Dagur - 03.03.1988, Side 4

Dagur - 03.03.1988, Side 4
4 - DAGUR - 3þfnar<Vl'988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 60 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Fækkum slysum í umferðinni Gífurleg hækkun iðgjalda af bifreiðatryggingum hefur farið fyrir brjóstið á mörgum bíleigandan- um. Fyrir flesta er helmingi kostnaðarsamara að tryggja bifreiðina í ár en í fyrra. Þá þurfa margir bíleigendur, t.d. á Eyjafjarðarsvæðinu, að sæta enn frekari hækkun iðgjalda vegna þess að veruleg breyting er gerð á svonefndum áhættu- flokkum og áhættusvæðum bifreiðatrygginga. Sumir hafa tilhneigingu til að kenna trygg- ingafélögunum um þessa miklu hækkun og vanda þeim ekki kveðjurnar. Þeir sem það gera fara villur vegar, því orsakanna er fyrst og fremst að leita hjá tryggingatökunum sjálfum, þ.e. bifreiðaeigendum. Hækkun iðgjalda er til komin af illri nauðsyn, einfaldlega vegna þess að umferðarslysum hefur fjölgað mjög ört á skömmum tíma með tilheyrandi eignatjóni. Tryggingafélögin standa því ekki undir tjóna- greiðslunum án þess að hækka iðngjöldin veru- lega. Það er vissulega umhugsunarefni fyrir þjóð- ina, að hér á landi eru umferðarslys hlutfallslega fleiri en á hinum Norðurlöndunum og reyndar fleiri en í flestum löndum Vestur-Evrópu. Sem dæmi um ógnvekjandi slysatíðni í umferðinni hér á landi má nefna að í hverjum mánuði látast að meðaltali tveir einstaklingar í umferðarslys- um og á síðustu tveimur árum hafa um tvö þús- und einstaklingar slasast, margir mjög alvar- lega. Nákvæmar tölur um eignatjón í umferðar- slysum liggja ekki fyrir en eflaust eru þær mun hærri en nokkurn grunar. Að hluta til má rekja fjölgun umferðarslysa til aukinnar bílaeignar landsmanna, sem er ein sú mesta í heiminum, miðað við höfðatölu. Hluta slysanna má rekja til slæmra vega og þess að samgöngukerfið, sérstaklega á höfuðborgar- svæðinu, er orðið of smátt í sniðum til að anna sívaxandi umferð svo vel sé. Höfuðsökin liggur þó hjá ökumönnunum sjálfum. Gáleysislegur akstur og almennt tillitsleysi ökumanna hefur því miður einkennt íslenska umferðar„menn- ingu“ fram til þessa. Þann 1. mars sl. tóku ný umferðarlög gildi. Þau kveða á um hert viðurlög gegn umferðarlagabrot- um auk þess sem ýmis nýmæli er þar að finna sem ættu að stuðla að bættri umferðarmenningu. Ef vegfarendur einsetja sér að virða ákvæði hinna nýju laga mun það vafalaust leiða til lægri slysa- tíðni. Það markmið næst ekki nema allir leggist á eitt. Með sameiginlegu átaki getum við hæg- lega fækkað slysum í umferðinni og að því hljót- um við að stefna. BB. leiklist Gísl: Hommamir fóm á kostum Leikfélag Húsavíkur: Gísl Höfundur: Brendan Behan Þýding: Jónas Árnason Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson Sýningarstjóri: María Axfjörð Ljós og leikhljóð: Jón Arnkelsson, Bert Jonker Búningar: Dómhildur Antonsdóttir, Jórunn Viggósdóttir, Hjördís Bjamadóttir, Antonía Sveinsdóttir o.fl. Sviðsmynd: Sigurður Sigurðsson, Sveinbjöm Magnússon o.fl. Leikritið Gísl verður í meðför- um Leikfélags Húsavíkur að kröftugum, revíukenndum ærslaleik þar sem hin alvöru- þrungna þjóðfélagsmynd Irlands i kringum 1960 fellur í skuggann. Ég er sáttur við þessa stefnu Hávars Sigurjóns- sonar leikstjóra, sýningin er bráðskemmtileg og krassandi og fjarlægur veruleikinn trufl- ar mann ekki um of. Leikritið gerist á pútnahúsi þar sem mellumamman Meg og gamla frelsishetjan Pat ráða ríkjum. Ýmsir kyndugir fasta- gestir eru í húsinu, s.s. hinn veiklaði Hr. Mulleady, höfuðs- maðurinn Monsjúi, píanóleikar- inn Jói, hommarnir Rio Rita og Grace prinsessa og hórurnar Col- lette og Ropeen. Parna gengur mikið á; drukkið, duflað, rifist og klæmst. Pat er sífellt að sífra um hetju- skap sinn í gamla daga þegar hann missti fótinn, en konu hans, Meg, þykir lítið til koma. Hr. Mulleady kynnist heittrúaðri konu, frk. Gilchrist, og veldur koma hennar miklu fjaðrafoki í pútnahúsinu. Þá rekst þangað inn rússneskur sjómaður og ekki má gleyma saklausu þjónustustúlk- unni Teresu. Vissulega undarleg blanda. I bakgrunni verksins eiga sér stað alvarlegri atburðir. Englend- ingar handtaka átján ára íra í Belfast og