Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 5
12. nóvember 1988 - DAGUR - 5
- spjallað við Jónas Þórisson, kristniboða
Kristniboðsdagurinn er á
sunnudaginn en hefð er l'yrir
því að annar sunnudagur í
nóvember sé tileinkaður
kristniboði og kynningu á
málefnum þess. I tilefni af
kristniboðsdeginum og kristni-
boðsviku svaraði Jónas Þóris-
son, kristniboði, nokkrum
spurningum.
- Hverjir standa að kristni-
boðsdeginum, Jónas?
„Á Akureyri eru það kristni-
boðsfélögin og KFUM & K að
sérstakri kristniboðs- og æsku-
lýðsviku. í kirkjum landsins er
minnst á kristniboðsstarfið og
fluttar fréttir af því starfi sem
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga vinnur. Um leið er tekið
við gjöfum til starfsins.
Kristniboðssambandið er sam-
tök kristniboðsfélaga. í félögun-
um eru bæði lærðir og leikir en í
raun og veru er um að ræða sam-
tök leikmanna innan þjóðkirkj-
unnar. Fjárhagsáætlun starfsins
er upp á 8 milljónir fyrir árið í ár
en kostnaður við heimastarfið og
starfið í Kenya verður um 11
milljónir króna á næsta ári. Allt
eru þetta frjáls framlög einstakl-
inga.“
- Er eitthvað nýtt að frétta af
starfi íslenskra kristniboða er-
lendis?
„Já, það eru gleðileg tíðindi frá
Eþíópíu en það land hefur verið
mikið í fréttum undanfarið. Nú
er ástandið að breytast til batnað-
ar þar því yfirvöld meta kirkjuna
meira en áður og kristniboðar
eru velkomnir. í Konsó höfum
við starfað í langan tíma en nú er
ætlunin að hefja nýtt starf 100 km
vestan við kristniboðsstöðina
meðal lítils þjóðflokks sem nefn-
ist tesmai. Þangað eru nýfarin til
starfa í annað sinn Guðlaugur
Gunnarsson og Valgerður Gísla-
dóttir, kristniboðar, ásamt börn-
um sínum, en kirkjan í S.-Eþíóp-
íu kallaði þau sérstaklega til
þessa starfs. Þau eiga að skipu-
leggja og hrinda í framkvæmd
starfi meðal þessa fólks, byggja
upp einfalda aðstöðu fyrir
kristniboða og hjúkrunarfræðing.
Unnið verður að hjálpar- og þró-
unarstarfi þarna. Það er mikil-
vægt að hjálpa þessum þjóðflokki
því hann hefur verið afskiptur til
þessa.“
— En heimatrúboðið, Jónas?
„Já, hér heima fer fram öflugt
kynningarstarf. Kristniboðssam-
bandið starfar í nánum tengslum
við KFUM & K og skólahreyf-
inguna. Starfið heima er mikið til
fólgið í að heimsækja félagasam-
tök og skóla þar sem við segjum
frá starfi íslendinga erlendis. Við
getum ekki sinnt öllum þeim
beiðnum sem við fáum um slíkar
kynningar því starfsmenn hér á
landi eru aðeins þrír, þar af er
einn bundinn af stjórnunarstörf-
um o.þ.h.“
- Að lokum, Jónas: Hvaða
hljómgrunn fær kristniboðsstarf-
ið hér á landi?
„í bréfi sem biskup íslands
sendi til allra safnaða landsins
kemst hann þannig að orði að
þjónusta kirkjunnar sé fólgin í
kristniboði á erlendum vettvangi
meðal heiðinna þjóða og í heima-
landinu. Eðli kirkjunnar er
kristniboð. Við íslendingar höf-
um kannski í heild verið of sof-
andi hvað þetta varðar. Okkur er
mjög tamt að hugsa um vanda-
málin sem steðja að hér heima og
gleyma því sem er lengra í burtu.
