Dagur - 03.03.1988, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 3. mars 1988
Krýsuvíkur-
samtökin á
tímamótum
- vel gengur að undirbúa
skólabygginguna
Krýsuvíkursamtökin voru stofnuð í Reykja-
vík 24. júlí 1985. í stofnskrá samtakanna seg-
ir að markmið þeirra sé að koma á laggirnar
sjálfseignarstofnun með það markmið fyrir
augum að kaupa hálfbyggt skólahúsnæði í
Krýsuvík og reka það sem meðferðarheimili,
uppeldis- og fræðslustofnun fyrir börn og
unglinga. Stofnun samtakanna vakti tölu-
verða athygli; í fyrsta lagi vegna þess að
margir töldu að þegar væru nægar stofnanir í
þjóðfélaginu til að fást við ávana- og fíkni-
efnavanda unglinga; í öðru lagi þá vakti
mikla athygli að samtökin vildu kaupa
Krýsuvíkurskóla, sem var bæði í mikilli
niðurníðslu og margir töldu legu hans óhent-
uga. Pað voru þó fleiri sem töldu þessa hug-
mynd bæði þarfa og reyndar bráðnauðsyn-
lega. Þó svo að flestir unglingar spjari sig í
lífsbaráttunni, þá eru það margir sem af ýms-
um ástæðum ná ekki að aðlaga sig þjóðfélag-
inu. Ávana- og fíkniefnaneysla er stórt vanda-
mál hjá þessum krökkum og þessi hópur fer
sístækkandi. Pó svo að þær stofnanir sem tyr-
ir eru hjá því opinbera, t.d. sálfræðideildir
skólanna og göngudeildir spítalanna, sinni
sínu starfi af sóma, þá geta þær ekki leyst öll
vandamál sem upp koma. Krýsuvíkursam-
tökin benda á að t.d. SÁÁ hafi unnið frábært
starf meðal fullorðinna og einnig meðal ungl-
inga en hins vegar leysi þau samtök ekki all-
an vanda þessara krakka. Börn og unglingar,
sem á mjög unga aldri hafi ánetjast vímuefn-
um eigi við margan vanda að stríða. Mörg
þeirra hafi fengið ágæta aðhlynningu bæði
hjá SÁÁ og víðar. Hins vegar hafi margir
þessara krakka dottið út úr skóla og því farið
á mis við undirstöðumenntun grunnskólans.
Því að það gefur auga leið að þeir unglingar
sem eru að glíma við vímuefni stunda ekki
nám að gagni, enda margir þeirra illa læsir og
skrifandi. Auk þess er algengt að þessir
krakkar búi við erfiðar heimilisaðstæður -
eigi jafnvel hvergi heima. Ragnar Ingi Aðal-
steinsson sagði í dagblaðsgrein nýlega að það
væri vegna þessa fólks sem Krýsuvíkur-
samtökin væru stofnuð. Þau eiga að þjóna
þeim tilgangi að skapa á einum stað heimili,
meðferðarstofnun, vinnustað og skóla. Þau
eiga að búa þannig að unglingunum, eftir að
þeir koma úr meðferð eða a.m.k. afvötnun
hjá SÁÁ eða sambærilegum stofnunum, að
þeir þurfi ekki að fljúgast á við alla draugana
í einu, að þeir geti í rólegheitum, á friðsælum
stað, undið ofan af sér margra ára rugl og
taugaspennu undir umsjón kennara og
áfengisráðgjafa. En sjá nánar umþetta í við-
tali við hann annars staðar hér á síðunni.
AP
Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
Það er gott að
vinna að svona
málefni á Islandi
- segir Ragnar I. Aðalsteinsson,
sem sæti á í stjóm Krýsuvíkursamtakanna
Einn af þeim mönnum sem
ötullega hefur starfað á vegum
Krýsuvíkursamtakanna og á
sæti í stjórn þeirra er Ragnar
Ingi Aðalsteinsson kennari.
Við ræddum við Ragnar um
starfsemi samtakanna, mark-
mið þeirra og hvernig hann
hefði komið inn í þetta starf.
„Þetta byrjaði þannig að
Snorri F. Welding, núverandi
starfsmaður Krýsuvíkursam-
takanna, kom að máli við mig og
ræddi þann möguleika að setja
upp heimili fyrir krakka og ungl-
inga í Krýsuvík. Mér leist strax
vel á þennan möguleika og áður
en ég vissi af var ég kominn á kaf
í þessa starfsemi,“ sagði Ragnar
Ingi í byrjun. Hann hugsaði sig
örlítið um og hélt áfram:
„Ég hafði unnið sem ráðgjafi
hjá SÁÁ í 3 ár og kynnst þessum
vímuefnamálum unglinga mjög
vel. Mér er sérstaklega ríkt í
huga fjórir ungir piltar, sem voru
góðir kunningjar mínir. Þeir eru
allir látnir núna, en ég er sann-
færður um að með stofnun eins
og Krýsuvíkurskólanum hefði
verið hægt að bjarga þeim.
Menntunarskortur stendur þess-
um krökkum geysilega fyrir þrif-
um og nokkurra vikna meðferð
hjá SÁÁ, þó að hún sé góð í
sjálfu sér, er hreinlega ekki nóg
til að koma þeim á réttan kjöl
aftur.
Mig setti hljóðan er ég frétti að
þessir piltar væru dánir, en þeir
Iétust allir með stuttu millibili.