hyggjast hengja hann. Heimamenn svara með því að handtaka jafngantlan enskan hermann og hyggjast skjóta hann, verði Iranum ekki sleppt. Englendingurinn, Leslie Willi- ams, er hafður í haldi í pútnahús- inu undir öruggri gæslu IRA offísera og sjálfboðaliða. Gíslinn og Teresa verða hrifin hvort af öðru en samband þeirra virðist ekki ætla að ganga upp, fyrr en undir lokin en þá er það um sein- an. Það er ekki tyrr en í loka- þættinum sem leikfélagið fer að beita sér að alvöru verksins. Skil- in milli gamans og alvöru eru full skörp að mínu mati, þótt vissu- lega sé margt vel gert í dramat- ísku lokatriði verksins. Raun- veruleikinn er samt dálítið fjar- Iægur íslenskum veruleika. Leikritið er í þremur þáttum og er fyrsti þátturinn afskaplega lif- andi og skemmtilegur. Annar þátturinn er hins vegar full lang- dreginn og hefði leikstjóri að ósekju mátt sníða hann dálítið meira að revíuforminu og kippa burt nokkrum atriðum. Þriðji þátturinn endar síðan í dramat- ískri lausn. Leikritið „Gísl“ er uppfullt af skemmtilegum söngvum og uppá- komum. Margar óborganlegar senur kitla hláturtaugarnar en ég þykist viss um að margur heima- maðurinn hafi hneykslast dálítið á samborgurum sínum í hlutverk- um vafasamra persóna. Homm- arnir fóru til dæmis á kostum, þeir voru „óhugnanlega" sann- færandi og yfirleitt stóðu leikar- arnir sig mjög vel þótt sumir hafi verið fremur óstyrkir, enda munu nokkrir leikaranna hafa verið að stíga sín fyrstu eða önnur spor á sviði í þessu verki. Hrefna Jónsdóttir túlkaði boldangskvenmanninn Meg á afar eftirminnilegan hátt. Hún sýndi mikla innlifunarhæfileika, rödd hennar skýr og hljómfögur og framsögn ágæt. Þorkell Bjömsson var einnig sannfærandi í hlutverki Pats. Tilburðir hans minntu stundum á Gísla Hall- dórsson og er ekki leiðum að líkjast. Þorkell gerði sér alltaf ljóst hvemig persónu hann var að túlka en einstaka sinnum mátti greina hnökra á framsögn hans. Jóhannes G. Einarsson hlýtur að vera sviðsvanur því hann átti ekki í neinum vandræðum með hinn furðulega Hr. Mulleady. Jóhannes er greinilega ágætur gamanleikari en þó hætti honum til að ofleika. Aldís Friðriksdóttir var skemmtileg í hlutverki hinnar óþolandi frk. Gilchrist. Skerandi rödd hennar og hástemmdur söngur féllu mjög vel að hlut- verkinu. Þór Gíslason og Björgvin Leifs- son léku hommana Rio Rita og Grace á sannfærandi hátt leikrit- ið út í gegn. Ástæða er til að hrósa þeim báðum fyrir góðan leik, en Þór var þó meira áber- andi í fleðulátum sem fórust hon- um einstaklega vel úr hendi. Örn Ólason átti á brattann að sækja í erfiðu hlutverki Leslies Williams. Hann virkaði hálf upp- burðarlítill í fyrstu en sótti mjög í sig veðrið undir lokin og var þá* greinilega kominn í ham. Sigríður Harðardóttir komst klakklaust frá hlutverki Teresu, en samleik- ur hennar og Arnar var dálítið stirður á köflum. Sigríður komst afar vel frá söngatriðunum eins og reyndar allir leikararnir. Sigurður Þrastarson var sperrt- ur og mannalegur IRA offíseri og leysti verkefni sitt vel af hendi. Hann hafði fullkomið vald á text- anum, nema hvað honum hætti til að tala of hratt og varð fram- sögn hans þá óskýr. Vigfús Sig- urðsson túlkaði aðstoðarmann hans á mátulega sauðslegan hátt, Svava A. Viggósdóttir var örugg í hlutverki hórunnar Ropeen og Guðný Þorgeirsdóttir komst klakklaust í gegnum hlutverk stallsystur hennar Collette. Bjarni Pétursson stóð sig vel sem rússneskur sjómaður og Svavar Jónsson var kostulegur Monsjúr. Þá spilaði Ingimundur Jónsson fimlega á píanóið í hlutverki Jóa. Sviðið í samkomuhúsinu á Húsavík er ekki ýkja stórt en hagleiksmönnum tókst að skapa sannfærandi sviðsmynd og bún- ingarnir hentuðu hlutverkunum vel, en þó fannst mér Monsjúr full Skotalegur í búningi sínum. Lýsingin var býsna flöt lengst af en fimlega stjórnað og leikhljóð skutu manni skelk í bringu. Skemmtanagildi sýningarinnar er ótvírætt. Sjálfsagt hefur það ver- ið markmið leikstjórans og því markmiði hefur leikhópurinn náð. Stefán Sæmundsson Þór Gíslason og Björgvin Leifsson voru „óhugnanlega“ sannfærandi í hlut- verkum hommanna. Mynd: im

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.