Dagur - 22.12.1988, Blaðsíða 19
íþróttir
Lyftingar:
„Árangurimi hefur komið mér á óvart“
- segir Haraldur Ólafsson Lyftingamaður íslands 1988
Körfuknattleiksmennirnir ungu úr Tindastól sem fengu verðlaun fyrir síðasta keppnistímabil. Frá vinstri: Örn Sölvi
Halldórsson, Jón Óskar Júlíusson, Pétur Vopni Sigurðsson, Hilmar Hilmarsson, Sigurður Levy, Ómar Sigmarsson,
Ragnar Pálsson, Atli Freyr Sveinsson, Halldór Halldórsson, Hinrik Heiðar Gunnarsson og Ingvar Ormarsson.
Mynd: -bjb
22. desember 1988 - DAGUR - 19
Knattspyrna:
Aftnælismót KA haldið
milli jóla og nýárs
- markmaður með á stærri velli
Haraldur Ólafsson Lyftingamaður íslands 1988.
Mynd: GB
Lið KA, sem sigraði á Laugamótinu í innanhússfótbolta verður að sjálfsögðu
með á afmælismóti félagsins. Mynd-. óþ
Það er LFA sem er fram-
kvæmdaaðili að mótinu og líklegt
að mikið mæði á manni í sam-
bandi við skipulagningu og fram-
kværnd mótsins. Ég býst þess
vegna ekki við neitt sérstökum
árangri hjá mér á því móti. En ég
vil láta koma hér fram þakklæti
til íþróttaráðs bæjarins fyrir að
styðja við bakið á okkur því án
velvildar þeirra myndi þetta
Norðurlandamót ekki vera hald-
ið hér á Akureyri.“
- Nú ert þú 26 ára og hefur
verið með fremstu lyftingamönn-
um hér á landi í nokkur ár. Hvað
getur lyftingamaður verið á
toppnum lengi?
„Það veltur mikið á því hvort
maður sleppur við meiðsli eða
ekki. Ef maður er blessunarlega
laus við þann fjanda, þá er hægt
að vera á toppnum allt fram að 35
ára aldri. Það er yfirleitt talað um
að lyftingamenn geti verið í topp-
keppni frá 25-35 ára aldurs.
Þetta veltur líka á því hvort
maður fer út í þjálfun og kennslu
samhliða keppni, en það getur
haft áhrif á árangur. Én að öllu
óbreyttu má búast við mér í
keppni í 4-6 ár í viðbót.“
- Hvernig standa lyftingarnar
núna á Akureyri?
„Þær standa nú bara nokkuð
vel. Það er t.d. allt annað ástand
en fyrir tveimur eða þremur
árum þegar ég kom aftur heim
frá Svíþjóð. Endurnýjunin hefur
verið ágæt síðan þá og nú er
kominn harðsnúinn 10-12 manna
keppniskjarni fyrir utan marga
sem æfa einungis sér til heilsubót-
ar.
Það er því búið að koma fótun-
um undir lyftingarnar aftur hér á
Akureyri og allt tal um að þær
séu að deyja út er út í hött. í
þessu sambandi vil ég þakka
stjórn ÍBA fyrir að leggja mér lið
í baráttunni við að halda þessari
íþrótt gangandi en þeir voru
boðnir og búnir að aðstoða mig
þegar ég byrjaði að æfa aftur hér
á Akureyri.“
- Hvernig líst þér á framtíð-
ina?
>>Ég er þokkalega bjartsýnn.
Það eru margir efriilegir strákar
að æfa núna og ég er þess fullviss
að innan fárra ára verður kominn
upp öflugur hópur hér lyftinga-
manna á Akureyri á landsmæli-
kvarða,“ sagði Haraldur Ólafs-
Knattspyrnudeild KA stendur
miklu afmælisknatt-
spyrnumóti í íþróttahöllinni
milli jóla og nýárs. Leikið
verður á stærri velli en venju-
lega, með markmanni og skor-
un alls staðar af vellinum.
Ásamt tveimur liðum frá KA
er Þór, Reyni, Dalvík, Magna,
Tindastól og Leiftri boðið að
taka þátt í mótinu.
Mótið þefst kl. 14 á miðviku-
daginn og verður leikið í tveimur
riðlum. Sigurvegararnjr komast
síðan áfram og keppt verður um
veglegan bikar en mótið er liður í
60 ára afmælishátíð KA.
íslandsmótið innanhúss verður
leikið eftir þessum nýju reglum
og verður gaman að sjá hvernig
nörðanliðunum líkar að leika
eftir þessum breyttu reglum,
enda er þetta góð æfing fyrir
íslandsmótið í janúar.
Flest þessara liða tóku þátt í
Laugamótinu í innanhússfótbolt-
anum og þar sigruðu KA-menn
eftir hörkukeppni við Magna og
HSÞ-b. Þingeyingarnir eru nú
ekki með í þessu móti en Magna-
menn mæta í mótið galvaskir.
