Dagur - 20.07.1988, Page 2
2- DAGUR -20. júlí 1988
Flotbryggja
sett upp á
Þórshöfti
Engar hafnarframkvæmdir
verða við höfnina á Þórshöfn í
sumar. Enda hafa þær verið
töluvert miklar á undanförnum
árum.
„Við höfum komið okkur upp
þokkalegri viðlegu aðstöðu, það
er búið að dýpka höfnina og í
sumar komum við nokkru lagi á
smábátahöfnina þegar við settum
upp flotbryggju,“ sagði Daníel
Árnason sveitarstjóri á Pórshöfn.
Flotbryggjan var sett upp fyrr í
sumar og kostaði um tvær millj-
ónir króna. Daníel sagði að
bryggjan gerði sitt gagn, en þó
væri hún ekki í skjóli fyrir öllum
áttum og kippa þyrfti því í lag.
Á næstunni verið farið að
ganga frá rafmagnsmálum á hafn-
arsvæðinu og verða þá m.a. sett
upp ný innsiglingarmerki. Kostn-
aður við það verður eitthvað á
aðra milljón að sögn Daníels.
mþþ
Erlent verkafólk
hjá Einingu:
Ekkiþurft
sérstakt
eftirlit
Mikið var rætt um kaup og
kjör erlends verkafólks á Is-
landi fyrir nokkrum vikum.
Sævar Frímannsson hjá Verka-
lýðsfélaginu Einingu á Akur-
eyri var inntur eftir því hvort
eitthvað hefði verið um kvart-
anir erlends verkafólks á fé-
lagssvæði Einingar.
„Það hefur ekki borið á nein-
um kvörtunum frá þessu fólki
sem hefur verið að störfum hér,“
sagði hann. „Það er að vísu ekki
mjög margt erlent verkafólk á
félagssvæðinu en nokkrir eru þó
á Grenivík og einnig í Grímsey."
Að sögn Sævars hefur ekki
þurft að hafa sérstakt eftirlit með
málefnum verkafólksins því yfir-
leitt væru þetta ábyggilegir
atvinnurekendur sem það væri í
vinnu hjá. „Það væri fljótt að
fréttast ef verið væri að hlunnfara
þetta fólk. Ég tala ekki um eftir
þessar umræður sem urðu út af
thailensku stúlkunum. Ætli fólk
hefði ekki látið í sér heyra ef um
eitthvað slíkt væri að ræða hér.“
„Við förum auðvitað á stúfana
um leið og einhver sem hefur ver-
ið hlunnfarinn gefur sig fram. Ég
hef samt ekki trú á því að það
gerist hér á okkar svæði,“ sagði
Sævar. KR
Starfsfólk í Gljúfrabúi. Frá vinstri: Stefán Jónsson, Guðrún Sigurðardóttir og Sigurlaug útibússtjóri. Með
henni er dóttirin Eygló Dögg Gunnarsdóttir.
„Við erum náttúrlega ekki í
alfaraleið því er ekki mikið um
að ferðamenn komi hingað upp-
eftir. Laxveiðimenn koma nokk-
uð hingað að versla og svo koma
jú nokkrir til þess að skoða virkj-
unina,“ segir Sigurlaug þegar hún
lítur upp úr bensínnótunum.
Tvær stúlkur vinna við af-
greiðslu í þessari litlu verslun en
opnunartíminn er frá kl. 13 á
daginn til kl. 18. Auk þess er ver-
ið að taka upp lúgusölu fyrir
hádegi þannig að ekki þarf að
kvarta undan þjónustunni. En
Sigurlaug er ekkert óhress með
verslunarreksturinn.
„Við erum hér með þessar
nauðsynlegustu vörur, bensín,
olíur og síðan svolítið af vörum
fyrir ferða- og laxveiðimenn. Já,
þetta gengur bara ágætlega, ekk-
ert undan því að kvarta.“ JÓH
Útibú KÞ við Laxárvirkjun:
55
Finnst starfið skennntilegt
44
segir Sigurlaug Guðvarðardóttir útibússtjóri
Gljúfrabú, eitt af útibúum
Kaupfélags Þingeyinga er við
Laxárvirkjun. Þetta útibú læt-
ur ekki mikið yfir sér en þjónar
þó nokkuð stóru svæði. Næstu
matvöruverslanir eru á Laug-
um og Húsavík þannig að um
langan veg er að fara til að
kaupa matvöru. Útibússtjóri
KÞ við Laxárvirkjun er korn-
ung kona, Sigurlaug Guðvarð-
ardóttir að nafni en hún tók
við versluninni um síðustu ára-
mót, þá eftir tveggja ára starf í
henni.
„Jú, mér finnst þetta bara
skemmtilegt,“ segir Sigurlaug
þegar hún er innt eftir starfinu.
Útibúið er rösklega 30 ára
gamalt og Sigurlaug er fjórði úti-
bússtjórinn. í Gljúfrabúi er líka
verslað með bensín og olíur enda
um 20 km í næsta bensínsölustað.
