Dagur - 21.12.1987, Page 9
21. desember 1987 - DAGUR - 9
Enska knattspyrnan:
- Rangstöðumark Arsenal gegn Everton - Man. United í sókn
Þar sem þessi síðasti Iaugardagur
fyrir jól er einn aðal verslunardag-
urinn í Englandi voru ýmsir leikir
1. og 2. deildar leiknir á föstudag
og sunnudag. Að fara að sjá
knattspyrnuleik er liður í jólahaldi
mjög margra Englendinga og
aðsókn að knattspyrnuleikjum
yfir hátíðarnar yfirleitt mikil. Stutt
er milli leikja og miklar breytingar
geta orðið á röð liðanna á stiga-
töflunni, því hefur þessi leikjatörn
um hátíðarnar oft afgerandi áhrif
á endanleg úrslit í deildunum.
Næsta umferð fer fram annan dag
jóla, aftur verður leikið mánud.
28. des. Ávallt er leikið á nýárs-
dag og þar sem 2. jan. ber upp á
laugardag verður einnig leikið þá.
Síðan er 3. umferð FA-bikarsins á
dagskrá 9. janúar.
A föstudag fóru fram þrír leikir í
1. deild, á Loftus Road heimavelli
Q.P.R. mættu heimamenn Coven-
try. Ekkert hefur gengið hjá þessum
liðum að undanförnu og í leiknum
kom fram óöryggi leikmanna eftir
hið slæma gengi. Q.P.R. náði forystu
eftir hálftíma leik er Mark Falco
skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið,
síðan hann var keyptur frá Rangers í
Skotlandi, eftir að Alan McDonald
hafði skallað boltann til hans. Petta
mark virtist ætla að duga til sigurs,
en á síðustu 8 mín. leiksins tókst
Coventry að skora tvívegis og sigra í
leiknum. Keith Houchen sem komið
hafði inn á sem varamaður jafnaði og
Cyrille Regis gerði síðan sigurmark-
ið. Bæði mörkin skoruð með skalla
eftir sendingar Micky Gynn.
Southampton nældi sér í dýrmætt
stig á útivelli gegn Luton eftir 2:2
jafntefli. Mick Harford jafnaði fyrir
Luton 4 mín. fyrir leikslok með
skalla sem John Burridge í marki
Southampton hefði átt að ráða við,
en hann átti annars mjög góðan leik
í marki Southampton og bjargaði oft
vel frá leikmönnum Luton sem léku
mjög vel í leiknum. Colin Clarke
náði forystu fyrir Southampton með
marki úr vítaspyrnu snemma í leikn-
um, en Darron McDonough jafnaði
á 25. mín. Clarke náði aftur forystu
fyrir Southampton 18 mín. fyrir
leikslok er hann slapp í gegnum vörn
Luton, síðan kom jöfnunarmark
Harford eins og áður sagði, en hann
kom inn á sem varamaður í fyrsta
sinn í nokkrar vikur eftir meiðsli.
Wimbledon sigraði síðan Norwich
á heimavelli sínum með marki John
Fashanu á 14. mín., en það sem
verra var fyrir Norwich var að John
O’Neill miðvörðurinn sem var keypt-
ur frá Q.P.R. í vikunni fyrir £
100.000 var borinn út af í fyrri hálf-
leik, meiddur eftir samstuð við Fash-
anu. Norwich keypti einnig Robert
Fleck frá Rangers í Skotlandi fyrir £
580.000 í síðustu viku.
í 2. deild mistókst Aston Villa enn
á heimavelli og gerði markalaust
jafntefli við W.B.A., en þeir Romeo
Zondervan og Mich D’Avray
tryggðu Ipswich sigur á Shrewsbury.
A laugardeginum vakti viðureign
Arsenal og Everton mesta athygli.
Everton náði forystunni 5 mín. fyrir
lok fyrri hálfleiks er Dave Watson
skoraði eftir góðan undirbúning Pet-
er Reid. Leikurinn mjög jafn í fyrri
hálfleik og lítið um marktækifæri.
Heldur lifnaði yfir leiknum í síðari
hálfleik og Paul Davis átti skalla rétt
framhjá og Gary Stevens varði á línu
frá Davis eftir að Neville Southall
hafði varið glæsilega frá Paul
Merson. Þrátt fyrir það virtist sigur
Everton vera í sjónmáli þar til 9 mín.
fyrir leikslok að David Rocastle jafn-
aði fyrir Arsenal, greinilega kólrang-
stæður, en þrátt fyrir áköf mótmæli
Evertonmanna var markið látið
standa.
