Dagur - 22.12.1988, Blaðsíða 11
22. desember 1988 - DAGUR - 11
munksins sem er falið að rannsaka dularfullt
Jack Nicholson leikur aðalhlutverkið í
Heiðri Prizzis ásamt Kathleen Turner.
Linda Kóslowski og Paul Hogan í Krókódíla
Dundee.
ittursonur skáldsins, í hlutverkum skáldsins og
psmvndin Bjargvættir jólanna er á dagskrá
'psins föstudaginn 23. desember.
hlutverk fara þau Edda Heiðrún
Bachmann, Pröstur Leó Gunn-
arsson og Jóhann Sigurðarson.
Loks er My Fair Lady á
dagskrá og víst er að margir
munu kætast yfir þessari sígildu
söngvamynd. Þetta er bandarísk
uppfærsla frá árinu 1964 með
Rex Harrison og Audrey Hep-
burn í aðalhlutverkum. Myndin
er byggð á sögu Bernards Shaw,
Pygmalion, og fjallar um hefð-
armann sem veðjar við vin sinn
um að hann geti gert hefðarkonu
úr blómasölustúlku.
Djákninn í nútímabúningi
Mánudaginn 26. desember, ann-
an dag jóla, er Svikaprinsinn á
dagskrá Sjónvarpsins. Þetta er
þýsk ævintýramynd frá 1986,
byggð á sögu eftir William Hauff.
Eftir blessaðan kvöldmatinn,
fréttir og Nonna, kyrjar Leonard
Cohen nokkur þekkt lög í Laug-
ardalshöll í þætti er nefnist „Það
er gott að vera hér“. Einnig er
brugðið upp svipmyndum frá
dvöl Cohens á íslandi og Hrafn
Gunnlaugsson ræðir við skáldið
og tónlistarmanninn.
Loks er Djákninn á dagskrá.
Þetta er ný íslensk sjónvarps-
kvikmynd eftir Egil Eðvarðsson,-
byggð á hinni þekktu þjóðsögu
um Djáknann á Myrká. Hér er
um að ræða nútímamynd sem
gerist í Reykjavík á okkar
dögum, en þó eiga persónur og
atburðarásin sjálf sér beinar hlið-
stæður við bióðsöguna.
Aðalpersónurnar eru Dagur og
Gugga, ungt og ástfangið fólk.
Eitt kvöld ætla þau saman á
grímuball og þótt Dagur farist af
slysförum kemur hann samt og
sækir hana. Með aðalhlutverk
fara þau Valdimar Örn Flyger-
ing, María Ólafsdóttir og Guð-
rún Ásmundsdóttir. Á undan
sýningu myndarinnar ræðir Ólaf-
ur Ragnarsson við Egil Eðvarðs-
son leikstjóra.
Þættir um Jóhann
Hjálmarsson og
Guðmund Kamban
I öðrum draumi nefnist þáttur
um Jóhann Hjálmarsson skáld,
sem er á dagskrá Sjónvarpsins
þriðjudaginn 27. desember. Á
miðvikudaginn verður Lilja,
mynd eftir sögu Halldórs Laxness
endursýnd og þá verður fylgst
með tökum á Kristnihaldi undir
jökli. Guðný Halldórsdóttir,
dóttir skáldsins, leikstýrir þeirri
mynd.
Á fimmtudag verður sýnd
heimildarmynd um leikritaskáld-
ið Guðmund Kamban, sem Viðar
Víkingsson og Hallgrímur H.
Helgason gerðu fyrir Sjónvarpið.
Á föstudaginn 30. desember
hefst nýr teiknimyndaflokkur um
Gosa og um kvöldið verður bein
útsending frá leik Islands og
Danmerkur í handknattleik.
Á gamlársdag hefst dagskráin
kl. 13 með fréttum og síðan tekur
við barnaefni til kl. 15. Þá verður
bein útsending úr ensku knatt-
spyrnunni og því næst íþrótta-
annáll.
