Dagur - 03.03.1988, Síða 1
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMiÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Framkvæmda-
sjóður orðinn
að banka?
Samþykkt hefur verið í bæjar-
stjórn Akureyrar að veita gos-
drykkjaverksmiðjunni Sana
hf. lán að upphæð fimm millj-
ónir króna til fimm ára, en
ákvörðun um vaxtakjör á lán-
inu var vísað aftur til atvinnu-
málanefndar. Lánveitingin var
samþykkt eftir að meirihluti
bæjarráðs hafði lagt til að
bæjarstjórn gerði hið sama.
Lán það, sem hér um ræðir, er
vegna framkvæmda Sana hf. í þá
veru að stækka verksmiðjuna, en
við umræðu í bæjarstjórn kom
fram að áætlaður heildarkostnað-
ur við framkvæmdirnar væri um
200 milljónir króna.
„Ég taldi að ekki væri annað
hægt en að samþykkja þessa lán-
veitingu úr því sem komið var, en
hjá mér er mikill efi um hvort
það sé á starfssviði þessa sjóðs að
standa í almennri bankastarfsemi
hér í bæ,“ sagði Sigurður Jóhann-
esson, bæjarfulltrúi, um þetta
mál.
Sigurður sagði einnig, að það
sjónarmið hefði ríkt að Fram-
kvæmdasjóður ætti að vera hvetj-
andi gagnvart nýframkvæmdum,
en ætti ekki að virka sem lána-
stofnun fyrir gamalgróin fyrirtæki
í bænum. Minnti þessi afgreiðsla
óneitanlega á það þegar lánveit-
ingu til viðbyggingar Hótel KEA
var hafnað fyrir nokkrum árum á
þessari forsendu, en einkaaðila
var á þeim tíma veitt lán til að
láta teikna hótel, sem hann hugð-
ist láta reisa. EHB
Þórshöfn:
Mikill afli í
síðustu viku
Allt frá áramótum hefur verið
lítið að gera í Hraðfrystihúsi
Þórshafnar. Ekki hafa verið
unnir nema átta tímar á dag og
bæði í janúar og febrúar hefur
vinna fallið niður í nokkra
daga vegna hráefnisskorts.
Heldur rættist úr þessu í síð-
ustu viku þegar togararnir
tveir komu með mikinn afla að
landi og bátarnir fískuðu
þokkalega.
Stakfellið kom á mánudaginn í
síðustu viku úr vikulöngum
„blönduðum túr“. Skipið var
með um 99 tonn af ísuðum fiski,
aðallega þorski, sem lagður var
upp hjá Hraðfrystistöðinni, og
um 75 tonn af frosnum flökum. A
miðvikudaginn var svo landað 70
tonnum af ísfiski úr Súlnafellinu
og var það einnig afli úr viku-
langri veiðiferð.
Frá Þórshöfn eru gerðir út þrír
12 tonna bátar, Draupnir, Manni
og Litlanes. Bátarnir fóru í síð-
ustu viku í 2-3 línutúra hver og
lönduðu samtals 12,5 tonnum.
Veður hamlaði veiðum en þegar
gaf á sjó veiddist vel. Stærri bát-
arnir, Geir og Fagranes eru farnir
á netaveiðar til Hornafjarðar og
á Djúpavog. Þaðan koma þeir
vart fyrr en vorveiðin fer að
glæðast, í endaðan mars eða þar
um bil. ET
Norðaustangarri vakti Norðlendinga í gær og notuðu þeir ýmis verkfæri til að hreinsa snjó af bílum sínum eins og
sjá má. Mynd: TLV
Vanda slegið á frest
- segir Jón Sigurðarson
„Ég vil segja það um efnahags-
ráðstafanir ríkisstjórnarinnar
að ég tel að menn séu farnir að
taia um raungengishækkun
íslensku krónunnar á árinu ef
ekki verður frekar að gert,“
sagði Jón Sigurðarson, for-
stjóri Alafoss hf., vegna
nýgerðra efnahagsráðstafana
ríkisstjórnarinnar og kjara-
samninga.
Jón sagði, að raungengishækk-
un krónunnar síðar á árinu væri
stórhættuleg öllum undirstöðuat-
vinnuvegum þjóðarinnar, og að
þjóðin væri af þessum sökum
áfram stödd á hengiflugi lands-
byggðarkreppu.
