Dagur - 22.12.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 22. desember 1988
Bæjarstjórn Akureyrar:
Framsóknarmenn vildu
lægri útsvarsprósentu
(Jtsvarsprósenta Akureyringa
hækkar á næsta ári úr 6,7% í
7,2%, samkvæmt tillögu nieiri-
hluta Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks í bæjarsjórn.
Bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins í Bæjarstjórn Akur-
eyrar gerðu breytingartillögu
um lægri útsvarsprósentu fyrr í
þessum mánuði og var sú til-
laga felld, eins og áður hefur
komið fram.
í greinargerð með tillögu
bæjarfulltrúanna Sigurðar
Jóhannessonar og Úlfhildar
Rögnvaldsdóttur segir á þessa
leið:
„í tillögu meirihluta bæjarráðs
er gert ráð fyrir raunhækkun
útsvarsálagningar Um 7,4% frá
fyrra ári.
Þrátt fyrir að fjárhagsstaða
bæjarsins sé erfið vegna mikillar
skuldasöfnunar teljum við ekki
rétt að íþyngja bæjarbúum með
svo mikilli raunhækkun útsvars
sem meirihlutinn leggur til. Sýni-
legt er að kaupmáttur á næsta ári
muni fara eitthvað minnkandi og
gera má ráð fyrir tekjuskerðingu
bæjarbúa vegna minnkandi
vinnumagns eins og fram kemur í
þeim forsendum sem liggja fyrir
Jólasöfnun Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar:
Framlögum veitt
móttaka á
Þorláksmessu
Á Þorláksmessu mun Æskulýðs-
félag Akureyrarkirkju, fyrir
ltönd Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, selja kerti og veita gjafabauk-
um og öðrum framlögum mót-
töku í göngugötunni í Hafnar-
stræti og við Hagkaup í Norður-
götu. Þá tekur Æskulýðsfélagið
einnig við framlögunt í Akureyr-
arkirkju frá og með hádegi á
Þorláksmessu til kl. 23 þann dag.
Leiðrétting
í fyrirsögn greinar í gær um
rjómaflutninga til höfuöborg-
asvæðisins vantaði eitt núll í
magntöluna. Fluttir hafa verið
18000 lítrar suöur en ekki 1800
lítrar. Pá seljast auðvitað 13-15
þúsund lítrar á svæði Mjólkur-
samlags KEA fyrir jólin en ekki
13-15 lítrar!
um framreikning álagningarstofns
1988, en þar er gert ráð fyrir
minnkandi vinnumagni um 2-5%
og rýrnun kaupmáttar um 8%.
Við slíkar aðstæður er ekki rétt
að Akureyrarbær gangi á undan
með svo auknum álögum á
bæjarbúa sem fyrir liggja í tillögu
meirihlutans.
Bæjarfulltrúar Frámsóknar-
flokksins munu styöja tillögu
meirihlutans um álagningu fast-
eignagjalda, enda er þar farið að
tillögu okkar frá síðasta ári um
að fella niöur álag á fasteigna-
skatt af íbúðarhúsnæði sem
meirihlutinn taldi ekki þá ástæðu .
til að samþykkja."
Breytingartillagan var felld
nteð 7 atkvæðum meirihlutans
gegn tveimur atkvæðum flutn-
ingsmanna. Fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins sátu hjá. EHB.
Sjálfsbjörg á Akureyri hefur aö undanförnu kynnt starfsmönnum fyrirtækja á Akureyri líkamsræktina og veggbolt-
ann að Bjargi. Hér má sjá starfsmenn Rafveitunnar skoða veggboltasalina. Mynd: TLV
Bifreiðaskoðun íslands hf.:
„Emmeimingsstöð“ í athugun á Sauðárkróki
óákveðið með framkvæmd bílprófa
Hjá Bifreiðaskoðun íslands hf.
er í athugun að koma upp
svokallaðri einmenningsstöð á
Sauðárkróki, þ.e. skoðunar-
stöð með einum starfsmanni
sem myndi taka öll almenn
ökutæki til skoðunar, nema
stór ökutæki. Að sögn Karls
Ragnars framkvæmdastjóra
Bifreiðaskoðunar Islands er
verið að byrja athugun á hús-
næði á Sauðárkróki, en ekkert
hefur verið ákveðið hvort
skoðunarstöð komi þar upp
eða ekki. A fundi bæjarstjórn-
ar Sauðárkróks í síðustu viku
var þetta mál til umræðu og
kom fram eindregin andstaða
hjá bæjarfulltrúum hvernig
Bifreiðaskoðun íslands ætlar
að haga sínum málum í fram-
tíðinni. Mun málið verða tekið
fyrir á fundi bæjarráðs Sauðár-
króks á næstunni.
