Dagur - 15.03.1988, Blaðsíða 11
15. mars 1988 - DAGUR - 11
Sigurður Jónsson:
Horfellir á fslandi
Þannig gæti annáll ársins 1988
hafist, því nú berast þær fregnir
að hreindýr á Austurlandi falli úr
hor, jafnvel í stórum stíl. Þó er
aðeins nýbyrjuð Góa. Hvað
verður með vorinu?
Ekki er það nýtt fyrirbæri í
íslandssögunni að skepnur falli
úr ófeiti. Forfeður okkar hafa
hlotið ámæli fyrir, að setja skepn-
ur sínar á Guð og gaddinn. Nú
virðist Menntamálaráðuneyti
íslands setja stórar hreindýra-
hjarðir þannig á vetur og bíður
þeirra ekki annað en hordauði, ef
Aðalfundur Osta- og smjör-
sölunnar sf. var haldinn í
Reykjavík fyrir skömmu. Á
fundinn voru mættir fulltrúar
frá öllum aðildarfélögum fyrir-
tækisins.
1 skýrslu framkvæmdastjórans
Óskars H. Gunnarssonar, kom
fram að sala afurðanna hafði
gcngið mjög vel á liðnu ári. Sala
osta jókst verulega, eða um 9%
og nam 2.542 tonnum en það er
aukning um 210 tonn. Meðal-
neysla per íbúa var um 10,4 kíló.
Sala á viðbiti, þ.e. smjöri,
smjörva og létt og laggott nam í
heild um 1.556 tonnum en það er
um 260 tonnum meira magn
heldur en árið áður,
Helstu nýjungar í vörufram-
boði á sl. ári voru létt og laggott,
sem kom á markað í mars mán-
uði á sl. ári og hefur náð góðri
fótfestu á markaðinum. Létt og
laggott er framleitt hjá Mjólkur-
búi Flóamanna, skv. samningi
milli Osta- og smjörsölunnar sf.
og L.L. International.
Þá komu á markað þrjár nýjar
ostategundir þ,e, tvær tegundir af
kryddostum, Jöklaostum svo og
Mozarella ostur sem einkum er
notaður til framleiðslu á pizzum
og til matargerðar, ostar þessir
eru framleiddir hjá Mjólkursam-
lagi K.A.S.K. Hornafirði.
Þá kom einnig á markað beikon-
ostur í 100 og 250 gramma
umbúðum svo og jógúrtbúðingar
frá Mjólkursamlagi K.E.A. sem
hlutu nafnið Hnoss.
Útflutningur mjólkurvara
dróst verulega saman á árinu og
nam aðeins um 963 tonnum af
ostum sem er um 330 tonnum
minna magn heldur en árið áður.
Heildarsala Osta- og smjörsöl-
unnar sf. árið 1987 nam um 2.165
milljónum króna og hafði aukist
um 298 milljónir á árinu.
Endurgreidd umboðslaun til
mjólkursamlaganna námu um 43
milljónum króna.
Þrír menn er áttu sæti í aðal-
stjórn báðust undan endurkosn-
ingu, þeir Erlendur Einarsson
formaður, Grétar Símonarson
varaformaður og Ólafur Friðriks-
son. Erlendur Einarsson fyrrum
forstjóri Sambands fsl. sam-
vinnufélaga var einn af stofnend-
um Osta- og smjörsölunnar fyrir
30 árum og voru honum þökkuð
löng og farsæl störf á fundinum.
Fyrstu 20 árin voru hann og for-
stjóri Mjólkursamsölunnar Stef-
án Björnsson, stjórnarformenn
Osta- og smjörsölunnar sf. til
skiptis en eftir skipulagsbreyt-
ingu 1978 var Erlendur einn
stjórnarformaður þar til nú.
Grétar Símonarson var kosinn í
stjórn fyrirtækisins 1962 og hafði
eitthvað herðir að með veðráttu.
Ég hélt að þvílík meðferð á
skepnum heyrði sögunni til. Því
vekur það athygli, að á því hcrr-
ans ári 1988 viðgengst horfellir á
hreindýrum á íslandi. Og af
fregnum að dæma, virðist sumum
það eðlilegt og jafnvel sjálfsagt,
þar sem svo fátt hafi fallið síðast-
hðna vetur. En mér finnst það
ekki eðlilegt að hafa hreindýra-
hjarðir í landinu, til að láta þær
falla úr hor. Ég leyfi mér því, að
koma með aðra tillögu um skipan
þessara mála.
því verið í 27 ár í stjórn, síðustu
10 árin sem varaformaður og
voru honum einnig þökkuð vel
unnin og farsæl störf í þágu Osta-
og smjörsölunnar sf. svo og Ólafi
Friðrikssyni er átt hefur sæti í
stjórn sl. 2 ár.
