Dagur - 03.03.1988, Side 2
2 - DAGUR - 3. mars 1988
£Hen Burstyn
TeriGarr
AianBat&»
tiaminatfsá
tar Ihree ’87
EMMV
AWAADS
Munið afsláttarkortin þar er 6. hver mynd okeypis og látið stimpla allar
leigðar myndir í kortið - það kemur til góða.
lasisff
EM BASDÍGEk
BRUCEWILUS
A iím *œii ívf»«\*ty «rofi« «fev3m o«k Jrut.
Ajki w*h áwn i*rr — rvftis n^íiinwres?
ÍJffTí. Y
Aukatilboð til að gleðja alla fjölskylduna:
Ef þér leigið eina mynd fáið þér barnamyndir á hálfvirði.
Sérstakt videotilboð: Með eftirfarandi tilboðum færð þú ókeypis videotæki:
Tilboð 1. Tvær brnamyndir ... kr. 300.-
Tilboð 2. Þrjár barnamyndir . kr. 450.-
Tilboð 3. Tvær myndir ........ kr. 500.-
Tilboð 4. Þrjár myndír ....... kr. 750.-
Og athugið. Ef teknar eru þrjár myndir fylgir fjórða myndin ókeypis.
Stærsta videoleigan í bænum
Næg bílastæði - Besta þjónustan
Videover
Tll hagrædis. Allar myndir eru skráðar í tölvuna og því fljotlegt að fá allar upplýs-
ingar strax.
Algjör nýjung í tilboðum!
Við leigjum út 6 spólur í einum pakka í vikutíma á aðeins kr. 1.250.- og
11 spólur í pakka í vikutíma á aðeins kr. 2.000.-
Mikið úrval af nýjum myndum umfram það sem auglýst er hér og mörg
eintök til af flestum spólum.
Karlakórinn Heimir á
listahátíð í ísrael?
Frést hefur að menntamála-
ráðuneyti ísraels hafi ákveðið
að bjóða íslenskum kór að
syngja á listahátíð landsins í
vor. Hátíðin mun standa í
mánuð, frá miðjum maí til
miðs júní. Þar munu koma
fram listamenn frá öllum
heimsálfum, þ.á m. mun Ver-
ónaóperan flytja óperu Verdis
Nabucco úti á múrum Jerúsa-
lemborgar.
Dagur hefur öruggar heimildir
fyrir því að karlakórinn Heimir í
Skagafirði komi sterklega til
greina sem íslenski kórinn á þess-
ari hátíð, sökum þess að kórinn
sé einn elsti bændakór landsins,
en hann varð 60 ára á síðasta ári.
Auk þess er hann talinn
mjög vel þjálfaður og hafa yfir
góðum söngröddum að ráða.
Kórinn mundi syngja í 4 borgum
í ísrael; Jerúsalem, Askelon,
Haífa og Tíberías við Gali-
leuvatn. I>á er einnig ráðgert að
íslenski kórinn syngi kirkjulega
tónlist á Betlehemsvöllum í
Nasaret, við Galileuvatnið og í
Jerúsalem. Sá söngur yrði festur
á filmu, vegna sjónvarpskvik-
myndar um landið helga sem
gera á. -þá
Tugir sleðamanna á
leið yfir hálendið
-fyrstu gestir á „Mývatn ’88“ þegar komnir
Fyrstu gestir á vélsleðakeppn-
ina í Mývatnssveit sem hefst á
morgun komu norður yfír há-
lendið í fyrrakvöld. Það voru
tveir vélsleðamenn úr Reykja-
vík sem lögðu af stað norður
yfir hálendið á sunnudag búnir
bestu tækjum m.a. símum,
siglingatækjum, áttavitum og
þess háttar.
„Við fórum frá Sigöldu, eftir
Sprengisandi og Nýja-Dal og
þaðan í Kistufell þar sem við
sváfum aðfaranótt mánudags. Á
mánudag fórum við í leiðinda
skyggni niður í Dreka sem reynd-
ar er nú stutt dagleið en á þriðju-
dag komum við hingað niður í
Mývatnssveit um Heilagsdal,"
sagði Valdimar Ólafsson, annar
ferðalanganna í gær er hann var
staddur í Mývatnssveit.
