Dagur - 22.12.1988, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - 22. desember 1988
Opio
til kl. 22.00
Blönduos:
Verslimareigendur telja versl-
unina vera að flytjast til
stórmarkaða í Reykjavík
★ Kertaskreytingar
★ Hyasintuskreytingar
★ Aðventuskreytingar
★ Skreytingaefni
★ Túlípanavendir
★ Afskorin blóm
★ Blómaskreytingar
★ Gjafavörur-
AKUR
KAUPANGIV/ MÝRARVEG 602 AKUREYRI
SÍMAR 24800 & 24830 PÓSTHÓLF 498
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 68511
I kvöld fimmtudag
HAGKAUP
Akureyri
- er verslun
Mikið hefur verið um það rætt
og ritað að verslunin af lands-
byggðinni sé að færast í aukn-
um mæli til stórmarkaðanna í
Reykjavík. Sú góða færð sem
hefur verið um vegi landsins
það sem af er vetrinum hefur
trúlega stuðlað að því á sinn
hátt að fólk hefur ekki talið
á landsbyggðinni að líða undir lok?
eftir sér að sækja verslunina
um langan veg ef það hefur tel-
ið sér fjárhagslegan hag í því.
—
‘GJ^t
: ••
wfe,
Dregið á morgun,
Þorláksmessu!
■Á-mmm
Dagur kannaði hjá verslunar-
eigendum á Blönduósi hvort þeir
teldu að verslunin væri að færast
út úr byggðarlaginu.
Einar Þorláksson sem rekur
Verslunina Vísi sagði að greini-
legur samdráttur væri í verslun-
inni þótt aðeins hefði verið
líflegra síðustu dagana. Hann
taldi engan vafa á að verslunin
væri að færast úr héraðinu. „Pað
er ekki orðið svo lengi skroppið
'til Reykjavíkur. Það er hægt að
fara suður að morgni til að versla
og koma til baka að kvöldi,"
sagði Einar.
Ingunn Gísladóttir deildar-
stjóri hjá Kaupfélagi Húnvetn-
inga sagði að greinilegur sam-
dráttur væri í versluninni. Það
virtist hreinlega vera orðin tíska
að sækja verslunina lengra til,
ýmist til Reykjavíkur eða jafnvel
til annarra landa.
Að sögn Ingunnar er áberandi
hvað fólk hylltist nú meir en áður
til að kaupa nytsama hluti til jól-
agjafa heldur en skrautmuni. Hjá
KH hefur sala í málningu og gól-
fteppum dregist saman og það
bendir ótvírætt til að fólk hafi
minni peninga handa á milli til að
laga til í híbýlum sínum fyrir
jólin.
„Ég held að lítill hagnaður sé
af þessum verslunarferðum og
þegar til lengra tíma er litið þá er
hreinlega verið að grafa undan
atvinnu í héraðinu með því að
flytja viðskipti og þar með fjár-
magn í burtu. Þeir sem versla hér
eru fyrst og fremst að kaupa
eitthvað gagnlegt. Svo er fólk oft
alveg undrandi á að við skulum
ekki hafa til vöru sem það hefur
ekki getað fengið annars staðar,“
sagði Ingunn.
I tískuvöruversluninni „Búðin
sérverslun,,, sagði Margrét
Skúladóttir að samdrátturinn
væri greinilegur og hún fullyrti að
það stafaði að stærstum hluta af
því að verslunin væri sótt út fyrir
héraðið.
Skást var hljóðið í Elínu
Grímsdóttir í húsgagnaverslun-
inni Ósbæ. Hún sagðist að vísu
verða vör við að verslunin hefði
dregist saman ef miðað væri við
sl. ár sem hefði verið algjört met-
ár í allri verslun. Hún hefur ein-
nig á boðstólum ljós og gjafavöru
sem hún sagði að væri góð sala í,
sérstaklega þeirri gjafavöru sem
ekki væri boðið upp á hjá öðrum
verslunum í bænum. Elín kvaðst
þó hafa heyrt mikið talað um
verslunarferðir fólks til Reykj-
avíkur og taldi að hagnaður fólks
af slíkum ferðum væri oft ekki
mikill.
Það að sækja verslun um lang-
ann veg hlýtur alltaf að vera
kostnaðarsamt og hætt er við að
fólk geri meiri innkaup en það
nauðsynlega þarf til að kostnað-
urinn af ferðinni skiptist niður á
meira vörumagn. Sennilega ósk-
ar enginn eftir því að verslunin
úti í dreifbýlinu líði undir lok og
færist alfarið til stórmarkaðanna.
fh