Dagur - 12.11.1988, Page 20

Dagur - 12.11.1988, Page 20
Akureyri, laugardagur 12. nóvember 1988 CHICOGO TBiodroqa C O S M E T I C S Snyrtivörudeild Snvrtivörur í ún/ali - Okkar merki - Snyrtivörur í úrvali Sauðfl árveikivarnir kæra flutning sauðfjár yflr Blöndu - þess er krafist að fénu verði slátrað Eitthvað mun það hafa tíðkast að bændur sem hafa leigt eða selt búmark sitt í sauðfé til Framleiðnisjóðs hafi skipt á kindum við aðra bændur og iátið þá hafa ungar kindur í stað gamalla sem síðan hefur verið slátrað. Þannig skipti fóru fram á milli tveggja húnvetnskra bænda á sl. hausti. Sverrir Haraldsson á Æsustöðum leigði Framleiðni- sjóði búmark jarðarinnar en lét Björn Björnsson á Ytri-Löngu- mýri hafa 200 ær á góðum aldri fyrir eldri ær sem síðan var slátr- að með öðru fé Sverris. Féð sem Björn keypti var flutt yfir Blöndu sem er varnarlína þótt fé fari mikið þar yfir. Leyfi hefur verið gefið til að flytja fé sem þvælst hefur yfir Blöndu til baka yfir varnarlínuna úr réttum og dæmi eru til þess að bændur sem hafa flutt búferlum á milli þess- ara varnarsvæða hafi fengið að flytja sauðfé sitt með sér. Hitt er annað mál að ekki er ætlast til að menn versli með fé yfir varnarltnuna og það síst án leyfis Sauðfjárveikivarna. í samtali við Dag sagði Kjartan 44 stórlúður flutt- ar til Hjalteyrar - vonir standa til að klak geti hafist næsta vor Fjörutíu og tjórar stórlúður voru fluttar í eldisstöð Fiskeld- is Eyjafjarðar hf. á Hjalteyri í vikunni. Stórlúðan var sett í tvö ný eldisker sem eru níu metrar að þvermáli en rúmt þarf að vera um lúðuna enda er hér ekki um neina smáfiska að ræða. Ólafur Halldórsson hjá Fiskeldi Eyjafjarðar sagði að lúð- an hefði verið veidd í ágúst sl. sumar við Snæfellsnes. Frá þeim tíma hefur verið unnið við upp- byggingu á Hjalteyri til að taka á móti henni. Lúðan var flutt á vörubíl til Hjalteyrar í kössum sérstaklega smíðuðum fyrir flutn- ingana. „Næsta skrefið í starfseminni er að fást við klakið. Reynsla Norðmanna segir okkur að villt stórlúða þurfi yfirleitt eitt ár til aðlögunar áður en hún verður til- búin til hrygningar. Við erum að vona að einhverjir fiskar geti gef- ið okkur hrogn og svil næsta vor en við stefnum að því til að geta byrjað rannsóknir. Það er þó ekki fyrr en 1990 sem við reikn- um með að byrja af krafti með mikið magn af hrognum," sagði Ólafur. Fiskeldi Eyjafjarðar er eina fiskeldisstöðin á íslandi þar sem markviss uppbygging hefur farið fram með tilliti til klaks. Islands- lax og Hafrannsóknastofnun hafa gert vaxtarrannsóknir á smálúðu en þeir aðilar hafa ekki rannsak- að lúðuklak. Ólafur sagði að lok- um að gömlu lýsistankar síldar- bræðslunnar hefðu verið skoðað- ir í fyrra og væri mjög freistandi að gera breytingar á þeim þannig að hægt yrði að nota þá til lúðu- eldis. Þó væri Ijóst að ekki yrði af þvíjbili. EHB Blöndal, framkvæmdastjóri Sauðfjárveikivarna að þetta væri algjörlega ólöglegt athæfi og hefði hann kært verknaðinn til sýslumanns Húnvetninga. Kjart- an kvaðst vita til þess að þar hefðu farið fram yfirheyrslur vegna þessa máls og kvaðst hann treysta því að sýslumaðurinn sæi til þess að þeim 200 kindum sem Björn á Ytri-Löngumýri hefði keypt yrði lógað því Óutningur þeirra yfir varnarlínuna væri með öllu ólöglegur. Kjartan sagði að Sauðfjár- veikivarnir hefðu látið Jóhannes Torfason formann Framleiðni- sjóðs vita af þessu og hann kvaðst vita til þess að Jóhannes hefði rætt þetta við Sverri. Varnargirðingunni með Blöndu hefur ekki verið haldið við um langt árabil og fénaður kemst óhindraður yfir brýrnar á ánni. Á þeim forsendum telur Björn Björnsson á Ytri-Löngu- mýri að hann liafi ekki framið neitt lögbrot með kaupum á kindunum frá Æsustöðum. Það má geta þess að sauðfé frá Auð- ólfsstöðum, sem er næsti bær við Æsustaði var skorið niður vegna riðuveiki í haust. fh I Grímsey í gær, að loknu 300. flugi Flugfélags Norðurlands til eyjarinnar. í gær var líka þjóðhátíðardagur í Grímsey. Á myndinni eru frá vinstri: Ragnar Magnússon flugstjóri, Friðrik Adolfsson afgreiðslustjóri, Alfreð Jónsson flugvallarstjóri í Grímsey, og farþegarnir Gyða Henningsdóttir, Hanncs Gunnarsson og Gréta Davíðsdóttir, en þau eru í 9. bekk í Dalvíkurskóla og komu heim í helgarfrí í tilefni dagsins. Mynd: tlv Merkisdagur í Grímsey I gær var mikið um dýrðir í Grímsey þegar eyjarskeggjar héldu upp á afmæli velgjörðar- manns síns, Willards Fiske, en afmælisdagur hans er eiginlega þjóðhátíðardagur Grímseyinga. í tilefni dagsins var hefðbundin samkoma í félagsheimilinu, kaffi- drykkja og skemmtanir. Þannig vildi til að Grímseyingar gátu fagnað öðrum viðburði í gær því Flugfélag Norðurlands fór 300. ferð ársins til eyjarinnar. Flug- samgöngur eru geysilega mikil- vægar fyrir Grímseyinga þvf þær eru einu reglulegu samgöngurnar við land, ef ferðir á vegum Ríkis- skips eru frátaldar. EHB Sjúkrahúsið í Húsavík: Skortur á hjúknmarfræðmgum - auglýst í Svíþjóð - margar fyrirspurnir um stöður berast I haust hefur gengið með versta móti að fylla í stöður hjúkrunarfræðinga við Sjúkra- hús Húsavíkur. 