Dagur - 08.06.1988, Qupperneq 5
Ferðaskrifstofufólkið við komuna tii Sauðárkróks.
stuðning allra þeirra aðila sem
hagsmuna gæta. Hagsmunaaðil-
arnir í bæ eins og Sauðárkróki
eru nánast allir íbúar staðarins,"
sagði Birgir. Hann sagði að eftir
þessa dvöl þá væri það verkefni
Ferðamálaráðs, ef það hefði bol-
magn til, að styrkja aðila í ferða-
þjónustu fjárhagslega og hjálpa
þeim að koma sinni vöru á
markað. „Einnig getum við bent
á ýmislegt sem heimamenn sjá
ekki, eins og t.d. það að hér
tala menn um að fara „út á Sauð-
árkrók“. f>að er fráhrindandi fyr-
ir ferðamenn, miklu frekar á að
tala um að fara „niður á Sauðár-
krók“, f>að eru svona ýmis smá-
atriði sem þarf að huga að,“ sagði
ferðamálastjóri, Birgir Porgils-
son.
Þeir Jón Gauti Jónsson frá
Áningu og Vigfús Vigfússon for-
maður Ferðamálanefndar Sauð-
árkróks voru ánægðir með heim-
sókn ferðaskrifstofufólksins þeg-
ar blaðamaður hitti þá að máli.
Þeir voru þá búnir að kveðja
hópinn á flugvellinum, en þeir
fylgdu gestunum um og veittu
þeim leiðsögn á meðan á dvölinni
stóð. Þeir voru ekki í vafa um að
heimsóknin mundi skila sér
vel, því ferðaskrifstofufólkið
kvaddi Skagafjörðinn himinsælt
eftir dagsferðina og vel upplýst
um þá möguleika sem Skaga-
fjörður hefur upp á að bjóða í
ferðaþjónustu. „Þetta er ein
besta kynning sem Sauðárkrókur
og Skagafjörður hafa fengið í
ferðamálum. Við eigum ekki von
á að hún skili sér svo mikið í
sumar, en það er alveg öruggt að
hún á eftir að gera það fyrir
sumarið 1989. Boðsferðin núna
var svona fyrsta skref í að kynna
næsta sumar,“ sögðu þeir Jón
Gauti og Vigfús. bjb
Svanhildur Diego frá Kynnisferðum ferðaskrifstofanna.
Happdrætti Krabbameinsfélagsins:
Verulegur munur á
skilum eftir byggðalögum
Aðalvinningar í vorhappdrætti
Krabbameinsfélagsins í ár eru
Saab 9000 Turbo, tveir Honda
Civic GL og þrír bílar að eigin
vali fyrir 500 þúsund krónur
hver. Auk þess eru 100 vöru-
vinningar að eigin vali, hver að
verðmæti 50 þúsund krónur.
Heildarverðmæti vinninga er á
tíundu milljón króna. Að
vanda verður dregið 17. júní.
Þeir sem verða 23ja ára á þessu
ári fengu nú í fyrsta sinn senda
heim happdrættismiða frá
Krabbameinsfélaginu en þeir
sem komnir eru yfir sjötugt féllu
af útsendingarlista. Er þeim sér-
staklega þakkaður stuðningur við
happdrættið fyrr og síðar.
Fylgst er með því nú eins og í
fyrra hvernig greiðslur berast frá
einstökum byggðarlögum og
landshlutum. í hausthappdrætti
1987 komu hlutfallslega flestar
greiðslur, fyrir meira en 70%
heimsendra miða, frá póstnúmer-
um 523 og 524, Finnbogastöðum
og Norðurfirði í Strandasýslu. Af
þéttbýlisstöðum fóru þrír yfir
helmings skil: Reyðarfjörður
57%, Eyrarbakki 55% og Vík í
Mýrdal 51%. Þeir kaupstaðir
sem urðu hæstir voru Eskifjörður
og Egilsstaðir, báðir með 45%
skil, og Selfoss með 44%.
Á Akureyri sendu 36%
greiðslu fyrir heimsenda miða en
útkoman á Norðurlandi eystra
var að öðru leyti sem hér segir,
miðað við póstnúmer: Akureyri
dreifbýli (601) 36%, Grenivík
29%, Grímsey 50%, Dalvík
30%, Ólafsfjörður 34%, Hrísey
49%, Húsavík 40%, Húsavík
dreifbýli (641) 44%, Fosshóll
53%, Laugar 56%, Reykjahlíð
43%, Kópasker 38%, Kópasker
dreifbýli (671) 40%, Raufarhöfn
44%, Þórshöfn 33% og Þórshöfn
dreifbýli (681) 26%.
í heild kom Suðurland best út,
með 42% heimsendra miða
greidda, næst var Austurland
með 41%, þá Vesturland og
Norðurland vestra með 39%, en
Norðurland eystra 37%. Með-
alskil yfir allt landið voru 36%.
Krabbameinssamtökin eru með
margt í takinu og starfsemi þeirra
hefur farið sívaxandi. Stuðningur
við Happdrætti Krabbameinsfé-
lagsins er handhæg leið fyrir þá
sem vilja efla samtökin til dáða.
(Fréttatilkynning).
S. juhi 1988 - DAGUR - á
AKUREYRARBÆR
ÖLDRUNARÞJÓNUSTA
Dvalarheimilið Hlíð auglýsir
Ný símanúmer
Dagvistun.................. 27939
Deildarstjóri, alm. deild ... 27935
Eldhús..................... 27936
Forstööumaöur.............. 27931
Heimilisfólk............... 27937
Hjúkrunarforstjóri........ 27932
Sjúkradeild.............. 27934
Starfsfólk............... 27938
Umsjónarmaður............ 27933
Upplýsingar.............. 27930
(Verður tengt síðar)
Vinsamlegast færið nýju
símanúmerin inn í símaskrána.
Karlmannaföt, stakir jakkar
(einhnepptir og tvíhnepptir)
/' glæsilegu úrvali.
Föt og jakkar í Soft sniði
fyrir þá yngri. Ný sending væntanleg í vikunni.
yorurrvaðjaka uppfrakkajog stakka
glæsileguIúryaliIfráiWalmeline
valmeline
Einnig^kyrturjfrálColdress (stutt
goLdress
ogllangermajlBolilogpeysuskyrtur
fra RobertöiCarlöj
. emmg i,ýfi»z
stærðum))
V<MV. Cfití
Klæðskeraþjónusta
Verslið hjá fagmanni
ATH. Verslunin er opin á laugardögum frá kl. 10-12.
errgbudin =p
LU
Hafnarstrati 92 (Bautahús suðurendí), simi 26708.