Dagur - 01.03.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 1. mars 1988
42. tölublað
Kaupir einkaaðili Skó-
gerð Sambandsins?
- Sótt um einfalda ábyrgð bæjarins vegna kaupanna
Fullbúð •
af nýjum JJfJ
vörum
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
I dag mun atvinnumálanefnd,
sem um leið er stjórn Fram-
kvæmdasjóðs Akureyrar,
fjalla um beiðni um einfalda
ábyrgð sjóðsins vegna kaupa
nokkurra aðila á stærsta
hlutanum í skóverksmiðju
Sambandsins á Akureyri. Að
sögn Björns Jósefs Arnviðar-
sonar, formanns nefndarinnar,
barst erindi þessa efnis til hans
á laugardagskvöld.
Stefán Sigtryggsson á Akureyri
sendi erindið til atvinnumála-
nefndar, fyrir sína hönd og fleiri
aðila. Björn Jósef Arnviðarson
„Gróusögur“
- segir Guðjón B. Ólafsson
um staðhæfingar um ofgreidd laun
milli 20 og 30 milljónir
I nokkrum fjölmiðlum hafa
komið fram fullyrðingar um að
Guðjón B. Ólafsson forstjóri
SIS hafi fengiö greiddar milli
20 og 30 milljónir umfram um
samin laun þegar hann var for
stjóri Iceland Seafood í Banda
ríkjunum. Þessu hefur Guðjón
ncitað og kallar þetta Gróu-
sögur.
I yfirlýsingu frá Guðjóni segir
að hann hafi þegar sýnt stjórn-
armönnum í Jceland Seafood
fram á, að þessar launagreiðslur
séu í samræmi við það sem um
var samið og ennfremur liggi það
fyrir, að greiðslur þessar fóru
ekki um hendur hans heldur voru
þær reiknaðar út af löggiltum
endurskoðendum Iceland Sea-
food, sem jafnframt önnuðust
skattskil, bæði fyrir fyrirtækið
og hann.
Guðjón segir að hér sé um virt
og þekkt endurskoðunarfyrirtæki
að ræða og sýni það í rauninni,
hve þessi umræða sé á fáranlegu
stigi, að reynt er að gera þetta
sérstaka atriði tortryggilegt - það
að Iceland Seafood og hann sjálf-
ur skipti við sama endurskoðun-
arfyrirtækið.
I lok greinargerðarinnar segir
Guðjón B. Ólafsson að: „Sjálfur
taldi ég við upphaf starfa minna
vestra og tel enn, að þetta væri
besta tryggingin fyrir því að
launa- og skattamál mín væru í
höndum aðila, sem allir hlutað-
eigandi gætu treyst.“ AP
sagðist ekki geta tjáð sig nánar
um erindi þetta, og væri t.d. trún-
aðarmál hversu háa upphæð farið
væri fram á að sjóðurinn ábyrgð-
ist. „Ég vænti þess að reynt verði
að taka afstöðu til erindisins á
fundinum,“ sagði Björn.
Bæjarstjórn Akureyrar verður
að taka afstöðu til afgreiðslu
atvinnumálanefndar á þessu
erindi, hvort sem nefndin tekur
jákvætt eða neikvætt í umsókn-
ina um einfalda ábyrgð.
Haukur Alfreðsson, rekstrar-
verkfræðingur hjá Iðntæknistofn-
un, hefur undanfarið kannað
ýmsa þætti rekstrargrundvallar
skógerðarinnar, en samningavið-
ræður hafa farið fram undanfarn-
ar vikur og daga um sölu meiri-
hluta verksmiðjunnar til þeirra
aðila sem fóru fram á ábyrgð
bæjarins nú. Að sögn Sigfúsar
Jónssonar, bæjarstjóra, mun ekki
vera til umræðu að Akureyrar-
bær taki beinan þátt f þessum
rekstri. EHB
Vinnan göfgar manninn.
Myntl: TLV
Sauökrækskir unglingar
giýttir í Grindavík
„Eftir reynslu hclgarinnar held
ég að við verðum að skoða hug
okkar vel. Hvort þorandi sé að
fara aftur til Grindavíkur með
yngri flokka til keppni,“ sagði
Karl Jónsson fararstjóri 4.
flokks Tindastóls í körfubolta
eftir ferð liðsins til Grindavík-
ur um helgina. Hópur unglinga
gerði báðar næturnar aðsúg að
skólahúsinu þar sem Sauð-
krækingarnir sváfu og voru
þeir m.a. grýttir á laugardags-
kvöld.
