Dagur - 11.11.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 11. nóvember 1987
Hestaíþróttir:
Nýtt sérsamband
innan ÍSÍ
„Við héldum góðan fund um
helgina þar sem skýrt var fyrir
félögunum hvað hefði gerst á
ársþingi LH. Auk þess
spjölluðum við um framtíðina.
Formaður Iþróttaráðs Lands-
sambands hestamanna, Pétur
Jökull Hákonarson, kom á
fundinn og ræddi við okkur um
Húsavík:
Leitað að
bygging-
arefni
Næsta sumar er fyrirhuguð leit
í landi Húsavíkur og nágrennis
að lausum jarðefnum, sem eru
frostþolin og hæf sem bygging-
arefni. Vöntun er á slíkum efn-
um á svæðinu, ekki síst ef
alþjóðaflugvöllur verður
byggður í Aðaldal.
„Astæðan fyrir því að við vinn-
um að erfiðu og dýru malarnámi í
bænum er sú að það er langt í
betra efni og þótt það sé dýrt að
vinna efnið hér er ennþá dýrara
að sækja það þangað sem það er
til staðar,“ sagði Bjarni Þór Ein-
arssíjn ibæjarstjóri í >sámtali jvið
Dag. ‘ ' '
„Það hefur mikið verið unnið
hér umhverfis Húsavíkurland í
sambandi við athugum á vegum
Flugmálastjórnar um staðarval á
alþjóðaflugvelli. Eftir því sem ég
best veit kemur í ljós í þeirri
könnun, að okkar aðstæður séu
einna erfiðastar gagnvart al-
þjóðaflugvelli vegna þess að of
langt sé í þessi efni, að öðru leyti
séu aðstæður hér þær æskilegustu
sem finnast.
Þetta er kannski spurning um
einhverjar krónur, en ef flugöryggis-
aðstæðurnar verða látnar vega
þyngra þá sýnist mér að völlurinn
verði byggður hér. Ég hef alltaf
sagt að ef skynsemin verði látin
ráða þá hljóti menn að lenda hér
og ég hef trú á að skynsemin ráði
í þessu máli þegar menn skoða
hlutina ofan í kjölinn.“ IM
stöðu íþróttamála innan hreyf-
ingar hestamanna,“ sagði Jón
Olafur Sigfússon, formaður
hestamannafélagsins Léttis á
Akureyri.
Að sögn Jóns Ólafs eru hesta-
menn að stofna sérdeild innan
íþróttasambands íslands. Þann
28. þ.m. verður haldinn formleg-
ur stofnfundur þessarar deildar en
inn í hana ganga allar hesta-
íþróttadeildir landsins, þar á
meðal hestaíþróttadeild Léttis.
Um er að ræða sérsamband innan
ÍSÍ sem er ekki háð LH á neinn
hátt og geta hestamenn í Eyja-
fjarðarsýslu því átt aðild að því
þótt þeir gangi úr Landssam-
bandinu.
„Það er ekki rétt hjá Leifi Kr.
Jóhannessyni, formanni LH, að
við höfum ekki talað fyrir okkar
málum á ársþinginu. Við fluttum
mjög greinargóða skýrslu en þar
sem við áttum mikilla hagsmuna
að gæta töldum við eðlilegt að
útskýra málið allt frá upphafi til
enda í ræðu en að halda uppi
málþófi á þinginu,“ sagði Jón
Ólafur Sigfússon. EHB
Húsavík:
Siglunes komið til heimahafnar
Siglunes ÞH-60, 101 tonna
stálskip kom til heimahafnar á
Húsavík á föstudagsmorgun-
inn. Skipið er keypt frá
Hvammstanga en var smíðað á
Akranesi 1970.
Skipið er búið til línu-, neta-
og rækjuveiða og áætlað er að
það haldi til línuveiða strax á
þriðjudaginn. Kaupverð skipsins
er 38 milljónir. Eigendur þess eru
bræðurnir Óskar og Aðalsteinn
Karlssynir og Hera Sigurgeirs-
dóttir, móðir þeirra. Þau hafa
stundað útgerð í 27 ár, í fyrstu
ásamt Karli Aðalsteinssyni s^m
nú er látinn.
Það er Óskar sem er skipstjóri
á Siglunesi, 6 manna áhöfn er á
skipinu og er Karl Geirsson syst-
ursonur bræðranna, stýrimaður.
Aðalsteinn er skipstjóri á
Sæborgu ÞH-55, 40 tonna bát
sem mæðginin eiga einnig.
Til að fjármagna kaupin á
Siglunesi var Guðrún Björg, 15
tonna eikarbátur seldur til Hafn-
arfjarðar fyrir 11 milljónir.
