Dagur - 03.11.1987, Qupperneq 11
3. nóvember 1987 - DAGUR - 11
Minning:
Harpa M. Bjömsdóttir
Fædd 29. nóv. 1922 - Dáin 21. okt. 1987
Pótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika,
yrði ég hljómandi málmur
eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma
og ætti alla þekking,
og þó ég hefði svo takmarkalausa
trú, að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
I.Kor.13.
Rétt fyrir árstíðaskiptin í síðustu
viku kom veturinn yfir Landa-
kotstúnið með köldum rigningar-
hraglanda og myrkrið skall á.
Norður við Eyjafjörð kvaddi
sumarið með sterkum laufvind-
um, veturinn gekk í garð við hinn
milda fjörð eftir mörg norðan-
veður og kalsasamt haust - en
friður færðist yfir.
Eins og árstíðirnar, kuldi eða
hlýja, er lífsganga okkar mann-
fólksins margvísleg og ekki ætíð
eins og ráð var fyrir gert. Kynni
okkar af samferðafólkinu eru
jafn breytileg og á stundum er
eins og nokkur örlög ráði. Tengsl
og vinátta bindast og breytast -
ýmis kynni hverfa sem sjónhend-
ing en önnur meitlast inn í lífið
og skína sem perlur. Vinátta
skapast og þegar óvæntum örlög-
um er mætt verður slík vinátta
sem bjarg, sem ekkert fær hagg-
að - eins og stjarna sem skín -
einnig í hinu dimma myrkri.
Þannig mun geymast minning-
in um Hörpu Björnsdóttur, sem í
dag er kvödd af vinum og sam-
ferðafólki og sárt er saknað. Lífi
hennar lauk eftir þrautamikla
baráttu skömmu fyrir vetrarkom-
una, þegar hver dagur verður
öðrum styttri hér á norðurslóðum
og myrkur og kuldi sækja á.
Til kynna var stofnað á síðari
hluta hinnar sameiginlegu lífs-
göngu, þó að átthagarnir hafi
verið þeir sömu norður á Akur-
eyri. Og það var ef til vill frum-
rótin líkt og Ibsen segir í þýðingu
séra Matthíasar um átthagana:
„En ættbyggð manns ætla að sé
hans eðlisstöð sem rótin tré. “
Nokkrar eyfirskar liljur vallar-
ins mynduðu fljótt kjarnann í
virku átthagafélagi. Rótin var
virðing og rækt við átthaga þeirra
í
' og uppruna, hið sameiginlega
bernskuumhverfi og ekki síst
tjáning á vináttu og virðingu
gagnvart öllu því fólki í bænum
við fjörðinn og eyfirskum dölum.
Það var þegar orðinn hluti af
þeim sjálfum, einn ríkasti þáttur
í hugum þeirra ásamt mökum og
fjölskyldum, sem öðluðust þá
gæfu að eiga hlutdeild í þessu
starfi.
Þessi æskuvinátta og átthaga-
tengsl snerust fljótt í gagnkvæma
vináttu, sem geislaði í þessum
glaða hópi, þar sem horft var
björtum augum til framtíðarinn-
ar í starfi og leik.
Markmiðið var að láta eitthvað
gott af sér leiða, létta undir með
öðrum og njóta um leið félags-
skapar með vinum með sameigin-
lega arfleifð. Mörg var stundin
eftirminnileg og kær. Þá var
stofnað til þess vinfengis og
tryggðar sem aldrei rofnaði og á
engan skal hallað þegar mælt er,
að á þessu lífshlaupi ævinnar,
þegar gleðin ríkti og birtan lýsti,
voru þessi hlýju hjón, Harpa og
Ásbjörn, sjálfkjörin til forystu og
þau hrifu aðra með sér. En fram-
tíðin var jafn óræð og áður og
lífsgangan var bæði blíð og stríð
- hjá okkur öllum. Þessar glöðu
stundir hverfa aldrei úr minni og
seint verður fullþökkuð sú
tryggð og bjargfasta vinátta og
umhyggja, sem geislaði frá
Hörpu á hinum stríðu stundum.
Þessi skaphöfn var aðalsmerki
hennar.
Harpa ræddi ekki kærleika -
hún lét hann í té af þeirri auð-
mýkt og djúpa innileik, sem hún
bjó yfir í ríkum mæli. Hún ræddi
ekki fórnfýsi eða samhjálp - hún
sýndi það í verki, að ógleyman-
legt er. Hún kunni þá list aö
sameina vel gleði og alvöru og
hreif aðra með sér. Þannig var
hún samferðamönnunum - það
þekkjum við vel - og þannig hef-
ur hún verið sínum nánustu. Það
hefur verið mikil gæfa að eignast
þær minningar. Þær varðveitast
þrátt fyrir hverfulleika lífsins.
