Dagur - 15.03.1988, Side 9
15. mars 1988 - DAGUR - 9
fjölbreytta skemmtidagskrá
i með söngvum og horft á
gríska þjóðdansa eins og þeir
i gerast bestir. Þrátt fyrir
nálægðina við Aþenu, gætir
alls engrar mengunar í Voli-
agmeni, en það er stundum
sagt að Aþena sé mengaðasta
í borg Evrópu. Sérstaklega er
i loftmengunin þar mikil og
i hafa grísk stjórnvöld gripið til
ýmissa ráðstafana til að draga
j úr henni. Þannig er bílaum-
I ferð um borgina takmörkuð
. að verulegu leyti, t.d. er
. umferð díselbíla bönnuð. En
Aþena er heillandi borg þrátt
i fyrir þennan annmarka og
r vissulega er það mikill kostur
að geta dvalið í næsta ná-
grenni hennar en vera samt
algerlega laus við mengunina.
Af lengri skoðunarferðum
má nefna dagsferð til Delfí,
aðseturs véfréttarinnar frægu
i í hlíðum Parnassosfjalls. Þar
standa stórfenglegar rústir
Apollóhofsins, hringleikahús-
ið, Ólympíuleikvangurinn
forni og minjasafn. Á leiðinni
er farið fram hjá mörgum
sögufrægum stöðum, svo sem
Maraþon og Þebu. Segja má
að,mannkynssagan standi
i manni ljóslifandi fyrir hug-
skotssjónum þegar þessir
fornfrægu staðir eru heimsótt-
ir. Einnig gefst ferðamönnum
kostur á tveggja til þriggja
daga siglingu milli grísku eyj-
anna á Saroníska flóanum,
sem eru rómaðar fyrir fegurð.
Það má með því með sanni
segja, að Voliagmeni sé
ákjósanlegur áfangastaður í
sumarleyfinu, hvort sem ætl-
unin er að flatmaga í sólinni
ellegar kynnast menningu og
sögu Grikklands, nema
hvorutveggja sé.
monía er óneitanlega glæsilegt og gefur
afganginn, enda er Armonía hótel í
um og notar þá ávallt tækifær-
ið til að renna fyrir lax eða fara
á „skytterí“, enda maðurinn
með svæsna veiðidellu, að eig-
in sögn. Hann segist vart eiga
orð til að lýsa fegurð íslands,
„en það er ansi kalt hjá ykkur,
því get ég ekki neitað“, segir
hann og hlær.
En það er ekki bara veiðidell-
an og fegurð landsins sem heillar
Nick. Unnusta hans er nefnilega
íslensk og starfar sem flugfreyja
hjá Flugleiðum. Þau hafa verið
trúlofuð í nokkur ár. Ég spurði
Nick hvort það væru þessi tengsl
hans við landið sem gera það að
„Þróunin undanfarin ár hefur öll verið á einn veg.“
verkum að íslendingar eru á
nokkurs konar sérsamningi í
Voliagmeni. Hótelstjórinn efnir
sem sagt reglulega til veislna fyrir
hina íslensku gesti hótela sinna,
þeim að kostnaðarlausu, og legg-
ur sig fram um að enginn fari
óánægður heim til íslands.
„Mér finnst persónulega að
íslendingar séu mjög vinsamlegt
og gott fólk og sérlega heilbrigt.
Heilt yfir finnst mér - og ég er
ekki einn um þá skoðun - íslend-
ingar einhverjir bestu gestir sem
við fáum hingað til okkar. Það er
einkennandi hversu áhugasamir
þeir eru um Grikkland og gríska
menningu og það kunnum við
svo sannarlega að meta. Við
leggjum okkur því fram um að
láta þá finna að hótelið er meira
en hótel þann tíma sem þeir
dvelja hjá okkur; það er heimili
þeirra.“
- Hvenær hófst samstarf ykkar
og Samvinnuferða?
„Samstarfið hófst árið 1983,
fyrir tilstuðlan Helga Jóhanns-
sonar, framkvæmdastjóra Sam-
vinnuferða/Landsýnar og ræðis-
mannshjóna íslands í Grikk-
landi. Fyrst í stað var þetta smátt
í sniðum og Samvinnuferðir
leigðu 5-7 herbergi samtals á
hótelum okkar. Síðan hefur þetta
vaxið jafnt og þétt og núna eru
Samvinnuferðir með 10 herbergi
á Armonia og 25 á Paradise.
