Dagur - 11.11.1987, Page 11
íþróttir
11. nóvember 1987 - DAGUR - 11
i
l
Heil umferð í 1. deildinni í handbolta:
Hvað gerir KA gegn ÍR?
- liðin leika í Höllinni kl. 20
- Þórsarar mæta UBK í Kópavogi á sama tíma
í kvöld fer fram heil umferð í
1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik. í Höllinni á Akur-
eyri leika KA og ÍR kl. 20 og á
sama tíma leika Breiðablik og
Þór í Digranesi. í Laugardals-
höll fara fram tveir leikir,
Fram og KR mætast kl. 20.15
en strax á eftir hefst stórleikur
8. umferðar er Víkingur og FH
mætast. í Valsheimilinu leika
síðan Valur og Stjarnan kl. 18.
KA-menn lögðu Þórsara að
velli í 7. umferð og hafa því hlot-
ið 5 stig. Brynjar Kvaran sagði
eftir leikinn við Þór að ekki kæmi
neítt annað til greina en að sigra
ÍR í kvöld og síðan KR á laugar-
dag. ÍR-ingar eru þekktir fyrir
annað en að gefast upp og því má
búast við fjörugum leik Höllinni í
kvöld. ÍR-ingar gerðu jafntefli
við Stjörnuna í 6. umferð og
skoruðu þá jöfnunarmarkið eftir
að leiktíma var lokið. í síðustu
umferð sigruðu þeir Framara og
skoruðu þá sigurmarkið úr víta-
kasti eftir að leiktíma lauk. ÍR-
ingar hafa komið mjög á óvart
með góðri frammistöðu en liðið
er nú í 6. sæti með 7 stig.
Þórsarar hafa enn ekki hlotið
stig í deildinni og útlitið hjá lið-
inu er orðið allsvart. Með sigri í
kvöld gæti lukkuhjólið snúist lið-
inu í hag.
Haustmót HKRA:
KA-menn unnu sex leiki
en Þórsarar fjóra
Pétur Bjarnason og félagar hans í KA taka á móti ÍR í kvöld en Blikar með
Hans Guðmundsson í broddi fylkingar taka á móti Þórsurum. Mynd: tlv.
- húsvörðurinn
Haustmót Handknattleiksráðs
Akureyrar fór fram í Höllinni
um helgina. Leikið var í 6., 5.
og 4. flokki drengja og 4. og 3.
flokki stúlkna. KA-menn
stóðu sig mjög vel í 6. og 5.
flokki en Þórsarar voru sigur-
sælli í eldri flokkunum. Fram-
kvæmd mótsins var HKRA til
lítils sóma og þá voru dómara-
málin í miklum ólestri. Eftir
því sem blaðið kemst næst hef-
ur enn ekki verið skipuð ný
stjórn HKRA og því ekki von
á góðu.
Sem dæmi um það þurfti
húsvörðurinn í Höllinni að dæma
nokkra síðustu leikina í mótinu,
þar sem engir dómarar mættu til
leiks. Það er argasta ókurteisi við
þetta unga handknattleiksfólk,
sem er jafn áhugasamt og raun
ber vitni að standa ekki betur að
málum en gert er.
En annars urðu úrslit einstakra
leikja á mótinu þessi:
Drengjaflokkar:
6. fl. A Þór-KA 4:4
6. fl. B Þór-KA E7
Handbolti:
Víkingur
til Moskvu
Isiandsmeistarar Víkings dróg-
ust gegn sovéska stórliðinu
CSKA Moskva í 8 liða úrslit-
um Evrópukeppninnar í hand-
knattleik. En í gær var dregið
um það hvaða lið leiki saman í
3. umferð. Víkingur sló sem
kunnugt er dönsku meistarana
Kolding út í 2. umferð, um síð-
ustu helgi.
CSKA Moskva er eitt frægasta
handknattleikslið heims, í liðinu
eru margar stórstjörnur og má
þar nefna stórskyttuna Mikael
Vasiliev. Essen frá Þýskalandi,
lið Alfreðs Gíslasonar dróst gegn
Steaua Bucharest frá Rúmeníu í
sömu keppni.
Gdansk frá Póllandi mætir
spænska liðinu Elgor Vidal Suva
en stórleikur umferðarinnar er
tvímælalaust viðureign júgóslav-
nesku meistaranna Metaloplastica
Sabac og tékknesku meistaranna
Dukla frá Prag.
Leikirnir fara fram síðari hluta
febrúar og Víkingar leika fyrri
leik sinn í Laugardalshöll.
hljóp í skarðið og dæmdi nokkra leiki
6. fl. C Þór-KA 1:6 4. fl. C Þór-KA 17:10
5. fl. A Þór-KA 11:12
5. fl. B Þór-KA 9:13 Kvennaflokkar:
5. fl. C Þór-KA 1:10 4. fl. A Þór-KA 5:5
4. fl. A Þór-KA 20:15 3. fl. A Þór-KA 6:4
4. fl. B Þór-KA 14:13 3. fl. B Þór-KA 0:5
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
Þoivaldur vann og
skorar á Gunnar
Harpa Örvarsdóttir Þórsari brýst inn af línunni en Hildur Símonardóttir
reynir að stöðva hana. Myndin er úr leik KA og Þórs í 3. flokki A á laugar-
dag. Mynd: EHB.
Þorvaldur Þorvaldsson rétt marði Ingibjörgu Gísladóttur í get-
raunaleiknum um helgina. Hann hafði 8 leiki rétta en Ingibjörg
7 leiki. Þorvaldur heldur því áfram en hann hcfur nú þegar lagt
flmm keppendur að velli, sem er næstbesti árangurinn að þessu
sinni. Sveinbjörn Sigurðsson á metið en hann sigraði 6 sinnum
áður en hann datt út. Þorvaldur fær því tækifæri á því að jafna
met Sveinbjörns og hann hefur skorað á Gunnar Kárason
starfsmann hjá Heildverslun Valgarðs Stefánssonar. Gunnar á
sér ekki neitt uppáhalds lið á Englandi en hefur þó sterkar taug-
ar til Man. United eftir að liðið kom til Akureyrar fyrir nokkr-
um árum og lék gegn KA. Spá þeirra félaga lítur þannig út:
Þorvaldur:
Gunnar:
Coventry-Wimbledon 1
Everton-West Ham 1
Newcastle-Derby 1
Norwich-Arsenal 2
Nott.Forest-Portsmouth 1
Sheff.Wed.-Luton 1
Southampton-Oxford 1
Tottenham-Q.P.R. x
Watford-Charlton 1
Middlesbro-Hull I
Reading-Man.City x
W.B.A.-Ipswich 2
Coventry-Wimbledon 1
Everton-West Ham x
Newcastle-Derby x
Norwich-Arsenal 2
Nott.Forest-Portsmouth 1
Sheff.Wed.-Luton x
Southampton-Oxford 2
Tottenham-Q.P.R. x
Watford-Charlton 1
Middlesbro-Hull 1
Reading-Man.City 2
W.B.A.-Ipswich x
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2
íslandsmótið í handknattleik 1. deild
KA.ÍR mII 1 í íþróttahöllinni í kvöld kl. 20. Komið og sjáið spennandi le ik