Man. Utd. virðist vera að komast
á skrið og vann góðan sigur á útivelli
gegn Portsmouth. Gordon Strachan
átti mjög góðan leik leik hjá Utd. og
var óheppinn að skora ekki þegar
hann átti skot í stöng. Pá hafði liðið
hins vegar náð góðri forystu, Bryan
Robson skoraði á 37. mín. og Brian
McClair bætti við marki á 4. mín.
síðari hálfleiks er hann komst inn í
sendingu ætlaða markverði. Eina
mark Portsmouth skoraði Kevin
Dillon 15 mín. fyrir leikslok úr víta-
spyrnu sem dæmd var á Steve Bruce
í sínum fyrsta leik fyrir félagið eftir
að hann var keyptur frá Norwich fyr-
ir £ 825.000. Hann hélt Mike Quinn
innan vítateigs, en átti góðan leik
fyrir sitt nýja félag og styrkir vörn
þess verulega.
Liverpool jók forskot sitt í 7 stig
með sigri heima gegn Sheffield Wed.
og hefur nú ekki tapað deildarleik í
19 skipti í röð og jafnaði þar með
met sitt frá 1950. En þeir þurftu'þó
að hafa fyrir hlutunum og það var
ekki fyrr en á 76. mín. að þeim tókst
að brjóta niður varnarmúr Sheffield
liðsins. Gary Gillespie skoraði þá
sigurmark liðsins.
Nottingham For. heldur sínu
striki, á laugardag lék liðið gegn
Oxford á útivelli og 2:0 sigur liðsins
var alls ekki of stór. Eftir hálftíma
leik var brotið á Nigel Clough, hann
Venables að rétta
stórveldið af
- Fyrsti sigur Tottenham í langan tíma
Tottenham vann sinn fyrsta sigur
undir stjórn Terry Venables er lið-
ið lagði Derby að velli á sunnu-
dag. Heimaliðið hafði þó undir-
tökin fyrsta klukkutíma leiksins
og átti Tottenham mjög í vök að
verjast.
Derby hafði mark yfir í leikhléi,
John Gregory skoraði með skoti af
stuttu færi 7 mín. fyrir lok fyrri hálf-
leiks. Síðari hálfleikur hófst eins og
þeim fyrri lauk, með þungri sókn
Derby, en Tony Parks í marki Tott-
enham kom í veg fyrir að heimaliðið
bætti við mörkum með snjallri mark-
vörslu. Nico Claesen náði að jafna á
66. mín. eftir að Peter Shilton hafði
hálfvarið skot að marki Derby. Eftir
markið lagði Derby enn þyngri
áherslu á sóknarleikinn og varð hált
á því er Ossie Ardiles lagði boltann
fyrir varamanninn Tony Moran er
lék laglega í gegnum vörn Derby
áður en hann sendi boltann fyrir fæt-
urnar á Clive Allen sem átti ekki í
vandræðum með að skora sigurmark
liðsins. Gary Mabbutt miðvörður
Tottenham meiddist á höfði eftir að
hafa skallað Mark Wright og þurfti
að sauma 16 spor til að loka sárinu.
Charlton náði jafntefli á heima-
velli sínum gegn Chelsea, hvort lið
um sig gerði tvö mörk.
Þá má geta þess að í 2. deild tapaði
Bradford á útivelli gegn Plymouth
1:2 og er því enn í 2. sæti deildarinn-
ar.
George Graham framkvæmda-
stjóri Arsenal sagði í viðtali á sunnu-
dag að hann hefði alls ekki gefið upp
vonina um að sigra í deildinni. Þrátt
fyrir gott gengi Liverpool að undan-
förnu væri enn of snemmt að spá
þeim meistaratitlinum. Arsenal
þyrfti að sigra í nokkrum leikjum í
röð og þrátt fyrir að Liverpool tapaði
sjaldan þá gætu jafnteflisleikir vegið
þungt í baráttunni. Auk þess taldi
hann Man. Utd., Everton og Nott-
ingham For. einnig hafa möguleika á
titlinum.
Þá hefur Robert Maxwell hætt við
að kaupa hlutabréf Elton John í
Watford vegna andstöðu forráða-
manna knattspyrnusambandsins.
Hann tilkynnti popparanum þetta á
sunnudaginn og verður Elton John
því að leita að öðrum kaupanda að
liði sínu. Þ.L.A.
Félagarnir Nico Claesen og Clive Alien tryggðu Tottenham sigur gegn Derby.
tók sjálfur vítaspyrnuna, en þrátt
fyrir að spyrnan væri góð tókst Peter
Hucker markverði Oxford að verja.
15 mín. liðu af síðari hálfleik þar til
Forest náði forystu með marki Brian
Rice eftir undirbúning þeirra Clough
og Neii Webb. Calvin Plummer skor-
aði síðara markið á 72. mín. eftir
undirbúning Clough og Webb og
knattspyrnan sem liðið lék var mjög
góð.