Harpa var ekki til að sýnast.
Hún var ætíð hún sjálf. ískaldir
vetrarstormar lífsins högguðu
henni ekki. Oft blésu þeir lengi
og án afláts - en hún var söm og
jöfn. Jafnvel þegar svo var
komið, að sjúkdómurinn hafði
miskunnarlaust náð yfirtökum,
gaf hún sér góðan tíma til að
fylgjast með líðan annarra. Ég
hef engri ótengdri manneskju
kynnst, sem hefur átt þessa eigin-
leika í jafn ríkum mæli. Fyrir allt
þetta er þakkað og verður þessi
reynsla fögur og hlý í minning-
unni.
í mynd Hörpu varðveitist fög-
ur lífssaga. Hún er mótuð af
tryggð við uppruna sinn og átt-
haga og alla þá, sem voru svo
lánsamir að eignast hlutdeild í
þeirri sögu. Þannig munum við
geyma minningu þessarar góðu
konu, en sú vissa er huggun
harmi gegn, að þeim, sem hafa átt
þá dýrmætu skaphöfn að varð-
veita kærleiksperluna í brothættu
lífi hér á jörðu, hlýtur að vera
veitt enn æðra hlutskipti í hinum
óræða heimi handan lífs og
dauða. í öllum þeim raunum,
sorg og myrkri, sem á aðstand-
endur er lagt, hlýtur það að lýsa í
myrkrinu, að handan hinnar
miklu þrautar bfður líknin og
handan líknar frá þraut eru þær
æðri brautir, sem þeim hlotnast
sem eiga vammlaust líf, þar sem
menn án kærleika væru sem
„hljómandi málmur eða hvell-
andi bjalla“. Á þeim brautum
ríkir birta á ný og það vor, sem
þeim hlýtur að hlotnast sem bera
það ætíð í brjósti sér.
Megi minningin um fagurt líf
hinnar látnu milda þá sorg, sem
hvílir yfir fjölskyldu hennar,
eiginmanni hennar, Ásbirni,
börnum þeirra og öllum vinum
þeirra.
Sólin og birtan mun skína yfir
liljur vallarins og það bjarmar á
ný yfir byggðum Eyjafjarðar.
Heimir Hannesson.
Tryggingastofnun ríkisins
Reykjavik - Laugavegi 114
Auglýsing
Styrkir til bifreiðakaupa til hreyfihamlaðra.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 15. nóvember.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Tryggingastofnun ríkisins og
hjá umboðsmönnum hennar um allt land.
Afgreiðslunefnd
Frá menntamálaráðuneytinu:
Laus staða
Staða sérkennslufulltrúa í menntamálaráðuneytinu er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík fyrir 25. nóv. n.k.
Menntamálaráöuneytið.
Iþróttahöllin
Nokkrir tímar lausir á sunnudagskvöld-
um í stóra salnum auk þess lítill leik-
fimisalur til leigu.
Umsóknum sé skilaö í íþróttahöllina fyrir 6. nóvem-
ber.
íþróttaráð.
Vinningstölur 31. október 1987.
Heildarvinningsupphæð kr. 11.072.236.-
1. vinningur kr. 6.854.204.-
Skiptist á milli 7 vinningshafa kr. 979.172,- á mann.
2. vinningur kr. 1.270.472.-
Skiptist á milli 686 vinningshafa kr. 1.852,- á mann.
3. vinningur kr. 2.947.560.-
Skiptist á milli 17.864 vinningshafa sern fá kr. 165.- hver.
Auk þess komu eftirfarandi tölur upp í fyrri
útdrætti sem reyndist ógildur:
Þeir sem voru með 3,4 og 5 réttar tölur í þessum
útdrætti eru beðnir að snúa sér til skrifstofu
íslenskrar getspár, en þar verða þeim greiddar
samsvarandi fjárhæðir og vinningshafar fá.
Ath. Nánari upplýsingar hjá umbodsmönnum.
Upplýsingasími
91-685111.
Spennandi starf!
Leitum að hressu og duglegu fólki á nýjan
veitingastað, aðstoðarkokkum og fólki í
þjónustustörf.
Vaktavinna.
Þeir sem áhuga hafa komi á staðinn eftir hádegi í
dag þriðjudag.
Café Torg
Kranavinna
Óskum eftir vönum manni til starfa á 30 tonna
vökvakrana.
Gott kaup hjá traustu fyrirtæki.
★ Framtíðarvinna ★
Upplýsingar í sfma 21255.
MOL&SANDUR HF.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Munið áskrifendagetraun Dags
— Verió með frá upphafi