Dagur - 01.03.1988, Side 3
ÍI6Ö t £:'i 3 ÍTi .í H4J ii.> í*C3 ~ ’i
1. mars 1988 - DAGUR - 3
Unnið við fiskverkun í vélasal Úfgerðarfélags Akureyringa. Mynd: tlv
Hross á þjóðvegum:
„Þetta lagast ekki á meðan bændur
fá hrossin bætt“
- segir Örn Þórsson hjá Dreka
Kennara-
menntunar-
nefnd Há-
skóla íslands
Háskólaráð samþykkti á fundi
sínum 21. jan. sl. að stofna
kennaramenntunarnefnd á
vegum Háskólans í þeim til-
gangi að efla þann þátt í starfi
skólans er lýtur að menntun
verðandi og starfandi kennara.
í nefndina voru skipaðir til
tveggja ára, Andri Isaksson,
prófessor, en hann er jafnframt
formaður hennar, Eggert Briem,
prófessor, Eiríkur Rögnvalds-
son, lektor, Jón Torfi Jónasson,
dósent og Pétur Knútsson,
lektor. Gerður G. Óskarsdóttir,
kennslustjóri í uppeldis- og
kennslufræðum, er starfsmaður
nefndarinnar.
Hlutverk nefndarinnar er að:
1. Efla tengsl og samvinnu þeirra
aðila innan Háskólans sem sjá
um menntun í þeim greinum
sem eru kennslugreinar í skól-
um og menntun í uppeldis- og
kennslufræðum.
2. Efla tengsl og samvinnu
Háskóla íslands við fram-
haldsskóla og eldri bekki
grunnskóla svo og við samtök
og fagfélög kennara.
3. Stuðla að eftirmenntun
kennara á vegum H.í.
4. Nefndin sé fulltrúi H.í. út á
við um kennaramenntun, eftir
því sem við á.
Nefndin hefur þegar hafið störf
og eru fyrstu verkefni hennar að
stuðla að auknu námsframboði í
hinum ýmsu deildum Háskólans
á sviði grunn- og endurmenntun-
ar kennara og einnig hefur verið
haft samband við Hið íslenska
kennarafélag og fagfélög innan
þess um kennslufræði greina.
Tveir verka-
mannabústaðir
afhentir í
Varmahlíð
Nýlega afhenti sveitarstjórn
Seyluhrepps 2 einbýlishús sem
byggð voru samkvæmt verka-
mannabústaðakerflnu. Húsin
sem fjölskyldur þeirra Víg-
lundar Rúnars Péturssonar og
Guömundar Ingimarssonar
festu kaup á standa við Birki-
mel sunnan félagsheimilisins
Miðgarðs.
Þau eru 4ra herbergja, 111 fer-
metrar að innanmáli. Bygging
þeirra hófst fyrir 3 árum en vegna
ýmissa orsaka var ekki lögð
áhersla á að koma þeim í gagnið
fyrr. Aðalverktaki var Friðrik
Jónsson sf. á Sauðárkróki.
Að sögn Sigurðar Haraldsson-
ar oddvita hefur hreppurinn þeg-
ar sótt um byggingu eins verka-
mannabústaðar til viðbótar og
gerð 2ja íbúða samkvæmt leigu-
íbúðakerfinu.
Á síðasta ári var komið undir
þak búningsklefum, sem fyrst um
sinn munu þjóna gestum sund-
laugarinnar, en eru fyrsti bygg-
ingaráfangi íþróttahúss Varma-
hlíðarskóla. Framkvæmdir við
búningsklefana innanhúss standa
nú yfir, pípulögn og múrverk, og
er stefnt að því að þeir verði
teknir í notkun áður en kennsla
hefst næsta haust. -þá
Það er á vissum stöðum sem
hrossin eru til mikilla trafala á
vegum og stöðug hætta yfirvof-
andi af þeirra völdum. Þetta er
alveg forkastanlcgt. Það er
margbúið að biðja þessa
menn að halda hrossunum frá
vegunum, en því er ekkert
sinnt,“ sagði Örn Þórsson hjá
Dreka á Akureyri sem átti
vöruflutningabifreiðina sem ók
á hrossin við Ibishól í Skaga-
flrði aðfaranótt þriðjudags.
