Dagur - 15.03.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 15. mars 1988
Sólarlandaferðir eru vinsælar meðal íslendinga, og er
það vel skiljanlegt með tiiliti til veðráttunnar á Fóni. Æ
fleiri beina augunum til Grikklands sem ákjósanlegs
áfangastaðar slíkrar ferðar. Það er engin tilviljun, því
Grikkland hefur upp á flest það að bjóða, sem hægt er
að hugsa sér í slíkri ferð. Þar er glampandi sólskin 10-13
stundir á dag frá maí fram í október og meðalhitinn er
frá 25° upp í 33° þessa mánuði. Strandlífið er að sama
skapi litskrúðugt og skemmtanalífið fjörugt. En það sem
er e.t.v. mest heillandi við Grikkland eru allar þær
fornminjar og iistaverk, sem þar er að finna og vitna um
hvers mannskepnan var megnug fyrir þúsundum ára.
Það er fróðlegt að skoða þessar merku minjar um
menningu fornaldarinnar og mjög eftirminnilegt. Inn á
milli og allt um kring má síðan flatmaga í sólinni á
baðströndunum.
Enn sem komið er mun það
algengara að íslendingar, sem
halda á þessar slóðir, dvelji á
Rhodos, enda hafa eyjarnar
löngum verið vinsælar til
sumarleyfisdvalar. En Rho-
dos er ekki eini áfangastaður
íslensku ferðaskrifstofanna í
Grikklandi. Annar staður,
minna þekktur, er Voli-
agmeni. Á síðustu árum hafa
fjölmargir íslendingar lagt
þangað leið sína á vegum
Samvinnuferða/Landsýnar.
Voliagmeni er tæplega 40
kílómetra sunnan við höfuð-
borgina Aþenu. Þetta er til-
tölulega lítill staður sem
stendur við fallega vík. Þar er
mikill fjöldi hótela og
veitingastaða, enda er staður-
inn byggður upp með það fyr-
ir augum að taka á móti ferða-
mönnum. Voliagmeni er því
næsta líflaust yfir vetrartím-
ann. Framan af voru Grikkir í
miklum meirihluta þeirra sem
eyddu sumarleyfinu í Voli-
agmeni en á síðustu árum
hafa erlendir ferðamenn van-
ið þangað komur sínar í stór-
auknum mæli.
Voliagmeni er vel í sveit
sett og því hentugt að fara
þaðan í ýmsar áhugaverðar
skoðunarferðir, lengri og
styttri. Meðal styttri skoðun-
arferða má nefna hálfsdags-
ferð um miðborg Aþenu, þar
sem m.a. er farið upp á Akro-
pólishæð auk þess sem Seifs-
hofið er skoðað svo og
íþróttaleikvangurinn þar sem
Ólympíuleikarnir voru endur-
vaktir eftir 1500 ára hlé. Einn-
ig má nefna kvöldferð upp í
sveit, þar sem hlustað er á
Það voru þó nokkrir íslendingar á ströndinni í Voliagmeni, þegar þessi mynd var tekin. Allir stunduðu sömu iðju,
ef iðju skal kalla; nefnilega að baka sig í sólinni...
Horft út á Saroníska flóann.
Appolóliofið í Delfí. Mikil vinna hefur verið lögð í að endur-
byggja hin sögufrægu mannvirki, sem víða er að finna í
Grikklandi, svo sem sjá má á myndinni. Meginhluti hofsins er
þó svo sannarlega kominn til ára sinna.
Anddyrið á Hótel Ar
nokkra hugmynd um
A-flokki.