Dagur - 15.03.1988, Blaðsíða 3
15. mars 1988 - DAGUR - 3
Óskar Axelsson, Ásdís Jóhannesdóttir og Njörður Óskarsson með blómin og tilkynninguna uin ferðavinninginn frá
Samvinnuferðum-Landsýn. Mynd: im
Húsavík:
Þriggja manna fjölskylda
fékk Mallorcaferð á 30 krónur
- frá Samvinnuferðum/Landsýn
„Þetta er ákaflega gaman,
ekkert okkar hefur farið í
svona ferð áður en það eru
mörg ár síðan við fórum að
tala um að fara sumarið eftir
að Njörður yrði fermdur,“
sagði Ásdís Jóhannesdóttir á
föstudagskvöldið. Ásdís og
fjölskylda hennar fengu þá
óvænt Hildi Baldvinsdóttur,
umboðsmann Samvinnuferða-
Landsýnar á Húsavík í heim-
sókn. Hildur færði fjölskyld-
unni blómvönd og tilkynningu
um að bókunarnúmer hennar
hefði verið eitt af fimm númer-
um sem dregin voru út 10. mars
og því fengi fjölskyldan þriggja
vikna Mallorcaferð fyrir 30
krónur.
„Nú er ég viss um að Njörður
rukkar mig um aðra fermingar-
gjöf,“ sagði Ásdís. Hún og eigin-
maður hennar, Óskar Axelsson
voru búin að bjóða syni sínum,
Nirði með sér til Mallorca í
haust. Njörður á að fermast í vor
og átti ferðin að vera fermingar-
gjöfin frá foreldrunum.
Hildur sagði að um 100 manns
frá Húsavík hefðu þegar bókað
ferðir með Samvinnuferðum á
árinu. í tilefni af 10 ára afmæli
ferðaskrifstofunnar var ákveðið
að draga út tíu bókunarnúmer,
fimm 10. mars og önnur fimm 10.
maí. Allir þeir sem eru bókaðir á
þessum númerum fá þá ferð sem
þeir hafa pantað fyrir 10 krónur.
Auk fjölskyldunnar á Húsavík fá
nú eftirtaldir aðilar ferðir sínar á
þessu ágæta verði: Tvær stúlkur
úr Reykjavík, ferð til Rimini í
þrjár vikur í ágúst. Tveir piltar
frá Höfn í Hornafirði, ferð til
Rhodos í tvær vikur í júlí-ágúst.
Hjón úr Kópavogi, ferð til Rim-
ini í þrjár vikur í ágúst-septem-
ber og fimm manna fjölskylda frá
Selfossi fær mánaðarferð í Sælu-
hús í Hollandi í júní-júlí. IM
Sláturhús KEA:
Vinningstölur 12. mars.
Heildarvinningsupphæð kr. 4.731.238.-
1. vinningur kr. 2.369.330,-
Þar sem enginn fékk 1. vinning færist hann yfir á
1. vinning í næsta útdrætti.
2. vinningur kr. 709.280.-
Skiptist á milli 220 vinningshafa kr. 3.224,-
3. vinningur kr. 1.652.628.-
Skiptist á milli 6.718 vinningshafa sem fá 246 kr. hver.
Tvöfaldur 1. vinningur laugardaginn 19. mars
1988 stefnir í 6-7 milljónir.
Upplýsingasími 91-685111
Mikilvægt að bændur styðji
við bakið á afurðastöðvunum
í baráttu fyrir breytingu á reglum um greiðslu
vaxta- og geymslugjalds
Haustið 1987 var slátrað alls í
sláturhúsum KEA 56.981 kind
eða 50.528 dilkum og 6.453
fullorðnum kindum. Þetta er
2.367 kindum færra en haustið
1986, eða fækkun um 3,99%.
Dilkum fækkaði um 1.477 og
fullorðnum kindum um 890.
Fjöldi slátraðra nautgripa á
verðlagsárinu var 2.264 stk.