„Ég skil engan veginn þessa
framkomu, og það er svo fjarri
því að hún eigi rætur sínar að
rekja til framkomu minna stráka,
sem var alveg til fyrirmyndar.
Petta byrjaði um 2 leytið aðfara-
nótt laugardags. í>á komu nokkr-
ir unglingar að húsinu og spraut-
uðu inn um gluggann miklu skýi
úr duftslökkvitæki. Sem betur fer
„Aldrei hægt að vera
fyllilega ánægður"
- segir formaður Einingar um samningana
„Það var auðvitað skrifað und-
ir samninginn með fyrirvara
um samþykktir einstakra
félaga, en ef þessi samningur
verður felldur sé ég ekkert
annað framundan en
verkföll,“ sagði Sævar Frí-
mannsson formaður Einingar í
samtali við Dag um nýjan kjara-
samning VMSÍ og VSÍ. „Það
er aldrei hægt að vera fyllilega
ánægður með kjarasamninga
og ég hefði gjarnan viljað fá
meira fyrir fiskvinnslufólk.“
Sævar sagði að nú væri verið
að undirbúa fundi í einstökum
deildum Einingar í Ölafsfirði,
á Dalvík, Grenivík og í Hrísey, en
frestur til að staðfesta samning-
inn rennur út 9. mars. Á fundum
deildanna mun fara fram leynileg
atkvæðagreiðsla um kjarasamn-
inginn og verður ekki talið úr
henni fyrr en á síðasta fundinum
sem haldinn verður á Akureyri.
Pað verður því ekki ljóst hvernig
atkvæði falla fyrr en öðru hvorum
megin, eða um næstu helgi.
Það er ljóst að ekki ríkir ein-
hugur um nýja samninga. Sér-
staklega hefur gætt óánægju
meðal fiskvinnslufólks, sem kem-
ur ekki eins vel út úr þessum
samningum og það hefði viljað.
„Frystihúsin hafa verið rekin
með halla og reyndist ómögulegt
að fá fram meiri hækkanir. Eins
og staðan er hjá þeim, get ég ekki
séð hvað fengist út úr verkföllum
ef samningarnir verða felldir,“
sagði Sævar.
Ákvæði samningsins um vinnu-
tilhögun og vinnutímabreytingu
þarf að bera sérstaklega undir
atkvæði • félögunum. Sömuleiðis
er ákvæðið um að flytja til frí
vegna uppstigningardags og
sumardagsins fyrsta bundið því
að a.m.k. þrjú landssambönd
innan ASÍ samþykki slíka breyt-
ingu og nauðsynlegar lagabreyt-
ingar hafa náð frarn að ganga.
Yfirvinna á þessum dögum
myndi þá greiðast með yfirvinnu-
kaupi. VG
voru ekki allir strákarnir sofnað-
ir, þannig að allt liðið var vakið
og allt opnað upp á gátt til að
hreinsa loftið. Rétt eftir að við
höfðum náð að festa svefninn var
farið að berja húsið að utan, af
hópi unglinga úr plássinu sem
vildi komast inn. Ég rauk út, náði
tveim þeirra og sagði þeim að
hypja sig og láta okkur í friði. Pví
við þyrftum að hvíla okkur fyrir
keppnina daginn eftir. Við feng-
um síðan frið það sem eftir lifði
nætur.
En þegar við vorum að fara
heim um ellefu leytið á laugar-
dagskvöld elti okkur hópur
krakka og unglinga á aldrinum
10-20 ára. Þegar við vorum að
ganga að skólanum skipti engum
togum að krakkaskríllinn grýtti
okkur, þannig að lögreglan þurfti
að skakka leikinn, en einn strák-
urinn úr hópnum slasaðist. Þurfti
að fara með hann á slysavarð-
stofu og sauma saman skurð í
andliti. En langalvarlegast var
samt þegar þeir sprautuðu úr
slökkvitækinu inn í stofuna.
Þetta er baneitrað efni og ég er
hræddur um að ef allir hefðu ver-
ið sofnaðir, hefðu 2-3 strákanna
er sváfu næst glugganum sem
spýjan kom inn um, getað
kafnað," sagði Karl Jónsson.
Þess má geta að 2 grindvískir
unglingar birtust á mótorhjólum
sínum inni í anddyri gamla
íþróttahússins þar sem Blönduós-
ingarnir gistu. -þá