Dagur - 30.07.1988, Síða 16
ALLIR MEÐ1SUMARLEIK
Akureyri, laugardagur 30. júlí 1988
KOda k ^Pediómy/jdíT^
™ Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Stjórn verkamannabú-
staða á Árskógsströnd:
Hefur afhent
átta íbúðir
á einu ári
Stjórn verkamannabústaða á
Árskógsströnd afhenti fyrir
skömmu þrjár nýjar íbúðir
á Hauganesi og Litla-
Árskógssandi. í ágúst í fyrra
voru afhentar þrjár íbúðir og
um síðustu áramót var flutt í
tvær íbúðir til viðbótar.
Pað hafa því á einu ári verið
afhentar 8 íbúðir í verkamanna-
bústaðakerfinu á Árskógsströnd
en um er að ræða tvö fjögurra
íbúða parhús með bílskúrum sem
staðsett eru hvort í sínu kauptún-
inu.
Um þessar mundir er verið að
hefja byggingu fjögurra kaup-
leiguíbúða á Hauganesi og Litla-
Árskógssandi og er stefnt að því
að ljúka byggingu þeirra á einu
ári. Þá er smíði tveggja einbýlis-
húsa að ljúka á stöðunum tveim-
ur og nýlega var hafin smíði á
einu til viðbótar á Litla-
Árskógssandi. -KK
Frystihúsin:
Fjölda-
uppsagnir
í haust
Rekstrarstaða frystihúsa er
slæm um þessar mundir og
óljóst hvenær úr þeim vanda
rætist. Verkafólk er orðið ugg-
andi um sinn hlut og heyrst
hafa raddir um fjöldauppsagn-
ir í haust.
„Mér sýnist að öllu óbreyttu
alveg eins mega búast við því,“
sagði Björn Snæbjörnsson
varaformaður Einingar í samtali
við Dag. Hann sagði ljóst að
búast mætti við því að fyrirtæki,
sérstaklega í fiskvinnslu, færu
að draga saman í haust og vetur.
Forustumenn verkalýðshreyfinga
eru hræddir um að fiskvinnsiu-
fólki verði þá sagt upp í stórum
stíl. Hann nefndi sem dæmi
frystihúsið í Hrísey, þar sem
kominn er frystitogari og vinnsl-
an í landi væri enn óuppgert
dæmi. Atvinnuástand fólksins
þar væri því í mikilli hættu. VG
Tvær ákveðnar í að skemmta sér hvernig sem viðrar!
Mynd: GB
Myndbandamarkaðurinn á Akureyri:
Enn fast spólur
á tombóluverði
- nokkrar leigur taka upp tvo verðflokka
Verðstríðið á myndbanda-
markaðinum á Akureyri stend-
ur enn. Nú er svo komið að
flestar leigur hafa tvo verð-
flokka, annars vegar fyrir nýtt
efni og hins vegar fyrir eldra.
Ein leiga býður þrjá verð-
flokka en til eru þær leigur sem
staðið hafa utan við verðstríðið
og bjóða spólurnar enn á 250
kr.
Nú eru 7 leigur starfandi á
Akureyri og segja þeir sem til
þekkja að svo geti farið að þeim
fækki, haldi þetta verðstríð
áfram. Eigendur myndbanda-
leiga hafa bent á að spólurnar
standi ekki undir innkaupsverði
nema hægt sé að leigja hverja
spólu í yfir 100 skipti. Hins vegar
þoli fáar spólur svo mikla
notkun. En má búast við að
leiguverð á myndbandi verði
almennt komið í 250-300 kr. inn-
an tíðar?
„Mér finnst mjög gott að hafa
það kerfi sem ég nota í dag þ.e.
250 kr. fyrir nýtt efni en 80 kr.
Kavíarverksmiðjan Sæver í Ólafsfirði:
Aðalfundi og félags-
slitum enn frestað
- skuldir fyrirtækisins um 20 milljónir króna
Aðalfundi Sævers hf. í Ólafs-
fírði sem halda átti á dögunum
hefur verið frestað fram í sept-
ember en þetta er í annað
skipti sem fundinum er
frestað. Fátt bendir til annars
en félaginu verði slitið en
skuldir þess umfram eignir eru
um 20 milljónir króna.
Um 860 tunnur af grásleppu-
hrognum voru til hjá Sæveri hf.
sem nú hafa verið seldar til
Niðursuðuverksmiðju K. Jóns-
sonar á Akureyri fyrir 19 milljón-
króna. Hins vegar
ír
er enn
nokkuð óselt af unninm vöru,
bæði hér á landi og erlendis.
Næstu dagar verða notaðir til að
selja þessar vörur en verðmæti
þeirra er um 6,5 milljónir króna.
Sigurður P. Sigmundsson
framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar og settur fram-
kvæmdastjóri Sævers hf. segir
margt óljóst hvað varðar einstaka
hluthafa, komi til gjaldþrota-
skipta fyrirtækisins. „Við ákváð-
um að vinna þetta betur út þann-
ig að betur skýrist hvað lendir á
hverjum."
