Dagur - 20.07.1988, Blaðsíða 1

Dagur - 20.07.1988, Blaðsíða 1
Ólafsfjörður: Lítið að gera í frystihúsunum Vinna í hraðfrystihúsunum í Olafsfirði hefur verið með minna móti í sumar og er ástæðan hráefnisskortur. Fast starfsfólk húsanna hefur haft stöðuga vinnu í sumar en skólafólk hefur aftur þurft að vera heima dag og dag. Að sögn Svavars B. Magnús- sonar framkvæmdastjóra Hrað- frystihúss Magnúsar Gamalíels- sonar hf. berst nú mun minni afli að landi en undanfarin ár. „Þetta hefur oft verið besti tíminn og mesta hráefnið komið á land ein- mitt á þessum árstíma." Vinna í rækjuvinnslunni er í Verðkönnun Verðlagsráðs: Hærra verð Verðlagsstofnun gerði fyrir skömmu verðkönnun í hátt á annað hundrað matvöru- verslunum um land allt. Var verðið kannað á rúmlega 400 vörutegundum, bæði mat- og drykkjarvorum og hreinlætis- og snyrtivöruin. Könnunin leiddi í ljós að verðlag í matvöruverslunum á landsbyggðinni er 4,3% hærra en á höfuðborgarsvæðinu. Þegar gerður er samanburður á verðlagi í einstökum lands- hlutum við höfuðborgarsvæð- ið kemur í ljós að mestur er munurinn á Vestfjörðum eða 7% og næst mestur á Austur- landi eða 6%. Á Norðurlandi vestra var verðlag 4,6% hærra en á höfuðborgarsvæðinu en 3,4% hærra á Norðurlandi eystra. Nánar er fjallað um könnunina á bls. 2. -KK fullum gangi en nú leggja tveir rækjubátar upp afla hjá fyrirtæk- inu en voru þrír áður. „Það er ekki hægt að segja að nóg sé af rækjunni en þó hefur vinna hald- ist nokkuð stöðug,“ sagði Svavar einnig. Að sögn Þorsteins Ásgeirsson- ar framkvæmdastjóra Hraðfrysti- húss Ólafsfjarðar hf., er ástandið svipað hjá honum og minna verið að gera að undanförnu en á sama tíma í fyrra. „Það duttu að vísu úr dagar í fyrra á meðan Ólafur bekkur var í breytingu en á þess- um tíma í fyrra var nóg að gera. Þetta hefur bitnað mest á skóla- krökkunum en fastráðna starfs- fólkið hefur haft stöðuga vinnu og þá verið í saltfiski á milli,“ sagði Þorsteinn. Ólafur bekkur landaði í gær rúmum 80 tonnum af þorski og fá bæði húsin afla til vinnslu úr honum. í næstu viku koma síðan Sólbergið og Ólafur bekkur inn til löndunar og þvf verður líklega næg vinna í báðum húsunum fram undir aðra helgi. -KK Ábúðarmikill indfáni! Mývatnssveit: Óhagstætt tíðarfar Þurrkar hafa leikiö tún í Mývatnssveit mjög illa í sumar. Margir bændur hafa brugðiö á það ráð að slá tún sín þar sem stórir flákar voru að brenna af þurrki og á köflum varð vart við mikinn roða- maur. I byrjun síðustu viku rigndi lítillega í Mývatnssveit, nánast eina rigningin sem komið hefur þar um slóðir síð- an í maí. „Ég held að okkur lítist illa á heyfeng í sumar ef ekki breytist tíðarfarið. Menn hafa þurft að slá vegna þessa að jörðin er byrjuð að visna og þó að ekki sé búið að efnagreina heyin þá mætti segja mér að þetta séu ekki góð hey,“ segir Sigurður Þórisson á Græna- vatni í samtali við blaðið. Heyskapur í Mývatnssveit var góður síðastliðið sumar. Þótt tún hafi byrjað að brenna þá strax í júní brá til vætutíðar í byrjun júlí sem gerði að verkum að túnin náðu sér í sprettu. Þetta ætlar hins vegar ekki að gerast í ár. Verst eru tún leikin í Vogum, á Grænavatni og Baldursheimi. Segjast menn í Mývatnssveit ekki hafa kynnst svo miklum túna- skemmdum sem nú. JÓH „Vænti þess að við förum að finna fyrir botninunT - sagði forsætisráðherra í gær í upphafi heimsóknar til Norðurlands eystra Þorsteinn Páisson forsætisráð- ingsgreinunum og þá m.a. sjá herra kom til Akureyrar