Dagur - 01.11.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 1. nóvember 1988
Hesthús!
Til sölu 12 hesta hús ásamt hlöðu og
kaffistofu í Fluguborg, Breiðholtshverfi.
Góð húseign.
Fasteignatorgið
Geistagötu 12, Sími: 21967 FF
Sötotjóri Bjöm Kristjánsson, heimasími: 21776
r.r. F*Ufl
Fyrir
rjúpnaveiðimanninn!
Bakpokar 3 stærðir
20 lítra, verð kr. 1.750,-
25 lítra, verð kr. 2.470,-
30 lítra, verð kr. 3.375,-
WEYKIÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
Myndarlegt skólastarf sem
verður að fá að njóta sín
- spjallað við Svavar Gestsson menntamálaráðherra
í heimsókn hans til Akureyrar
Svavar Gestsson segist m.a. vera að vinna í fræðslustjóramálinu.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Draupnisgötu 3, M-N-O, hl.
Akureyri, talinn eigandi Valgeir
A. Þórisson, föstud. 4. nóv. '88,
kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlána-
sjóður.
Hlíðarenda, Akureyri, þingl. eig-
andi Baldur Halldórsson,
föstud. 4. nóv. ’88, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Inn-
heimtumaður ríkissjóös og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Ránargötu 6, Akureyri, þingl.
eigandi Stefán Sigtryggsson,
föstud. 4. nóv. ’88, kl. 14.00.
Uppþoðsbeiðendur eru: Gunn-
ar Sólnes hrl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Þrastarlundi v/Skógarlund,
Akureyri, þingl. eigandi Pétur
Valdimarsson, föstud. 4. nóv.
'88, kl. 16.15.
Uppboðsbeiðandi er Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Grenilundi 7, Akureyri, þingl.
eigandi Tryggvi Pálsson,
föstud. 4. nóv. '88, kl. 15.45.
Uppþoðsþeiðandi er Veðdeild
Landsþanka íslands.
Hamarsstíg 30, Akureyri, þingl.
eigandi Friðný Friðriksdóttir,
föstud. 4. nóv. ’88, kl. 16.15.
Uppboðsþeiðandi er Sigurður
G. Guðjónsson hdl.
Hjallalundi 17a, Akureyri, þingl.
eigandi Björk Dúadóttir, föstud.
4. nóv. '88, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Jónas
Aðalsteinsson hrl., Veðdeild
Landsbanka íslands og Iðnað-
arbanki íslands hf.
Hrafnabjörg 5, Akureyri, þingl.
eigandi Flosi Jónsson, föstud.
4. nóv. ’88, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðnað-
arbanki íslands hf., Gunnar
Sólnes hrl., Lárus Bjarnason
hdl., Guðmundur Jónsson hdl.
og Bæjarsjóður Akureyrar.
Hrísalundi 8g, Akureyri, þingl.
eigandi Árni Harðarson o.fl.,
föstud. 4. nóv. ’88, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Veð-
deild Landsbanka íslands,
Bæjarsjóður Akureyrar og
Gunnar Sólnes hrl.
Kaldbaksgötu, skáli, A-hluti,
Akureyri, þingl. eigandi Bílasal-
an hf., föstud. 4. nóv. '88, kl.
13.45.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlána-
sjóður.
Múlasíðu 3b, Akureyri, þingl.
eigandi Stjórn verkamanna-
bústaða, föstud. 4. nóv. ’88, kl.
15.30.
Uþþboðsbeiðendur eru: Veð-
deild Landsbanka Islands og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Skarðshlíð 14g, Akureyri, talinn
eigandi Friðrik Bjarnason,
föstud. 4. nóv. '88, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur
Birgir Árnason hdl., Ásgeir
Thoroddsen hdl., Guðjón
Steingrímsson hrl., Ólafur Birgir
Árnason hdl., Sveinn Skúlason
hdl., Bæjarsjóður Akureyrar og
Gunnar Sólnes hrl.
Smárahlíð 4f, Akureyri, þingl.
eigandi Jón Pálmason, föstud.
4. nóv. '88, kl. 14.30.
