Dagur


Dagur - 12.11.1988, Qupperneq 15

Dagur - 12.11.1988, Qupperneq 15
12. növember 1988 - DAGUR - 15 rfl dogskrá fjölmiðla RJKISUIVARPIÐ AAKUREYRl k AKUREYR]* Svæðisútvarp fyrír Akureyrí og nágrenni. MÁNUDAGUR 14. nóvember 8.07-8.30 Svædisútvarp Noröurlands. 18.03-19.00 Svædisútvarp Norðurlands. Hljáðbylgjan FM 101,8 LAUGARDAGUR 12. nóvember 10.00 Karl Örvarsson öðru nafni Káll. 13.00 Axel Axelsson á léttum nótum á laugardegi. 15.00 Einar Brynjólfsson, íþróttir á laugardegi. 17.00 Bragi Guðmundsson kynnir vinsældalista Hljóðbylgjunnar. 19.00 Ókynnt kvöldmatartónlist á laugardegi. 20.00 Snorri Sturluson er ykkar maður á laugardagskvöldi. 24.00 Næturvakt Hljóðbylgjunnar. 04.00 Ókynnt tónlist til sunnudagsmorguns. SUNNUDAGUR 13. nóvember 10.00 Haukur Guðjónsson spilar sunnudagstónlist við allra hæfi fram að hádegi. 12.00 Ókynnt hádegistónlist á sunnudegi. 13.00 Pálmi Guðmundsson spilar gullaldartónlist og læðir inn einu og einu nýmeti. 15.00 Harpa Dögg og Linda Gunnars skipta með sér sunnudagseftirmiðdegi Hljóðbylgjunnar. 17.00 Bragi Guðmundsson spilar allt það nýjasta, bæði erlent og innlent. 19.00 Ókynnt sunnudagskvöldmatartón- list. 20.00 Kjartan Pálmarsson spilar öll íslensku uppáhaldslögin ykkar. 22.00 Harpa Dögg á síðustu rödd sunnudagsins. 24.00 Dagskrárlok. MÁNUDAGUR 14. nóvember 07.00 Kjartan Pálmarsson á fyrri morgunvakt Hljóðbylgjunnar. 09.00 Pétur Guðjónsson þessi eini þarna. 12.00 Hádegistónlist. 13.00 Snorri Sturluson á dagvaktinni. 17.00 Kjartan Pálmarsson verður ykkur innan handar á leið heim úr vinnu. 19.00 Ókynnt tónlist med kvöldmatnum. 20.00 Pétur Gudjónsson med Rokkbitann. 22.00 Snorri Sturluson lýkur dagskránni á mánudegi. 24.00 Dagskrárlok. A FM 104 LAU GARDAGUR 12. nóvember 09.00 Jón Axel Ólafsson. Það er laugardagur og nú tökum við dag- inn snemma með laufléttum tónum og fróðleik. Fréttir kl. 10 og 12. 12.10 Laugardagur til lukku. Fréttir kl. 16.00. 17.00 „Milli mín og þín.“ Einn af vinsælli þáttum Stjörnunnar þar sem Bjarni Dagur spjallar við hlustendur. 19.00 Bjarni Haukur Þórsson. 22.00-03.00 Út og suður þrumustuð. 03.00-09.00 Stjörnuvaktin. SUNNUDAGUR 13. nóvember 10.00 Gyða Tryggvadóttir. Ljúfir tónar í morgunsárið. 13.00 „Á sunnudegi" - Þorgeir Ástvalds- son. Okkar maður í sunnudagsskapi og fylgist með fólki á ferð og flugi um land allt. 16.00 „í túnfætinum." Þýð og þægilega tónlist í helgarlofc. 19.00 Einar Magnús Magnússon. Helgarlok. 24.00-07.00 Stjörnuvaktin. MÁNUDAGUR 14. nóvember 07.00 Árni Magnússon. Árni á morgunvaktinni. Lífleg og þægileg tónlist, veður, færð og hagnýtar upplýs- ingar. Fréttir kl. 8. 09.00 Gunnlaugur Helgason. Seinni hluti morgunvaktar með Sigurði. 09.30 „Deginum ljósara." Bjarni Dagur tekur á málum líðandi stundar. Kl. 11.00 „Deginum ljósara". Fréttir kl. 10 og 12. 12.30 Helgi Rúnar Óskarsson. Helgi leikur tónlistina þína. Kl. 13.00 „Deginum ljósara". Fréttir kl. 14 og 16. Kl. 15.00 „Deginum ljósara". 16.10 Jón Axel Ólafsson. Tónlist, spjall, fréttir og fréttatengdir við- burðir. Kl. 17.00 „Deginum ljósara". Fréttir kl. 18. 