Dagur - 01.11.1988, Blaðsíða 2

Dagur - 01.11.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 1. nóvember 1988 Bíla- og vélaeigendur Tökum að okkur viðgerðir á forþjöppum. (Túrbínum) DIESEL-VERK VÉLASTILUNGAR OG VÐGERÐIR DRAUPNISGÖTU 3 • 600 AKUREYRI SÍMI (96)25700 Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem skemmst hafa í umferðaróhöppum. MMC Coit 1500 GLX árg. ’89 Subaru 1600 st. 4WD árg. ’82 Daihatsu Charade árg. ’80 Subaru 1800 st. 4WD árg. ’82 Bifreiðarnar verða til sýnis í porti BSA verkstæðisins við Laufásgötu frá kl. 10-16 miðvikudaginn 2. nóv. Tilboðunum óskast skilað fyrir kl. 17 sama dag til Svan- laugs á BSA. TRYGGING HF Sunnuhlíð 12 Sími 96 - 21844 HUSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS TÆKNIDEILD Útboð Hreppsnefnd Breiðdalshrepps óskar eftir tilboðum í byggingu þriggja íbúða raðhúss, á einni hæð, byggðu úr steinsteypu, verk nr. K.14.01, úr teikn- ingasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 282 m2. Brúttórúmmál húss 959 m3. Húsið verður byggt við götuna Hrauntún nr. 8-12, Breiðdalsvík og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðs- gögn. Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Breiðdals- hrepps, Asvegi 32, Breiðdalsvík og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá fimmtudeginum 3. nóvember 1988, gegn kr. 10.000,00 skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðjudaginn 22. nóvember 1988 kl. 11.00 og verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. F.h. hreppsnefndar, tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. J"L, HÚSNÆÐISSTOFNUN pO RÍKISINS LJ LAUGAVEGI11101 REYKJAVÍK SÍMI 696900 Blönduós: Verkamannabústaðir afhentir Fyrir skðmmu afhcnti stjórn verkamannabústaða á Blönduósi tvær íbúðir í parhúsi númer 16-18 við Mýrarbraut. Stærð íbúðanna er samtals 183 fm. Það voru húsasmiðirnir Sigurjón Olafsson og Hlynur Tryggvason sem byggðu húsið sem er vel frá gengið í alla staði. Kaupendur húsanna voru ung pör, Þórhalla Guðbjartsdóttir og Vilhjálmur Stefánsson og Sigríður Einarsdóttir og Sigurður Kristjánsson. Mynd: fh Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda: „Það hefur gustað hressilega um okkur smábátaeigendur“ - mörg stór mál til umijöllunar aðalfundar L.S. síðastliðinn fóstudag „Það verður að teljast varlega til orða tekið að segja að hressilega hafi gustað um okk- ur smábátaeigendur frá því við hittumst á aðalfundi L.S. 1987. Þegar því þingi lauk var í upp- siglingu löng og erfið barátta fyrir hlut okkar í því úthlutun- arkerfi sem fískveiðilöggjöf okkar er. Lögin sem þá voru í gildi voru að renna út og nú skyldu hinir ýmsu agnúar sniðnir af kerfínu. Sóknar- markið, sem tveimur árum áður var lausn alls vanda var skyndilega orðið aðal dragbítur- inn og skyldi stórlega þrengt og á fyrstu tillögum var ekki ann- að að sjá en að smábátarnir skyldu sniðnir af eins og þeir legðu sig.“ Þannig fórust Arthur Bogasyni, formanni Landssambands smábátaeig- enda, orð þegar hann setti aðalfund samtakanna síðastlið- inn föstudag. Fjölmörg mál voru til umræðu á þessum fundi er varða hagsmuni smá- bátaeigenda. Samdráttur í þorskveiðum Fyrirsjáanlegur er samdráttur í þorskveiðum landsmanna á næsta ári og sagði Halldór Ásgrímsson á fundinum á föstu- daginn að í sjávarútvegsráðu- neytinu séu nú til umfjöllunar tillögur Hafrannsóknar þar sem lagt er til að þessar veiðar verði dregnar saman um 15%. Útilok- að væri hins vegar að draga svo mikið saman. í ályktun frá aðalfundi L.S. Útilegukona á Auðkúluheiði: Stundar hugleiðslu