Uþpboðsbeiðendur eru: Ásgeir
Thoroddsen hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Guðríður
Guðmundsdóttir hdl., inn-
heimtumaður ríkissjóðs og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Steinahlíð 5e, Akureyri, þingl.
eigandi Sæmundur Pálsson
o.fl., föstud. 4. nóv. ’88, kl.
15.30.
Uppboðsbeiðandi er Gunnar
Sólnes hrl.
Vallargötu 5, Grímsey, þingl.
eigandi Sigurður Bjarnason
o.fl., föstud. 4. nóv. '88, kl.
15.45.
Uþþþoðsbeiðendur eru: Ævar
Guðmundsson hdl., Ólafur Birg-
ir Árnason hdl., Gunnar Sólnes
hrl. og Þórólfur Kr. Beck hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, heimsótti Norður-
land í síðustu viku. Ráðherr-
ann heimsótti marga staði og
átti annríkt en þó gaf hann sér
tíma til að ræða stuttiega við
blaðamann í Amtsbókasafninu
á Akureyri, en var þá á leiö-
inni í móttöku á vegum Akur-
eyrarbæjar þar sem hann hitti
bæjarráðsmenn og bæjarstjóra
að máli.
- Hvaða stofnanir hefur þú
heimsótt í þessari ferð, Svavar,
og hefur þú myndað þér álit á því
hvaða verkefni séu mikilvægust í
skólamálum á þessu svæði?
„Ég fór í Tónlistarskóla Akur-
eyrar í gær, hitti fulltrúa
æskulýðs- og íþróttaráðs, fór í
Myndlistaskólann á Akureyri,
Háskólann, Menntaskólann,
Verkmenntaskólann, Barnaskól-
ann, Gagnfræðaskólann, Þjálfun-
arskólann og í Leikhúsið. Það er
því erfitt fyrir mig að segja hvað
sé mikilvægast en hér er um mjög
myndarlegt skólastarf að ræða og
ég held að mikilvægast sé fyrir
þetta skólahérað eins og önnur
að það fái um frjálst höfuð að
strjúka. Það verður að fá að
njóta sín á þeim forsendum sem
við eiga í þessum landshluta án
allt of mikillar íhlutunar frá höf-
uðstöðvunum fyrir sunnan."
- Tillögur um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga hafa legið
alllengi fyrir. Hvað viltu segja um
þessar tillögur sérstaklega með
tilliti til kostnaðar við byggingu
og rekstur framhaldsskóla?
„I tillögunum er gert ráð fyrir
að framhaldsskólinn sé hjá ríkinu
en grunnskólinn hjá bæjarfé-
lögunum, þ.e.a.s. stofnkostnaður
og rekstur annar en launakostn-
aður kennara. Tónlistarkennsla
sé hjá sveitarfélögunum, einnig
dagvistunin. Þessi mál eru ennþá
opin og í fjárlagafrumvarpi ársins
1989 sem verður lagt fram eftir
fáeina daga er gert ráð fyrir því
að verkaskiptingin verði sú sama
og verið hefur, þ.e.a.s. að fram-
haldsskólinn flytjist ekki yfir á
ríkið á næsta ári heldur síðar eða
samhliða öðrum ákvörðunum um
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga.“
Félag íslenskra bifreiðaeftirlits-
manna hélt aðalfund sinn í
Reykjavík hinn 8. okt. sl.
A fundinum kom fram mikil
óánægja félagsmanna með stefnu
stjórnvalda í málefnum Bifreiða-
eftirlits ríkisins. Fram kom að
með óbreyttri stefnu missa um 40
bifreiðaeftirlitsmenn vinnuna um
næstu áramót.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundinum:
„Aðalfundur Félags íslenskra
bifreiðaeftirlitsmanna, haldinn í
Reykjavík 8. okt. 1988, mótmæl-
ir harðlega þeirri stefnu stjórn-
valda að ætla að hætta því
umferðar- og öryggiseftirliti, sem
Bifreiðaeftirlitið hefur fram-
kvæmt til þessa. Hlýtur þetta að
gerast þar sem allflestum bif-
reiðaeftirlitsmönnum hefur verið
- Þú hefur gagnrýnt tillögurn-
ar um verkaskiptinguna Svavar,
munt þú beita þér fyrir breyting-
um á þeim málum frá því sem
tillögurnar gera ráð fyrir?
