Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 8
I - RftSHB - geT^SSíMí Viltu kynnast Jóhannesarguðspjalli? Biblíulestrarnámskeið yfir Jóhannesar- guðspjall verður haldið í vetur á mánudags- kvöldum kl. 20.30 í kappellu Akureyrar- kirkju. Allt lestrarefni verður afhent á biblíulestrunum, og námskeiðið er öllum opið. Höfundur lestrarefnis er Björgvin Jörgensson og leiðbeinendur ásamt honum verða prestar safnaðar- ins. Muniö aö hafa með ykkur Nýjatestamenntiö. Bræðrafélag Akureyrarkirkju. Möðruvallakirkja í kyjafiröi endurvígð Á sunndudaginn kl. 13.30 verður Möðruvallakirkja í Eyjafirði endurvígð. Möðru- vallakirkja er 140 ára gömul, byggð árið 1848. Skömmu fyrir jól árið 1972 fauk kirkjan af grunni sínum og urðu um það miklar umræður í Saurbæjar- hreppi hvort hún skyldi endur- byggð. Samþykkt var að leggja kirkjuna af þar sem þrjár kirkjur voru í hreppnum, en því var aldrei hrint í fram- kvæmd og er nú búið að endurbyggja kirkjuna. Sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup vígir Möðruvalla- kirkju, en auk hans verða við- staddir vígsluna, sr. Birgir Snæ- björnsson prófastur, Bjartmar **!£&***-' ' frumrtt GJALDDAGi . FYRIR SKIL . A STAÐGREÐSLUFE Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endur- gjaldi mánaðarlega. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hversu oft í mánuði laun eru greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram eða eftir á. Gjalddagi skila er 1. hvers mánaðar en eindagi þann 15. Með greiðslu skal fylgja grein- argerð á sérstöku eyðublaði „skilagrein". Skilagrein berað skila, þó svo að engin stað- greiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heilum krónum. Allir launagreiðendur og sjálf- stæðir rekstraraðilar eiga að hafa fengið eyðublöð fyrir skilagrein send. Þeir sem ein- hverra hluta vegna hafa ekki fengið þau snúi sér til skatt- stjóra, ríkisskattstjóra, gjald- heimtna eða innheimtumanna ríkissjóðs. -Geríð skil tímanlega og forðist örtröð síðustu dagana. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI Kristjánsson fyrrverandi sóknar- prestur og Hannes Örn Blandon núverandi sóknarprestur auk sóknarnefndar og sóknarbarna. Að vígslu lokinni verður boðið upp á veitingar í Sólgarði og þar mun sr. Bjartmar segja sögu kirkjunnar. Möðruvallakirkja hefur endur- heimt hina fornu alabasturstöflu sem í kirkjunni var, en eftir að hún fauk var taflan varðveitt á Minjasafninu á Akureyri. Taflan er frá 14. öld og sú eina sinnar tegundar í landinu. mþþ Nýbók um þá Palla og Togga Palli og Toggi eru strákar tveir, sem yngsta kynslóðin þekkir. Nú er komin út teiknisögubók með nýjustu ævintýrum þessara prakkara, sem alltaf eru að finna upp á einhverju. Höfundur Palla og Togga bók- anna er Hergé, sem annars er kunnastur sem höfundur Tinna teiknisagnanna. Bókaútgáfan Fjölvi gefur út hér á landi allar bækur Hergés. Nýjasta bókin í flokknum kall- ast „Bannað að leika sér. “ Sl. vor kom út bókin „Háspenna lífs- hætta“ og næsta bók í flokknum á að kallast „Allt í Iagi“. Hergé hafði þann sið, að hvenær sem honum datt einhver snjall brand- ari í hug, tók hann upp teikni- blokk og gerði uppkast að Palla og Togga ævintýri, en strákarnir heita raunar á frönsku Kvikk og Flúpki. Þegar Hergé lést fyrir nokkrum árum, skildi hann eftir sig ógrynni slíkra uppkasta og hefur nú verið stofnuð sérstök teiknistofa í Belgíu til að vinna úr hugmyndum hans í fullum litum og jafnframt að búa til úr þeim smá teiknikvikmyndir og fara þeir Palli og Toggi nú sigurför um Evrópu og hafa raunar einnig „guðað á gluggann" í íslenskri sjónvarpsstöð. Ein opna er undir hvert Palla og Togga ævintýri og gerist þar margt furðulegt t.d. þegar Palli á að sækja langt tréborð, lætur hann til öryggis saga það niður í búta. Hér kemur mjög við sögu lögregluþjónn Númer 15 „og er ekki allur þar sem hann er séður“. Hér er farið í sleðaferðir, bílferðir, róluferðir og mikið um knattspyrnuleiki, bogaskotfimi, vindlasprengingar og umferðar- kennslu. Ingunn Thorarensen þýðir bókina, sem er prentuð hjá Casterman-útgáfunni í Belgíu. Leiðréttíng Þau mistök urðu í grein um bygg- ingariðnaðinn á Akureyri í Degi í gær að ranglega var farið með föðurnafn Heimis Jóhannssonar hjá SS Byggi hf. og hann sagður Rögnvaldsson. Beðist er velvirð- ingar vegna þessara leiðu mis- taka. EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.