18.00 íslenskir tónar. Innlendar dægurlagaperlur að hætti Stjörnunnar. Vinsæll liður. 19.00 Síðkvöld á Stjörnunni. Gæðatónlist á síðkveldi. Gísli Kristjáns- son við hljóðnemann. 22.00 Oddur Magnús. Á nótum ástarinnar út í nóttina. 24.00-07.00 Stjörnuvaktin. BYLGJAN LAUGARDAGUR 12. nóvember 08.00 Haraldur Gislason á laugardagsmorgni. 12.00 Margrét Hrafnsdóttir á léttum laugardegi. 16.00 íslenski listinn. Bylgjan kynnir 40 vinsælustu lög vikunn- ar. 18.00 Meiri músík - minna mas. Bylgjan og tónlistin þín. 22.00 Kristófer Helgason á næturvakt Bylgjunnar. 03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. SUNNUDAGUR 13. nóvember 09.00 Haraldur Gíslason á sunnudagsmorgni. 12.00 Margrét Hrafnsdóttir og sunnudagstónlistin. 16.00 Ólafur Már Björnsson. Hér er ljúfa tónlistin alls ráðandi. 21.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Sérvalin tónlist fyrir svefninn. 02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. MÁNUDAGUR 14. nóvember 08.00 Páll Þorsteinsson - þægilegt rabb í morgunsárið. Fréttir kl. 8 og Potturinn, þessi heiti kl. 9. 10.00 Anna Þorláks. Aðalfréttirnar kl. 12 og fréttayfirlit kl. 13. 14.00 Þorsteinn Ásgeirsson. Fréttir kl. 14 og 16 og Potturinn ómiss- andi kl. 15 og 17. 18.00 Fréttir á Bylgjunni. 18.10 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. 19.05 Meiri músík - minna mas. Tónlistin þín á Bylgjunni. 22.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson og tónlist fyrir svefninn. 02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. rlí Ijósvakorýni mega ekki ráða ferðinni Allir blaðamenn Dags fá reglulega það verkefni að skrifa í þennan dálk um fjöl- miðla. Meira að segja íþróttafréttamað- urinn fær að setja á blað hugsanir sínar um eitthvað annað en (þróttir. Undirrit- aður hugsaði sér því gott til glóðarinnar að láta gamminn geysa um ýmis andans mál, t.d. bókmenntir, tónlist eða leiklist. En hvað gerist, Stöð 2 tekur upp á þeim ósóma að kaupa einkarétt að sýningum á 1. deildinni í handknattleik og þar með liggur það Ijóst fyrir að fjalla verður um það mál í þessum dálki. En ykkur les- endur góðir get ég nú sagt í trúnaði að ég er ósköp feginn því það er mér mun tamara að fjalla um íþróttir en hinar fögru listir. Þessí einkaréttarsamningur er hin mesta hneisa fyrir samtök 1. deildar félaga og það er ánægjulegt aö vita til þess að KA-menn hafa firrt sig allri ábyrgð á þessum samningi. Það er ábyrgðarhluti af forsvarsmönnum þess- ara samtaka að lýsa því blákalt yfir að almenningur í landinu skuldi (þrótta- hreyfingunni í landinu miklar fjárupp- hæðir. Landsmenn hafa stutt vel við bakið á íþróttum í landinu og þá sérstak- iega við handboltann í tengslum við Ólympíuieikana og heimsmeistara- keppnina. Það er því eins og köld vatns- gusa framan (fólk þegar menn í forsvari fyrir handboltasamtök koma með slíkar yfirlýsingar. Greinilegt er að stjórn HSÍ er sam- mála undirrituðum því Jón Hjaltalín hef- ur lýst því yfir að þessi yfirlýsing sé van- hugsuð og að stjórn HSÍ sé ekki tilbúin að leggja blessun sína yfir samning Stöövar 2 og 1. deildar félaganna. í sjálfu sér er ekki hægt að gagnrýna Stöð 2 fyrir að reyna að ná slíkum samn- ingi, þv( þeir eru í viðskiptum og í viö- skiptum gengur ekkert að vera með „elsku mamma" hugarfar. Hins vegar er það varhugavert að úti- loka stóran hóp sjónvarpseigenda, þá sérstaklega á landsbyggðinni, sem ann- aðhvort nær ekki sendingum Stöðvar 2 eða hefur ekki efni á því að kaupa sér myndlykil, frá því að geta fylgst með íslandsmótinu í 1. deild. 