Mótið er góð æfing fyrir
íslandsmótið en það verður núna
í fyrsta skipti leikið með breyttu
fyrirkomulagi. Að vísu verður
gólfstærðin sú sama í Laugardals-
höllinni og áður en fjölgað verð-
ur um markmanninn þannig að 5
leikmenn verða inn á vellinum í
hvert skipti. Mörkin eru 2x5
metrar en það er sú stærð sem
notuð er þegar leikið er þvert á
knattspyrnuvelli.
Afmælismótið er því kærkom-
in æfing fyrir þetta breytta fyrir-
komulag og verður alveg örugg-
lega þess virði að bregða sér í
Höllina á miðvikudaginn.
Haraldur Ólafsson lyftingamað-
ur var útnefndur Lyftingamaður
íslands af LSÍ fyrir árið 1988.
Hann náði mjög góðum árangri
á árinu og má þar helst nefna
að hann margbætti Islandsmet-
ið í snörun, jafnhendingu og
samanlögðu. Einnig sigraði
hann á alþjóðlegu Iyftingamóti
í Danmörku í haust. Dagur
ræddi við Harald um titilinn og
árangur hans á árinu.
Nú valdi Lyftingasambandið
þig sem lyftingamann ársins.
Kom þessi útnefning þér á óvart?
„Nei, það er ekki hægt að segja
það. Árangurinn í ár hefur verið
mjög góður hjá mér og þar má
t.d. nefna að ég bætti 15 ára
gamalt met Guðmundur Sigurðs-
sonar í samanlögðu, setti íslands-
met í snörun og sigraði á alþjóð-
legu móti í Danmörku í haust.
Hins vegar verð ég að viður-
kenna að árangur ársins hefur
komið mér frekar á óvart. Þetta
er fyrsta árið síðan 1984 sem ég
næ að bæta mig verulega og það
er dálítið sérstakt því ég hef verið
að þjálfa og leiðbeina samhliða
því að æfa sjálfur. Þjálfun og
keppni fer yfirleitt ekki vel
saman, en það virðist hafa gefið
góða raun hjá mér.
Eina skýringin sem ég get gefið
er sú að ég hef æft vel í ár, sam-
hliða því að leiðbeina öðrum.
Einnig má segja að stífar æfingar
undanfarinna ára séu nú að skila
sér.“
- Hvernig hefur árangurinn
verið hjá þér í tölum?
„Á íslandsmótinu í apríl snar-
aði ég 138 kg og bætti þar sex ára
gamalt met Baldurs Borgþórs-
sonar. í jafnhendingu tók ég 174
kg og í samanlögðu lyfti ég 310
og bætti þar met Guðmundur
Sigurðssonar frá 1972.
Á mótinu í Danmörku jafn-
henti ég 175 kg og á Akureyrar-
mótinu nú fyrir skömmu bætti ég
íslandsmetið í samanlögðu og
lyfti 312 kg.“
- Hvaðerframundanhjáþér?
„Það er fyrst og fremst að æfa
fyrir íslandsmótið sem er
skömmu eftir áramótin. Síðan er
það auðvitað stóra verkefnið,
Norðurlandamótið, sem haldið
verður í íþróttahöllinni hér á
Akureyri í apríl.
Karfa:
Tindastóll heiðrar
yngriflokkaleikmenn
í síðustu viku fór fram síðbúin
verðlaunaafhending hjá körfu-
knattlciksdeild Tindastóls til
handa ungum körfuknattleiks-
mönnum sem stóðu upp úr á
síðasta keppnistímabili, vetur-
inn 1987-’88. Það voru leik-
menn úr minnibolta-flokki, 5.,
4. og 3. flokki sem fengu verð-
laun að þessu sinni, alls 11
ungir og efnilegir körfuknatt-
leiksmenn. Það var Matthías
Viktorsson frá körfuknatt-
leiksdeildinni sem afhenti
verðlaunin.
í minniboltanum var það
Ómar Sigmarsson sem hlaut
gullið, Halldór Halldórsson hlaut
silfur og bronsið fékk Hilmar
Hilmarsson. Leikmaður 5. flokks
í fyrra var Jón Óskar Júlíusson,
Ingvar Ormarsson var með bestu
ástundun og Hinrik Heiðar
Gunnarsson sýndi mestu fram-
farir.
Pétur Vopni Sigurðsson var
leikmaður 4. flokks og jafnframt
hlaut þessi efnilegi körfuknatt-
leiksmaður framfaraverðlaun
yngri flokkanna að þessu sinni.
Sigurður Levy var með bestu
ástundum í 4. flokki og mestu
framfarirnar í þeim flokki sýndi
Ragnar Pálsson. Atli Freyr
Sveinsson hlaut gull í 3. flokki,
Örn Sölvi Halldórsson fékk silfur
og enginn annar en Sigurður
Levy fékk bronsið, en hann lék
með tveim flokkum síðasta
vetur.
Að sögn forráðamanna körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls er
síðan stefnt á að afhenda verð-
laun í yngri flokkum fyrir þetta
keppnistímabil á réttum tíma,
þ.e.a.s. skömmu eftir að mótið er
búið.