Dagur - 26.11.1987, Page 10

Dagur - 26.11.1987, Page 10
10 - DAGUR -26. nóvember 1987 Heimili og skóli: „Vona að fólk verði forvitið og kaupi blaðið“ - segir Guðrún Sigurðardóttir kennari Guðrún Sigurðardóttir kennari við Hafralækjarskóla starfar í ritnefnd blaðsins, Heimili og skóli. Guðrún stundaði tveggja ára framhaldsnám við tal- kennslu í Noregi. Hún starfar að mestu sem almennur kenn- ari en sér um stuðnings- og sér- kennslu í Hafralækjarskóla, auk þess sem hún kennir nemanda frá Húsavík tvisvar í viku. „Ég kemst ekki yfir meira, þar sem ég á fáar frístundir og er búin að fylla þær af félágsmála- verkum fyrir kennarasamtökin, bæði samtökin hér á Norðurlandi eystra sem forsvarsmaður þessa blaðs og einnig er ég í fastanefnd á vegum KÍ.“ - Nú er Heimili og skóli nýkomið út, viltu segja okkur svolítið frá þessu blaði? „Þetta er eiginlega gamall grautur í nýjum potti. Þetta er 43. árgangur blaðsins, það hefur komið út nánast óslitið síðan 1942. Þá var það Kennarafélag Eyjafjarðar sem réðist í það stór- virki að gefa út blað. Eins og nafnið, Heimili og skóli bendir til er blaðið ætlað sem tengiliður milli heimila og skóla. Það var Hannes J. Magnússon sem var fyrsti ritstjóri blaðsins, og síðan má segja að það hafi verið gefið út af dugnaði og eldmóði ein- staklinga. Yfirleitt var einn mað- ur sem sá um að vera ritstjóri, afla efnis og koma blaðinu út. Það hafði geysilega mikla útbreiðslu hér á Norðurlandi eystra, en var lítið selt til annarra landshluta þótt þar væru einstaka áskrifendur. Þegar ég var krakki var lítið um dagblöð, viku- og mánaðar- rit. Þá komu á heimilið: Æskan, Vorið og Heimili og skóli, það var beðið eftir þeim öllum með jafnmiklum spenningi. Blaðið var keypt á flestum þeim heimil- um sem ég þekkti til. Nú á áttunda áratugnum var stofnað Bandalag kennara á Norðurlandi eystra, það fékk þetta blað í hendur og hefur það verið gefið út nokkuð reglulega síðan. í tvö ár var blaðið gefið út í tengslum við KÍ, en seinna var farið út í samstarf við Norður- land vestra, þetta er svolítið merkilegt að kennarasambönd úr tveim kjördæmum taki sig saman um útgáfu blaðs. Síðustu árin var farið út í að selja ekki blaðið heldur dreifa því ókeypis til heimila allra skólabarna á Norðurlandi, því það var orðið svo mikið verk að safna áskrif- endum og rukka þá. í fyrrahaust var ákveðið að þetta gengi ekki lengur, þetta væri orðið alltof mikið fyrirtæki til að kennarar gætu unnið að því ólaunað í sínum frístundum að koma út svona blaði. Ekkert tímarit í landinu helgar sig því að fjalla um uppeldis- og skólamál á grasrótargrundvelli, Ný mennta- mál er vísindarit. Það birtir vís- indagreinar um uppeldismál sem eru í sjálfu sér mjög góðar en það er ekki fyrir alla að lesa þær, því fannst okkur þörf fyrir Heimili og skóla. Ég var fengin, ásamt Svan- hildi Hermannsdóttur skólastjóra í Bárðardal, til að gera tillögur að því hvernig hægt væri að gera þetta að landsblaði. Við erum að berjast við að sýna fram á að þörf sé fyrir þenn- an miðil þrátt fyrir öll hin blöðin. Við fengum mjög jgóðar undir- tektir á aðalþingi KI í vor, þá var gerð sérstök samþykkt um að þörf væri á þessu blaði og í dag lítum við svo á að við séum með útgáfuna sem sérverkefni á veg- um Kennarasamtaka íslands. Þetta sé sérverkefni sem norð- lendingafjórðungi hafi verið út- hlutað. Nú erum við að berjast við að auglýsa blaðið og ég vona að fólk verði forvitið og vilji kaupa það. Nýja eintakið er í ofurlítið breyttu formi frá því sem áður hefur verið, áður voru greinar í blaðinu sem voru skrifaðar um eitthvert sérstakt efni og þá var kannski vandað meira til þeirra. Núna viljum við að fólk sjái að þetta er ekki síður ætlað sem fréttabréf þar sem menn geta skotið inn hugmyndum og sagt fréttir. Við viljum gjarnan að hver fjórðungur eigi fastar síður í blaðinu þar sem komi fréttir af skóla- og félagslífi, starfi for- eldrafélaga og fleiru. Þetta fyrsta blað er bara sýnishorn af því sem við getum hugsað okkur að gera, það er margt, margt fleira sem hefði getað verið þarna og kemur kannski næst.“ - Hvað á blaðið að koma oft út á ári? „Lágmarkið er fjórum sinnum, við höfum hugsað okkur að nýta skólaárið og spurningin er: Kom- um við út fjórum eða kannski sex blöðum? Allavega ætlum við að koma út fjórum blöðum til að byrja með. Það er erfitt að halda úti svona blaði ef við ætlum að treysta á lausasölu og við viljum gjarnan fá áskrifendur. Við höfum dreift blaðinu í bókabúðir og ætl- um að dreifa því í bókabúðir víðs vegar um landið. Við sendum öll- um trúnaðarmönnum skóla bréf og eintak af blaðinu, þeim er í raun falið að kynna blaðið innan skólans og meðal foreldra og safna áskrifendum, þannig að þeir geti fengið þetta fyrsta ein- tak sent og svo framvegis næstu eintök. Við erum strax farnar að undirbúa næsta eintak.