Sigurður segir skuldir fyrir-
tækisins í dag um 40 milljónir
króna. í óseldum birgðum, tækj-
um og húsnæði eru bundnar um
20 milljónir króna og vantar því
annað eins til að endar nái
saman. JÓH
fyrir efni sem orðið er yfir
tveggja mánaða gamalt. Ég ætla
mér að halda þessu fyrirkomulagi
og hef ekki hug á að breyta því,“
segir Helgi Sigurðsson í Mynd-
bandahöllinni á Akureyri.
„Mér finnst óeðlilegt að mynd-
band sem er orðið eins árs gamalt
sé leigt á allt að 300 kr. eins og
tíðkast t.d. í Reykjavík. Þannig
getur þetta stríð hér orðið til að
koma á fót nýju kerfi eins og
tíðkast alls staðar erlendis. Ég
væri í það minnsta sáttur við
það,“ bætti Helgi við. JÓH
Landsmótið í golfi:
Oddur
íslands-
meistari
Oddur Jónsson GA varð ís-
landsmeistari í 3ja flokki karla
á landsmótinu í golfí í Grafar-
holti sem nú stendur yfír. Odd-
ur sigraði Hallgrím T. Ragn-
arsson, en þeir voru jafnir eftir
síðasta hringinn á 350 höggum.
Þeir þurftu því að leika um 1.
sætið og mikil spenna setti svip
sinn á síðasta hringinn og nokkuð
var um mistök. Hallgrímur hafði
yfirburðastöðu en missti hana
niður í síðustu holunni, þar sem
hann fór illa að ráði sínu. Það
nægði Oddi hins vegar til sigurs.
kjó
Helgatveðrið fyrir noröan:
Léttir til
Mesta ferðahelgi ársins er nú
gengin í garð og þúsundir hafa
lagt land undir fót. Á Norður-
landi hófst helgin á kalsaveðri,
súld og rigningu, en samkvæmt
upplýsingum Markúsar Á.
Einarssonar veðurfræðings, er
Alagningarskráin í Norðurlandsumdæmi eystra lögð fram:
Heildarálagning tæpur milljarður
Kaupfélag Eyfirðinga greiðir mest fyrirtækja, 84 milljónir
Heildargjöld einstaklinga og
fyrirtækja á Norðurlandi eystra
nema rúmlega 918 milljónum
króna, en áiagningarskráin fyr-
ir árið 1987 hefur verið lögð
fram. Um 1000 fyrirtæki
greiða tæplega 687 milljónir
króna og 18.780 einstaklingum
er gert að greiða tæplega 232
milljónir króna. Ef ekki hefði
komið til niðurfelling skatta á
launatekjur vegna skattlauss
árs hefði upphæðin hljóðað
upp á rúmleg tvo milljarða.
Kaupfélag Eyfirðinga greiðir
mest fyrirtækja, en heildargjöld
þess nema rúmlega 84 milljónum
króna.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.
er í öðru sæti yfir hæstu skatt-
greiðendur í umdæminu, en
heildargjöld þess eru rúmlega 32
milljónir. Sambandið og Slipp-
stöðin greiða tæplega 17 milljón-
ir. Kaupfélag Þingeyinga á Húsa-
vík, Kaffibrennsla Akureyrar og
Akureyrarbær greiða rúmlega 12
milljónir króna. Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, Höldur
sf. og K. Jónsson og Co hf.
greiða rúmlega 9 milljónir króna
í skatta og álögð gjöld á Fiskiðju-
samlag Húsavíkur nema um átta
og hálfri milljón. Tvö fyrirtæki á
Dalvík, Bliki hf. og Rán hf. raða
sér í 12.-13. sætið ásamt Hag-
kaupi hf. og er þessum fyrirtækj-
um gert að greiða rúmlega 6 millj-
ónir króna í skatta á árino.
Við álagningu gjalda á einstakl-
inga í Norðurlandi eystra urðu
mistök við tölvuvinnslu, þannig
að aðstöðugjaldsstofnar einstakl-
inga tvöfölduðust. Þessi mistök
verða leiðrétt svo fljótt sem unnt
er og því óþarfi að leggja fram
kæru. Talsvert mikið var að gera
á skattstofunni á Akureyri í
gærmorgun og var fóik einkum
að leita upplýsinga varðandi
álagningarseðlana, sem margir
áttu erfitt með að skilja. mþþ
i dag
von um að úr rætist þegar iíður
á helgina.
í dag er gert ráð fyrir hægri
norðanátt, skýjuðu veðri og ein-
hverri úrkomu. Á morgun ætti að
létta til með norðaustangolu eða
hægri breytilegri átt og að öllum
líkindum góðviðri með suðaust-
lægri átt á mánudaginn.
Hvað hitastig snertir verður
svalt í dag, 6-9 stiga hiti. Á morg-
un fer að hlýna og á mánudaginn
verður orðið vel hlýtt. „Þegar líð-
ur á helgina ætti fólk að ná vel úr
sér hrollinum," sagði Markús.
VG
Vegna frídags verslunar-
manna kemur næsta blað út
miðvikudaginn 3. ágúst.
Athygli auglýsenda er vakin
á því að auglýsingar í það
blað þurfa að berast fyrir kl.
11.00 á þriðjudag.