Dagur - 22.12.1988, Blaðsíða 15

Dagur - 22.12.1988, Blaðsíða 15
I 8881 Tr'dmosob SS - FiUDAC ■ 8f 22. desember 1988 - DAGUR - 15 „Einn hélt á rós í hendi, tralla, lalla, la . . .“ Ju, það leikur ekki vafi á að hann er á undan að bjöllunni í spurningakeppninni. Pau voru prúðbúin börnin í Grunnskóla Saurbæjar- hrepps er þau mættu til Litlu-jólanna í skólann sinn að morgni þess 20. desember. Úti var dimmt og kalt, en inni ríkti mikil eftirvænting. Lessi skemmtun er sú eina af fjórum stórum árlegum skemmtunum sem foreldrar mæta ekki á, en börnin létu það ekki á sig fá og skemmtu sér hið besta. í skólanum eru 33 nemendur á aldrinum 6-12 ára, 3 kennarar í fullu starfi og 2 í stundakennslu. Skólastjóri er Gunnar Jónsson. Litlu jólin Pað kom á daginn, að Gunnar hafði rétt fyrir sér þegar við spjölluðum við hann áður en skemmtunin hófst, en þá sagði hann að ekkert jafnaðist á við litlu jóíin í -sveitaskólum. Persónutengsl verða óneitanlega meiri þegar allir þekkjast eins vel og raun ber vitni. Þegar allir höfðu komið sér notalega fyrir var fyrsta atriðið kynnt, en það var flutningur yngstu nemendanna á lögunum um Þyrnirós sem var besta barn og þrjá litla hermenn, en sérhver aldurshópur í skólanum sá um sitt skemmtiatriði. Næst fluttu 1. og 2. bekkur tvo leikþætti, um Litla og Stóra og Prinsessuna á bauninni sem fjallar um prinsinn sem sendur var út til þess að finna sér prinsessu að kvænast. Þá var komið að 9 og 10 ára börn- unum. Fluttu þau bráðskemmti- legan leikþátt tengdan jólunum. Voru þar saman komin hjúin þau Grýla og Leppalúði ásamt fimm óþekkum og frekum jólasvein- um. Forskólabörnin fengu fm' næst að spreyta sig á getraun, sem fólst í því þekkja á lát- bragðsleik nafn jólasveina. Eins og búast mátti við, voru þau ekki í vandræðum með það. Elstu börnin luku dagskránni með spurningakeppni milli stráka og stelpna. Þeir sem vissu rétt svar áttu að hlaupa að bjöllu á gólf- inu, fyrr máttu þau ekki svara. Vissulega gekk oft mikið á, en strákarnir sigruðu með 10 réttum svörurn gegn 7 hjá stelpunum. Á milli atriða stjórnaði sr. Hannes Örn Blandon fjölda-jóla- söng og var að sjálfsögðu vel tek- ið undir. Að skemmtiatriðum loknum, kveiktu börnin á kertum og sungu Heims um ból svo vel, að jólastemmningin var í hámarki. Segja má að engin séu jólin án jólasveina. Börnin í Sólgarði eru a.m.k. á þeirri skoðun og tóku sig því til og sungu þá ofan úr fjöllunum. Við héldum að þakið myndi rifna af húsinu, svo hátt var sungið enda bar það árangur og þeir Hurðaskellir og Glugga- gægir komu askvaðandi við mik- inn fögnuð viðstaddra. Þeir eru skrítnir kallar eins og flestum er kunnugt og átti Gluggagægir blessaður við þann heilsubrest að stríða, að hann var orðinn hálf sjónlaus af öllu glápinu. Það kom þó ekki að sök á meðan þeir félagar dreifðu jólapóstinum til barnanna, en þar voru komin jólakort þeirra hvers til annars. Hátíðinni lauk með dansi og söng í kringum jólatréð, en við kvöddum og óskar Dagur öllum sem þátt tóku gleðilegra jóla og þakkar frábærar móttökur. Myndir: TLV Texti: VG Jólasveinarnir runnu á sönginn og komu askvaðandi til fagnandi barn- anna. Nútíminn hefur greinilega haldið innreið sína í helli Grýlu og Leppalúða, því hann hefur lokið við að lesa Dag og svo er síminn við höndina ef með þarf. Að lokum gengu allir kringum jólatréð en nú er skólinn væntanlega yfirgef- inn og bíður þess að börnin mæti þangað kát og hress á nýju ári. Hér eru komnir tengdaforeldrar prinsessunnar á bauninni ásamt hirðfífli sínu. Allir í röð, því dýrindis ís bíður þess að lenda í tómum mögum. Sr. Hannes Örn Blandon stjórnaði fjöldasöng og lék undir ásamt unga blokkflautuleikaranum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.