4-5 hjúkrun- arfræðinga vantar til starfa, sem er hátt hlutfall þar sem alls eru 13 stöður við sjúkrahúsið. Stjórn sjúkrahússins hefur rit- að rekstraraðilum þess bréf þar sem segir að skortur á hjúkrunarfræðingum leiði til þess að draga verði úr þjón- ustu og fækka sjúkrarúmum. Forsvarsmenn sjúkrahússins eru þó farnir að líta bjartari aug- um á framtíðina síðustu daga því auglýst var eftir hjúkrunar- fræðingum erlendis og margar fyrirspurnir hafa borist frá Svíþjóð. Ekki er samt búið að ráða neina erlenda hjúkrunar- fæðinga núna, en sænskir skurð- Jón Ingvarsson stjórnarformaður Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna: Afkoman hefiir aldrei verið verri en nú á þessu hausti Á stjórnarfundi Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna sem hald- inn var á Akureyri í vikunni, var rætt sérstaklega afkomu- mál sölumiðstöðvarinnar og dótturfyrirtækjana. Einnig um framtíðarhorfur, framleiðslu-, sölu- og markaðsmál. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, voru SH og Coldwater að festa kaup á vatnsskurðarvél þeirri sem staðsett hefur verið í frystihúsi UA undanfarna mánuði og var það stærsta ástæðan fyrir því að stjórnar- fundurinn var haldinn á Akur- eyri Ég held að það sé alveg ein- sýnt að afkoman hefur aldrei ver- ið verri en nú á þessu hausti. Sú gengisbreyting sem gerð var fyrir skömmu er í raun og veru uppur- in og ástæðan er fyrst og fremst sú að dollarinn hefur lækkað. Þannig að ástandið er ískyggilegt og það er varla hægt að lýsa því,“ sagði Jón Ingvarsson stjórnarfor- maður SH í samtali við Dag. „Ef við lítum á þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið að undan- förnu af ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Þær hafa eink- um falist í þessari 3 prósent gengislækkun, 5 prósent greiðslu úr verðjöfnunarsjóði og er sam- kvæmt lögunum lán til frysti- deildar verðjöfnunarsjóðs, auk þess sem þessi margumræddi atvinnutryggingasjóður var sett- Jón fngvarsson stjórnarformaður SH. ur á laggirnar og þetta er auðvit- að meira og minna kák. Ef við lítum til liðins tíma, þá hefur þjóðfélagið verið að soga til sín fé og eigið fé fyrir- tækja í sjávarútvegi verið gert upptækt, m.a. vegna rangrar gengisskráningar. Þetta hefur m.a. haldið uppi ýmissi annarri starfsemi í landinu. En það hefði átt að bæta frystihúsunum fyrir liðinn tíma, þá röngu efnahags- stefnu og eignaupptöku sem haldið hefur verið hér uppi, með því að greiða sem óafturkræft framlag í hlutfalli af útflutnings- verðmæti eitthvað aftur í tím- ann,“ sagði Jón ennfremur. -KK stofuhjúkrunarfræðingar hafa áður starfað á Sjúkrahúsi Húsa- víkur um tveggja ára tímabil. Að sögn Ólafs Erlendssonar, framkvæmdastjóra sjúkrahússins var um viðvörunarbréf að ræða til rekstraraðila þar sem óvenju erfiðlega gekk að fylla í stöður hjúkrunarfræðinga og fyrirsjáan- legur skortur var í vetur þó að vel hefði gengið að manna stöður með afleysingafólki í sumar. Ólafur sagði að vonandi ntuni þó rætast úr, þannig að takast mætti að ráða fólk og ekki þyrfti að draga úr þjónustu, vegna hinna góðu undirtekta sem auglýsing- arnar hefðu fengið í Svíþjóð. Sjúkrahúsið í Húsavík mun ekki vera það eina á landinu sem á f erfiðleikum vegna skorts á hjúkr- unarfæðingum því hann mun víða vera tilfinnanlegur. IM Helgin: Ágætt veður Af helgarveðrinu á Norðaust- urlandi er það helst að frétta að í dag, laugardag verður norðangola, vægt frost og ein- hver smáél geta gert vart við sig að sögn Magnúsar Jónsson- ar, veðurfræðings. Á sunnudagsmorguninn á Magnús von á ágætisveðri en síð- an fer að þykkna upp með hlýn- andi veðri og suðaustlægri átt, sennilega verður rigning eða slydda síðari hluta sunnudags. IM

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.