Dagur - 20.07.1988, Page 16
Akureyri, miðvikudagur 20. júlí 1988
PenmiteV
Margs konar lím, pústkítti
og fleira.
ÞÓR5HAMAR HF.
Varahlutaverslun
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
Nýtt Snæfell EA:
Verður líklega
gert út sem
frystiskip
Nýtt Snæfell verður afhent
Kaupfélagi Eyfirðinga í lok
september. Allar líkur eru nú á
að skipið verði gert út sem
frystiskip en slíkt hefur aug-
Ijóslega alvarlegar afleiðingar
fyrir atvinnulíf í Hrísey þar
sem kaupfélagið rekur
umfangsmikla fiskvinnslu.
Norska skipasmíðastöðin mun
taka gamla Snæfellið upp í
kaupverðið en hún hefur þegar
selt skipið til Spánar.
Upphaflega var gert ráð fyrir
því að karfi og grálúða yrðu heil-
fryst um borð en annar afli ísað-
ur. Skipið verður búið tækjum til
fullvinnslu um borð og að sögn
Kristjáns eru nú mestar líkur á að
sú leið verði ofan á að vinna allan
afla um borð. Þessu til stuðnings
má nefna að undanfarið hafa yfir-
menn á Snæfellinu verðið í starfs-
þjálfun um borð í öðrum frysti-
skipum svo sem Sléttbak.
„Þetta er einfaldiega spurning
um það hvort við höldum þessu
skipi eða ekki og þetta er kannski
eina leiðin til að tryggja það,“
sagði Kristján Ólafsson sjávarút-
vegsfulltrúi KEA.
Kristján sagði að vissulega væri
það ekki glæsileg staða að vera
með stóra fiskvinnslustöð í Hrís-
ey hráefnislausa, en hún hefði
bara ekki efni á að greiða það
verð fyrir hráefnið sem þyrfti til
að skipið gæti borið sig. Verið er
að kanna möguleika til að útvega
fiskvinnslunni í Hrísey hráefni
eftir öðrum leiðum.
„Það getur líka vel verið að við
þurfum ekkert á þessum fiski að
halda til vinnslu í landi því það
verði bara búið að loka henni. Ef
það verða ekki gerðar einhverjar
ráðstafanir í þessu þjóðfélagi
fljótlega þá verður þessu bara
lokað. Þetta skilja allir nema þeir
sem stjórna landinu," sagði
Kristján. ET
Frá Egilsstöðum. Fyrir miðri mynd er Egilsstaðakirkja og í baksýn er Fellabær handan Lagarfljótsins. Mynd: et
Sláturhús KNÞ á Kópaskeri:
Hlutafélag stofnaö
um reksturinn
- „nauðvörn bænda“ segir Haildór Sigurðsson formaður
undirbúningsstjórnar
í undirbúningi er stofnun
hlutafélags um kaup og rekstur
á sláturhúsi Kaupfélags Norð-
ur-Þingeyinga á Kópaskeri.
Undirbúningsstjórn hefur ver-
ið skipuð og vinnur hún nú að
söfnun hlutaljár sem stefnt er
að að verði ekki undir 30 millj-
ónum. Gert er ráð fyrir að
kaupfélagið og bændur á fé-
lagssvæðinu eigi þriðjung hvor
aðili en sveitarfélög, kaup-
félög og önnur fyrirtæki
afganginn. Stofnfundur hins
nýja félags verður haldinn eigi
síðar en 1. september.
Rekstur sláturhúss hefur verið
um þriðjungur af starfsemi kaup-
félagsins og að sögn Eysteins Sig-
urðssonar kaupfélagsstjóra eini
fasti punkturinn. Nú er hins veg-
ar svo komið að félagið ræður
ekki lengur við reksturinn vegna
þeirra aðstæðna sem honum eru
búnar.
Hugmyndin um stofnun hluta-
félags hefur verið í umræðunni
nokkuð lengi og nýlega var svo
sett á fót undirbúningsstjórn.
Beiðnir um hlutafjárframlög hafa
verið sendar bændum á félags-
svæði Kaupfélags Norður-Þing-
Kaupleiguíbúðir:
Umsóknir afgreiddar
í byrjun ágúst
- 40% umsókna af Norður- og Austurlandi
Frestur til að sækja um kaup-
leiguíbúðir rann út fyrir
nokkru og eins og flestir
muna var gífurleg ásókn í
þær. Alls bárust umsóknir
um 470 íbúðir og af þeim
voru um 40% frá Norður- og
Austurlandi. Flestar bárust
frá Austurlandi, eða um 102
íbúðir, 46 frá Norðurlandi
vestra og 29 frá Norðurlandi
eystra. En hvenær verða
þessar umsóknir afgreiddar?