í gær. hvaða leiðir eru færar út úr þeim Þorstcinn ætlar að kynna sér vanda sem við blasir. „Það er ástandið í atvinnufyrirtækjum kjördæminu og þá sérstaklega hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi, eins og hann hefur nýlega gert á Vestfjörðum og í Vest- mannaeyjum. Tilgangurinn með þessum heimsóknum er að sögn Þorsteins að meta stöðu mála hjá útflutn- ágætt að hafa meðaltalstölurnar allar á skrifborðinu en sjón er sögu ríkari og viðræður við for- ystumenn fyrirtækja gefa betri mynd af ástandinu,“ sagði Þor- steinn við komuna til Akureyrar. Forráðamönnum útflutningsfyr- irtækja hefur að undanförnu orð- ið tíðrætt um aðgerðaleysi ríkis- Þórshöfn: Skortur á faglærðu starfs- fólki við heilsugæslu Þórshafnarbúa mun vanta lækni, hjúkrunarfræðing, Ijós- móður og tannlækni þegar líð- ur fram á haustið. Fyrirsjáan- legur er mikill skortur á fag- lærðu starfsfólki við heilsu- gæslu, en það fólk sem sinnt hefur þessum störfum hingað til er ýmist á förum, ellegar hefur ekki starfað áður í þorp- inu. Sigurður Gunnarsson sem ver- ið hefur læknir á Þórshöfn í um það bil ár er á förum í haust og enn sem komið er hefur ekki ver- ið gengið frá ráðningu læknis í hans stað. Þá missa þeir Þórs- hafnarbúar einnig hjúkrunar- fræðing sinn og ljósmóður sem sameinuðust í einni og sömu kon- unni, Huldu Bjarnadóttur, en hún er að flytja úr plássinu. Tannlæknir hefur ekki haft aðstöðu á Þórshöfn áður, en þeg- ar ný heilsugæslustöð verður tek- in í notkun um næstu áramót er gert ráð fyrir að settur verið upp búnaður fyrir einn slíkan. Daníel Árnason sveitarstjóri sagði að enn væri ekki búið að festa kaup á tannlæknabúnaði, en það yrði gert hið fyrsta. Reiknaði hann með að búnaðurinn myndi kosta um tvær milljónir króna. Heilsugæslustöðin á Þórshöfn verður tilbúin í haust og í hana flutt um áramót og sagði Daníel að aðstaða þar yrði hin ákjósan- legasta fyrir þá sem við heilsu- gæsluna vinna og vonaði hann því að vel myndi ganga að ráða starfsfólk að henni. mþþ stjórnarinnar í efnahagsmálum. Aðspurður hvort hann væri með þessum heimsóknum að viður- kenna réttmæti slíkra fullyrðinga sagði Þorsteinn að það hefði lengi legið fyrir að útflutnings- framleiðslan hefði átt í vök að verjast og ytri skilyrði sjávarút- vegsfyrirtækja sérstaklega hefðu versnað. Ríkisstjórnin hefði Þorsteinn Pálsson við koniuna til Akureyrar í gær. Mynd: gb reynt að mæta þessum áföllum eftir því sem þau hefðu dunið yfir, fyrst með aðgerðum í febrúar og síðan í mat'. „Ég vænti þess að við förum að finna fyrir botninum í þessum öldudal breyttra ytri skilyrða og getum þannig tekið lokavið- spyrnuna í að styrkja stöðu útflutningsframleiðslunnar," sagði Þorsteinn. ET Afglapar á Dalvík: Laxveiðar í Hrísatjörn Nokkrir aöilar á Dalvík hafa stofnað með sér félag um frem- ur nýstárlegar laxveiðar. Þeir hafa tekið á leigu af Dalvík- urbæ svonefnda Hrísatjörn, skammt sunnan við bæinn og hyggjast bjóða upp á laxveiðar í tjörninni. Félagið, sem nefnist Afglapar hefur sleppt rúmlega eitt hundr- að löxum í tjörnina og ætlar að gefa almenningi kost á að kaupa veiðileyfi til þessara veiða. Veiði- leyfi fást í Sæluhúsinu á Dalvík og síðan greiðir fólk fyrir hvern lax sem veiðist, en það er 600 kr. fyrir stykkið, sagði Símon Ellerts- son einn af aðstandendum Afglapa á Dalvík. kjó 71. árgangur Akureyri, miðvikudagur 20. júlí 1988 134. tölublað Ui«MíiV kafflö

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.