1. deildar félögin mega ekki láta skammtímagróöasjónarmið ráða ferð- inni, því þegar til lengdar lætur mun slík- ur einokunarsamningur skaða íþrótta- hreyfinguna miklu meir en nemur þeim fjármunum sem koma inn fyrir samning- inn. Andrés Pétursson. Sjómenn athugið! Ávallt til línuefni og ábót. Setjum upp línu. Ennfremur flestar aðrar útgerðarvörur SANDFELL HF v/Laufásgötu • Akureyri • s. 26120 FRAMSÓKNARMENN ||iB AKUREYRI Framsóknarfélag Akureyrar Fundur í Hafnarstræti 90 mánudaginn 14. nóvember nk. kl. 20.30. Fundarefni: Bæjarmál og væntanlegt flokksþing. Félagar fjölmennið. Stjórnin. Tilkynning frá fiskveiða- sjóði íslands Umsóknir um lán á árinu 1989 og endurnýjun eldri umsókna. Um lánveitingar úr Fiskveiöasjóöi íslands á árinu 1989 hefur eftirfarandi veriö ákveðiö: 1. VEGNA FRAMKVÆMDA í FISKIÐNAÐI: Sjóöstjórn telur ekki þurfa aukna afkastagetu í hefðbundnum vinnslugreinum og metur umsókn- ir samkvæmt því. Eftir því sem fjármagn sjóösins hrekkur til verður lánaö til bygginga, véla, tækja og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæöi og aukna framleiðni. 2. VEGNA ENDURBÓTA Á FISKISKIPUM: Lánaö veröur til skipta á aflvél, til tækjakaupa og endurbóta ef taliö er nauðsynlegt og hagkvæmt. 3. VEGNA NÝSMÍÐI OG INNFLUTNINGS Á FISKISKIPUM: Lán vegna nýsmíöi og innflutnings á fiskiskipum verða eingöngu veitt ef skip sambærilegrar stærðar eru úrelt, seld úr landi eöa strikuö út af skipaskrá af öörum ástæöum. Geröar verða strangar kröfur um eigið fjárframlag. Engin lán veröa veitt vegna nýsmíði eöa innflutnings báta undir 10 rúmlestum. 4. ENDURNÝJUN UMSÓKNA: Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf aö endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvern- ig þærframkvæmdirstanda sem lánsloforö hefur verið veitt til. 5. HÆKKUN LÁNSLOFORÐA: Mikilvægt er aö lánsumsóknir séu nákvæmar og verk tæmandi talin. Sérstök athygli er vakin á því að lánsloforð verða ekki hækkuö vegna viöbótar- framkvæmda, nema Ijóst sé aö umsækjandi hafi ekki getað séö hækkunina fyrir og hækkunin hafi verið samþykkt af sjóönum áðuren viöbótarfram- kvæmdir hófust. 6. UMSÓKNARFRESTUR: Umsóknarfrestur er til 31. desember 1988. 7. ALMENNT: Framkvæmdirskulu ekki hafnarfyrren lánsloforð Fiskveiðasjóðs liggur fyrir. Sérstök athygli er vakin á því, að sjóðurinn getur synjað lánsum- sókn, þótt hún uppfylli almenn skilyrði. Umsókn- um um lán skal skila á þar til gerðum eyöu- blöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykja- vík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1989 nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Reykjavík, 7. nóvember 1988 FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.