Aðspurður um hvernig honum
litist á skipið sagði Óskar skip-
stjóri: „Mér líst bara vel á skipið,
en þetta eru mikil viðbrigði mið-
að við litla bátinn sem var svipað-
ur að stærð og lúkarinn á
þessum.“
Þess má geta að Guðrún Björg
var einnig smíðuð 1970 en Siglu-
nes er þó yngra skip þar sem
smíði þess lauk fjórum dögum
síðar. IM
Ekki
sammála útreikningum
ráðuneytismanna
„Tillögur okkar til ráðherra
gera ráð fyrir því að útsvars-
prósentan verði 7,5. Starfs-
menn fjármálaráðuneytisins
gáfu sér ákveðnar forsendur
sem við erum ekki sammála og
reiknuðu út að 6,25% myndi
nægja. Svo er þó ekki að okkar
mati,“ sagði Sigurgeir Sigurðs-
son, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, en í
þessari viku mun ráðherra
skera úr um hver útsvars-
prósentan verður í staðgreiðslu-
kerfi skatta.
Samkvæmt lögum nr. 38/1987
um breytingar á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga er kveðið á
um að útsvar skuli aldrei nema
- segir Sigurgeir Sigurðsson um útsvarsprósentuna
tökum að okkur ný verkefni. verulega við óbreytt kerfi af þeim
Starfsmenn ráðuneytisins gefa sökum,“ sagði Sigurgeir Sigurðs-
hærri upphæð en 7,5% af tekju-
skattsstofni. Fjármálaráðherra
skal ákveða útsvarprósentu hvers
árs í sérstakri reglugerð en áður
skal hann leita tillagna Sambands
íslenskra sveitarfélaga og taka til-
lit til áforma sveitarstjórna um
álagningu. Reglugerðin skal gef-
in út fyrir 15. nóv. ár hvert.
„Við erum að tala um að sveit-
arfélögin eigi að halda óbreyttum
tekjum miðað við núverandi
kerfi og tekjuaukning milli
áranna 1986-7 er á bilinu 35-
37%. Ekkert sveitarfélag hefur
innheimt yfir 80% af sínum
útsvörum á sama ári og í stað-
greiðslu verðum við að sjá fram á
hverjar tekjurnar verða því við
sér að innheimtan verði 100%
öllum tilvikum og spá lægri verð-
bólgu en við höfum ástæðu til að
ætla. Þá má nefna það að 1987 er
skattlaust ár og margir hafa bætt
á sig mikilli aukavinnu en tekjur
sveitarfélaganna hefðu vaxið
son.
Ljóst er að ef ráðherra sam-
þykkir tillöguna um hámarks-
álagningu útsvars á næsta ári mun
það þýða hundruð milljóna
króna aukaútgjöld fyrir útsvars-
greiðendur. EHB
Akureyri:
Slysagildra við
pósthúsið
Lionessur á Akureyrí gáfu Fæðingardeild FSA vandað monitortæki sl. mánudag. Monitorinn kom í mjög góðar þarf-
ir því sá sem fyrir var á dcildinni var orðinn gamall. Konurnar öfluðu fjár með plastpokasölu í síðasta mánuði og
færa þær bæjarbúum kærar þakkir fyrir góðar viðtökur.
„Aðstaðan við pósthúsið á
Akureyri er ömurleg, níð-
þröng og erfið. Það sem er erf-
iðast við þetta er að þegar
maður er að athafna sig með
póstinn þá eru smábílar fyrir
okkur en þeir mega leggja
þarna á planinu,“ sagði Óskar
Stefánsson, bílstjóri hjá
Norðurleið.
Langferða- og sérleyfisbílstjór-
ar hafa, að sögn Óskars, kvartað
við póstyfirvöld á Akureyri
vegna þrengsla við afgreiðslu bíl-
anna á bílastæðinu austan við
símstöðina. Mikil bót væri í máli
ef bannað yrði að leggja öðrum
megin á planinu a.m.k.
„Það er erfitt að athafna sig
þarna á svo stórum bílum. Skipa-
gatan er fjölfarin gata, einkum á
fimmtudögum og föstudögum
þegar verslanir eru opnar fram
eftir kvöldi. Ég get að mörgu
leyti tekið undir það að þarna er
mikil slysahætta því við erum
ýmist að bakka inn í stæðið eða
út úr því og erum þá þvert á
Skipagötuna á stærri bílunum.
Það er alltaf hætta á árekstri þeg-
ar maður bakkar svona blint út í
umferðina, einkum í hálku.
Það hefur sem betur fer ekkert
komið fyrir ennþá en aðstæðurn-
ar bjóða að mörgu leyti upp á
slíkt,“ sagði Óskar Stefánsson að
lokum, en hann hefur ekið fyrir
Norðurleið hf. frá árinu 1975.
EHB
Athugasemd:
Hækka -
ekki lækka
í frétt um væntanlega fiskihöfn á
Akureyri sem birtist 9. nóvember
varð prentvilla sem breytir merk-
ingu mikilvægrar setningar. Þar
er haft eftir Gunnari Arasyni,
formanni Hafnarstjórnar Akur-
eyrar, að verið sé að athuga hvort
sú leið sé fær að lækka kostnað-
arhlut Akureyrar niður í 50%
varðandi framkvæmdir við 1.
áfanga fiskihafnar. Þarna á auð-
vitað að standa að verið sé að
athuga hvort fært sé að hækka
hlutdeild bæjarins í 50%. Beðist
er velvirðingar á þessu. EHB