Dagur - 29.12.1987, Síða 10
í'f - RUöÁtí - \* 86r ‘í3drrjí??.9b .65
10 - DAGUR - 29. desember 1987
Ibúð óskast
Óskum eftir að taka á leigu 2-3ja herb. íbúð, frá ára-
mótum fyrir einn af starfsmönnum okkar.
Fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 21255.
^ MÖL&SANDURHF.
Áramótadansleikir
Áramótadansleikur
í Dynheimum kl. 0.30-4.00.
Verð kr. 500,-
Aldurstakmark 15 ára.
Áramótadansleikur
í Félagsmiðstöð Lundarskóla
kl. 0.30-3.00.
Verð kr. 350,-
Aldurstakmark 13 ára.
Æ.R.A.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninoi Garðarsbraut 29, Húsavík,
þingl. eigandi Garðar Geirssoh, fer frám á eigninni sjálfri,
miðvikud. 6. jan. ’88 kf. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Gunnlaugur Þórðarson hrl., Guð-
mundur Markússon hrl., Veðdeild Landsbanka fslands.
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Höfn II, Svalbarðsstr.hreppi,
þingl. eigandi Soffía Friðriksdóttir, fer fram á eigninni sjálfri,
fimmtud. 7. jan. ’88 kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Eggert B. Ólafsson hdl., Sigurður G.
Guðjónsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Skútahrauni 2a, Reykjahlíð,
þingl. eigandi Sæþór Kristjánsson, fer fram á eigninni sjálfri,
þriðjud. 5. jan. '88 kl. 10.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Örlygur Hnefill Jónsson hdl., Veð-
deild Landsbanka íslands.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Birkilandi (Vestaraland IV),
þingl. eigandi Lárus Hinriksson, fer fram á eigninni sjálfri,
mánud. 4. jan. ’88 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Jón
Kr. Sólnes hrl., Skúli J. Pálsson hrl., Tómas Þorvaldsson hdl.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Nauðungaruppboð
þriðja agrsíðasta á fasteigninni Ásgötu 25, Raufarhöfn, þingl.
eigandi öestur Þorsteinsson, fer fram á eigninni sjálfri,
mánud. 4. jan. '88 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Brunabótafélag íslands, Örlygur
Hnefill Jónsson hdl., Tryggingastofnun rfkisins.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Frá undirbúningi skemmtidagskrár í Súlnasal Hótel Sögu. Fremst á sviðinu eru (frá vinstri): Anna Vilhjálms, Einar
Júlíusson ásamt Ólöfu Hafdísi dóttur sinni, Magnús Kjartansson og Pálmi Gunnarsson.
Hótel Saga:
Helgarferðir á Iækkuðu verði
- Söngleikurinn „Næturgalinn er ekki dauður enn“
frumsýndur í byrjun janúar
Á undanförnum árum hafa
svonefndir helgarpakkar notið
æ meiri vinsælda. Hér er átt
við ferðaiög dreifbýlisbúa til
Reykjavíkur - og ferðalög
Reykvíkinga út á land. Fram
til þessa a.m.k. hefur fremur
takmarkað hótelrými í höfuð-
borginni gert það að verkum
að betra er fyrir þá sem hyggja
á ferðir sem þessar að skipu-
lcggja þær með nokkrum fyrir-
vara. Hið sama má raunar
segja um ferðir höfuðborgar-
búa út á landi. Stöðug aukning
á vetrarferðum til Reykjavíkur
hefur leitt til þess að hótelhald-
arar og flugfélög hafa tekið
höndum saman og boðið upp á
ýmislegt nýstárlegt - og lokk-
andi. Það síðasta á þessum
vettvangi - og e.t.v. það girni-
legasta um langa hríð - eru sér-
stakar helgarferðir með
skcmmtikvöldi á Hótel Sögu.
Það eru Flugleiðir, Hótel Saga
og veitinga- og ráðstefnufyrir-
tækið Gildi h.f. sem standa að
þessum helgarferðum, sem
hafa hlotið nafnið SOGU -
GILDI. Ferðir þessar hefjast
strax eftir áramót.
í helgarferðum SÖGU-GILDI
geta gestir Vatið um 2-4 daga
ferð. Fyrsti ferðadagur er
fimmtudagur og síðasti ferðadag- j
ur er mánudagur. Tveggja nátta
gisting, aðfaranætur laugardags
og sunnudags, eru þó fastir
punktar í þessari dagskrá, þar
sem skemmtun, kvöldverður og
skemmtiatriði í Súlnasal verða á
laugardagskvöldum.
Sérstakt janúartilboð
Frá sjötta janúar til níunda
febrúar bjóða aðilar SÖGU -
GILDIS sérstakt verð á þessum
ferðapakka, svokallað janúartil-
boð. Helgarferð af þessu tagi
kostar þá frá Akureyri kr. 8.763.
Að kvöldi nýársdags verður
frumflutt í Súlnasal skemmtidag-
skrá sem hefur hlotið nafnið
TEKIÐ Á LOFT í SÚLNASAL.
Þar mætir til leiks ein harðsnún-
asta poppflugsveit landsins, sem
hefur verið í forystu íslenskra
poppflugflotans síðasta manns-
aldur. Það verða meðal annárs
þeir Maggi Kjartans, Rúnar
Júl, Jóhann, Helga, Pálmi óg
Engilbert og fleiri flughetjur þess
tíma þegar bítlamenningin gerði i
vélheppnaðar loftárásir 1 á
íslenska dægurmenningu. Þetta
verður flugferð til dægurlanda ög
þar verða heimsóttar ýmsár þær'
minningar liðinna ara, sem tengj-
ast á ljúfastan hátt mörgum
helstu poppstjörnum síðustu
tveggja áratuga og vinsælústu
lögum þeirra.
Næturgalinn -
ekki dauður enn
„Næturgalinn - ekki dauður
enn“ er heiti á nýjum söngleik
sem frumsýndur verður í Súlna-
sal þann sjötta febrúar, en eins
og fyrr sagði hefst þá janúartil-
boðið sem fyrr var nefnt. í kynn-
ingu Hótel Sögu á þessum nýja
söngleik segir meðal annars:
„Söguþráðurinn er örlagasaga
hinnar íslensku popphetju, sem
þráir frægð og frama. Sígildar
dægurperlur Magnúsar Eiríks-
sonar mynda rammann um sög-
una. Sagan af ungum manni á
þyrnum stráðri framabraut. Þráir
að verða Næturgali, en verður
nætur-galinn.
Tónlistarperlur Magnúsar Eir-
íkssonar í gegnum tíðina. Stór-
stjörnurnar Pálmi Gunnarsson og
Jóhanna Linnet í aðalhlutverk-
um. Tónlistarflutningur í örugg-
um höndum hljómsveitar Magn-
úsar Kjartanssonar.
Sagan um vonir og þrár, ástir
og átök, og um leiðina heim. Sag-
an lætur engan ósnortinn og tón-
listin heldur lengi áfram að
hljóma hið innra.“
Eflaust munu margir íbúar
landsbyggðarinnar hleypa heim-
draganum, gista á Hótel Sögu og
horfa á söngleikinn. Svo mikið er
víst að verðið á pakkanum góða
mun tæplega fæla menn frá að
halda af stað til höfuðborgarinn-
ar og þeir sem hafa gist á Sögu
gera það gjarnan aftur.
Frá undirbúningi skemmtidagskrár í Súlnasal Hótel Sögu. Rúnar Júl og
Maggi Kjartans rifja upp ásamt fleirum úr Hljómagenginu mörg af bestu lög-
um þess tíma í flugferð Flugglaðra hf.