Dagur - 03.11.1987, Page 12
wmm
Akureyri, þriðjudagur 3. nóvember 1987
■gS's -
•/' >
tMONROEf
höggdeyfar
í flesta bíla
þÓRSHAMAR HF.
Varahlutaverslun
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Akureyri:
Norðurland vestra:
Bylting í
dagvistun
- Tiiraunaverkefninu í Síðuhverfi
hieypt af stokkunum
Dagvistun á Akureyri stendur
nú á vissuin tímamótum. Verið
er að hleypa af stokkunum til-
raunaverkcfni í Síðuhverfi sem
getur, ef það gengur upp, haft
stefnumótandi áhrif á dagvist-
un í bænum og jafnvel víðar.
Þótt Síðuhverfi sé tiltekið í
essu verkefni mun starfsemin
ná yfir allt Glerárhverfi. Hulda
Harðardóttir fóstra hefur verið
ráðin til starfa við verkefnið.
Aukagreiðslur í
Lottó 5/32:
Ekki viður-
kenning á
bótaskyldu
Eins og alþjóð veit þá varð
uppi fótur og fit í sjónvarpssal á
laugardagskvöldið þegar í Ijós
kom að mistök höfðu orðið við
útdrátt í Lottó 5/32. Aðeins
þriðjungur hinna númeruðu
kúlna fór niður í tromluna sem
skilar kúlunum niður í stútana
sem birtast spenntum sjón-
varpsáhorfendum. Aftur var
dregið og þá fengu sjö ein-
staklingar fimm rétta en hvað
átti að gera við þá þrjá sem
voru með fimm rétta í fyrra
skiptið?
A aukafundi íslenskrar getspár
sem haldinn var á sunnudaginn
var gerð samþykkt sem send hef-
ur verið fjölmiðlum. Þar segir
m.a að stjórn íslenskrar getspár
telji ekki ósanngjarnt miðað við
aðstæður að þeir aðilar sem voru
með réttar tölur við fyrri útdátt-
inn hljóti sömu fjárupphæð og
þeir sem voru með réttar tölur
við síðari útdráttinn og samþykki
að greiða þeim samkvæmt því.
Síðan segir: „Stjórn Islenskrar
getspár áréttar að greiðslur þess-
ar eru án nokkurrar viðurkenn-
ingar á bótaskyldu.“
Þeir 10 aðilar sem voru með
fimm rétta í útdráttunum tveimur
fá hver um sig tæpar 980 þúsund
krónur í sinn hlut. Spurningunni
um það hvað hefði verið gert ef
aðeins einn hefði verið með fimin
rétta í síðara skiptið sagðist Vil-
hjálmur Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri íslenskrar getspár
ekki getað svarað og vonandi
þyrfti hann aldrei að ráða fram úr
slíkum vanda aftur.
Þess má að lokum geta að á
laugardagskvöldið kom í fyrsta
skipti fram seðill með fimm rétta
hjá útibúi getspár í Grímsey, en
þar er að finna nyrsta Lottókassa
heims. ET
Aðstaða fyrir starfsmanninn
verður í kjallara Síðusels, en
fyrsta verkefnið er einmitt að
Ijúka við að innrétta hann. Að
sögn Jóns Björnssonar, félags-
málastjóra, verður þar einnig
aðstaða fyrir dagmæður í hverf-
inu. Þær geta komið þangað og
haft samveru með börnunum og
einnig er meiningin að þar verði
afleysing fyrir dagmæður í veik-
indaforföllum.
„I framtíðinni er þá meiningin
að dagmæður hafi þarna eins
konar félagsheimili og venji
börnin á að koma á þennan stað.
Þegar þær verða forfallaðar geta
þær sent foreldrana með börnin
þangað þar sem þau fá pössun
þann daginn. Þannig er hægt að
afstýra miklum vandræðum sem
hafa hrjáð dagmæður, en þær
hafa hreinlega ekki mátt vera
veikar,“ sagði Jón.
Starfsmaður verkefnisins er
milliliður milli forstöðumanna í
hverfinu og dagvistardeildar.
Hann sér um innritun og hefur
umsjón með öllum dagvistar-
formunum, þ.e. dagvistum,
gæsluvöllum, dagmæðrum og
skólagæslu, í Glerárhverfi.
Að sögn Jóns er með þessu
verið að meðhöndla Glerárhverfi
sem einingu og samræma dagvist-
arformin þar. Starfsmaður verk-
efnisins mun sjá um innritun
barna og velja dagvistarform eftir
þörfum foreldra, öfugt við það
sem nú er, en foreldrar hafa þurft
að hlaupa á milli dagmæðra, dag-
heimila o.fl. eftir því hvernig
vinnutíma þeirra er háttað.
„Með þessu getum við fengið
betri nýtingu út úr kerfinu og
öruggari þjónustu fyrir börnin og
um leið tekið þetta ómak af for-
eldrunum. En það á eflaust mikið
vatn eftir að renna til sjávar áður
en þetta verður allt komið í
gagnið, en þetta eru markmiðin
með tilrauninni,“ sagði Jón að
lokum.
