Dagur - 14.12.1987, Side 1

Dagur - 14.12.1987, Side 1
 Húsavík: Harður árekstur Mjög harður árekstur varð á Húsavík sl. l'östudagskvöld er tvær bifreiðar skullu saman á gatnamótum Ketilsbrautar og Vallholtsvegar. Annar bíllinn er talinn ónýtur en aðeins urðu smávægileg meiðsl á fólki og þykir það mesta mildi. Á Akureyri var tilkynnt um harðan árekstur og slys á föstu- dagskvöld en þegar til kom reyndist aðeins um minniháttar aftanákeyrslu að ræða. Ökumað- ur bifreiðarinnar sem árekstrin- um olli fékk höfuðhögg og vank- aðist lítillega en jafnaði sig mjög fljótt. Á Siglufirði var ekið á kyrr- stæða bifreið aðfaranótt laugar- dags og skemmdust bílarnir nokkuð en ekki urðu slys á fólki. SS Skógerð Sambandsins: Eiflðleikar framundan - „framtíð fyrirtækisins ræðst á næstu mánuðunT — segir Hjalti Páisson Erflðleikar steðja nú að skó- verksmiðju Sambandsins a Akureyri. Skógerðin heyrir undir verslunardeild SÍS og Hjalti Pálsson, yfirmaður deildarinnar, sagðist ekki neita því að á brattann væri að sækja með afkomuna. Veturinn í ár kom mun seinna en menn áttu von á og rándýrt væri að liggja með stóran, óseldan skólager. Að sögn Hjalta mun framtíð skóverksmiðjunnar ráðast á næstu mánuðum. Skipulag og afkoma fyrirtækisins munu verða dagar til jóla tekin til skoðunar og málefni verksmiðjunnar eru nú til umræðu meðal helstu ráðamanna Sambandsins. Hjalti hefur rætt málin við Guðjón B. Ólafsson, forstjóra SÍS, en þar sem málin eru ennþá í athugun hefur ekkert verið ákveðið ennþá. Þó er ljóst að ekki verður hjá því komist að gera verulegar skipulagsbreyting- ar ef koma á verksmiðjunni á réttan kjöl. Þeirri spurningu hefur verið velt upp hvort nú sé rétti tíminn til að stokka upp í rekstrinum í kjölfar breytinganna á Iðnaðar- deildinni, en skógerðin færðist yfir til verslunardeildar SÍS eftir að átak var gert til að bjarga afkomu hennar frá hruni fyrir nokkrum árum. Hjalti Pálsson sagðist ekki vera frábitinn þeirri hugmynd að sameina skógerðina og Iðnaðardeildina undir sama hatt því eðlilegast væri að yfir- stjórn verksmiðjunnar væri á Akureyri. Úlfar Gunnarsson, núverandi framkvæmdastjóri skógerðarinn- ar, sagði starfi sínu lausu síðasta sumar en ekki hefur verið ráðinn maður í hans stað enn. EHB Fimm fjörugir jólasveinar sungu og sprelluðu á svölum Vöruhúss KEA í gær. Að vísu var einn þeirra, Hurðaskellir, dálítið seinn fyrir, en tilburðir hans vöktu mikla lukku hjá börnunum. Mynd: tlv Ekki grundvöllur fyrir staðgreiðsluafslætti - nema á dýrari hlutum - segir Birkir Skarphéðinsson „Við gefum ákveðinn stað- greiðsluafslátt af stærri og dýr- ari hlutum en það er ekki grundvöllur fyrir afslætti í smásöluversluninni með þeirri álagningu sem við erum með hérna. I Reykjavík er miklu hærri álagning,“ sagði Birkir Skarphéðinsson, formaður Kaupmannasamtaka Akureyr- ar. Undanfarið hafa þær fréttir borist frá Reykjavík að verslanir Annir í innanlandsflugi um jólin: Tugir aukaferða hjá Flugleiðum -18. og 23. desember mestu annadagarnir Miklar annir eru framundan í innanlandsflugi enda jóla- hátíðin á næsta leiti. Flugferð- um Flugleiða milli Reykjavík- ur og Akureyrar á tímabilinu frá 10. desember til 4. janúar hefur verið fjölgað um 46 svo að anna megi fólks- og vöru- flutningum. Mestu annadag- arnir verða 18. og 23. desem- ber en þá verða farnar níu ferðir hvorn dag en aldrei hafa verið farnar svo margar ferðir milli þessara staða á einum degi. Að sögn Gunnars Odds Sig- urðssonar, umdæmisstjóra Flug- leiða á Akureyri er hin eiginlega jólaös byrjuð í fluginu því fyrsta aukaferð Flugleiða milli Akur- eyrar og Reykjavikur var farin fyrir stuttu. „Eitt af okkar vandamálum er að fá íslendinga til að bóka sig tímanlega í flug og ég vil benda fólki á að panta í tíma. Þó fólk hafi ekki nákvæmlega ákveðið með hvaða ferð það vill fara þá er gott að það sé búið að koma sér inn í kerfið og auðveldara að flytja bókanirnar milli véla,“ sagði Gunnar Oddur. Með þessum 46 aukaferðum eykst sætaframboð um 2000 á hvorri leið. Bókanir eru í fullum gangi um þetta leyti og því best að drífa sig í að panta jólaflug- farið. JÓH bjóði í auknum mæli staðgreiðslu- afslátt af vörum ef greitt er í pen- ingum en ekki með greiðslukorti. Kaupmenn syðra telja margir hagstæðara að selja þannig gegn staðgreiðslu í stað þess að þurfa að bíða, jafnvel vikum saman, eftir greiðslu fyrir vöruúttekt gegn greiðslukortum. „Álagningin má alls ekki vera lægri með tilliti til þess að versl- unin geti borið sig,“ sagði Birkir. „Hún er jafnvel í lægri kantinum á mörgum vörum. Við erum á allt öðru markaðssvæði en Reykvík- ingar. Greiðslukortanotkun fær- ist sífellt í aukana og eins og mál- um er háttað í dag þyrfti að breyta útborgunardegi kortanna eða færa skiladag söluskatts til, því þetta tvennt verður helst að standast á. Sá sem verslar eftir 17. des- ember þarf ekki að greiða fyrr en í febrúarbyrjun fyrir vöruna. Þetta veldur erfiðleikum fyrir verslunina gagnvart heildsölunni því menn spila mikið upp á gjald- daga kortanna. Kostnaður versl- unarinnar eykst og þetta ruglar hvert annað. Við erum að greiða söluskatt af kortanotkun desem- bermánaðar 25. janúar en fáum ekki peninga sjálfir fyrr en 2.-3. febrúar." EHB í

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.