Við útilokum okkur þannig oft
frá gleði og blessun því það eru
margir sem hafa það verra en við
og stríða við vandamál sem við
þekkjum ekki. Sælla er að gefa
en þiggja og því vil ég hvetja allt
kristið fólk sem vill lifa trú sinni
til að kynna sér kristniboðið.
Fólk getur kynnt sér það gegnum
kristniboðsfélögin, á samkomum
og með því að lesa Bjarma, sam-
eiginlegt málgagn kristniboðs-
sambandsins og KFUM & K.
Þar eru reglulega fluttar fréttir af
því sem er að gerast hverju sinni
heima og erlendis.“ EHB
TÍMA- OG
TITLAINNSETNING.
Hægt er á einlaldan hátt að setja
inn á upptöku daginn, mánuöinn,
árið, klukkutímann og minúturnar
(t.d. 21.08.88/19:30:00). Eltir að
einu sinni er búið að stilia inn
dagsetningu og tima er hvenær
sem er hægt að kalla upplýs-
ingarnar Iram aftur því klukkan
gengur þótt slökkt sé á vélinni.
Einnig er hægt að setja titil inn á
mynd, t.d. Sigga 5 ára eða Jólin
1988 og geyma tvo titla í minni. Þá
er hægt að velja um
átta liti í letrið.
SJÁLFVIRKUR FÓKUS.
SONY VIDEO-8
NÝKEKN
FYRIR
NÚTÍMAFQLK
Er myndin í lókus eða ekki? Á
Sony CCD-F330 þurfum við ekki að
hafa áhyggjur al svoleiðis hlutum
eða þá birtu- og hvitustillingu því
hægt er aö hafa allar stillingar sjálf-
virkar og sér þá vélin um að allt sé
rétt, þú þarft bara að fylgjast
meö þvi sem þú
ert að taka upp.
Vélin sér um
afganginn.
Ötrúlega
litlar spólur
9.4 cm á breidd og
6 cm á hæð.
Fáanlegar 30 mín., 60 min., 120 min.
og 180 min.
Sex sinnum Zoom linsa.
Sjálfvirkur og handvirkur fókus.
CCD myndrásir.
Þriggja tíma upptökuspólur.
Innbyggður hljóðnemi.
Tengi fyrir aukahljóðnema.
Ljósnæmi 12 lux.
Heyrnartólstengi.
Sjálfvirk og handvirk hvituviðmiðun.
Stafrænt (digital) minni til texta og
myndinnsetninga.
Hreinar myndklippingar.
Hrein myndinnsetning.
VERÐ 76.850 STGR.
Video-8 videomyndavélakerfið frá
Sony fer nú sigurför um heiminn
og fjölgar þeim stöðugt framleið-
endunum sem veðja á video-8 sem
framtíðarmyndavélakerfið, enda
skiptir ekki máli hvaða mynd-
bandstæki eða sjónvarpstæki þú
átt, video-8 passar
PASSAR VIÐ ÖLL TÆKI.
Þar sem myndavélin er líka
afspilunartæki er hægt að tengja
hana við öll sjónvarpstæki og sýna
beint af vélinni eöa fengja við
heimilismyndbandið og „klippa",
þ.e.a.s. færa á milli þau atriði sem
þið viljið varðveita af upptökunni
eöa búa til eintök til aö senda
vinum og vandamönnum.
INNBYGGÐUR SKJÁR.
Allt sem er tekið upp sést jafnóðum
i innbyggðum skjá þannig að þaö
fer aldrei á milli mála hvað er verið
að gera. Þá er skjárinn líka notaður
í afspilun og skiptir þá ekki máli
hvort þú ert uppi á Vatnajökli, í
miðri Sahara eöa bara niðri við
Tjörn. Þú getur hvenær sem er
skoðað upptökurnar á staðnum.
Einnig gefur innbyggði skjárinn
upplýsingar um allar gjörðir
vélarinnar ásamt upplýsingum um
birtu, rakastig, ástand rafhlöðu og
svo framvegis.
JAPISS
AKMI
SKIFW3ATA1 - SÍMi 96 25611
í tilefhi af
kristniboðsdeginum