Á bæjarstjórnarfundinum lýstu
bæjarfulltrúar yfir miklum
áhyggjum með hvernig fyrir-
komulagi á skoðun bifreiða verð-
ur háttað, svo og framkvæmd
bílprófa. Fannst þeim að verið
væri að stíga stórt skref aftur á
bak og með tilkomu Bifreiða-
skoðunar Islands væri eingöngu
verið að flytja fleiri störf suður á
höfuðborgarsvæðið. Varð einum
bæjarfulltrúanum að orði að
ástandið nú minnti hann á hvern-
ig það var fyrir 30-40 árum, þegar
Skagfirðingar urðu að fara til
Akureyrar eða Reykjavíkur til
að taka bílpróf.
Karl Ragnars var spurður álits
á þeirri gagnrýni að verið væri að
flytja fleiri störf til höfuðborgar-
innar. „Það er ekki verið að
stefna í þá áttina. Ég held þvert á
móti, að stefnt sé að því að auka
þessa þjónustu í heild, úti á lands-
byggðinni, frá því sem verið
hefur,“ sagði Karl.
Búið er að ákveða 4 skoðunar-
stöðvar á landinu og verið er að
athuga með fleiri, þ.á m. á Sauð-
árkróki og víðar á Norðurlandi.
Þær sem búið er að staðsetja
verða í Reykjavík, Keflavík,
Selfossi og á Akureyri. í byrjun
verða það einu stöðvarnar sem
geta tekið stór ökutæki til
skoðunar, þannig að t.d. margir
vörubílstjórar munu þurfa að
fara drjúga spotta með bíla sína
til skoðunar. Bifreiðaskoðun
íslands mun eingöngu sjá um
skoðanir á bifreiðum og mun
ekki sjá um framkvæmd bílprófa.
Að sögn Karls Ragnars hefur
ekki verið ákveðið hvernig þeim
málum verður háttað. Bifreiða-
skoðun íslands verður með fær-
anlega skoðunarstöð sem verður á
ferðinni um dreifbýlið, en ekki
hefur verið ákveðið á hve mörg-
um stöðum sú stöð verður með
viðkomu. -bjb
Mál Landsambands lögreglumanna
gegn sýslumanni Húnavatnssýslu enn hjá saksóknara:
Þór Gumilaugsson, lögreglumaður
enn í úflegð á Skagaströnd
Mál það sem Landsamband
lögreglumanna höfðaði gegn
Jóni Isberg, sýslumanni Húna-
vatnssýslu vegna þess hvernig
var tekið á málum Þórs Gunn-
laugssonar, lögreglumanns eft-
ir að hann tjáði sig við Dag
þegar sýslumaðurinn lét skila
Nefndarálit um ^árhagsvanda Ríkisútvarpsins skilar af sér:
Vangoldin útistandandi afnota-
gjöld um 200 milljónir króna
- lagt til að afnotagjöld hætti 1. mars 1989 um 22,8%
Um 200 milljónir króna eru
útistandandi í vangoldnum
afnotagjöldum Ríkisútvarps
ins. Þetta kemur fram í áliti
nefndar sem undanfarnar vik
ur hefur haft slæma fjárhags
stöðu stofnunarinnar til athug
unar. Leggur nefndin til að
starf innheimtudeildar verði
eflt og að stofnunin í heild nýti
tekjustofna sína betur. Með
þessum hætti megi auka skil til
stofnunarinnar á næsta ári um
40 milljónir króna.
Nefndin, sem skipuð er af
menntamálaráðherra, hefur lagt
til að afnotagjöld hækki 1. mars
næstkomandi um 28,2%, í 1500
kr. á mánuði. Þessi hækkun skil-
ar um 180 milljónum króna til
Ríkisútvarpsins miðað við heilt
ár. Önnur tillaga nefndarinnar er
sú að fjármögnun útvarpsgjalds
elli- og örorkulífeyrisþega verði
breytt þannig að greiðsla fyr-
ir þessa hópa komi frá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Upphæð
sem hér um ræðir er um 90 millj-
ónir króna.
