Dagur - 11.11.1987, Síða 5
11. nóvember 1987 - DAGUR - 5
Djassdagar í
Ríkisútvarpinu
Þessa dagana 7. til 14. nóvember
er kynnt djasstónlist á djassdögum
Ríkisútvarpsins, meðal annars
eru beinar útsendingar frá djass-
tónleikum.
í þessu tilefni er kominn til
landsins sænska tónskáldið og
básúnuleikarinn Mikael Ráberg
til að vinna með stórsveitum
landsins.
Næsta fimmtudag 12. nóvember
heldur Stórsveit Tónlistarskólans
á Akureyri tónleika í Alþýðuhús-
inu 4. hæð. -
Stjórnendur verða Norman H.
Dennis og Mikael Ráberg, sem
einnig mun leika á básúnu.
Kynnir verður Gestur Einar
Jónsson.
Tónleikarnir verða sendir út í
beinni útsendingu á Rás 2, en
þeir hefjast kl 17.45 og útsending
hefst kl. liðlega 18.00.
Stórsveitin.
Athugasemd
- vegna leiðaraskrifa um fóstruvandann
Dagur þ. 9. nóv. eyðir bæði púðri
og plássi í árásir á meirihluta
bæjarstjórnar og mig sem for-
mann félagsmálaráðs sérstaklega
vegna fóstruskorts á dagvistum
bæjarins. Púðrið er reyndar dálít-
ið rakt, því hvorki er fóstru-
skorturinn nýtt vandamál hér né
staðbundinn við Akureyri. í þau
tæp 6 ár, sem ég hef starfað í
félagsmálaráði, hefur fóstru-
skortur verið vandamál og a.m.k.
einu sinni á síðasta kjörtímabili,
þegar flokkur þeirra Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur og Sigurðar
Jóhannessonar var í meirihluta-
samstarfi í bæjarstjórn, var svo
langt komið, að félagsmálaráð
hafði samþykkt að leita leyfis
menntamálaráðuneytis til að
ráða ófaglærðan (ekki fóstru)
forstöðumann að einu barna-
heimilinu. Til þess kom þó ekki,
því lærð fóstra fékkst á síðustu
stundu fyrir elju dagvistarfull-
trúa.
Þetta upphlaup þeirra Úlfhild-
ar og Sigurðar í bæjarstjórn er
vart þess eðlis, að það taki því að
svara því, þar sem það er greini-
lega af sama toga spunnið og þeg-
ar fyrirtæki fara í auglýsingaher-
ferð. Fóstruskorturinn á sér marg-
víslegar rætur og hreint ekki bara
kjaralegs eðlis, en í því sambandi
gefur auga leið, að hækki laun
fóstra, svo einhverju nemi,
hækkar rekstrarkostnaður dag-
vista og þá um leið sá hlutinn,
sem foreldrar greiða. Þriggja
manna nefnd leysir þar ekki
fóstruvandann fremur en félags-
málaráð í samvinnu við dagvist-
arfulltrúa og annað þrautreynt
starfsfólk félagsmálastofnunar.
Ný nefnd yrði eingöngu kostnað-
arauki fyrir bæinn, enda yrði
trúlega sama fólkið í nýju nefnd-
inni eins og það sem fyrir er að
glíma við vandann. Það mun
verða unnið héðan í frá eins og
hingað til við að reka dagvistar-
heimili Akureyrarbæjar á svo
fullkominn hátt, sem aðstæður
mögulega leyfa og óþarfi að
þeyta upp moldviðri þess vegna.
Bergljót Rafnar.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Hrafnagilshrepps og
Framsóknarfélags Öngulsstaðahrepps
verður haldinn fimmtudaginn 12. nóvember í
Freyvangi og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Önnur mál.
Guðmundur Bjarnason heilbr,- og tryggingaráðherra
kemur á fundinn.
Stjórnir félaganna.
Sjávarútvegsskóli:
Boltinn er hjá Birgi
- nefnd leggur til sameiningu þriggja skóla
lagi að lögfræðingar verði fengnir
A fundi ríkisstjórnarinnar um
helgina kynnti Halldór
Asgrímsson sjávarútvegsráð-
herra tillögur nefndar sem
skipuð var á síðasta kjörtíma-
bili um stofnun sérstaks sjávar-
útvegsskóla.
Nefnd þessi var skipuð af
menntamálaráðherra og sjávar-
útvegsráðherra og var henni falið
að kanna möguleika á samein-
ingu Vélskólans, Stýrimanna-
skólans og Fiskvinnsluskólans.
