Dagur - 21.12.1987, Síða 11
21. desember 1987 - DAGUR - 11
Of ung til
að deyja
Á þriðja tug bóka eftir Denise
Robins hafa verið gefnar út á
íslensku. Hún skrifar léttar ástar-
sögur með skemmtilegum lýsing-
um á fólki og umhverfi. Þessi bók
gerist í Kína í því samfélagi er
þar var við lýði fyrir þjóðfélags-
breytingar í kringum 1950.
Ung ensk stúlka lendir í fjötr-
um kínverskra misindismanna er
enn stunda gamla kínverska siði
að færa guðunum fórnir þegar
eitthvað bjátar á.
Þessi hvíta stúlka er handtekin
og ákveðið að fórna henni á altari
guðanna. Inn í þessa sögu fléttast
spenna og rómantík sem ein-
kennir allar sögur þessa vinsæla
höfundar.
Það umhverfi sem þessi saga
gerist í dregur lesandann inn í
veröld sem við þekkjum lítið,
mannlíf og siði austurlandabúans
og það gerir þessa bók ennþá
skemmtilegri aflestrar.
Útgefandi er Skjaldborg.
Forritun
með L0G0
Nýlega kom út á vegum bókafor-
lagsins Svart á hvítu hf. 2. útgáfa
bókarinnar „Forritun með
LOGO“ eftir Jón Torfa Jónasson
dósent. Bókin er endurskoðuð
frá fyrri útgáfu, meðal annars
vegna þess að fyrir tilstuðlan
Reiknistofnunar Háskóla íslands
og Námsgagnastofnunar hefur
verið gefin út vönduð íslensk
þýðing á flestuni skipunum
málsins. Logo er reyndar eina
forrtitunarmálið sem þýtt hefur
verið á íslensku.
Logo er nú í vaxandi mæli notað
í skólastarfi víða um heim og nýj-
ar útgáfur málsins spegla vel þá
þróun sem á sér stað í notkun
tölvu í ólíkum námsgreinum,
bæði á grunnskóla- og framhalds-
skólastigi. Rúmlega helmingur
bókarinnar er nýr og flestir kaflar
hafa verið mikið endurbættir
einkum með því að bæta við
verkefnum og æfingum. Bókin er
mjög aðgengileg og tekið er fullt
tillit til íslensku þýðingarinnar
þannig að nánast öll vinna
nemenda við tölvuna fer fram á
íslensku.
„Forritun með LOGO“ er
einkum ætluð nemendum á fram-
haldsskólastigi.
Vér íslands böm
- eftir Jón Helgason
Komin er út hjá Iðunni ný og
glæsileg endurútgáfa á verki Jóns
Helgasonar, ritstjóra, Vér
íslands börn I-III. Verk þetta
hefur verið uppselt um skeið en
er nú aftur fáanlegt, öll þrjú
bindin í vandaðri öskju.
í kynningu útgefanda segir:
„Jón Helgason kunni öðrum
betur að glæða liðna sögu lífi, og
gilti þá einu hvort viðfangsefni
hans voru æðstu menn þjóðarinn-
ar eða umkomulausir kotungar.
Vér íslands börn flytur efni af
sama toga og íslenskt mannlíf:
Listrænar frásagnir af íslenskum
örlögum og eftiminnilegum
atburðum, sem reistar eru á
traustum, sögulegum grunni og
ítarlegri heimildakönnun.
Jón Helgason „fer listamanns-
höndum um efni sitt, byggir eins
og listamaður af þeim efnivið,
sem hann dregur saman sem vís-
indamaður," eins og dr. Kristján
Eldjárn komst að orði í ritdómi.“
Sögufélag Skagfirðinga:
Þættir og þjóð-
sögur Stefáns á
Höskuldsstöðum
Hjá Sögufélagi Skagfirðinga er
komið út fjórða bindi ritsafns
hins kunna fræðimanns Stefáns
Jónssonar frá Höskuldsstöð-
um. I bókinni eru nokkrir
sagnaþættir og þá er einn kafli
sem geymir allmargar þjóðsög-
ur og sagnir sem Stefán skráði.
