Dagur - 20.07.1988, Side 6
6 - DAGUR - 20. júlí 1988
20. júlí 1988 - DAGUR - 11
:<K
Vestnorden:
Fjörðurinn var blóðlitaður og
menn og hvalir veltust um í fjöru-
borðinu.
Ferðakaupstefim í Fœreyjum í haust
Þjóðaríþrótt Færeyinga
- grindardráp í Leynum
Sífellt nýir möguleikar
Jóhan Isholm er framkvæmda-
stjóri Vestnorden kaupstefnunn-
ar í Færeyjum, en annars starfar
hann sem fréttamaður hjá fær-
eyska útvarpinu. Við spurðum
Jóhan nánar út í kaupstefnuna.
„Ferðakaupstefnan verður
haldin hér í Pórshöfn 16.-18.
sept. Ég áætla að hingað komi
um 100 kaupendur frá 16-18
löndum, m.a. Ástralíu, Japan og
Bandaríkjunum, til að sjá upp á
hvað Vestnorden löndin geta
boðið.
Kaupstefnan verður haldin í
íþróttahöllinni hér og móttöku-
veisla verður í Norðurlandahús-
inu. Seljendur verða um 80 frá
löndunum þrem. Helsti kostur-
inn við kaupstefnurnar er sam-
vinnan því að hvert landið um sig
er of lítið til að standa að þeim,
eitt og sér. Sem dæmi um árangur
af kaupstefnunni á Grænlandi get
ég nefnt að hún hefur orðið
Smyril Line til framdráttar.
Þeir sem koma lengst að koma
tveim dögum á undan hinum og
verður farið með þá í skoðunar-
ferðir um eyjarnar. Þeir fá þar
með möguleika á að kynnast
landi og þjóð sem best. Við von-
umst til að þessi kaupstefna eigi
enn frekar eftir að efla samstarfið
á milli landanna þriggja, því með
samstarfinu skapast sífellt nýir
möguleikar."
Reynir Adólfsson hefur ver-
ið starfsmaður nefndarinnar á ís-
landi og að lokum spyrjuin við
hann um árangur þessa starfs.
„Tvímælalaust hefur þetta
samstarf skilað árangri. Ferða-
þjónustuaðilar hafa kynnst hver
öðrum betur og skilningur á þörf-
um hvers og eins hefur aukist.
íslenskar ferðaskrifstofur eru nú
farnar að bjóða fjölbreyttari
ferðir til Grænlands og Færeyja
og samstarf t.d. í flugmálum hef-
ur stóraukist. Einnig hafa þessar
kaupstefnur orðið til þess að aðil-
ar víðs vegar um landið hafa get-
að kynnt þjónustu sína betur en
nokkru sinni fyrr.“
Ákveðið að halda áfram
Það var síðan í byrjun árs 1986
að samstarf hófst formlega milli
landanna fyrir tilstuðlan nefndar-
innar. Reynir Adólfsson og Já-
kup Veyhe, ferðamálastjóri Fær-
eyja, heimsóttu Grænland og
sátu fund ferðamálamanna þar.
Nefndin ákvað að standa fyrir
ferðakaupstefnu fyrir allt Vest-
norden svæðið. Á þann hátt var
hægt að gefa öllum sem þess ósk-
uðu, tækifæri á að koma vöru
sinni og þjónustu á framfæri við
þá aðila erlenda sem seldu ferða-
mönnum ferðir á þetta svæði.
Ferðakaupstefnan varð síðan
að veruleika í september 1986 í
Reykjavík. Hana sóttu um 200
þannig að stofninn nær hámarki á
110 ára fresti, síðast árið 1980.
Grindarformaður er sá kallað-
ur sem sér um skráningu allra
grindveiða. Hann sér einnig um
að ákveða, hvar grindin er rekin
að landi, þegar fréttist af henni
við eyjarnar. Sú ákvörðun ræðs
af fjölda dýra og eins því hvað
langt er síðan grind kom á hvaða
stað. Eins og sjá má er þetta
ábyrgðarmikið starf og að sama
skapi eftirsótt. Kosningar á
danska þingið eru ekki neitt neitt
í augum Færeyinga á móti kosn-
ingum grindarformanns. Stund-
um eru margir tugir manna i fram-
boði og kosningaslagurinn í
algleymingi.
