fram í íþróttahöllinni
á staðnum. Á sunnudaginn lýkur
mótinu síðan með tveimur leikj-
um í Höllinni á Akureyri. Þarna
gefst norðlenskum handknatt-
leiksáhugamönnum gullið tæki-
færi á því að fylgjast með leikjum
íslenska landsliðsins.
Polar Cup í Noregi
I desember verður liðið síðan á
faraldsfæti og leikur auk þess
leiki hér á íslandi. 1.-8. desember
fer Polar Cup keppnin fram í
Noregi og auk íslands taka
landslið Júgóslavíu, Sviss og Hol-
lands ásamt heimamönnum þátt í
því móti.
Heimsmeistarar Júgóslava
munu síðan koma til fslands frá
Noregi og leika landsleiki hér á
landi 9.-11. desember. 15.-23.
desember koma S.-Kóreumenn í
heimsókn og mæta íslenska
landsliðinu. Á milli jóla og nýárs,
Kristján Arason hefur leikið mjög vel í haust og það verður gaman að fylgj-
ast með honum með landsliðinu innan skamms.
tekur íslenska liðið síðan þátt í
æfingamóti í Danmörku ásamt
liðum Dana, Svisslendinga og
Spánverja. Það verður því nóg að
gera hjá íslensku landsliðsstrák-
unum þessar síðustu vikur ársins
og þær fyrstu á nýju ári. Keppni í
1. deild hefst síðan að nýju 20.
janúar.
Útvalsdeild:
UMFNá
toppnum
UMFN og ÍBK hafa unnið
báða leiki sína í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik. Það hafa
KR-ingar einnig gert en þessi
þrjú lið ásamt Val og UMFG
hafa öll hlotið fjögur stig.
UMFN, ÍBK og KR eftir tvo
leiki en Valur og UMFG að
loknum þremur leikjum.
Flestir spá því að það verði
Suðurnesjaliðin UMFN og
ÍBK sem komi til með að berj-
ast um íslandsmeistaratitilinn
og er óhætt að taka undir það.
Urn næstu helgi koma Njarð-
víkingar í heimsókn til Akur-
eyrar og mæta Þórsurum í
Höllinni. Ketlvíkingar mæta
Grindvíkingum í næstu
umferð en í þar næstu umferð
mætast einmitt UMFN og ÍBK
í Njarövíkum. Þar veröur
örugglega hart barist eins og
jafnan þegar þessir erkifjend-
ur mætast.
Þriðju umferð úrvalsdeildar
lauk á sunnudagskvöld og úr-
slit leikjanna urðu þessi:
UMFN-UBK
UMFG-Þór
ÍR-KR
Valur-ÍBK
120:
87:
70:
59:
Staðan í deildinni er þessi:
UMFN
Valur
ÍBK
KR
UMFG
Haukar
ÍR
Þór
UBK
2 2-0 213:123 4
3 2-1 253:199 4
2 2-0 148:124 4
2 2-0 153:140 4
3 2-1 214:203 4
2 1-1 151:135 2
2 0-2 135:169 0
3 0-3 216:279 0
3 0-3 154:265 0
Væringar hjá Völsungum:
Ómar í uppskurð
- Úvíst hvort Birgir Skúlason og
Helgi Helgason leika með liðinu næsta sumar
Óvíst er hvort Ómar Rafnsson
leikmaður Völsungs í knatt-
spyrnu geti leikið með liði sínu
næsta keppnistímabil. Ómar er
með sködduð krossbönd í hné
og bíður þess aðeins að komast
undir skurðarhníflnn til við-
gerðar. Ómar sagði í samtali
við blaðamann um helgina að
það gæti tekið allt að eitt ár að
ná sér fyllilega eftir þá aðgerð
og því frekar litlar líkur á því
að hann verði í slagnum með
liðinu í 1. deildinni næsta
sumar.
Það gæti farið svo að Völsung-
ar lékju án fleiri snjallra leik-
manna næsta keppnistímabil.
Eins og kom fram í Degi í gær
ætlar Hörður Benónýsson að
leika með Leiftri og þá er alls
óvíst hvort Helgi Helgason leik-
maðurinn snjalli spilar með liðinu,
samkvæmt heimildum blaðsins.
Helgi hefur verið einn besti
leikmaður liðsins undanfarin ár
og skarð hans yrði vandfyllt.
Birgir Skúlason varnarmaður-
inn sterki hélt suður til Reykja-
víkur að loknu keppnistímabilinu
í haust og hefur æft með KR
undanfarnar vikur. Á þessari
stundu er alls óvíst hvort Birgir
heldur norður á ný með vorinu
og leikur með Völsungi næsta
sumar. Það yrði mikil blóðtaka
fyrir liðið ákveði hann að leika
með öðru félagi, hvort sem það
yrði KR eða eitthvert annað
félag.
Ómar Rafnsson fer í uppskurð á
næstunni og óvíst er hvort hann
verður orðinn leikhæfur í sumar.