Gríðarleg skómergð er gjarnan í anddyri íþróttahallarinnar. Oftar en ekki
eiga börnin í hinum mestu vandræðum með að finna eigin skófatnað.
Mynd: TLV
Aukin
þjónusta
Arnarflugs
Arnarflug hf. hefur aukið
mjög þjónustu sína við
Blönduós og Siglufjörð. Ein
ferð bættist við í viku til
Blönduóss og tvær til Siglu-
fjarðar samkvæmt vetraráætl-
un félagsins.
Að sögn Árna Ingvarssonar,
framkvæmdastjóra innanlands-
flugs félagsins, er flogið til Siglu-
fjarðar alla sjö daga vikunnar,
einu sinni á dag. Þetta er 40 prós-
ent aukning frá því sem var síð-
asta vetur en þá var flogið fimm
sinnum í viku til Siglufjarðar.
Lagt er af stað frá Reykjavík kl.
10 árdegis og kl. 11.30 frá Siglu-
firði.
Til Blönduóss er flogið alla
daga nema laugardaga og mánu-
daga og er lagt af stað frá
Reykjavík kl. 18.00. Notaðareru
flugvélar af gerðunum Twin-Ott-
er og Cessna Business Liner.
EHB
KSÞ Svalbarðseyri:
Stjórnaimenn leystir
undan ábyrgðum?
„Nei, það hefur bankinn ekki
gert, en hann hefur lýst því yfir
að hann muni leita leiða til að
svo megi verða,“ sagði Geir
Magnússon, bankastjóri Sam-
vinnubankans, þegar hann var
spurður að því hvort rétt væri
að fyrrum stjórnarmenn í
Kaupfélagi Svaibarðseyrar
hefðu verið leystir undan 16-17
milljóna króna ábyrgðum
gagnvart bankanum.
Að sögn Geirs Magnússonar er
ennþá of snemmt að segja til um
hvaða leiðir verða farnar til að
losa stjórnarmenn undan ábyrgð-
um eða innheimta það fé sem um
er að ræða. Þó hafi bankamenn
ákveðnar vonir um að úr þessum
málum rætist.
Þegar Geir var spurður að því
hvort Samvinnubankinn hefði
leitað eftir kaupendum að eign-
um sfnum á Svalbarðseyri sagði
hann: „Við höfum rætt við
nokkra mögulega kaupendur að
eignunum sem okkur voru slegn-
ar á uppboðunum í haust og ég
tel líkur á að saman muni ganga,
a.m.k. með nokkrar eignir.
Hvað lóðirnar varðar þá höf-
um við notað tímann til að gera
skipulagsuppdrátt af Svalbarðs-
eyri þar sem hverri fasteign er
ætluð ákveðin Ióð miðað við þær
þarfir sem leiða af notkun þeirra
í framtíðinni. En ætlunin er að
selja hreppnum landið að öðru
leyti þar sem hann hefur lýst
áhuga sínum á því.“
Það er því ekki rétt sem kom
fram í DV sl. laugardag að Sam-
vinnubankinn hefði þegar leyst
fyrrverandi stjórnarmenn undan
ábyrgðum þótt það mál sé vissu-
lega í athugun. Iðnaðarbanki
íslands hf. á um 5 milljóna króna
kröfur á hendur þessum sömu
mönnum og er ekki annað vitað
en lögtökum á fasteignum þeirra
verði fylgt eftir með uppboðum
nema kröfurnar verði áður
greiddar. EHB
Björgunarsveitin í Grímsey:
Missti nær allar eigur í brunanum
Björgunarsveitin í Grímsey
tapaði nær öllum sínum tækja-
búnaði þegar geymsluhús Fisk-
verkunar KEA í Grímsey
brann í fyrrakvöld. Samkvæmt
þeim upplýsingum sem Dagur
hefur aflað sér var búnaðurinn
ekki vátryggður. Tjón sveitar-
innar er því tilfinnanlegt.
Hafliði Guðmundsson, for-
maður sveitarinnar, sagði í við-
tali við blaðið að björgunarsveit-
in hefði misst sex flotgalla með
vestum og tvö fluglínutæki ásamt
öllum búnaði. „Við misstum nán-
ast allt nema slöngubátinn sem
Hafliði Guðmundsson.
Mynd: ÁP
var geymdur annars staðar. En
því má bæta við að bátinn
geymdum við líka í húsinu þar til
í vor að við fluttum hann um set.
Þetta var tilfinnanlegt tjón. Sveit-
in er ekki nema þriggja ára göm-
ul og búnaðurinn því nýlegur,“
sagði Hafliði.
Hafliði sagði að nú yrði hafist
handa við að panta nýjan búnað.
„Við fengum björgunarbúnaðinn
síðasta haust og skuldum þetta
allt. Það var því grátlegt að sjá
þetta allt fara - en við ætlum ekki
að gefast upp,“ sagði formaður
björgunarsveitarinnar að lokum.