Dagur - 03.03.1988, Qupperneq 5
3pmars 1988 - DAQUR - 5
Ég hef keyrt víða en bara
einu sinni um þverbak
- Galopið bréf til hugsandi manna
í rauninni hefði ég aldrei sest nið-
ur fyrir framan ritvélina ef „mal-
biksmaurinn" sem ritstýrir Degi
hefði ekki sakað mig og fleiri um
skort á jarðsambandi. Því neyðist
ég til að tilkynna ykkur að fáir
eru betur tengdir hérlendis en
einmitt ég. Ég er alinn upp í
sveit, bý í sveit, er búfræðingur
og þekki duttlunga náttúrunnar
eins og stóru tána á mér. Og ég
veit að náttúrunni ber að sýna
virðingu.
í 1114 ár höfum við íslendingar
byggt þetta land í sambýli við
náttúruna í blíðu og stríðu. Fyrir
hundrað árum var vissum hluta
fólks kippt út úr þessari hringrás
er það flutti á hið svokallaða
malbik, og er enginn öfundsverð-
ur af því hlutskipti. Samt sem
áður fer malbiksfólki ört fjölg-
andi, og innan þessa ört stækk-
andi hóps er ört stækkandi hópur
grænfriðunga og náttúruunn-
enda. Hópur þessi varð til af
þeirri einföldu ástæðu að vísinda-
menn sögðu að við værum að
eyðileggja jörðina með kjarn-
orku, mengun, eyðingu ósonlags-
ins, skóga, uppblæstri og alls
konar vafasamri eiturnotkun og
ónáttúru. Það var því eðlilegt að
krakkar og skynsamt fólk tæki
upp þá einföldu hugmyndafræði
að heiminn þyrfti að laga.
„Hvað kemur þetta íslandi
við?“ hugsar einhver. Á íslandi
er jú engin mengun eða umhverf-
isvandamál. Og sei, sei, jú, þó
erum við tiltölulega hreinir mið-
að við nágranna okkar í suðri. En
hvað gerist er plantað verður
álverum og stóriðju um allt land?
Svo er önnur mengun sem aldrei
hefur verið rætt um, b.e. fiskeldi.
Nú hafa Norðmenn drepio alla
sína fögru firði með fiskeldi og
mengun sem af því hlýst. Þá fara
Norðmenn að fjárfesta í íslensku
fiskeldi. Maður bara spyr: Er allt
í lagi að þeir drepi allt líf í fjörð-
um hérlendis eða er engin hætta á
því?
Skógurinn. Landið var þakið
kjarri og kræklum við landnám.
Kjarrið var höggvið, brennt og
beitt og í staðinn komu tún og
beitilönd en töluverður hluti há-
lendisgróðurs blés á haf út, sam-
fara kóinandi veðurfari. Þetta var
ekki verk bænda, heldur forfeðra
okkar allra. Síðar fór töluverður
liluti gróins lands undir malbik.
Nú vill töluverður hluti malbiks-
fólksins græða allt landið skógi,
helst gera það jafn skógi vaxið og
Skandinavíu en það eru öfgar.
Vissulega eru skógar skemmti-
legir til tilbreytingar og sjálfsagt
er að hafa reiti hér og þar opna
öllum landsmönnum. Samt er
það staðreynd sem allir þyrftu að
vita að skógar þrífast aðeins í
bestu kvikfjárræktarhéruðum
hérlendis og þau má þjóðin ekki
missa undir skógrækt af þeirri
einföldu ástæðu að það er lítilli
eyþjóð út í reginhafi nauðsynlegt
að vera sjálfri sér nóg um fæðu.
Hér á sú fæða að vera mjólk og
dilkakjöt, hvað sem það kostar
miklar niðurgreiðslur og háan
kjarnfóðurskatt.
Þá erum við komin að
umdeildu atriði, dýraverndun.
Eftir að maðurinn tók völd á
jörðinni hafa hundruð dýrateg-
unda dáið út og fleiri eru enn í
útrýmingarhættu. Þar á meðal
hvalategundir en þær eru allar
friðaðar nú og deilt er um hve
réttmæt sú friðun var. Raunar sé
ég enga ástæðu til að friða þá
hvali sem ekki eru í útrýmingar-
hættu. En hérna mæta manni
tvenns konar öfgaviðhorf, annars
vegar þau að allar skepnur séu
réttdræpar og að maðurinn hafi
rétt til að útrýma hverri þeirri
skepnu sem honum er ekki gagn-
leg (og þó svo sé eins og geirfugl-
inn) og hins vegar þeim viðhorf-
um að sauðfjárslátrun sé glæpur.
Staðreyndin er hins vegar sú að
maðurinn hefur ekki rétt til að
útrýma einni einustu dýrategund.
Isbirnirnir eru nýlega komnir
af skrá um dýr í mikilli útrýming-
arhættu. Samt eru þeir enn
friðaðir í öllum ísbjarnalöndum
með vissum undantekningum.