Samstarfið hefur gengið mjög vel
og ég hef trú á að það eigi eftir að
aukast enn frekar á næstu árum.
Aukningin milli áranna 1986 og
1987 var t.d. nálægt því að vera
100%. Það, að margir koma aftur
ár eftir ár, teljum við vera vís-
bendingu um að við séum á réttri
leiö," ,■
- Heima á íslandi er Rhodos
e.t.v. þekktasti sumarleyfisdval-
arstaður Grikklands, en Voliag-
mene er óþekktari. Er þetta
sumardvalarstaður framtíðarinn-
ar í Grikklandi?
„Ég skal segja þér söguna eins
og hún er. Ég er arkitekt að
mennt. Árið 1972 var ég fram-
kvæmdastjóri stórs byggingafyr-
irtækis í Aþenu. Þetta fyrirtæki
byggði meira en 200 stórhýsi í
Aþenu á örfáum árum og við sem
vorum þar í forsvari, gjörþekkj-
um Aþenu og nánasta umhverfi
hennar. Við vissum hver þróunin
yrði og þess vegna ákváðum við
að verja miklu fjármagni í að
byggja þrjú hótel í bæjunum
sunnan við Aþenu, eitt í Voula
og tvö í Voliagmeni. Það er dýr-
ara að byggja í Voliagmene en á
nokkrum stað öðrum í Grikk-
landi. Þetta svæði hefur löngum
verið mjög vinsælt meðal auðug-
asta fólksins á Grikklandi.
Snekkjueigendur, leikarar og
fleira fólk, sem er mjög áberandi
í þjóðlífinu hér, dvelur í Voliag-
meni yfir sumartímann. Kostirnir
eru ótvíræðir: Þú dvelur í
Aþenu, en þó ekki í Aþenu, ef
svo má að orði komast. Þú ert
sem sagt steinsnar frá höfuðborg-
inni en þó algerlega laus við
mengunina og stórborgarbrag-
inn, sem þar ræður ríkjum. Jafn-
framt er við hendina allt það sem
ferðamenn sækjast eftir á
Rhodos, þ.e. sólskinið, ströndin,
sundlaugin og fjörugt næturlíf.
Ég gæti talið upp margt fleira í
þessu sambandi, en sé ekki
ástæðu til þess. Þróunin undan-
farin ár hefur öll verið á einn veg
og ég er sannfærður um að innan
örfárra ára verður Voliagmeni
orðinn vinsælasti sumarleyfis-
dvalarstaður á Grikklandi. Það
er engin spurning,“ sagði íslands-
vinurinn Nick Valavanis að
lokum.
Þeir sem ferðast til Voliagmeni
á vegum Samvinnuferða/Land-
sýnar, geta valið á milli tveggja
hótela, Armonia og Paradise.
Hótel Armonia (sem þýðir
reyndar samvinna), er lúxus-
hótel í A-flokki en Hótel Para-
dise er hins vegar í B-flokki,
prýðishótel engu að síður.
Hótelin eru hlið við hlið, í
þægilegu göngufæri frá allri
þjónustu og steinsnar frá
ströndinni. Gestir á Hótel
Paradise geta notfært sér öll
þau þægindi sem Armonia hef-
ur upp á að bjóða - nema her-
bergin að sjálfsögðu... Sam-
nýtingarmöguleiki hótelanna
er til kominn af því að sömu
eigendur eru að báðum hótel-
unum. Framkvæmdastjóri
hótelanna heitir Nick Valavan-
is, en þau eru í eigu fjölskyldu
hans. Nick hefur umsjón með
daglegum rekstri þeirra og hef-
ur því í mörg horn að líta.
Hann gefur sér þó ávallt tíma
til að spjalla við gestina og er
sérlega vinsamlegur í viðmóti.
Nick Valavanis er annálaður
íslandsvinur og mjög hrifinn af
landi og þjóð. Hann hefur
heimsótt ísland nokkrum sinn-
Barínn á Hótel Paradise er vinsæll áningarstaður þegar líður að kvöldi. Myndin var tekin um hádegisbilið.
„Mendingar eru
bestu gestimiru
- segir Nick Valavanis hótelstjóri