Dagur - 15.03.1988, Qupperneq 1
Alþýðusamband Norðurlands:
Aðgerðir
yfirvofandi
Að viku liðinni tekur kjarabar-
átta verkafólks enn nýja
stefnu. Á fundi samninga-
nefndar Alþýðusambands
Norðurlands um helgina var
samþykkt að fara þess á leit við
þau félög sem að samninga-
nefndinni standa, að þau boði
Skák Jóhanns
og Helga frestað
Skák Jóhanns Hjartarsonar og
Helga Ólafssonar frá því í
fyrstu umferð alþjóðlega skák-
mótsins á Akureyri átti að tefl-
ast í gær en var frestað að ósk
Helga Ólafssonar. Frídagur
var hjá keppendum á skákmót-
inu í gær en í dag verður tefld
6. umferð.
Skák Jóhanns og Helga verður
tefld á föstudaginn en þá er aftur
frídagur hjá keppendum.
Jóhann, Gurevich og Margeir eru
efstir og jafnir á mótinu með 3x/i
vinning.
Sovéski stórmeistarinn Dol-
matov tefldi í gærkvöld fjöltefli
við nemendur í Menntaskólanum
á Akureyri. Nánar verður skýrt
frá fjölteflinu í blaðinu á
morgun. JÓH
til yfirvinnubanns og banns við
hvers konar afkastahvetjandi
launakerfum í allri almennri
verkamannavinnu og fisk-
vinnslu.
í gær voru haldnir stjórnar-
fundir í félögunum þar sem þessi
samþykkt var tekin fyrir og átti
niðurstaða að liggja fyrir stjórn
Alþýðusambands Norðurlands á
hádegi í dag.
Reikna má með að öll félögin
hafi samþykkt að fara að þessu
boði, en niðurstaða lá ekki fyrir
þegar blaðið fór í prentun. AN
mun væntanlega boða þessar
aðgerðir frá og með deginum í
dag, svo með löglegum fyrirvara
taka aðgerðirnar gildi frá og með
miðnætti þann 22. mars nk. hjá
öllum félögum sem falið hafa AN
samningsumboð.
Bannið kemur til með að hafa
mikil áhrif á fiskvinnsluna, því
reikna má með talsvert minni
afköstum samfara þessum
aðgerðum. Fiskvinnslufólk vinn-
ur oft yfirvinnu og nær undan-
tekningarlaust samkvæmt af-
kastahvetjandi launakerfum.
Af öðrum stéttum má nefna að
hafnarverkamenn og bygginga-
verkamenn munu ekki vinna yfir-
vinnu og verður áhrifa þess vænt-
anlega vart mjög fljótt. VG
Útboðsverk á Vatnsskarði:
Verktakinn gerir
kröfur á Vegagerðina
Framkvæmdir við sex kfló-
metra langan kafla þjóðvegar-
ins yfir Vatnsskarð, sem boðnar
voru út á síðasta ári hafa al-
deilis dregið dilk á eftir sér.
Verktakinn Örnólfur Guð-
mundsson frá Bolungarvík,
sem sagði sig frá verkinu undir
lok ágústmánaðar þegar aðeins
þriðjungi þess var lokið, hefur
nú sett fram kröfur á Vega-
gerðina, vegna þess sem hann
kallar fáránlega útboðslýsingu
á námum.
„Hann er ósáttur við okkar
hugmyndir um lokauppgjör. Til-
boðið hljóðaði upp á 16 milljón-
ir, sem var 80% af kostnaðar-
áætlun. Hann hafði lokið um ein-
um þriðja þess og við greitt
honum 5 milljónir, og ætluðum
að láta það duga þar sem hann
stóð ekki við gerða samninga.
Hann sættir sig hins vegar ekki
við þetta og hefur höfðað mál
sem hann hyggst reka fyrir bæjar-
þingi Reykjavíkur. Kröfur sínar
byggir hann á því sem hann kall-
ar fáránlega útboðslýsingu á
námum,“ sagði Jónas Snæbjörns-
son umdæmisstjóri Vegagerðar-
innar á Norðurlandi vestra. Jónas
sagði að Vegagerðin mundi
leggja fram sína greinargerð að
viku liðinni og því ekki rétt að tjá
sig um rök Örnólfs á þessu stigi.
Þegar málið var þingfest í borgar-
dómi nýlega var lögmönnum gef-
inn frestur til 22. mars til gagna-
öflunar.