Verðkönnun Verðlagsráðs:
Verðlag á landsbyggðinni 4,3%
hærra en á höfuðborgar svæðinu
Verðlagsstofnun gerði fyrir
skömmu verðkönnun á yfir 400
vörutegundum í í hátt á annað
hundrað matvöruverslunun
um land allt. Um var að ræða
bæði mat- og drykkjarvörur,
hreinlætis- og snyrtivörur og
leiddi könnunin í Ijós að verð-
lag í matvöruverslunum á
landsbyggðinni er 4,3% hærra
en á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar gerður var samanburður
á verðlagi í einstökum landshlut-
um við höfuðborgarsvæðið kom í
Ijós að mestur er munurinn á
Vestfjörðum, eða 7% og næst
mestur á Austurlandi, eða 6%. Á
Norðurlandi vestra var verðlag
4,6% hærra en á höfuðborgar-
svæðinu og 3,4% hærra á-
Norðurlandi eystra.
Ýmsir vöruflokkar voru
almennt dýrari á landsbyggðinni
en á höfuðborgarsvæðinu en
einnig voru dæmi um vöruflokka
sem voru að jafnaði dýrari á
höfuðborgarsvæðinu. Nýtt græn-
meti, öl og gosdrykkir, dósa- og
pakkavörur, rakstursvörur,
nauta- og svínakjöt og þvottaefni
eru vöruflokkar sem voru að
jafnaði ódýrari á höfuðborgar-
svæðinu en kartöflur, brauð, nýr
Akureyri:
Hæfileikakeppni í Staupinu
Staupið og Hljóðbylgjan
standa fyrir hæfileikakeppni
næstu kvöld í Staupinu á
Akureyri. Keppni hefst á
fimmtudagskvöld og verður
fram haldið á föstudagskvöld
en úrslit síðan tilkynnt á laug-
ardagskvöld.
Að sögn Birgis Torfasonar í
Staupinu eiga þátttakendur að
skrá sig í Staupinu eða á Hljóð-
bylgjunni. Æskilegt er að kepp-
endur komi með eigin hljóðfæri
en magnarar verða á staðnum. Pá
sagði hann æskilegt að keppend-
ur verði ekki fleiri en tveir
saman. Frestur til skráningar
rennur út á hádegi á morgun,
fimmtudag.
Kynnir keppninnar verður
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
en hann mun einnig skemmta
úrslitakvöldið. Á laugardags-
kvöldið verður boðið upp á
tískusýningu frá Tískuhúsinu
Essinu á Akureyri. Hljóðbylgjan
mun senda beint út frá úrslita-
kvöldinu en keppni hefst kl. 22
þessi kvöld. Húsið verður opnað
kl. 18 að vanda.
fiskur og egg eru vöruflokkar
sem voru að jafnaði ódýrari á
landsbyggðinni.
Af þeim vöruflokkum sem
voru að jafnaði ódýrari á höfuð-
borgarsvæðinu, var mestur verð-
munurinn á nýju grænmeti og
raksturvörum, eða allt að 30%.
Af þeim vöruflokkum sem að
jafnaði voru ódýrari á lands-
byggðinni, var munurinn mestur
á kartöflum, 19% og 9% á
brauði.
Niðurstöður könnunarinnar
koma í meginatriðum heim og
saman við niðurstöður sambæri-
legra kannana sem Verðlags-
stofnun hefur áður gert. Minni og
hægari velta ásamt takmarkaðri
samkeppni og lakari fjárhags-
stöðu verslana á landsbyggðinni
hefur leitt til hærri álagningar
þar. Hærri álagning og flutnings-
kostnaður eru meginskýring-
arnar á hærra verðlagi á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæð-
inu.
Það kann þó að koma ein-
hverjum á óvart að verðlag á
landsbyggðinni skuli ekki vera
hlutfallslega hærra en raun ber
vitni. Skýringin á því að svo er
ekki felst m.a. í því að mikilvægir
vöruflokkar eins og flestar land-
búnaðarvörur eru á svipuðu verði
um allt land en auk þess eru
nokkrar vörutegundir ódýrari á
landsbyggðinni eins og að framan
greinir. Loks skal bent á að áhrif
flutningskostnaðar á verðlag utan
höfuðborgarsvæðisins hafa
minnkað á síðustu árum, þar sem
að ýmsir framleiðendur og inn-
flytjendur eru með saina heild-
söluverð um land allt. -KK
Eldri bæjar-
búum boðið
í Sjallann
í dag gefst eldri bæjarbúum á
Akureyri kærkomið tækifæri
til þess að lyfta sér upp, því
þeim er boðið í Sjallann í
tilefni 25 ára afmælis staðarins.
Hátíðin í dag hefst kl. 16.00 og
stendur til kl. 19.00. Að sjálf-
sögðu mun Hljómsveit Ingimars
Eydal leika fyrir dansi, svo það
verður vel þess virði fyrir eldri
Akureyringa að bregða undir sig
dansfætinum í dag. VG