Þeir villast hingað endrum og
eins og eru þá skotnir séu þeir
ekki búnir að forða sér til baka
áður en byssumaðurinn kemur á
staðinn. Enda eru þeir ekki
friðaðir hérlendis. Nýlega villtist
ísbjarnarhúnn hingað til lands og
fékk þessa algengustu meðferð.
En sú meðferð var lýsandi
dæmi um illa meðferð manna á
náttúru. Um þetta atvik orti ég
Ijóð.
Erfiljóð til norræns vinar:
Á milli hafísjaka óð
alltaffylgdi honum slóð
píslarvætta blæddi blóð
bölvuð veiðiferðin góð.
Húnninn hvíti dauður er
ham1 synti upp að landi hér
þeir skutu hann út við kaldasker
og skrokkinn fluttu heim með sér.
Peir stoppuðu hann upp segir
sagan
svoleiðis tókst jú að aga hann
úr mjög góðu færi þeir skutu hann
í magann*
mennirnir voru að laga hann.
(*Pað rímar.)
Ferðamönnum sem álpast til
íslands eru boðnir alls konar
ísbirnir til sölu sem minjagripir,
svo sem postulínsísbirnir, tauís-
birnir, málaðir ísbirnir á vasa og
alls kyns ísbirnir en það fylgir
ekki sögunni að einu birnirnir
sem sjást hér á landi eru dauðir
ísbirnir. Samt hafa ísbirnir ekki
gert flugu mein hérlendis síðan
skíði voru aðal vetrarfarartækið
en vissulega hefur margt breyst
síðan, allt nema hugsunarháttur-
inn. Þrátt fyrir að ísbjörninn vilji
íslendingum allt gott og éti fyrir
(Ég var skíröur Helgi og er Þórsson og bý í
Kristnesi. Er bara frekar sakleysislegur HA.)
þá selinn þá fær hann alltaf sömu
þakkirnar.
En hver átti að fanga bangsa?
Bændur, nei, eðlilega hafa þeir
enga aðstöðu. Lögreglan, hún á
jú góðar byssur en engar deyfi-
byssur og þar að auki kann hún
ekkert í ísbjarnafræði. Hvað um
Náttúrufræðistofnun?
Ég hringdi í hana og hún er öll
af vilja gerð og sagði mér að
árlega væru tugir bjarna fluttir til
í Kanada og það væri ekkert mál,
en þeir áttu enga byssu. Eins og
fyrr var sagt þá höfðu bændur
enga aðstöðu til að fanga bangsa,
en trúlega hafa þeir haft síma.
Því hefðu þeir, og það verður
vonandi gert næst, átt að hringja
í Náttúrufræðistofnun og gefa
þeim kost á að flytja bangsa.
Þjóðin hlýtur að eiga þá kröfu á
hendur náttúrufræðingum sínum
að þeir hafi umsjón með svona
málum og ríkið borgi.
Kallið þetta malbikshugsun úr
öllu veruleikasambandi en þetta
er mín meining.
Ekki veit ég hvort það var
þessi best tengdi ritstjóri Dags
sem um daginn skrifaði um Nátt-
úrugripasafnið og birti þar mynd
af pardusdýri og kallaði það
gaupu. Gaupan er einmitt dæmi
um rándýr í útrýmingarhættu
sem skokkar um Skandinavíu
ásamt fáeinum úlfum og björnum.
Árlega drepa þessi dýr tugi
sauðfjár en samt fá þau að lifa og
mætti kallast heiðarleg sam-
keppni.
Helgi er ekki alls kostar sáttur við að Fljótamenn skyldu fclla ísbjörninn.
Kaffihlaðbord
Kaffihlaðborð í Lóni sunnud. 6. mars frá kl. 3-5.
GEYSISKONUR.
Félag aldraðra Akureyri
heldur aðalfund
laugardaginn 12. mars og hefst hann kl. 2 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf og skemmtiatriði.
Félag aldraðra.
BORGARA
noKKURim
-flokkur með framtíð
Föstudaginn 4. mars frá kl. 5-7 verður
Júlíus Sólnes þingmaður Borgaraflokks-
ins til viðtals á skrifstofu flokksins.
Skrifstofa Borgaraflokksins
Hafnarstræti 101,3. hæð, (Amaro-húsinu). Sími 27787.
Pizzukynning
Salami- og sjávarréttapizzur
ásamt hrásalati
verÖa kynntar í Hagkaupum
fimmtudaginn 3. mars frá kl. 15.30-19.00.
★ Kynningarverð ★
EYFIRSK MATVÆLI
HAGKAUP
Akureyri
4. sýning
föstudagskv. 4. mars kl. 20.30
5. sýning
laugardagskv. 5. mars kl. 20.30
Miðapantanir i síma 24936.
Leikfélag Óngulsstaðahrepps.
U.M.F. Árroðinn.
Freyvangsleikhúsið
Freyvangsleikhúsið
augiýsir:
Mýsogmenn
Borgarbíó
Fimmtud. 3. mars
LlNlOliCHABLES
Kl. 9.00 Hinir vammlausu
Kl. 11.00 Hinir vammlausu
Kl. 9.10 Sjúkraliðarnir
Kl. 11.10 Nornirnar í
Eastwick