í stjórn Osta- og smjörsölunn-
ar sitja nú; Ólafur Sverrisson,
formaður, Birgir Guðmundsson,
mjólkurbússtjóri, Vífill Búason,
bóndi, Þórarinn E. Sveinsson,
mjólkursamlagsstjóri og Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri.
Framkvæmdastjóri Osta- og
smjörsölunnar sf. er; Óskar H.
Gunnarsson.
í 12. tölublaði Freys 1986, er
mjög fróðlegt viðtal við Aðal-
stein Aðalsteinsson í Vaðbrekku
um hreindýrin á Austurlandi. Þar
kemur fram, að af þessum dýrum
séu ekki nokkrar minnstu nytjar.
Afurðir þeirra vegi vart á móti
veiðikostnaðinum. Hann segir
einnig, að hreindýrin séu búin að
eyða öllum þeim gróðri af öræf-
um Austurlands, sem þau sækjast
mest eftir og það sé ástæða þess,
hvað þau leita mjög til byggða.
Ég hef talað við nokkra Austfirð-
mga, sem telja að hreindýrin séu
hin argasta plága þar um sveitir.
Nýlega sáum við í sjónvarpsfrétt-
um, hvernig þau fara með
skógarreiti bænda. Mikið hefur
verið talað um vetrarbeit sauð-
fjár, að hún skemmi landið.
Hvað þá um hréindýrin, miklu
stærri og kröftugri dýr? Maður
hlýtur því að spyrja: Til hvers eru
þessar hjarðir látnar yrja upp
landið og valda stórtjóni árlega?
Þau gcfa engan arð, ekkert nema
skaða.
Hreindýrin eru aðskotadýr,
flutt inn í landið illu heillu af
skammsýnum mönnum. Þau hafa
ekki skapað sér neinn þegnrétt í
landinu, því ber að eyða þeim
sem fyrst. Ég legg því til, að
menntamálaráðuneytið ráði nú
þegar menn til að fella öll las-
burða dýr og grafa. Síðan verði á
næstu árum, unnið skipulega að
því að eyða þessum dýrum úr
landinu á mannúðlegan hátt.
Horfellir er öllum til skammar.
Sigurður Jónsson,
Garði 2, Kelduhverfí.
Röntgentæki
Óskaö er tilboða í röntgentæki fyrir Fjóröungs-
sjúkrahúsið á Akureyri.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7,
Reykjavík.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 3. maí 1988
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 SIMI 26844
Framsóknarvist
Síðasta spilakvöld í þriggja kvölda keppninni
verður að Hótel KEA í kvöld þriðjudaginn 17.
mars kl. 20.30.
Veglegir vinningar. Góð kvöldverðlaun.
Allir velkomnir.
FRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAR.
Östa- og smjörsalan:
Sala afurða gekk
vel á iiðnu árí
Til sölu eignarlóð
við Hafnarstræti 94
er snýr að Kaupvangsstræti.
Uppl. í síma 24840.
------------------------------------
Kennarar
Norðurlandi eystra takið eftir
Kjaramálafundur verður haldinn í Gagnfræða-
skóla Akureyrar, þriðjudaginn 15. mars kl. 17.00.
Fjölmenniö.
Stjórn B.K.N.E.
V___________________________________/
Lausar stöður
Við embætti bæjarfógetans á Akureyri eru lausar til
umsóknar stöður skrifstofumanna, m.a. hálfsdags-
staða í vélritun.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf óskast sendar undirrituðum.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 14. mars 1988.
Elías I. Elíasson.
■n ■ «■ Ját ■« ■
Takio eftir!
Nýkomnar gulifaliegar dömu- og herrapeysur.
Verð frá kr. 2.363.-
Dömugallabuxur með teygju í mitti.
Verð kr. 1.251.-
Barnasokkabuxur.
3 litir, stærðir 2-12. Verð kr. 310.-
1|1 EYFJÖRÐ X
JBSK Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 ^
Bændaskólinn
á Hvanneyri
óskar að ráða tvo menn til starfa, annan í fjós og
hinn í refahús á bú Bændaskólans. Búfræðimenntun
æskileg.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í
síma 93-70000 og hjá bústjóra í síma 93-71502 í
hádegi og á kvöldin.
Heimilisaðstoð
Ekkjumaður með þrjá drengi á aldrinum 6, 8 og 10
ára þarfnast heimilisaðstoðar hálfan daginn.
Starfið felst í að vera heima hjá drengjunum fyrri part
dags og að laga hádegisverð handa fjölskyldunni.
Upplýsingar á kvöldin í síma 24331.
NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ
Hverfisgötu 26 • 101 Reykjavík • Sími 22520
Starf framkvæmdastjóra
Starf framkvæmdastjóra Náttúruverndarráðs er
laust frá 1. júní nk. Laun eru skv. launakerfi opin-
berra starfsmanna. Umsóknir með ítarlegum upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf óskast sendar for-
manni Náttúruverndarráðs á skrifstofu ráðsins,
Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk.
Náttúruverndarráð.