Óhætt er að segja að þá sem
fýsir í hressilegt og gáskafullt
sagnfræðilegt efni, komi ekki að
tómum kofanum við lestur þess-
arar bókar. Lengsti kaflinnfjallar
um Pétur Pálmason frá Valadal
nafntogaðan glímukappa og
kraftamann sem ekki réðst á
garðinn þar sem hann var
lægstur. Segir frá mörgum frækn-
um afrekum hans.
Þátturinn um Jón Godda segir
frá Jóni nokkrum Jónssyni sem
hafði nokkuð af afturgöngum að
segja og þeim ekki öllum góðum.
Lenti hann m.a.s. í átökum við
sjálfan andskotann sem reif úr
honum augun.
Þá eru í bókinni 3 stuttir
þættir. Um feðgana Eirík á
Óslandi og Guðvarð í Tungu og
niðja þeirra. Sagan gerist sitt
livoru megin við aldamótin 1800.
| „Drykkfelldur var hann og rall-
samur nokkuð, en þó heldur góð-
ur piltur og vel hagorður,“ segir
um Pétur Guðmundsson hagyrð-
ing eyfirskan að ætt, en um hann
fjallar annar þáttur. Þá er sagt frá
börnum Ólafs prests Tómasson-
ar. Þau voru flest sérkennilegir
auðnuleysingjar og sum þeirra
flökkuðu um héruð. Má þar
nefna Stefán sem kallaður var
fíni og bauð sá ekki af sér góðan
þokka.
Kaflinn um Magnús sálarháska
segir frá þjóðkunnum og afar sér-
stæðum manni. Afar latur var
hann til vinnu og tolldi illa í
vistum, en enginn jafnaðist þó á
við hann í teignum þegar hann
vildi slátt við hafa. Hann var
aldrei við kvenmann kenndur og
forðaðist það eins og heitan eld,
en þótti næmur á veðurfar og
rættust veðurspár hans æði oft.
Ekki er fjallað um leitina sjálfa
í kaflanum um þjófaleitarmenn í
Bólu. Heldur gerð grein fyrir
þeim mönnum sem til þess óvin-
sæla verks voru kallaðir.
Útgáfu bókarinnar önnuðust
þau; Hjalti Pálsson, Sölvi Sveins-
son og Þórdís Magnúsdóttir. Hún
sr 215 bls., prýdd mörgum mynd-
um og nafnaskrá fylgir. -þá
Jólasveinanáttföt með húfu
Stærðir 130-140.
Verð kr. 660.-
Barnaútigallar
Stærðir 60-80.
Verð kr. 1.242.
Barnaútigallar
Stærðir 80-100.
Verð kr. 1.422.-
10% jólaafsláttur jt
EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
m
VISA
m
ÍReynishúsim Furuvöllum 1, Akureyrí eru eftirtaldir:
° Söluunboð - SIEMENS
STRAUMRAS
ÞJÖNUSTA MEÐ L0FT- HÁÞBÝSTI- 0G RAFMAGNSVORUR
Furuvöllum 1 - 600 Akureyri ■ Sími 96-26988
ÞJÓNUSTA VIÐ SIGLINGA- OG FISKILEITARTÆKI
Furuvöllum 1 • 600 Akureyri ■ Simar: 27222 & 985-27222
OANSSKOLI
í Sími 22566
Lærið að
dansa.
HF.
Furuvöllum 1 ■ 600 Akureyri ■ Simi 27788
Starfrækjum trésmiðju á
þjónustugrundveili.
-trésmiðjan
Verktakar í byggingariðnaði
Simi 96-24000 Furuvöllum 1
l&afmar V\
rafverktakar.
Verkstæði Óseyri 6, sími 27410.
Skrifstofa Furuvölium 1, sími 27188.
Við í Reynishúsinu þökkum viðskiptin.
Gleðilegjól gott ogfarsœlt komondi ár.
• • •