Dagur - 13.01.1988, Page 11

Dagur - 13.01.1988, Page 11
13. janúar 1988 - DAGUR - 11 Dregið í riðla í úrslitakeppni EM í knattspyrnu: V.-Þjóðverjar og ítalir mætast í fyrsta leik í gær var dregið um það hvaða lið leika saman í riðli í úrslitum Evrópukeppninnar í knatt- spyrnu í Y.-Þýskalandi næsta Bryan Robson og félagar í enska landsliðinu mæta Irum í fyrsta leik í úrslitakeppni EM í sumar. sumar. Búið var að ákveða að gestgjafamir, V.-Þjóðverjar og Englendingar léku ekki í sama riðli en Englendingar náðu bestum árangri einstakra þjóða í undankeppninni. í 1. riðli leika V.-Pjóðverjar, ítalir, Danir og Spánverjar en í 2. riðli Englendingar, írar, Hol- lendingar og Sovétmenn. Tvö lið komast áfram úr hvorum riðli. í undanúrslitum leikur liðið sem sigrar í 1. riðli við liðið sem hafn- ar í 2. sæti í 2. riðli og svo öfugt. Liðin sem sigra svo í þeim viður- eignum, leika til úrslita. Mótið hefst þann 10. júní með tveimur leikjum úr 1. riðli, þá leika V.-Þjóðverjar og ítalir og Danir og Spánverjar. Tveimur dögum síðar hefst keppni í 2. riðli og í fyrstu umferð leika Eng- lendingar við íra og Hollendingar við Sovétmenn. Úrslitaleikur keppninnar fer fram í Múnchen 25. júní. Akureyrarmótið í handbolta: Hvort liðið er betra? - Þór og KA leika i kvöld kl. 20.30 í kvöld leika Þór og KA fyrri leikinn í Akureyrarmótinu í handknattleik. Leikurinn sem fer fram í Höllinni, hefst kl. 20.30. Seinni leikurinn fer síð- an fram á sama stað á þriðju- daginn kemur. KA sigraði sem kunnugt er á afmælismóti félagsins um síðustu helgi. Liðið sigraði mjög örugg- lega í öllum leikjum sínum og sýndi oft ágæta leiki. Þórsarar tóku einnig þátt í mótinu en unnu aðeins Breiðablik í seinni viður- eign liðanna. Þórsarar hafa oftast þurft að láta í minni pokann fyrir KA- mönnum í gegnum tíðina en hafa nú hug á að gera bót þar á. KA- menn ætla hins vegar að endur- taka leikinn frá því um helgina og sýna bæjarbúum enn einu sinni hver raunverulegur styrkleika- munur liðanna er. Spilakvöld Sjálfsbjarg- ar! Spilum félagsvist að Bjargi fimmtudaginn 14. janúar. Mætum vel. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Spilanefnd. I.O.O.F. 2 = 16911581/2 = 9.0 Stúkan tsafold fjallkon- I an nr. 1. Fundur fimmtudaginn 14. janúar kl. 20.30 í Friðbjarnarhúsi. Rætt um framtíðarhorfur. Komið og drekkið afmælissúkku- laði ísafoldar. Æt. AI-Anon fjölskyldudeildirnar halda fundi sína í Strandgötu 21, Akureyri. Mánudaga kl. 21.00, uppi. Miðvikudaga kl. 21.00, niðri. Laugardaga kl. 14.00 sporafundir, uppi. Ala-teen fyrir unglinga: Miðviku- daga kl. 20.00, uppi. Minningarspjöld Minningarsjóðs Kvenfélagsins Hlífar fást í Bóka- búðinni Huld Hafnarstræti 97 og Sunnuhlíð í Blómabúðinni Akri, símaafgr. F.S.A. og hjá Seselíu M. Gunnarsd. Kambagerði 4. Minningarkort Sjálfsbjargar eru seld á Bjargi Bugðusíðu 1, Bókabúð Jónasar og Bókvali. Glerárprestakall. Sóknarprestur Pálmi Matthíasson er fjarverandi til 1. febrúar. Séra Pétur Þórarinsson á Möðruvöllum gegnir þjónustu og er fólk beðið að snúa sér til hans. Sími hans er 21963. Félag aldraðra. Söngæfing fimmtudag- inn 14. janúar á sama tíma og áður. Stjórnin. íþróttir Þorgils Óttar Mathiesen landsliðsfyrirliði skoraði tvö mörk í leiknum gegn Austur-Þjóðverjum í gærkvöld. Heimsbikarmótið í handknattleik: Naumt tap fyrir Austur-Þjóðverjum Austur-Þjóðverjar sigruðu Islendinga með 18 mörkum gegn 16 í fyrsta leik liðanna á heimsbikarmótinu í hand- knattleik í Svíþjóð í gærkvöld. Sigur liðsins var sanngjarn en þó voru íslensku strákarnir mjög nærri því að jafna á síð- ustu mínútu leiksins. í stað þess að Islendingum tækist að jafna er staðan var 17:16, náðu Þjóðverjarnir boltanum, brun- uðu í hraðaupphlaup og bættu við 18. markinu. Þjóðverjar skoruðu þrjú fyrstu mörkin í leiknum en það tók íslensku strákana heilar 12 mín. að finna leiðina í markið. Guð- Framarar sigruðu - á stórmóti íþróttafréttamanna Framarar sigruðu á stórmóti Samtaka íþróttafréttamanna í