Grindina nýta Færeyingar að
öllu leyti sjálfir, eins og áður kom
fram. I minni byggðum er veiddri
grind skipt niður á öll heimili á
staðnum, þannig að allir fái sinn
skammt. I Þórshöfn, fjölmenn-
asta stað Færeyja, gilda eilítið
aðrar úthlutunarreglur. Þar fá
þeir sem standa í veiðunum sinn
skammt og eins geta allir sem
vilja, látið skrá sig niður og fá
þannig sinn skerf af kjötinu.
Jæja, aftur að grindinni í Leyn-
um, sem var eins og færeysku
blöðin sögðu daginn eftir, bara
lítil grind, ekki nema 70 dýr. Þeg-
ar við komum á staðinn var sjór-
inn litaður blóði, út eftir öllum
firði, og dýr og menn veltust um í
sjónum. Greinilega ekkert kyn-
slóðabil, því sumir þeirra sem við
veiðarnar voru, gátu ekki talist
háir í loftinu. Grind er drepin
bæði fljótt og vel, ein hnífsstunga
í öndunaropið og síðan rist á -
búið. Sem dæmi má nefna að 154
dýr voru drepin á 9 mínútum í
Þórshöfn fyrst í júní. Eftir að
búið var að slátra öllum dýrun-
um, voru þau dregin að landi í
Kvívík. Þar var allt blóð skolað
af þeim, þau rannsökuð vel og
allar upplýsingar um veiðina
skráðar.
Ferðamálanefnd Vestnorden var stofnuð í
júnímánuði 1985, en Vestnorden eru samtök
íslendinga, Færeyinga og Grænlendinga.
Markmið hennar er að efla samstarf landanna
þriggja í ferðamálum og þá sérstaklega í
markaðs- og sölumálum. Til að stjórna þessu
verkefni voru valdir fulltrúar frá öllum
löndunum, sem höfðu reynslu af ferðamálum.
Formaður nefndarinnar er Jónas Hallgrímsson
framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, en hann er
jafnframt fulltrúi íslands í Vestnorden
nefndinni.
Hvað var það síðasta sem
mér datt í hug, þar sem ég
stóð og var að borga kók-
ið mitt í Kollafírði í Fær-
eyjum fyrir skömmu? Jú,
hvalfriðunarsamtök, enda
engin tengsl þar á milli.
En allt í einu var pikkað í
öxlina á mér og spurt lágri
röddu: „Ertu nokkuð í
Greenpeace?“
Ég sneri mér snöggt við og
svaraði með annarri spurningu:
„Nei, af hverju spyrðu?“
Spyrjandinn, sem jafnframt
var fararstjórinn okkar, sagði
leyndardómsfullur á svip: „Þeir
eru með grind í Leynum.“ Ég og
annar ferðafélagi minn, sem á
hlýddi, urðum óðar og uppvægar
og báðum um að fá að sjá þennan
atburð. Þar sem mottó fararstjór-
ans var; „Just name it baby, and
Fll fix it.“, fór hann með okkur á
vettvang, eftir að hafa fullvissað
sig um að enginn Greenpeace-
eða Sea Shepherdmaður væri
með í ferðinni.
Grindhvaladráp hefur frá
fornu fari verið nefnt þjóðar-
íþrótt Færeyinga. Grindin er lítill
tannhvalur og er ekki í útrýming-
arhættu, enda skipta hvalfriðun-
arsamtök sér ekki af veiðunum.
E.t.v. ræður þar mestu að Færey-
ingar nýta sjálfir, allt sem þeir
veiða af grind.
Færeyingar hafa haft gott eftir-
lit með grindveiðunum í gegnum
tíðina og til eru skrár yfir allar
grindveiðar frá 1709, en eldri
gögn eyðilögðust í bruna. Stofn-
stærðin fylgir ákveðnu lögmáli,
Það þarf að skola allt blóð af dýrunum og þessi er kominn með margra ára
starfsreynslu.
í samþykktum fyrir ferðamála-
nefndina segir m.a.: Ástæðan
fyrir samvinnu íslands, Færeyja
og Grænlands á sviði ferðamála
liggur í sameiginlegum möguleik-
um til að byggja ferðamannaiðn-
aðinn upp á umhverfi sem hinn
almenni ferðamaður sér hvergi
annars staðar í heiminum. Til
þess að það megi takast sem best
er nauðsynlegt að gera íbúa land-
anna meðvitaða um gildi náttúr-
unnar og sjá til þess að hún verði
varðveitt handa komandi kyn-
slóðum.
Sérstök áhersla er lögð á eftir-
farandi:
Að samræma markaðsfærslu á
öllu Vestnorden svæðinu.