Valdimar sagði að í sjálfu sér
væri nægur snjór á hálendinu um
þessar mundir en þó væri ekki
mikið um að snjó hefði dregið
saman í skafla á vissum svæðum.
Snjórinn væri jafnari yfir hálend-
ið nú en áður.
Nokkrir tugir sleðamanna
voru á ferð norður í Mývatnssveit
í gær. Pá voru einnig tveir stórir
flutningabílar að leggja af stað úr
Reykjavík fulllestaðir snjósleð-
um og búast má við að þegar nær
dregur helginni verði margir á
leið til Mývatnssveitar til að taka
þátt í þessu stórmóti vélsleða-
manna.
„Maður hitti nánast engan
sleðamann í Reykjavík sem ekki
ætlaði á mótið. Það er mikill
áhugi og þetta verður skemmtileg
helgi ef veðurguðirnir verða hlið-
hollir okkur,“ bætti Valdimar
við. JÓH
Tímamót í reks
-skóverksmiðjan hefur verið starfrae
Tímamót fara nú í hönd í
rekstri skógerðar SÍS á Akur-
eyri, þar sem hlutafélag verður
væntanlega stofnað um rekst-
urinn innan skamms. Skóverk-
smiðjan Iðunn var stofnuð árið
1937, og var Þorsteinn Ólafs-
son fyrsti verksmiðjustjóri
hennar. Danskur maður,
Kristján Lín, var verkstjóri og
verksmiðjustjóri frá 1938 til
1953, en þá tók Richard Þór-
ólfsson við, og var hann verk-
smiðjustjóri til 1981. Það ár
urðu kaflaskipti í sögu skó-
gerðarinnar, því hún fór þá úr
rekstri Iðnaðardeildar SÍS yfír
til Verslunardeildar.
Árið 1981 var dökkt útlit í
rekstri skógerðarinnar, og á
tímabili greiddi verksmiðjan jafn
háa upphæð í vexti af lánum og í
laun. Kristján Jóhannesson var
ráðinn að verksmiðjunni og var
rekstur hennar endurskipulagður
og vélar keyptar. Störfuðu Krist-
ján og Richard sameiginlega að
þessari uppbyggingu, sem skilaði
góðum árangri. Ulfar Gunnars-
son var ráðinn forstöðumaður
verksmiðjunnar árið 1983, og
veitti hann rekstrinum forstöðu
allt fram á þetta ár. Hann hefur
nú horfið til annarra starfa. Þess
má geta, að skógerðin hefur alla
tíð átt vinsældum að fagna á
innanlandsmarkaði, en að sögn
forráðamanna verksmiðjunnar
hefur samkeppnin við innflutta
skó verið hörð.
Björn Jósef Arnviðarson, for-
maður atvinnumálanefndar,
ræddi um aðdraganda þess að
erindi vegna beiðni um ábyrgð
Framkvæmdasjóðs var tekin fyrir
á fundi bæjarstjórnar utan
dagskrár sl. þriðjudag. Sagði
hann þá m.a. að undanfarnar vik-
ur hefðu samningaviðræður farið
fram milli Stefáns Sigtryggssonar
og fleiri aðila annars vegar og
fulltrúa Verslunardeildar SÍS
hins vegar um stofnun hlutafélags
um rekstur skóverksmiðjunnar.
Drög hefðu verið gerð að kaup-
sámningi milli þessara aðila, og í
samningunum væri gert ráð fyrir
því að kaupendur veittu seljend-
um ábyrgð fyrir láni að upphæð
10,5 milljónir króna. Ljóst væri,
að hér væri um atvinnufyrirtæki
að ræða, sem hefði veitt 35-40
manns atvinnu, en að undan-
förnu hefði rekstur fyrirtækisins
gengið erfiðlega og ekki stefnt í
rétta átt.
Rekstrarforsendur skógerðar-
innar hefðu verið skoðaðar
gaumgæfilega undanfarið og talið