innanhússknattspyrnu sem haldið var í íþróttahúsinu á Akranesi síðastliðinn laugar- dag. Liðið sigraði KR í jöfnum og skemmtilegum úrslitaleik 8:7. Alls tóku 8 lið þátt í mótinu, leikið var í tveimur riðlum og komust tvö lið áfram úr hvorum riðli í úrslitakeppnina. í A-riðli léku Fram, ÍA, IBK og KA en í B-riðli Valur, KR, Þór og lið Samtaka íþróttafréttamanna. Úrslit leikjanna urðu þessi: Valur-SÍ 10:4 ÍA-ÍBK 5:6 KR-Þór 8:5 Fram-KA 6:2 KR-SÍ 10:1 Valur-Þór 4:5 ÍA-KA 9:6 Fram-ÍBK 8:6 Valur-KR 6:6 Þór-SÍ 13:4 ÍBK-KA 6:6 Fram og ÍBK komust áfram úr A-riði en KR og Þór úr B-riðli. Fram vann Þór 11:2 og KR vann ÍBK 7:6. Það voru því ÍBK og Þór sem léku um 3.-4. sætið en Fram og KR um 1.-2. sætið. Kefl- víkingar unnu Þórsara 7:6 í mjög jöfnum leik og hrepptu 3. sætið. KR-ingar byrjuðu mjög vel gegn Fram í úrslitaleiknum og höfðu 3 marka forystu í seinni hálfleik, 6:3. En Framarar náðu að jafna 6:6, komast yfir og sigra í leikn- um 8:7. mundur Guðmundsson minnkaði muninn í 1:3 en áður hafði hann fiskað vítakast sem Kristján Ara- son misnotaði. Guðmundur fisk- aði annað vítakast skömmu síðar sem Sigurður Gunnarsson skor- aði úr. Þjóðverjar bættu við fjórða markinu en íslendingar jöfnuðu 4:4. Síðan var jafnt 5:5 en þeir þýsku bættu við tveimur mörkum fyrir hlé og leiddu 7:5 í hálfleik. Þeir juku muninn í 8:5 í upp- hafi síðari hálfleiks og á 35. mín. var munurinn orðinn fjögur mörk, 10:6 en áður hafði Sigurð- ur misnotað vítakast. Um miðjan síðari hálfleik var munurinn enn fjögur ntörk, 13:9 og skömmu síðar fimm mörk, 15:10. Þá skor- uðu Islendingar þrjú mörk í röð og minnkuðu ntuninn í 13:15. Þjóðverjar bættu við 16. markinu og enn misnotuðu íslendingar vítakast, í þetta skipti Alfreð Gíslason. Þjóðverjar bættu við 17. markinu en íslendingar skor- uðu þá þrjú mörk í röð undir lok- in og minnkuðu muninn í eitt mark 16:17. íslendingar fengu síðan boltann þegar um 50 sek. voru til leiksloka en mistókst að jafna. Þjóðverjar náðu boltanum á lokasekúndum leiksins og inn- sigluðu sigurinn með sínu 18. marki. Páll Ólafsson gat ekki leikið með vegna veikinda og Alfreð Gíslason gat ekki beitt sér að fullu vegna meiðsla sem hann hlaut í fyrradag. Einar Þorvarð- arson varði vel í markinu og hornamennirnir Guðntundur og Valdimar Grímsson stóðu sig vel. Hjá Þjóðverjum var markvörður- inn Wieland Schmidt bestur. Mörk Islands: Kristján Arason 3, Guðmundur 3, Valdimar 3, Þorgils Óttar 2, Alfreð 2/2, Sigurður 1, Karl 1 og Atli 1. 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 Sveinn Ævar skorar á Sölva Sveinn Ævar Stefánsson var ekki í vandræðum með Ingólf Kristjánsson í getraunaleiknum um helgina. Hann var með 7 leiki rétta á móti aðeins 1 leik Ingólfs. Sveinn heldur því áfram og hann hefur skorað á Sölva Ingólfsson knattspyrnumann úr Þór og starfsmann ÚA, í næstu umferð. Sölvi er dyggur aðdá- andi West Ham en liðið hefur átt frekar erfítt uppdráttar í vetur. Hann ætlar sér ekkert annað en sigur á Sveini og hefna þar með fyrir töpin í firmakeppninni í knattspyrnu en lið ÚA hefur tvisv- ar tapað fyrir liði SÍS í firmakeppni og í bæði skiptin á hlutkesti. Það kemur þó ekki í Ijós fyrr en á laugardag hvor hefur betur að þessu sinni. Aðalleikurinn á seðlinum er viðureign Liverpool og Arsenal en hann verður sýndur í beinni útsendingu Sjónvarpsins á laugardag. Sveinn Ævar: Sölvi: Liverpool-Arsenal 1 Luton-Derby 1 Norwich-Everton 2 Portsmouth-Oxford x Q.P.R.-West Ham 1 Sheff.Wed.-Chelsea 1 Tottenham-Coventry 1 Wimbledon-Watford x Aston ViIIa-Ipswich 2 Blackburn-Hull 2 Plymouth-Man.City x Swindon-Bradford 1 Liverpool-Arsenal 1 Luton-Derby 1 Norwich-Everton 2 Portsmouth-Oxford 1 Q.P.R.-West Ham 2 Sheff.Wed.-Chelsea 1 Tottenham-Coventry 1 Wimbledon-Watford x Aston Villa-Ipswich 1 Blackburn-Hull 1 Plymouth-Man.City 2 Swindon-Bradford x Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fímmtudög- um svo enginn verði nú af vinningi. 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.