Nefndin komst að þeirri niöur-
stöðu að stofna beri sjávarútvegs-
skóla með sameiningu þessara
þriggja skóla og húsnæðis þeirra
og skilaði skýrslu þar unt í októ-
ber 1986. í tillögunum er gert ráð
fyrir að skólinn útskrifi stúdenta
og kennt verði á fimm brautum.
Pegar skýrslunni hat'ði veriö
skilað voru nefndarmenn beðnir
um að halda starfinu áfram og
vinna að gerð lagafrumvarps, en
af ýmsum ástæðum tafðist sú
vinna nokkuð. Meðal þess sem
spilaði inní var aö fyrir síðasta
Alþingi var lagt fram til kynning-
ar frumvarp um framhaldsskóla.
í því frumvarpi var áðurnefnd
hugmynd tekin með. Frumvarpið
komst ekki í gegnum þingið og
síðan hefur í raun ekkert gerst.
Að sögn Gylfa Gauts Péturs-
sonar deildarstjóra í sjávar-
útvegsráðuneytinu má segja að
málið sé nú í höndum ménnta-
málaráðherra. Prjár leiðir eru
taldar koma til greina. í fyrsta
Lionsklúbburinn Hængur á
Akureyri hefur ákveðið að
veita Björgunarsveitinni í
Grímsey peningastyrk en eins
og flestum er kunnugt missti
sveitin nær allar sínar eigur í
brunanum sem varð í eyjunni
fyrir skömmu. Björgunarsveit-
in í Grímsey er aðeins þriggja
ára gömul og því var allur bún-
aður hennar nýlegur.
Samkvæmt þvf sem Dagur
kemst næst var búnaður sveitar-
til aö semja lagafrumvarp, í ööru
lagi aö til þess verði skipuö nefnd
ráðuneytanna og í þriðja lagi er
sá möguleiki fyrir hendi að
núverandi menntamálaráöherra
sé málinu fráhverfur og ekkert
verði úr stofnun skólans. ET
innar ekki vátryggður en tjónið
er talið vera á þriðja hundruð
þúsund krónur. Sveitin missti
m.a. sex flotgalla með vestum og
tvö fluglínutæki.
Ekki þarf að fjölyrða um það
hversu mikilvægt það er að hafa
öfluga björgunarsveit á stað eins
og í Grímsey. Heimamenn eru
ákveðnir í því að byggja sveitina
upp að nýju og vildu Hængsmenn
leggja sitt af mörkum til að það
verði hægt sem fyrst. KK
Grímsey:
Lkl. Hængur styridr
björgunarsveitina
INNRITUN TIL
18. NÓV.
SÍMI:
26100
VEITIR FÆRNI í SÖLU OG SAMNINGA-
GERÐ ÞAR SEM ÁHERSLA ER LÖGÐ Á
MANNLEG SAMSKIPTI.
EFNI:
• íslenskur markaður • Uppbygging og mótun sölustefnu
• Skipulagning söluaðgerða • Val á markhópum • Símsala
• Starfsaðferðir sölufólks • Samskipti og framkoma
• Mótbárur og meðferð þeirra
• Söluhræðsla • Markaðsrannsóknir og áætlanagerð.
LEIÐBEINANDI:
Haukur Haraldsson, sölu- og markaðsráðgjafi.
TÍMI OC STAÐUR:
23.-24. nóv. á Akureyri, kl. 9.00-18.00.
MANNLEGIÞÁTTURINN - TÓLK í TYRIRRÚMI 25.11
INNRITUN TIL
18. NÓV.
SÍMI:
26100
Á TVEIMUR HRESSANDI OG ÁNÆGJU-
LEGUM DÖGUM MUNT ÞÚ LÆRA AÐ
ÞRÓA HÆFNI ÞÍNA TIL AÐ NÁ BETRI
ÁRANGRI íSAMSKIPTUM VIÐ FÓLK
OG NÁ MEIRA ÚT ÚR LÍFINU.
MANNLECA ÞÆTTINUM ER ÆTLAÐ:
• Að skapa og koma í framkvæmd sameiginlegu samskipta-
máli innan fyrirtækisins • Að auka þátttöku og áhuga starfs-
fólks á starfsemi fyrirtækisins
• Að auka skilning allra á mikilvægi þess að uppfylla þarfir viðskiptavinarins • Að
kynna raunhæfari aðferðir til samskipta innan fyrirtækis og utan • Að taka breytingum
með jákvæðum hætti • Að bæta starfsandann • Að skapa skilning á því að þjónustan
innan fyrirtækisins hefur mikil áhrif á þjónustuna út á við.
LEIÐBEINANDI:
Haukur Haraldsson, sölu- og markaðsráðgjafi.
TÍMI OC STAÐUR:
25.-26. nóv. á Akureyri, kl. 9.00-18.00.