Gert er ráð fyrir að ríkissjóður
yfirtaki skuldir stofnunarinnar að
upphæð um 60 milljónir króna
og gerðar verði, eins og áður
segir, breytingar á innheimtu sem
miði að betri skilum.
Alls mun þessar breytingar
geta skilað stofnuninni um 380-
420 milljónum króna. Ríkisstjórn-
inni hefur verið kynnt þessi
niðurstaða nefndinnar og hefur
hún fallist á niðurstöðu nefndar-
innar hvað varðar fjárhag næsta
árs.
Nefndin tók einnig fyrir í starfi
sínu hlutverk Menningarsjóðs
útvarpsstöðva og aðflutnings-
gjöld. Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra hefur óskað eftir
að nefndin skili áliti um Ríkis-
útvarpið í janúar og í kjölfarið
skoði nefndin útvarpslögin í heild
og skili um þau áliti áður en þing
verður úti en menntamálaráð-
herra segist vonast til að endur-
skoðun útvarpslaga nái fram á
yfirstandandi þingi. JÓH
aftur smygluðu áfengi og bjór
liggur enn óafgreitt hjá ríkis-
saksóknara. Hefur margt
undarlegt komið fram í sam-
bandi við það mál svo ætla má
að dómskerfin í landinu séu nú
orðin tvö, annað fyrir sýslu-
menn og aðra háttsetta starfs-
menn ríkins og hitt fyrir hinn
almenna borgara.
Sú fregn hefur flogið þótt ekki
hafi hún fengist staðfest að Jóni
ísberg, sýslumanni hafi verið gef-
inn kostur á að skila inn greinar-
gerð vegna þessa máls og það er
nokkuð sem sakborningum er
almennt ekki boðið upp á.
Stjórn L.L. hefur ekki fengið
þetta staðfest og því síður hvort
sýslumaðurinn hefur nýtt sér
þessi fríðindi.
Lögreglumaðurinn Þór er enn í
„stofufangelsi“ á Skagaströnd og
sviptur lyklavöldum að aðal-
stöðvum lögreglunnar á Blöndu-
ósi. Þetta mun kosta ríkið éitt-
hvað aukalega í greiðslum vegna
aukavinnu þar sem aðrir lögreglu-
menn eru frekar kvaddir út á
aukavaktir, á Blönduósi ef með
þarf, heldur en að Þór sé kallaður
þangað til starfa á sínum vöktum.
Ákvæði mun vera í kjarasamn-
ingum lögreglumanna þar sem
svo er kveðið á að reynt sé eftir
megni að jafna tilfallandi auka-
vinnu niður á fastráðna lögreglu-
menn innan embættanna. Þór tel-
ur sig vera hlunnfarinn á þessu
sviði og er það reyndar ekki í
fyrsta sinn sem það hefur gerst
síðan núverandi aðalvarðstjóri í
húnvetnsku lögreglunni komst í
þá stöðu, að lögreglumönnum
hafi verið mismunað í auka-
vinnu.
Fleira hefur undarlegt gerst í
seinni tíð við embætti sýslumanns
Húnvetninga.
Dagur hefur fengið staðfest að
á sl. hausti hafi réttindalausum
lögreglumanni sem ekki hafi sótt
Lögregluskóla ríkisins verið falið
það trúnaðarstarf að halda nám-
skeið fyrir þá sem vildu öðlast
leyfi til að fara með og eignast
skotvopn. Meðferð skotvopna er
kennd í Lögregluskóla ríkisins og
það er örugglega ekki ætlað öðr-
um en þeim sem sótt hafa skól-
ann að gefa fólki heimild til að
meðhöndla skotvopn. Það hvílir
mikil ábyrgð á þeim sem annast
þessa kennslu og hlýtur að þurfa
að gera þá kröfu til þeirra að þeir
hafi hlotið meiri menntun í þess-
um fræðum en hinn almenni
skotveiðimaður hefur.
Aðalvarðstjórinn ungi er dugn-
aðarpiltur og tekur þátt í radar-
mælingum með mönnum sínum
og er ekkert nema gott eitt um
það að segja. Hitt þykir mörgum
dálítið undarlegt að hann undir-
ritar einnig sektarboð vegna
hraðakstursbrota og mun hafa
umboð til að ákveða sektir í þeim
málaflokki. Það að sami maður
skuli kæra ökumenn og síðan
ákveða sektir mun vera fátítt eða
líklega öllu heldur einsdæmi sem
betur fer. fh
* 'W"
n» ti
*»■« fcFt lWJ U U M;