Slátrun svína minnkaði en
slátrun hrossa var svipuð og
undanfarin ár.
Innlagt kjötmagn hjá Slátur-
húsi KEA var 703.325 kg af
dilkakjöti og 91.911 kg kjöts af
fullorðnu. Þetta er minnkun um
11,89% frá árinu áður. Meðal
fallþungi dilka var 14,906 kg eða
0,252 minni en haustið áður.
Segja má að kjötsalan hafi ver-
ið góð allt árið. Birgðir nauta-
kjöts minnkuðu verulega, og
munar þar mest um að 158 tonn
nautakjöts voru seld til loðdýra-
fóðurs.
Breyting sú sem fjármálaráðu-
neytið ákvað í fyrra, á greiðslu
vaxta- og geymslugjalds kemur
sér mjög illa, en nú er gjald þetta
greitt eftirá við sölu afurðanna
þótt kostnaðurinn falli til jafn-
harðan. „Óskiljanlegt er, hvernig
ætlast er til að grundvöllur sé fyr-
ir útborgun ársfjórðungslegra
verðhækkana birgða, sem enn
liggja óseldar,þegar ríkið hefur
ekki innt þessi gjöld af hendi. Þá
eindregnu kröfu verður að gera,
að ríkið breyti þessu aftur í fyrra
horf,“ segir í skýrslu kaupfélags-
stjóra til félagsráðsfundar, og
ennfremur að brýnt sé að bændur
standi með afurðastöðvunum í
baráttu fyrir sameiginlegum
í haust er áætlað að lagt hafí
verið slitlag á um 330 km af
leiðinni frá Akureyri til
Reykjavíkur eða um 76% leið-
arinnar. í sumar verður sömu-
leiðis lagt slitlag á nokkra
vegakafla frá Húsavík og allt
austur til Þórshafnar, hingað
til hefur aðeins verið lagt slit-
lag á smá vegakafla við
Ásbyrgi í Kelduhverfl á þessu
svæði. Á landinu öllu er áætl-
að að leggja slitlag á 285 km,
en á síðasta ári var lagt á 305
km.
Samkvæmt uþplýsingum sem
Dagur fékk hjá Hauki Jónssyni
hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri
á að leggja alls 49,8 kílómetra af
nýrri klæðingu á Norðurlandi
næsta sumar. í Ljósavatnsskarði
verða lagðir 7,3 km, á Eyjafjarð-
arbraut vestri frá Hvammi að
hagsmunum.
Til ullariðnaðar Sambandsins
bárust alls 55.164 kg af ull á árinu
1987. Nánast er um óbreytt magn
að ræða frá árinu 1986. ET
Hrafnagili 8,2 km, á Eyjafjarð-
arbraut eystri frá Leifsstöðum að
Þórustöðum 3,1 km, á Aðaldals-
vegi frá Syðra-Fjalli að norðaust-
urvegi 5,3 km, á Kópaskeri 1 km,
á norðausturvegi frá Hólsfjalla-
vegi að Gilsbakkavegi 4,6 km, á
norðausturvegi frá Brekku að
Kópaskeri 1,5 km, á norðaustur-
vegi frá Raufarhöfn að flugvelli
4,8 km, á norðausturvegi frá
Hafralónsá að Þórshöfn 8 km og
Mývatnsvegi frá Skógarhlíð að
norðausturvegi 6 km.
„Það á ekki að leggja slitlag í
Öxnadalnum í ár. Þar á að fara
að gera veg svo þar verður ekki
lagt slitlag í okkar umdæmi fyrr
en í fyrsta lagi 1989-1990. Nú á
að byggja upp jafnt og þétt á 4-5
árum veginn í Öxnadalnum. Hins
vegar á að leggja 12 km í Norður-
árdal en það er ekki okkar
umdæmi,“ sagði Haukur að
lokum. VG
Vegagerð:
Bundið slitlag lagt á vega-
kafla NA landi í sumar