Kvölddagskráin hefst með
ávarpi forsætisráðherra og síðan
koma innlendur og erlendur
fréttaannáll. Klukkan 21.30 verð-
ur þátturinn Á því Hermanns ári
á dagskrá, en þar er á ferðinni
skemmtiþáttur með Hermanni
Gunnarssyni og Elsu Lund. Atriði
úr eldri þáttum Hermanns eru
skoðuð og gestir koraa í sjón-
varpssal, má þar nefna íþrótta-
Bjarna, Saxa lækni, Þórð
húsvörð og Ómar Ragnarsson.
Hefðbundin efnistök
í Áramótaskaupi
Um klukkan 22 verður þátturinn
Úr söngvaseið endurfluttur, en
þar syngja Egill Ólafsson, Krist-
ján Jóhannsson og fleiri áramóta-
lög.
Þá kemur Áramótaskaupið
sívinsæla. Að þessu sinni sér
Gísli Snær Erlingsson um skaup-
ið, sem verður með hefðbundnu
sniði. Stjórnmál og ýmis atvik
þjóðlífsins eru skoðuð í spé-
spegli.
Að skaupinu loknu flytur
Markús Örn Antonsson kveðju
frá Ríkisútvarpinu og laust eftir
miðnætti hefst kvikmyndin Leik-
húsbraskararnir (The Produc-
ers). Þarna er á ferðinni gaman-
mynd sem háðfuglinn Mel Brooks
gerði árið 1968.
Á nýársdag hefst dagskrá Sjón-
varpsins með beinni útsendingu
frá nýárstónleikum í Vínarborg.
Þar verða spilaðir valsar eftir
Jóhann Strauss.
Óperan Don Giovanni verður
síðan flutt upp úr klukkan hálf
þrjú. Hér er um að ræða flutning
Scala óperunnar á þessari kunnu
óperu eftir Wolfgang Amadeus
Mozart.
Um kvöldmatarleytið er
Graceland á dagskrá. Þetta eru
tónleikar með Paul Simon og 25
blökkumönnum í Suður-Afríku.
Eftir fréttir verður ný sjón-
varpsmynd á dagskrá. Hún heitir
Pappírs-Pési og er eftir Herdísi
Egilsdóttur.
Næst kemur Jökull, heimildar-
mynd sem Sigmundur Arthurs-
son gerði þegar Jöklarannsókna-
félag íslands byggði skála og fór
með hann á Grænafjall í fyrra-
vor.
Dagskránni lýkur með bíó-
myndinni Stundvísi (Clockwise),
með sprelligosanum John Cleese
í aðalhlutverki.
Á þessari upptalningu má sjá
að Sjónvarpið og Stöð 2 láta ekki
sitt eftir liggja til að'hafa ofan af
fyrir fólki um jólin og nú verður
aðalvandamálið að velja og
hafna. Verði ykkur að góðu. SS
Til sölu 86,6 fm iðnaðar-
húsnæði við Frostagötu
Húsnæði þetta er nýfrágengið, ónotað og til
afhendingar strax.
Símsvari tekur við skilaboðum allan sól-
arhringinn.
Opiðfrá kl. 17-19.
Fasteignasalan hf.
Gránufélagsgötu 4,
efri hæð, sími 21878.
Hermann R. Jónsson, sölumaður
heimasími utan skrifstofutíma er 25025.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur.
Guðmundur Kr. Jóhannsson, viðskiptafræðingur.
Félag
fasteignasala
Auglýsendur athugið!
Fyrsta blað eftir jól kemur út
miðvikudaginn 28. desember.
Skilafrestur auglýsinga er til kl. 11.00 þriðjudag-
inn 27. desember nema um stærri auglýsingar sé
að ræða, en þær þurfa að berast fyrir kl. 16.00
föstudaginn 23. desember.
auglýsingadeild, sími 24222.
v ______________________/
Tj\ 111 j lifllllll
7t 1111 j nm\
mumm
'wuHIISmi ífijm
••• Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400