„Ég tel, að lítið hafi verið að
gert í efnahagsmálum. Ríkis-
stjórnin hefur frestað vandanum,
en ekki leyst eitt eða neitt. Raun-
tekjuhækkun útflutningsatvinnu-
veganna hefði þurft að vera
a.m.k. 10%,“ sagði Jón.
Steingrímur Hermannsson,
utanríkisráðherra, hefur talað
um nauðsyn meiri gengislækkun-
ar, e.t.v. síðar á árinu. Jón Sig-
urðarson sagði, að hann væri
sammála þessu áliti Steingríms,
en þó hefði verið mun eðlilegra
fyrir stjórnvöld að ganga frá
gengismálum í eitt skipti fyrir öll
núna. EHB
Vélsleða-
keppni í
Mývatnssveit
á morgun
- áhugi fyrir keppninni
aldrei meiri
Á morgun hefst hin árlega vél-
sleðakeppni í Mývatnssveit og
stendur hún fram á sunnudag.
Þessi keppni hefur verið haldin
frá árinu 1979 og má segja að
hér sé á ferð nokkurs konar
Islandsmót í vélsleðaakstri.
Áhugi fyrir keppninni hefur
stöðugt farið vaxandi og virðist
áhugi fyrir keppninni að þessu
sinni vera með mesta móti.
Mestur hluti gistirýmis í
Mývatnssveit er þegar fullbók-
aður en þó er enn hægt að fá
inni.
Að sögn Björns Björnssonar,
sem sér um skipulagningu keppn-
innar, er þegar búið að skrá á
þriðja tug manna í keppnina en
•frestur til skráningar rennur út á
morgun. Ljóst er þó að mikill
fjöldi manns kemur til Mývatns-
sveitar um helgina til að ferðast á
sleðum sínum og njóta náttúru-
fegurðar .frekar en taka þátt í
keppninni sjálfri. Boðið verður
upp á ferðir með leiðsögn og fyrir
þá sem sleðalausir koma verður
starfrækt vélsleðaleiga á
staðnum.
• Á morgun verður keppt í svo-
kölluðu „Fjallaralli" þar sem
sleðaumboðin keppa sín á milli.
Á laugardaginn verður spyrnu-
keppni og keppni í alhliða braut
en verðlaunaafhending og móts-
slit verða um kvöldið í Skjól-
brekku.
Sleðamenn eru nú að streyma
til Mývatnssveitar og í gær var
60-70 manna hópur á leið norður
hálendið.
Að keppninni standa björgun-
arsveitin Stefán og íþróttafélagið
Eilífur í Mývatnssveit. JOH
Brú byggð yfír Laxá
- Aðaldælahreppur tók lán
fyrir framkvæmdum
Brúnni yfír Laxá í Aðaldal hjá
Núpum var í júh sl. sumar lok-
að fyrir allri þungaumferð.
Skapaðist þar vandræðaástand
þar sem mjólkurbíll og aðrir
stærri bílar komust ekki yfír en
brúin þjónar þrem bæjum
austan árinnar.
Ekki var fyrir hendi fjárveiting
á vegalögum til endurbyggingar á
brúnni þrátt fyrir margendur-
teknar áskoranir heimamanna
um þörfina. Vegagerð ríkisins
bauðst til að endurbyggja brúna
ef Aðaldælahreppur lánaði fé til
framkvæmdanna, lán þetta yrði
endurgreitt þegar fjárveiting
fengist en það verður árið 1989.
Allir þingmenn kjördæmisins
skrifuðu undir yfirlýsingu um að
þeir mundu vinna að því að
tryggja þessa fjárveitingu.
Áætlað var að kostnaður við
brúarbygginguna yrði 2,5 til 3
milljónir. Lánsfé er fengið hjá
bankaútibúum á Húsavík og
sparisjóðum í sveitunum. Brúar-
gerðin hófst um miðjan október
og tók um þrjár vikur. Brúar-
vinnuflokkur Gisla Gíslasonar
frá Sauðárkróki vann verkið,
gekk það bæði fljótt og vel. Síðan
unnu vegagerðarmenn í héraði
við að fylla að brúnni og laga
aðkeyrslu að henni. Kostnaðar-
áætlun stóðst nokkurn veginn og
kostar brúin um þrjár milljónir
króna. DJ/IM
Nýja brúin yfir Laxá kostaði um 3 milljónir króna. Mynd: 1M