Hilmar Þórisson skrifstofu-
stjóri hjá Húsnæðisstofnun
ríkisins svarar því:
„Það má búast við því að það
verði í fyrstu vikunni í ágúst,
eða um miðjan mánuðinn. Við
erum nýbúnir að óska eftir
viðbótargögnum frá hinum og
þessum sveitarfélögum og aðil-
Kaupleiguíbúðir eru það nýjasta í húsnæðiskerfinu en víða um land er
mikill húsnæðisskortur.
um, og síðan verður unnið úr
Þá
þeim. Þá er það spurning um
hverjum verður hægt að úthluta
sem geta farið í gang með fram-
kvæmdir,“ sagði Hilmar.
Á fjárlögum voru veittar 273
milljónir í kaupleiguíbúðirnar
og kemur sú upphæð úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna. Búast
má við því að tilfærslur verði á
milli þess sjóðs og Byggingar-
sjóðs ríkisins, en úr þeim sjóði
var ekkert veitt á fjárlögum.
Sem fyrr segir má búast við því
í fyrstu vikunni af ágúst að línur
taki að skýrast með það hvað
þeir aðilar fá sem sóttu um
kaupleiguíbúðir. Eflaust bíða
margir spenntir eftir þeirri
afgreiðslu. -bjb
eyinga, hreppsfélögunum, Félagi
sláturleyfishafa, kaupféllögum á
Norðausturlandi, þ. á m. KEA,
og fleirum. Þá hefur verið leitað
eftir stuðningi Byggðastofnunar
og Framleiðnisjóðs en Eysteinn
sagðist ekki gera ráð fyrir þátt-
töku þeirra.
Bændur hafa tekið mjög vel í
hugmyndina og eru menn von-
góðir um að þeir muni leggja
fram allt að 10 milljónir af a.m.k.
30 milljónum sem ætlunin er að
safna. Hlutaféð verður að mestu
eða öllu leyti rekstrarfé enda er
hlutafjársöfnunin eina færa leiðin
til að afla þess. Kaupverð slátur-
hússins er gert ráð fyrir að verði
80-90 milljónir.
„Ef ekkert verður að gert mun
þetta sliga rekstur kaupfélagsins.
Það má því segja að hér sé um að
ræða nauðvörn bænda,“ sagði
Halldór Sigurðsson formaður
undirbúningsstjórnarinnar. ET
Sauðárkrókur:
17 punda lax
veiddur í
fjörunni!
Mikil veiði hefur verið að
undanförnu í Sauöárkróks-
fjöru og við framhlaup Göngu-
skarðsár hafa veiðst nokkrir
stórir laxar. Sl. sunnudags-
kvöld veiddust 3 stórir við
framhlaupið og var sá stærsti
hvorki meira né minna en 17
pund.
Skarphéðinn Ásbjörnsson
heitir sá sem krækti í þann stóra,
en auk hans veiddi hann 10
punda lax sama kvöld. Skarphéð-
inn var búinn glíma við „gollann“
í um hálftíma þegar hann náðist á
land og var búinn að eltast við
hann langar leiðir. Láxinn tók á
túbu hjá Skarphéðni. Fjölda
manns bar að garði þetta kvöld
við framhlaupið, sem er við hlið-
ina á strandeldisstöð Hafrúnar
hf. Komnar voru nokkrar veiði-
stangir á loft sem biðu eftir að
krækja í þann stóra, en þarna
geta menn kastað út án þess að
greiða nokkur veiðileyfi.
Sumum leiddist þófið og
stungu tveir ungir menn sér til
sunds í framhlaupið að kanna
ástandið. Sundferðin var nú ekki
löng, en var endurtekin nokkrum
sinnum við góðar undirtektir við-
staddra. Mönnunum tveim varð
ekki meint af volkinu og héldu á
braut, blautir og ánægðir! -bjb
Jón Karlsson með afla dagsins.
Pólarprjón:
Skiptafundur í þrotabúi
- forgangskröfur tæpar 6 millj. króna
Á skiptafundi í þrotabúi Pól-
arprjóns sem haldinn var fyrir
nokkru voru kröfur Blönduóss
vegna aðstöðugjalda kr.
107.489 og vegna riftunarkröfu
að fjárhæð kr. 380.538 sam-
ykktar sem almennar kröfur.
Samkvæmt kröfulýsingaskrá
voru forgangskröfur í þrotabúið
tæpar 6 milljónir króna, aðallega
laun og launatengd gjöld.
Upplýst var á fundinum að
Blönduósbær væri enn ábyrgur
gagnvart Iðnlánasjóði fyrir kr.
800 þús. vegna Garðabyggðar 2 á
Blönduósi.
Þar sem Iðnlánasjóður á alls-
herjarveð í öllum vélum, tækjum
og áhöldum í þrotabúinu, eru
góðar líkur á því að eftirstöðvar
greiðist af söluverði þessara
tækja.
Vélar og tæki í eigu þrotabús-
ins hafa verið auglýst til sýnis og
sölu en mjög lítið mun hafa bor-
ist af tilboðum í þá hluti. fh