“ - Hvert er helsta efnið í blað- inu sem var að koma út? „Þarna eru nokkrar greinar og fréttaskot um svipað efni, t.d. er þó nokkuð mikið af fréttum frá Norðurlandi vestra þar sem spurt er hvernig fræðsluskrifstof- an þar hafi þjónað. Fræðslustjóri Vestfjarða skrifar grein þar sem hann tekur fyrir skólamál í sínum fjórðungi, það er mjög fróðleg og vönduð grein og persónulega finnst mér mjög gott og forvitni- legt að sjá hvernig skólastarf gengur annars staðar en þar sem ég þekki beinlínis til. Við vorum að reyna að koma af stað umræðu um hvort grunnskólinn á að vera undir sama þaki, hvort það er neikvætt eða jákvætt að börn þurfi að skipta um skóla á grunnskólaferlinum. Við birtum grein þar sem þetta er álitið já- kvætt og við vonumst til að fá viðbrögð frá þeim sem ef til vill hafa upplifað eitthvað annað. Ein greinin er eftir ungan mann sem er nýskriðinn út úr mennta- kerfinu, þar gagnrýnir hann mjög heiftarlega sína grunnskóla- kennslu. Þessi grein hefur vakið þau viðbrögð að það er búið að taka viðtal við hann í tveimur útvarpsþáttum. Þrátt fyrir allt finnst mér hann hafa staðið sig mjög vel, hann færir rök fyrir sínu máli, þetta er óneitanlega hans reynsla og sjálfsagt og eðli- legt að hún komi fram. Það væri mjög athyglisvert að fá að heyra frá fleirum. Svo er grein eftir húsmóður á Akureyri þar sem hún veltir fyrir sér hvernig það er að ala upp börn í nútíma tæknivæddu þjóð- félagi. Mér finnst þessi grein frábær, ég heyrði Karolínu flytja þetta erindi í útvarpi í haust og hringdi í hana strax daginn eftir til að vita hvort ég gæti fengið greinina birta því mér fannst hún eiga erindi til svo margra. Á kápusíðu blaðsins eru upp- lýsingar um hvert menn geta snúið sér ef þeir vilja koma efni í blaðið, einnig er hægt að hafa samband við mig í síma 43585 ef menn vilja fá eitthvað að vita eða segja frá einhverju. Heimilis- fang blaðsins er á fræðsluskrif- stofunni og þar veita menn upp- lýsingar.“ - Er ekki mikil vinna við að standa fyrir útgáfu blaðsins? „Jú, þetta er dálítið mikið, miklu meira en ég gerði mér grein fyrir. Ég tók þetta að mér voða hress og áleit það ekkert mál að gefa þetta út á landsvísu því ég réði bara ritstjóra. En þetta er töluvert mikið meira, við réðum að vísu tvo ritstjóra en meðan ekkert dreifikerfi er til, engin kynning og enginn veit neitt um þetta þá þarf ég að sjálfsögðu að vinna með þeim.“ - Finnst þér verkefnið skemmtilegt? „Það er það, bara að ég hefði meiri tíma til að sinna því, þetta er fullt starf og svolítið erfitt að sinna því sem frístundagamni." IM FRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAR. Valgerður Sverris- dóttir alþingismað- ur verðurtil viðtals í Hafnarstræti 90, Akureyri, laugar- daginn 28. nóvem- ber frá kl. 15.00- 17.00. Kökubasar og vöfflukaffi á sama stað (Hafnar- stræti 90 frá kl. 14.00. Komið og kaupið brauð til jólanna, drekkið vöfflukaffi og hittið Valgerði að máli. Siglufjarðarbridds: Asgrímur og Jón tvímenningsmeistarar Bræðurnir Ásgrímur og Jón Sigurbjörnssynir báru sigur úr býtum á Siglufjarðarmótinu í tvímenningi, sem lauk á mánu- dagskvöld. Þau úrslit þóttu nokkuð óvænt, því fyrir síð- ustu umferðina var talið víst að annað hvort Anton og Bogi eða Isak og Viðar myndu sigra, þar sem staða þeirra var langvænlegust. Þeim gekk hins vegar mjög illa í síðustu umferðinni og náðu ekki með- alskori, með þeim afleiðingum að Jón og Ásgrímur skutust upp fyrir þá og hreppu gull- verðlaunin. Alls tóku 20 pör þátt í mótinu en lokastaða efstu para varð þessi: 1. Ásgrímur Sigurbjörnsson - Jón Sigurbjörnsson 492 stig 2. fsak Ólafsson - Viðar Jónsson 487 stig 3. Anton Sigurbjörnsson - Bogi Sigurbjörnsson 478 stig 4. Björn Þórðarson - Jóhann Möller 467 stig 5. Björk Jónsdóttir - Steinar Jónsson 451 stig 6. Birgir Bjömsson - Þorsteinn Jóhannesson 443 stig 7. Guðbrandur Sigurbjörnsson - Friðfinnur Hauksson 438 stig 8. Guðmundur Árnason - Níels Friðbjarnarson 435 stig 9. Sigfús Steingrímsson - Sigurður Hafliðason 434 stig Næsta keppni félagsins er blönduð hraðsveitakeppni með þátttöku 9 sveita. Spilað er á mánudagskvöldum á Hótel Höfn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.