„Eg hef lagt mikla áherslu á að
verja tiltekna þætti, ekki síst
tónlistarfræðsluna, og hún er öll
inni á ríkinu á næsta ári eins og
verið hefur. Það má segja að þar
höfum við á elleftu stundu bjarg-
að málunum fyrir horn og urðum
við að hækka þann útgjaldalið
um liðlega níutíu milljónir króna
til að standa undir þeirri þjónustu
sem óhjákvæmileg er. í annan
stað höfum við hækkað verulega
framlög til dagvistunarstofnana.
Þar er um að ræða stefnubreyt-
ingu frá því sem verið hefur.“
- En fræðslustjóramálið,
muntu taka það til endurskoðun-
ar?
„Ég er að vinna í því.“
- Háskóli, menntaskóli og
verkmenntaskóli eru starfandi
hér á Akureyri og bærinn hefur
stundum verið kallaður skóla-
bær. í haust þurfti að synja
nokkrum nemendum framhalds-
skóla bæjarins um skólavist
sagt upp störfum. Varar fundur-
inn við afleiðingum þessarar
stefnu, sem hlýtur að leiða til
aukins slysafjöída í umferðinni
eins og fram hefur komið á þessu
og síðasta ári, þrátt fyrir átak lög-
reglu og tryggingarfélaga til
bættrar umferðar.
Þá mótmælir fundurinn harð-
lega þeirri aðgerð stjórnvalda að
standa að stofnun hlutafélags til
að skoða - bifreiðar, án þess að
gefa starfsmönnum Bifreiðaeftir-
litsins kost á þátttöku eða að
tryggja framtíð þeirra á annan
hátt.
Þá vill fundurinn benda á að
með fyrirhuguðum breytingum á
bifreiðaskoðun er ekkert tekið á
því stóra vandamáli, sem Bif-
reiðaeftirlitið hefur átt við að
glíma, það er að fá bifreiðaeig-
vegna húsnæðis- og aðstöðuleys-
is.
„Þetta er slæmt. Ég mun reyna
að fara sérstaklega í þessi mál
með einhverjum hætti en ég veit
ekki nákvæmlega hvernig. Mér
líst út af fyrir sig vel á þær hug-
myndir sem verið hafa uppi um
viðbót við Möðruvelli og um
þróun Verkmenntaskólans. Þetta
fer allt eftir peningum og spurn-
ingin er sú hversu mikla skatta
þjóðin vilji borga.“
- Hvað viltu segja að lokum?
„Það er búið að vera mjög
gagnlegt að koma hingað. Ég er í
þessari heimsókn á mánaðaraf-
mæli ríkisstjórnarinnar og það er
gott að halda upp á það afmæli
hér.“
Þess skal að lokum getið að
Svavar tilkynnti á fundi með
framhaldsskólanemendum á
Akureyri á sunnudag að svo-
nefndir dreifbýlisstyrkir til fram-
haldsskólanemenda myndu
hækka um 100% innan skamms,
en þessir styrkir hefðu verið
óbreyttir að krónutölu undanfar-
in ár. EHB
endur til þess að mæta í skoðun á
réttum tíma.
Loks vekur fundurinn athygli á
því að til eru margar leiðir til þess
að bæta skoðun og eftirlit með
ökutækjum, en telur að það skref
sem nú hefur verið stigið sé eitt af
þeim fáu sem hægt var að stíga
afturábak."
Á fundinum var kjörin ný
stjórn félagsins, sem er þannig
skipuð: Formaður, Erling Gunn-
laugsson Selfossi. Gjaldkeri, Jón
Hermannsson Hvolsvelli. Ritari,
Einar Torfason Reykjavík.
Meðstjórnendur, Sigurður Indr-
iðason Akureyri og Ingimundur
Eymundsson Reykjavík. Vara-
menn eru Skúli Guðmundsson
Hafnarfirði og Jóhann Kjartans-
son Borgarnesi.
Bifreiðaeftirlitsmenn:
Mótmæla breytmgum
á bifreiðaskoðun