Dagur - 22.12.1988, Qupperneq 17
22. desember 1988 - DAGUR - 17
Söngtónleikar
Barböru og Jóhannesar
Barbara Vigfússon sópran-
söngkona og Jóhannes Vigfús-
son píanóleikari halda tónleika
á Dalvík, Akureyri og að
Breiðumýri í Reykjadal um
jólin. A tónleikunum flytja
þau lög eftir bandaríska tón-
skáldið Georg Gershwin,
franska tónskáldið Francis
Poulenc og Svisslendinginn
Othmar Schoeck.
Fyrstu tónleikarnir verða
haldnir í Víkurröst á Dalvík,
annan jóladag kl. 11, í samvinnu
við Tónlistarfélag Dalvíkur.
Aðrir tónleikarnir verða
haldnir á sal Menntaskólans á
Akureyri miðvikudaginn 28. des-
ember kl. 20.30 í samvinnu við
Tónlistarfélag Akureyrar og þeir
þriðju að Breiðumýri í Reykjadal
fimmtudaginn 29. des. kl. 20.30.
Hjónin Barbara og Jóhannes
eru búsett í Sviss og hafa þau
haldið fjölmarga tónleika saman,
í Sviss, Þýskalandi, Bandaríkjun-
um og einnig á íslandi. Þau hafa
hlotið mikið lof fyrir efnisskrána
sem þau flytja á Islandi og hefur
upptaka með flutningi þeirra á
lögunum eftir Gershwin og Scho-
eck verið gefin út.
Víða um heim var þess minnst
á sl. ári að 50 ár voru liðin frá
dánardægri Georg Gershwin,
eins dáðasta og vinsælasta tón-
skálds Bandaríkjanna á þessari
öld, en Barbara og Jóhannes
flytja nokkur þeirra laga sem
hvað mestrar hylli hafa notið, s.s.
„I got rythm“, „The man I love“,
Barbara Vigfiisson sópransöngkona.
Jóhannes Vigfússon píanóleikari
„Somebody loves me“ o.fl.
Svissneska tónskáldið Othmar
Schoeck (1886-1957) var rnikils
metinn í Sviss, sem tónskáld,
kórstjóri og hljómsveitarstjóri.
Auk óperu-, kór- og hljómsveit-
arverka samdi hann mikinn
fjölda sönglaga sent njóta vin-
sælda víða um heini.
Franska tónskáldiö Poulenc
(1899-1963) tilheyrði þeim hópi
tónskálda sem nefnd voru „hinir
sex“ og höfðu mikil áhrif á þróun
tónsmíða á fyrri hluta þessarar
aldar. Sönglög Poulenc hafa not-
ið mikilla vinsælda og búa þau
yfir einstökum töfrum og krafti.
Barbara Vigfússon nam söng
við Tónlistarháskólann í Frankfurt
hjá Elsa Cavelti og síðar við
Tónlistarháskólann í Zúrich, en
hún útskrifaðist þaðan. Hún
lagði síðan stund á framhaldsnám
hjá Maria Stader. Hún tók einnig
virkan þátt í námskeiðum hjá
Irvin Gage og flutti opinberlega
ljóðaflokkinn „Marienleben" eft-
ir Hindemith í samstarfi við
liann. Hún hefur haldið fjölda
tónleika og sungið í útvarps-
upptökum í Köln, Zúrich og
Reykjavík.
Jóhannes Vigfússon var fyrsti
nemandinn sem útskrifaðist í
píanóleik við Tónlistarskólann á
Akureyri. Hann hclt síðan til
Zúrich þar sem hann lagði stund
á nám í eðlisfræði og píanóleik.
Jóhannes lauk doktorsprófi í
eðlisfræði, svo og lokaprófi í
píanóleik frá Tónlistarháskólan-
um í Zúrich. SS
Litið á nýbökuð brauð.
Myndir: 1M
Brauðgerð KÞ:
Niðurskomar tertur á markaði
- rett eins og heimabakaðar
„Ég fæ að kíkja í uppskrifta-
bækurnar hennar ömmu því ég
vil hafa terturnar sem líkastar
heimabökuðum,“ sagði Helgi
Sigurðsson bakarameistari hjá
Brauðgerð KÞ. Nú fyrir jólin
voru tertur frá Brauðgerðinni
settar á markað, um er að
ræða bæði brúnar og Ijósar
niðurskornar tertur og hefur
vel tekist til því þær smakkast
rétt eins og þær væru komnar
úr eldhúsunum frá ömmunum.
Þessari nýju framleiðslu hefur
að vonum verið vel tekið og ætl-
unin er að terturnar verði fram-
vegis á boðstólum fyrir hátíðir.
„Það er óvenju mikið búiö að
vera að gera í vetur og svo tók
salan stökk í desentber,“ sagði
Helgi er Dagur kom við í brauð-
gerðinni á föstudaginn. Þá átti að
fara að búa til laufabrauð og
sagði Helgi að nú færi hver dagur
að verða síðastur í laufabrauðs-
gerðinni en það er búið til.sam-
kvæmt pöntunum. Um 30 þúsund
kökur hafa verið gerðar hjá
Brauðgerðinni í nóvember og
desember og er þetta þriðja árið í
röð sem aukning verður á sölu á
laufabrauði.
Helgi sagði að rosaleg aukning
væri í sölu svampbotna, þeir eru
til bæði brúnir og Ijósir í þrem
stærðum og auk þess eru bakaðir
marensbotnar, kókosbotnar,
döðlubotnar og kornflakesbotnar
en þeir eru nýkomnir á markað-
inn. „Ég á eftir að auka fjöl-
breytnina og koma með enn
fleiri,“ sagði Helgi. „Það er þrem
til fjórum dögunt fyrir jól sem
salan í tertubotnunum tekur
verulegan kipp og Þorláksmessu-
dagur er einn stærsti dagurinn í
sölu, aðeins bolludagur er stærri.
Annars er ekki minna um að vera
í brauðgerðinni fyrir páskana en
jólin, nema hvað laufabrauðið
bætist þá við.“ IM
Jólatilboð.
fra Radionausti
14" \/erð fré Hr.
19.900,-
20" v&ð fré Hr.
29.900-,
IJVC
\Jerð fré Hr.
29.900,-
Ath.
J[/C 5uper VH5
Homið aftur
\jerð fré Hr.
7 1.900,-
Bang&Olutsen
§ 171 ]-|-| 'u.'rg
|T€C __
% BONDSTEO
V/erð fré Hr.
18.700,
t /MA/AX
H„em ryHsugu ^qqqO,-
Hoover gufustraujarn
úwal af smárafte^m «
einnig
Naust ©21300 • Glerárgötu 26 • 600 Akureyri
%
©
0
Mýjar vörur
— vandadar vörur
Kaupmannafélag
Akureyrar
Opið
til kl. 22.00
I kvöld fimmtudag
HAGKAUP
Akureyri