Eftir að Örnólfur gekk frá
verkinu síðsumars þurfti Vega-
gerðin að ganga frá veginum
þannig að hann yrði aksturshæfur
fyrir veturinn. Tók sá frágangur
3-4 vikur. Verkið hefur nú verið
boðið út að nýju og verður það
unnið í sumar. Samið hefur verið
við verktakafyrirtækið Klæðingu
í Reykjavík, sem var með lægsta
tilboðið. -þá
Nýr bátur bættist í flota Akureyringa sl. föstudag er trefjaplastbatnum Sunnu EA 51 var hleypt af stokkunum. Bát-
urinn var smíðaður í Noregi en Vélsmiðjan Atli sá um alla stálsmíði og niðursetningu á vél. Á myndinni sést hið
fagra fley á leið út úr vélsmiðjunni. Mynd: tlv
Hafísinn nálgaðist
Norðausturland í gær
- Faldur ÞH 153 dró net sín undan ísspöng á Heiðargrunni
Hafís nálgaðist Langanes og
Melrakkasléttu í gær. Élja-
gangur og slæmt skyggni var á
þessum slóðum svo ekki var
farið í ískönnunarflug. Vitað
var um ís á siglingaleiðinni fyr-
ir Langanes og ís sást frá höfð-
anum við Raufarhöfn. íshrafl
var komið að landi við Mel-
rakkasléttu en ekki var vitað
hve mikið magn var þar um að
ræða. Enginn ís sást frá Gríms-
ey.
Um miðjan dag í gær hafði
Dagur samband við Fald ÞH 153
frá Þórshöfn, þá voru skipverjar
að draga net sín undan ísspöng
austur á Heiðargrunni. Árni vél-
stjóri á Faldi sagði að þarna væri
þykk ísspöng sem farið hefði yfir
trossurnar en autt væri utan við
spöngina. Að sögn Árna var ekki
gott um það að segja hve langt
væri í meginjaðar íssins, skyggni
var lélegt og éljagangur. Þarna
var norðaustanátt, versta átt
hvað ísinn varðaði og taldi Árni
horfurnar mjög slæmar.
Hafnarvörður og verkstjóri
Raufarhafnarhrepps voru á varð-
bergi í gær. Ef hætta skapaðist af
ísreki átti að draga girðingar fyrir
höfnina. Bæði girðingu fyrir
hafnarmynnið og aðra girðingu
innan við fyrir smábátahöfnina.
Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri
sagði að ís sæist frá vitanum á
höfðanum en ekki var vitað hvort
um ísspöng eða meginjaðar íssins
var að ræða. Vitað var að ís var
kominn á fjörur úti á nesinu og
álitu menn að þar væri íshrafl á
ferðinni.
Rauðinúpur frá Raufarhöfn er
í þriggja vikna leiðangri fyrir
Hafrannsóknastofnun en 1-2 af
minni bátunum eru búnir að taka
upp veiðarfæri sín til að forða
þeim frá ísnum. Gunnar sagði að
aðeins væru fimm dagar þar til
menn færu að leggja grásleppu-
net og óttuðust þeir að ísinn
mundi hamla veiðunum.
„Við sjáum engan ís hérna,
ekki nema einn og einn mola,“
sagði Garðar Ólason útgerðar-
Næsta haust eru líkur á að
unnið verði við áframhaldandi
uppbyggingu Dalsbrautar.
Gatan á að liggja frá Glerár-
götu, upp með Glerá og þaðan
til suðurs milli efra og neðra
Gerðahverfis. Þegar hefur
neðsti hluti hennar og kaflinn
milli Gerðahverfanna verið
lagður.
í fjárhagsáætlun bæjarins er
gert ráð fyrir 8,6 milljónum til
nýframkvæmda í gatnagerð.
Þeirri upphæð hefur ekki verið
skipt endanlega milli verkefna en
meðal þess sem er á óskalistanum
er þetta verkefni. Að sögn Guð-
maður í Grímsey. „Þó vitum við
að ísinn er ekki langt norðan við
eyna. Hér er suðaustanátt eins og
er en á miðvikudag og fimmtudag
er spáð suðlægum áttum," sagði
Garðar og hafði orð á því að ekk-
ert þýddi að vera svartsýnn held-
ur yrðu menn að vona það besta.
1-2 bátar frá Grímsey eru búnir
að taka upp öll sín veiðarfæri en
sumir búnir að taka upp hluta af
veiðarfærum sínum. Grímseying-
ar hafa einnig tilbúinn vír til að
strengja fyrir höfnina ef ísinn
nálgast. IM
mundar Guðlaugssonar yfirverk-
fræðings gatnamáladeildar, er
um að ræða heppilegt haustverk
sem gott verður að grípa til þegar
sumarverkin eru frá.
Miðað er við að í haust verði
varið um tveim milljónum til
verksins. Það sem liggur fyrir eru
sprengingar, útgröftur og upp-
bygging en hvaða þættir verða
teknir er óákveðið. Heildaráætl-
un fyrir uppbyggingu vegarins
sem eftir er, er um 7 milljónir.
Ákvörðun um verkið verður að
líkindum tekin í lok mánaðarins
þegar kostnaðartölur fyrir asfalt
liggja fyrir. ET
Dalsbraut:
Framkvæmdum fram-
haldið í haust?