Að stuðla að því að ferða-
mynstrið á svæðinu verði þannig
uppbyggt að betri möguleikar
gefist á að ferðast á milli land-
anna.
Að stuðla að því að ferða-
mannastraumurinn til landanna
aukist.
Að koma á samvinnu á milli
landanna og ferðamálasamtaka á
svæðinu, þannig að hægt sé að
stjórna ferðamannastraumnum
að og frá löndunum.
Að halda sameiginlegar ferða-
kaupstefnur þeirra sem eru í
ferðamannaiðnaði í löndunum
þremur.
Jákup Veyhe, ferðamálastjóri Færeyja, og Jóhan Isholm, framkvæmda'
stjóri Vestnorden kaupstefnunnar.
Góðir vegir, handrið þar sem þurfa þykir og engar einnota umbúðir meðfram þjóðveginum. E.t.v. gætu íslendingar
lært af Færeyingum, hvernig á að ganga um landið.
Myndir og texti: -ám.
manns, kaupendur og seljendur.
Jákvæð reynsla af kaupstefnunni
varð til þess að nefndin ákvað að
halda ferðakaupstefnur í öllum
löndunum þremur. Sl. ár var
haldin ráðstefna í Nuuk á Græn-
landi og í haust verður haldin
kaupstefna í Færeyjum.
En hvað hefur þetta samstarf
haft að segja? Fyrst fengum við
álit Jónasar Hallgrímssonar á
Seyðisfirði, umboðsmanns Smyr-
il Line:
Engar samgöngur -
engin viðskipti
„Það segir sig sjálft að ef engar
samgöngur eru á milli landa, þá
er ekki heldur um nein viðskipti
að ræða. Áætlunarferðir á milli
íslands og Færeyja hófust fyrir
rúmum 13 árum og hafa gengið
vel. Norröna sem nú siglir á milli
er 8000 tonna skip og getur flutt
allt að 1050 farþega og 250 bíla.
Hún siglir 13-14 ferðir á milli á
Frá Hótel Eiði er fallegt útsýni, en þar munu þó nokkrir gestir ferðakaupstefnunnar dvelja.
ar hafa verið haldnar? Jákup
Veyhe, ferðamálastjóri Færeyja
svarar þessu:
„Árangurinn af kaupstefnunni
í Reykjavík er þegar að koma í
ljós. Svona kaupstefnur eru dálít-
inn tíma að skila sér, því að allur
ferðamálabransinn byggist á
langtímaáætlunum. Eins og mál
standa núna er nokkuð um að
ferðamenn kaupi ferðir til
tveggja landanna, því eigi að
ferðast til þeirra allra fer allt of
mikill tími í ferðir."
- En sérðu árangur af starfi
Ferðamálaráðs Færeyja?
„Já, við störfum í tengslum við
danska ferðamálaráðið og Vest-
norden. Það hafa orðið miklar
breytingar á ferðamáta þessi 3 ár
sem við höfum starfað. Smyril
Line siglir fleiri ferðir, við erum
komin með færeyskt flugfélag og
síðan fljúga Flugleiðir hingað og
áfram til Glasgow og Bergen.
Hingað komu u.þ.b. 30.000
ferðamenn á síðasta ári og er það
um 12% aukning á milli ára.“
hverju sumri, fer fyrstu ferðina í
byrjun júní og þá síðustu í byrjun
september.
Farþegafjöldi hefur aukist
alveg gífurlega frá því að þessar
siglingar hófust árið 1975. Þá
voru þeir 1400 en sl. sumar
12600, flestir hafa þeir orðið
14000 sem hafa siglt fram og til
baka á milli Íslands og Færeyja.
Nýtingin á skipinu er mjög góð
og það er nánast fullbókað í allar
ferðir í sumar. Enda erum við vel
samkeppnisfærir, hvað verð
snertir.
Talsvert er um vöruflutninga
með skipinu, t.d. er öll olía í mal-
bik hér á landi flutt með því.
Einnig er vöruflutningaskip í för-
um á milli íslands og Færeyja,
það flytur t.d. salt og harðfisk til
íslands en steinull og laxafóður
til Færeyja."
s
Arangurinn að
koma í Ijós
- En hvað hefur komið út úr
þeim ferðakaupstefnum sem þeg-
RAVEB
Ilfll IHhIí
ORTH
ICEUkid
öíffeNUNP
Þetta blað var gefið út fyrir kaupstefnuna sem Ferðamálaráð Færeyja er hér til húsa og eins og sjá má er
haldin var á Grænlandi sl. ár. miki11 °8 fallegur gróður í kringum húsið.