West Ham virðist vera að braggast
eftir lélega byrjun og sigraði New-
castle á heimavelli 2:1 í jöfnum og
skemmtilegum leik. Stewart Robson
náði forystu fyrir West Ham á 3.
mín. síðari hálfleiks með góðu skoti,
en Mirandhinha jafnaði fyrir New-
castle á 79. mín. er boltinn barst til
hans á vítateig þaðan sem hann sendi
knöttinn viðstöðulaust í netið með
glæsilegu skoti. Aðeins mín. síðar
skoraði Paul Ince sem fluttur var á
sjúkrahús um síðustu helgi með
magaverki, sigurmark West Ham
með þrumuskoti.
I 2. deild varð efsta liðið Middles-
brough að sætta sig við markalaust
jafntefli gegn Bournemouth. Hull
City sigraði C. Palace 2:1 með mörk-
um Gary Parker og Alex Dyer og
gerir sér vonir um að komast nú í
fyrsta sinn upp í 1. deild.
Man. City tapaði óvænt heima
gegn Oldham. Markvörður liðsins
Perry Suckling gerði sjálfsmark er
Hörkutólið Mick Harford með Luton á
ný eftir meiðsli, jalhaði gegn Southamp-
ton á síðustu stundu.
Tommy Wright skallaði í þverslá og
boltinn fór í bakið á Suckling og það-
an í netið. Paul Stcwart jafnaði, en
Tommy Wright skoraði sigurmark
Oldham hjálparlaust.
Steve Archibald sem lengi lék með
Tottenham lék sinn fyrsta leik með
Blackburn, en hann er þar í láni frá
Barcelona. Hann skoraði ekki í
leiknum, en Blackburn sigraði þó
Birmingham 2:0.
Þ.L.A.
Liverpool óstöðvandi
Knatt-
spymu-
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. ensku
knattspyrnunnar um og fyrir
helgina urðu þessi:
1. deiid:
Luton-Southampton 2:2
Q.P.R.-Coventry 1:2
Wimbledon-Norwich 1:0
Arsenal-Everton 1:1
LiverpooI-Sheff.Wed. 1:0
Oxford-Nott.Forest 0:2
Portsmouth-Man.United 1:2
West Ham-Newcastle 2:1
Charlton-Chelsea 2:2
Derby-Tottenham 1:2
2. deild:
Aston Villa-W.B.A. 0:0
Ipswich-Shrewsbury 2:0
Bournem.-Middlesbro 0:0
Barnsley-Millwall 4:1
Blackburn-Birminghain 2:0
Hull-C.Palace 2:1
Leeds-Huddersfield 3:0
Stoke-Reading 4:2
Man.City-Oldham 1:2
Plymouth-Bradford 2:1
Sheff.Utd.-Swindon 1:0
Getraunaröðin er þessi:
xl2-211-lxl-121
Staðan
1. deild
Liverpool 19 14-5- 0 44:11 47
Arsenal 20 12-4- 4 34:15 40
Nottm.Forest 18 11-4- 3 38:15 37
Man.United 19 9-8- 2 33:20 35
Everton 20 9-7- 4 29:13 34
Q.P.R. 20 9-5- 6 23:24 32
Wimbledon 20 7-7- 6 26:23 28
Chelsea 20 8-4- 8 30:32 28
West Ham 20 6-8- 6 23:25 26
Luton 19 7-4- 8 26:23 25
Southampton 20 6-7- 7 29:30 25
Tottenham 20 7-5- 8 19:23 25
Derby 19 6-6- 7 17:21 24
Coventry 20 6-6- 8 21:28 24
Newcastle 19 5-7- 7 23:29 22
Oxford 20 6-4-10 22:33 22
Sheff.Wed. 20 6-3-11 20:34 21
Portsmouth 20 4-7- 9 17:36 19
Watford 19 4-5-10 12:24 17
Charlton 20 3-6-11 19:32 15
Norwich 20 4-3-13 14:28 15
2. deild
Middleshro 24 14-6-4 35:14 48
Bradford 24 14-4- 6 39:27 46
Aston Villa 24 12-8- 4 35:21 44
Ipswich 23 12-6- 5 34:17 42
C.Palace 23 13-3- 7 48:32 42
Hull 24 11-9- 4 35:25 42
Blackburn 23 11-7- 5 30:22 40
Man.City 2411-7- 7 50:32 39
Millwall 24 12-3- 9 38:32 39
Barnsley 23 10-5- 8 36:29 35
Leeds 24 9-8- 7 30:32 35
Birmingham 24 9-6- 9 26:36 33
Swindon 22 9-4- 9 40:33 31
Plymouth 24 8-6-10 37:39 30
Stoke 24 8-6-10 25:33 30
Sheff.Utd. 24 7-5-12 27:37 26
Oldham 23 6-6-11 22:33 24
Leicester 22 6-5-11 29:31 23
W.B.A 24 6-5-13 28:39 23
Bournem. 24 5-7-12 28:40 22
Huddersf. 24 4-7-13 27:57 19
Shrewsbury 24 3-8-13 19:37 17
Reading 23 3-6-14 22:44 15