Þeir höfðu einlæga löngun til að
bæta sig, en höfðu ekki undir-
stöðuna til að standa sig úti í
þjóðfélaginu. Þetta situr í manni
og ég hef trú á því að Krýsuvík-
urskólinn getið hjálpað mörgum í
svipaðri aðstöðu og þessir kunn-
ingjar mínir voru í.“
- Hvernig mun Krýsuvíkur-
skóli starfa öðruvísi, en aðrar
stofnanir í þjóðfélaginu, sem
vinna að svipuðum verkefnum?
„Lykilorðin að dagskrá Krýsu-
víkurskólans eru; meðferð, skóli,
vinna. Á þessum þremur þáttum
verður öll starfsemin byggð,
þetta þrennt verður grunnurinn
undir öllu sem gert verður.
Meðferðin verður byggð á
þeim leiðum, sem tvímælalaust
hafa skilað hér góðum árangri.
Hér er átt við svokallað 12 spora
kerfi, sem gjarnan er kennt við
AA-samtökin og hefur verið
þekkt hér á landi í rúm 30 ár.
Kerfi þetta byggist á því að ein-
staklingurinn sjálfur takist á við
vandamál sín og læri í gegnum
aga og ábyrga lifnaðarhætti
hvernig hann getur lifað ham-
ingjusömu lífi, þrátt fyrir vímu-
gjafavandamál sitt. Um þetta
kerfi er óþarft að fjölyrða og
nægir að vísa til SÁA, þar sem
það hefur verið notað með ár-
angri sem öllum er nú kunnur.
Rétt er að taka það fram að í
Krýsuvík verður ekki afvötnun
a.m.k. ekki til að byrja með. Tal-
ið er óþarft að kosta því til þar
sem afvötnunarstöðvar eru fyrir
hendi hjá öðrum stofnunum.
Lögð verður mikil áhersla á
samskipti vistmanna við fjöl-
skyldur sínar. Mun stofnunin
leggja mikið upp úr fjölskyldu-
meðferð ýmiss konar þ.e. fund-
um vistmanna með ástvinum sín-
um svo og ráðgjöf fyrir aðstand-
endur, en þeir eru sem kunnugt
er oft mjög illa leiknir og lang-
þreyttir.
Skólaþátturinn er mjög mikil-
vægur hjá okkur, því það gefur
auga leið að unglingar, sem hafa
horfið frá námi þegar í 8. bekk
eiga mjög erfitt uppdráttar í því
samfélagi sem við lifum í. Þegar
við bætist svo andlegir, líkamleg-
ir og félagslegir erfiðleikar vegna
langvarandi vímuefnaneyslu, þá
sér hver maður að hér hlýtur að
vera nánast um óyfirstíganlega
erfiðleika að ræða í mörgum til-
fellum. Skólaþættinum er ætlað
að koma þessum einstaklingum
aftur inn í samfélagið, gera þá
hæfa til að takast á við lífið á
sama grundvelli og annað ungt
fólk á íslandi."
Stefnt að því að nemendur
Ijúki grunnskólaprófí
- Nú má búast við að fólk komi
þarna í misjafnlega slæmu
ástandi. Hvernig takið þið á því
máli?
„Krýsuvíkurskóli verður sér-
skóli, starfræktur samkvæmt því
sem grunnskólalög kveða á um
slíka skóla og miðaður við það að
þangað komi nemendur með
ákveðnar sérþarfir. í greinargerð
Krýsuvíkursamtakanna segir
m.a. svo um námsleiðir: „...reynt
verður að mæta sérstökum þörf-
um hvers einstaka nemanda.
Meðal annars verður lögð áhersla
á þroskamiðað nám með sér-
stöku tilliti til félagslegra sam-
skipta. Einnig verður lögð
áhersla á stuðningsmiðað nám í
þeim námsgreinum sem tekin eru
samræmd próf í, þ.e. íslensku,
stærðfræði, dönsku og ensku.
Nauðsynlegt verður að gefa
nemendum möguleika á því að
taka samræmd próf. Þriðja náms-
leið verður færnimiðuð. Þar
verður aðaláhersla lögð á að
auka færni nemenda til að sækja
vinnu á almennum vinnumark-
aði, taka þátt í heilbrigðu tóm-
stundastarfi, sinna heimilisverk-
um og búa nemendur undir þátt-
töku í samfélaginu."
Nú Iiggur greinilega gífurlega
mikil vinna á bak við Krýsuvíkur-
samtökin, en samt eruð þið bara
með tvo launaða starfsmenn,
starfsmann á skrifstofu og staðar-
ráðsmann í Krýsuvík. Hver er
drifkrafturinn á bak við þetta
mikla starf?
„Krýsuvíkurskólinn er hugsjón
hóps af fólki sem þekkir vímu-
efnavandamál ungs fólks frá ýms-
um hliðum. Aðstandendur þess-
ara samtaka hafa sumir hverjir
horft á eftir vinum og skyldmenn-
um ofan í gröfina, og vinna í
minningu þeirra. Aðrir hafa
endurheimt sína á síðustu stundu
og sýna þakklæti sitt með því að
vinna að málefninu. Hægt og bít-
andi miðar því verkefninu áfram.
Undirtektir almennings hafa ver-
ið með miklum ágætum. Stórar
fjárhæðir hafa safnast meðal
fólksins í landinu. Ráðamenn
hafa tekið hugmyndum samtak-
anna af skilningi og raunsæi.
Hvarvetna, hvort sem er í ráðu-
neytum eða hjá öðrum opinber-
um aðilum, eru menn reiðubúnir
að hlusta og setja sig inn í það
sem verið er að gera. Það er
reynsla okkar hjá Krýsuvíkur-
samtökunum að það er gott að
vinna að svona málefnum á ís-
landi.“ AP