Örn sagði að sér finnist maka-
laust að tryggingafélögin skuli
ekki beita sér í þessu máli, því
þau þyrftu að blæða. Og þetta
lagaðist líklega ekki fyrr en
bændur hættu að fá bætur fyrir
hrossin. Meðan þeir fengju þau
bætt og hrossin væru í rétti sé
enginn hvati fyrir bændur að
halda þeirn frá vegum.
Karl Eiríksson bóndi í
Vatnshlíð sagði að vegurinn lægi
þarna í gegnum sitt land og hefði
enn ekki verið girtur. Og það
yrði sjálfsagt ekki gert fyrr en
framkvæmdum við veginn yfir
Skarðið, sem hafnar eru, verður
lokið. Pað væri því ekki svo gott
að halda hrossunum heima við.
Pau hefðu verið heima við urn
kvöldið, en runnið niður eftir um
nóttina.
Björn Mikaelsson yfirlögreglu-
þjónn á Sauðárkróki sagði að
lausaganga hrossa væri mikið
vandamál í héraðinu og að sínu
áliti ætti að banna hana. Til þess
að sporna við þessu, hafi hann á
hverju hausti mælst til þess við
hrcppstjóra, að þcir kæmu þeim
tilmælum til bænda að þeir heftu
lausagöngu hrossa.
Sigurður Haraldsson á Gróf-
argili, oddviti Seyluhrepps, sagðist
í fyrrahaust hafa sent öllum land-
eigendunt í hreppnum bréf þar
sem mælst var til þess að þeir
héldu hrossum sínum fjarri
vegum. Karl í Vatnshlíð hefði
sjálfsagt ekki fengið þetta bréf,
Laugardaginn 20. febrúar sl.
hélt íþróttadeild Hestamanna-
félagsins Léttis, opið ísmót á
Leirutjörn. Kappreiðarnar
voru haldnar óvenju snemma í
ár og eru líkur á að aðrar verði
haldnar seinna í vetur.
Helstu úrslit urðu þessi: í tölti
fullorðinna sigraði Gylfi Gunn-
arsson á Kristal 15 vetra brúnum
frá Kolkuósi með 100,8 stig.
Annar var Ragnar Ingólfsson á
Gjöf 5 vetra brúnni frá Höskulds-
stöðum með 72,8 stig. Þriðji var
Jóhann G. Jóhannesson á Vin 11
vetra jörpum frá Hofsstaðaseli
með 77,6 stig. Baldvin Guðlaugs-
son var fjórði á Dropa 6 vetra
brúnum frá Vatnsleysu með
59,47 stig og fimmti Heiðar
Hafdal á Draupni 10 vetra rauð-
um frá Hólum með 59,73 stig.
í tölti unglinga sigraði Eiður
Matthíasson á Hrímni 7 vetra
gráum frá Gilsá. Annar var Þór
Jónsteinsson á Óðni 9 vetra jörp-
um frá Laugalandi. Sigrún Brynj-
arsdóttir var þriðja á Flugari 8
vetra jörpum frá Sauðhólum. í
fjórða sæti var Sverrir Guð-
mundsson á Slaufu 6 vetra rauðri
og í því fimmta var Pálína Árna-
enda væri Vatnshlíð í Húna-
vatnssýslu og ekki í sínu
umdæmi. Sigurður sagði að
reyndar mætti segja að Vatnshlíð
væri upp á afrétti. Þar væri allt
dóttir á Hélu ó vetra grárri.
Að lokum var keppt í 150
metra skeiði. í fyrsta sæti var
Spóla 11 vetra rauð frá Kolkuósi,
eigandi og knapi er Sigurður
Árni Snorrason og var tíminn
17,30 sekúndur. Annar var Stuð-
ull 7 vetra rauðblesóttur frá
opið og reyndar hægt að líkja
aðstæðum þarna við Öxnadals-
heiði og því ekki gott að koma í
veg fyrir að skepnur fari að veg-
inum. -þá
Hrafnsstöðum, eigandi og knapi
Örn Grant en tíminn var 17,35
sekúndur. í þriðja sæti lenti Vin-
ur 11 vetra jarpur frá Hofsstaða-
seli, eigendur eru Eiríkur og Jar-
þrúður en knapi Jóhann G.
Jóhannesson. Tíminn var 17,7
sekúndur. VG
(smót á Leirutjörn:
Spóla fyrst í 150 metra skeiði