í gangnamannaskála Ung kona frá Þýskalandi hefur tekið sér bólfestu í gangna- mannaskála við Kolkuhól á Hótel Húsavík: Starfsfólk endurráðið Nú er verið að vinna í því að endurráða starfsfólk á Hótel Húsavík, en öllu starfsfólki hótelsins var sagt upp í kjölfar endurskipulagningar. Stöðug fundahöld hafa verið með starfsmönnum upp á síðkastið. Pétur Snæbjörnsson sagði að málið væri í höndum stjórnar hótelsins og sagðist því ekkert geta sagt um framhaldið. Ekki náðist í Brynjar Sigtryggsson, formann stjórnarinnar, í gær en Pétur sagði að verið væri að vinna í því að endurráða starfsfólk. Hann vissi þó ekki hvort allir starfsmenn fengju endurráðningu, enda málið í höndum stjórnarinnar eins og fyrr segir. SS Auðkúluheiði og stundar þar hugleiðslu af miklum krafti. Að sögn þeirra sem séð hafa konuna er hún krúnurökuð að öðru leyti en því að hún er með síða hárlokka aftan við bæði eyr- un. Þar sem búseta konunnar er á virkjunarsvæði Blöndu hafa starfsmenn Landsvirkjunar sem dvelja á heiðinni nokkrar áhyggj- ur af útilegukonunni og líta þeir reglulega eftir henni. Að sögn heldur sú þýska því fram að hún verði að dvelja í fjallakofa í sem mestri hæð yfir sjó til að ná virki- lega góðum árangri í hugleiðsl- unni. Hún er sögð vel útbúin og hugleiðsluna mun hún stunda í svefnpoka einum góðum sem sennilega er stoppaður með íslenskum æðardún. Hún hefur þá reglu að skríða úr pokanum góða tvisvar á dag og þá tvo tíma í senn og fer hún þá í stuttar gönguferðir. Ekki er vitað hvað konan hyggst dvelja þarna lengi en hún hefur ekki enn lokið þeim samningum við æðri máttarvöld sem stefnt er að. fh kemur fram að það sé skýlaus krafa Landssambands smábáta- eigenda að verði gert ráö fyrir fastri prósentutölu í niðurskurði verði sú prósentutala lægri hjá smábátum. „Rökin fyrir því eru augljós. Enginn hluti flotans er jafn háður þorskveiðum og smá- bátar. Þeir skipta ekki yfir í aðrar fisktegundir jafn auðveldlega og önnur skip,“ segir í ályktun fund- arins. Aðalfundurinn samþykkti óbreytta veiðitilhögun á grá- sleppu og að sama reglugerð verði um veiðar á næsta ári og var á þessu ári. Einnig var samþykkt að stjórn L.S. hefji þegar vinnu að verðlagsmálum á grásleppu- hrognum, bæði upp úr sjó og full- verkuðum. „Óstöðugleiki sá sem verið hefur undanfarin ár er alls óþolandi, jafnt fyrir veiðimenn, umboðsaðila og kaupendur er- lenda sem innlendra. Leitað verði leiða til að ákveða verð og á hvern hátt það verði ákvarðað.“ Öngulveiðar undanþegnar takmörkunum Smábátaeigendur gera þá kröfu til Fiskveiðasjóðs að eigendur báta undir 10 brl. sitji við sama borð og aðrir útgerðaraðilar varðandi fyrirgreiðslu úr sjóðnum. Aðalfundur L.S. samþykkti áskorun til sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að lögum um fiskveiðistjórnun verði breytt þannig að öngulveiðar verði al- farið undanþegnar veiðitakmörk- unum. í greinargerð með áskor- uninni segir að skaðsemi slíkra veiða á lífríki sjávar sé í lágmarki og með henni fáist úrvalshráefni til innlendrar neyslu og útflutn- ings á ferskri fullunninni vöru. Mikil umræða var um öryggis- mál sjómanna á aðalfundinum. Meðal þess sem fjallað var um voru kaup á björgunarþyrlu og lagði fundurinn til að þegar verði hafist handa um undirbúning á kaupum á stórri þyrlu sem beri minnst 24 menn og sé búin afís- ingarbúnaði. Pessu til stuðnings er í ályktun fundarins vakin athygli á því atviki þegar togar- inn Þorsteinn frá Akureyri lenti í erfiðleikum síðastliðinn vetur. JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.